Alþýðublaðið - 04.01.1961, Side 3
BRÚSSEL, 3. jan. (NTB/
REUTER). Gaston Eyskens for
sætisráðherra sigraði í fyrstu
lotu í deilunni á þingi, er
krafa frá jafnaðarmönnum
um, að sparnaðaráætlun ríkis-
stjórnarinnr yrði tlregin til
baka, var felld í neðri deild.
þingsins. Jafnfram hófst
þriðja vika verkfallsins mikla
og kom til nokkurra alvarlegra
átaka milli lögreglu og þátttak-
enda í mótmælafundum, bæði
í Briissel og Antwerpen.
I báðum þessum stórborgum
fóru um 15 000 verkfallsmenn
kröfugöngu um göturnar.
Bæði lcgreglumenn og kröfu-
göngum'enn urðu fyrir veruleg
um s'árum, og einkum í Ant-
KOSTA-
BOÐ
KHÖPN, 30. jan. (NTB/
REUTER). Tvö bandarísk sjón
varpsfyrintseki hafa boðið kon
unglega danska ballettinum
ógnarlegar upphæðir fyrir
heimild til að sjónvarpa list
hans. Er boðið upp á 420 þús.
dali og 700 þús. dali. Er tryggt
að jaifnaður verði hallinn á
Bandaríkjaför ballettsins ef
öðru hvoru tilboðinu verður
tekið.
werpen varð verulegt efnalegt
tjón bæði á sporvögnum og
strætisvögnum bæjarins og á
fyrirtækjum við göturnar,
sem kröfugangan fór um.
Mjög sterkur vörður lög-
reglu og hermanna var við
þinghúsið í Brússel og hélt
vopnuð herlögregla auk þess
vörð á göngum og stigum húss
ins. Úti fyrir stóðu a. m. k.
þrír skriðdrekar. Allt gekk
sarnt rólega. í garðinum fyrir
utan þinghúsið var einnig ríð-
andi lögregla, jeppar og aðrir
lögregluvagnar, vörubílar og
vatnsbílar með sprautum.
Einn af ræðumönnum jafn-
aðarmanna, Edmond I.eburton,
hélt því frm, að frumvarp rík-
isstjórnarinnar, sem sam-
kvæmt heiti sínu miðaði að
efnahagslegri útþenslu, fjár-
málalegri viðreisn og félagsleg
um framförum, miðaði í raun
og veru í þveröfuga átt. Lof_
orðin um efnahagslega út-
þenzlu væru aðeins til að slá
rvki í augu manna, og sparn-
aðurinn mundi fyrst og fremst
konia niður á eftirlaunafólki
oflf beim, sem nytu örorku- og
sjúkratrygginga, jafnframf því
sem skattahækkunin mundi
koma niður á öllu láglauna-
fólki. Hann krafðist þess, að
lasabálkurinn yrði dreginn til
baka, áður en það væri orðið
of seint.
Deildin felldi kröfu jafnað-
armanna með 21 atkvæði á
móti 83. Allir þingmenn ka-
bólskra og allir þingmenn
frjálslyndra, nema einn,
greiddu atkvæði með stjórn-
inni. Frjálslyndi þingmaður-
inn sat hjá.
Eyskens forsætisráð'herra
tók stuttlega til máls, en ræddi
ekki kröfuna um, að frum-
varpið yrði dregið til baka.
Hann lét í ljós ánægju sína
með, að kaþólska verkalýðs-
sambandið hefði ekki gerzt að
ili að verkfallinu
Deildin hóf síðan að ræða
frumvarp stjórnarinnar, en
forusta verkalýðssambands
jafnaðarmanna lýsti því yfir,
að ástæða væri til að gera ráð
fyrir fjölda mótmælafunda um
allt land.
í Namur í Suður.Belgíu
kom til átaka milli 4—5000
kröfugöngumanna og lögreglu
og hermanna. Tveir lögreglu-
menn særðust. Kröfugöngu-
menn köstuðu grjóti, en lög-
reglan beitti táragasi, segir
AFP. Hópur kröfugöngu-
manna náði strætisvagni á
vald sitt og börðu þeir öku-
manninn og einn farþega.
í Brúgge köstuðu meðlimir
kaþólska flokksins, stjórnar-
flokksins, eggjum í kröfu-
göngumenn. iÞeir brutu þá
gluggana á flokksskrifstofum
flokksins og einn lögreglumað
ur særðist, er hann reyndi að
stilla til friðar.
