Alþýðublaðið - 18.12.1960, Síða 1
itwMmmvvmi
41. ár. — Sunnudagur 18. ‘desember 1960. — 289. ttil.
HANN var blása á skólaskemmtun þegar
okkur bar að garði. Hann blés hátt og hann
blés snjallt, enda var hann að blása jólafríið
inn. Hann heitir Komáð (Konni) Lúðvíksson og
er í Lúðrasveit Vesturbæjar, sem er skipuð 22
tóndjörfum unglingum. Þið sjáið kannski, að
hann er ögn tileygður á myndinni. Það er hann
ekki daglega. Hann setti bara upp þennan spari-
svip fyrir Ijósmyndarann okkar.
MMWMMMMMMtMMmUMMWMUMHMMtMMMMMMiMMVV
REIKNAÐ er'með að
Tryggingastofnun ríkisins
greiði 20 milljónir í bætur
í Reykjavík í desember-
mánuði. Er í engum mán
uði ársins greitt eins mik
ið í bætur eins og í þess-
um mánuði.
15. desember hófust útborg
anir á fjölskyldubótum og hef
ur verig mikil ös í afgreiðslu
Tryggingastofnunarinnar síð-
an. Dagana 15. og 16. desember
vom t. d. greiddar út bæt-
í Reykjavík 4 milljónir kr.
Mun mörgum þykja gott að
geta sótt bætur inn í Trygg-
ingastofnun svona rétt fyrir
jólin og sjálfsagt harma kaup
mennirnir það ekki að allar
þessar milljónir skuli fara í
umférð núna fyrir jólin.
Ekki eru þó þessar bætur
allar fyrir desembermánuð. T.
d. ern útborgaðar til fjöl-
1 skyldna með 1—2 'börn fjöl-
skyldubætur fyrir 3 mánaða
tímabil. Einnig er alltaf eitt-
hvað um það, að dráttur verði
á því að bætur séu sóttar og
munu margir er ekki hafa
vitjað bóta undanfarið, sækja
þær fyrir jólin.
KÆROUR
ENGINN togari landaði afla
í Reykjavík í vikunni sem leið.
Hafa togararnir haft lítið fyrir
stafni að undanförnu, og margr
ir notað tækifærið í áflaleysinu
til að láta framkvæma ýmiss
konar viðgerðir, auk þess scra
sumum togurum hefur beinlín-
is verið lagt vegna aflabrests-
ins.
T d. eru togararnii- Jón I>or-
láksson og Úranus í „klössun‘‘
og Geir í ketilhreinsun o. fl.
Hvalfell og Hállveig Fróðadótt-
ir hafa verið í höfn til viðgerða,
en fóru út í gær.
Af togurum, sem blaðið veit
um að hefur verið lagt, má
nefna Sigurð og Frey, 1000 lesta
togara, annan ísafjarðariogar-
ann, báða gömlu Akranesstog-
arana o. fl.
Pressuleikur
í kvöld
BÆJARFÓGETINN í Kefla
víkurkaupstað, Alfreð Gísla-
son, hefur verið kærður til
dómsmálaráðimeytisins fyrir
margs konar vanrækslu í
starfi sínu sem embættismað-
ur. Það er ungur æskulýðs-
leiðtogi í Keflavík sem kærir
bæjarfógetann.
Þegar Alþýðublaðið frétti
um kæruna, snéri það sér til
Baldurs Möller, deildarstjóra
í dómsmálaráðuneytinu, og
spurðist fyrir um málið. Ba’d-
ur gaf þau svör, að hann vissi
ekkert um málið, því ef svo
háttsettur embættismaður
yrði fyrir kæru, yrði um hana
fjallað á æðstu stöðum.
Framhald á 2. síðu.
í KVÖLD leika landslið
og pressulið í handknatt-
leik kvenna og karla í
Hálogalandi kl. 8,15. Má
búast við spennandi lerkj
um.
OPNAN!
OPNAN!
OPNAN!