Vallónskir eða fr\nskumæl-
andi meðlimir jafnaðarmanna-
flokksins kröfðust þess í dag,
að stjórnarskrá Belgíu yrði
breytt þannig, að hinum
frönskumælandi hluta landsins
yrði frjálst að velja sína eigin
leið í efnahagsþróun. Þetta er
í fyrsta sinn í sögu flokksins,
að frönskumælandi þingmenn
hans lialdi fund einir sér.
Lýstu þessir þingmenn því yf-
ir, að það ástand, sem nú ríkti
í landinu, hefði gert það lýð.
um ljóst, að taka yrði spum-
inguna um pólitíska einingu
landsins til nýrrar yfirvegun-
FER EFTIRLiTS-
NEFND TIL LAOS?
VIENTIANE, 3. jan. NTB. —
Konungurinn í Laos kallaði í
dag saman þing landsins til
aukafundar til að ræða hið al-
varlega ástand, sem mál lands
ins eru komin í. Er talið, að
hinn hægrisinnaði forsætisráð-
herra Boum Oum muni jafn-
framt nota tækifærið til að fá
viðurkenningu þingsins á rík-
isstjórn sinni sem hinni einu
löglegu stjórn landsins.
Á blaðamannafundi í dag
ræddi Boun Oum m. a. um
liina alþjóðlegu eftirlitsnefnd,
er sett var á stofn 1954 og
vann þá að því að stilla til
friðar í landinu. Eiga sæti í
ROBERT
litli þygg-
ur með á-
kafa boð
bróður síns
Nrkulásar,
um að
skreppa
með honum
í smá öku-
ferð á nýja
sportbílnum
hans, sem
m. a. er bú-
inn Ijósum
og vindhlíf.
Ekkert
4 kr.
benzín,
því bíll-
inn er stiginn.
lienni Pólverji, Kanadamaður
og Indverji. Hann kvað stjórn
sína geta fallizt á, að nefndin
hæfi störf Isín að nýju, en þó
aðeins að vissum skilyrðum
fullnægðum. Munu þau m. a.
vera, að nefndin ræði aðeins
við stjórn Boum Oum og ekki
við hlutleysisstjórn Souvanna
Phouma, sem nú er landflótta
í Kambodíu. Ekki er vitað
hvort nefndin telur sig geta
unnið upp á þau býti. Forsæt-
isráðherrann kvaðst ekki geta
fallizt á störf nefndarinnar
nema hún samþykkti skilyrði
hans og kvaðst ella mundi
leita á náðir vinveittra ríkja
um stuðning.
Talið er að Boum Oum
hyggi á breytingar á stjórn
sinni, m. a. setja af utanríkis-
ráðherrann bróður sinn, og
taka sjálfur embætti hans.
Upplýsingamálaráðherra
hægrimanna lýsti því yfir í
dag, að fallhlífalið stjórnar
hans hefði unnið á sitt vald
bæinn Vien Khouang, sem er
höfuðstaöur samnefnds héraðs.
Var bær þessi tekinn af vinstri
mönnum um síðustu helgi.
í Bangkok, höfuðborg Thai-
lands, eru ráðamenn sagðir
undrandi yfir kuldalegri af_
stöðu Suðaustur Asíubandalags
ins (SEATO) til Laos-mál-
anna. Af hálfu bandalagsins
er því hins vegar jýst yfir, að
ástand mála þar sé enn óskýrt
og það verði að rannsakast ná
ið áður en nokkuð verði á-
kveðið um aðgerðir. Af hálfu
brezkra stjórnarvalda í Lond-
on hefur verið lögð áherzla á,
að bandalagið geti alls ekki
gripið í taumana í Laos nema
beiðni bærist um það frá lög-
lega kjörinni ríkisstjórn lands
ins. Slík beiðni liggur ekki
fyrir.
Krefst 10
ára fangelsi
yfir
Menderes
YASSIADA, 3. jan. —
(NTB-AFP).
Hinn opinberi ákærandi
krafðrst í dag fimm til tíu
ára fangelsis yfir Mend-
eres, fyrrverandi forsætis
ráðherra, og Korur, fyrr
verandi aðstoðar-ráðherra
hans. Báðir eru sakaðir
um að hafa notað fe ur
leynilegum sjóðr tyrk-
neska ríkisins í eigin þágu.
tmwwwwwwwwiw
IttiMmirjr]
HVERFISSTJÓRAR
ALÞÝÐUFLOKKSINS
í REYKJAVÍK
eru beðnir að koma á fund í
Iðnó (uppi) á morgun, fimmtu-
dag, kl. 8.20 e.h. Áríðandi mál
á dagskrá.
Alþýðublaðið — 4. janúar 1961 J