Alþýðublaðið - 04.01.1961, Side 10

Alþýðublaðið - 04.01.1961, Side 10
Nokkur orð um Sænska Ublb Heim sem kemur hingaB Ritstjóri: Örn EiSssoi Eitt sterkasta félagslið Sví- þjóðar, Heim frá Gautaborg, er væntanlegt hingað til lands í vor í boði Vals. Lið þetta hefur skipað sér í efstu sæti sænsku meistarakeppninnar um margra ára skeið og varð sænskur meistari 1959 og 1960 og allar líkur benda til þess að þeir vinni einnig í ár, en nú eru að- eins óleiknir 7 leikir og eru þeir efsrtir. Styrkleíki liðsins liggur afðallega í hversu jafnir leik- mennimir eru og má segja, að þar sé afburðamaður í hverri siöðu. >Liðið samanstendur af bæði ungum mönnum og gömlum og ejc með mjög mikla keppnis- reynshj, sem talin er að muni færa þeim sigur í ár í sænsku keppninni, eins og kemur fram í ekoðanakönnun, sem nýlega tfór fram meðal leiðtoga hinna 10 félaga, sem skipa „All- sVenskan", en þar álitu 8 að Heim myndi sigra þriðja árið í röð. Margir frægir leikmenn hafa leikið með þessu liði, en samt er þó einn þeirra frægastur, en það er Slen Ákerstedt. Hann h.efur leikið tugi landsleikja og er talinn einn bezti hand- knattleiksmaður Svia í dag, þó að hann sé 34 ára gamall. Hann hefur leikið í sænska Iandslið- inu frá því 1948 og skipaði mið- framherjastöðuna, í „framlínu allra tíma“ eins og Svíar orða það, ásamt þeim Ake Moberg og Áke Reimer. Hann er aðal skipuleggjari liðsins og heldur uppi glæsi- legum hraða í leiknum, sem orsakar meðal annars hina miklu velgengni þess. Markvörður liðsins er Gunn- ar Brusberg, hefur einnig leikið tuga landsleikja allt fram til síðasta árs, að hann taldi sig ekki hafa tíma til að leika nema fyrir félagið og hefur hann sjaldan verið betri en í ár. Framh. á 14. síðu Þetta er Jarlius, einn bezti leikmaður sænska liðsins Heim, sem væntanlegt er hingað í vor. rgir á /■ I / Enska knattspyrnan I. deildarleikirnir um jólin: Arsenal-Sheff. W. (1:1) (2:2) -jttson Villa-Wolves (0:2) (2:3) Blackp.-Blackburn (2:0) Bolton-Leicester (2:0) (0:2) Chelsea-Manch. Utd. (1:2) (6:0) Manch. C.-Fulham (2:0) (0:1) Newcastle-Birmingh. (2:2) (1:2) Nott. For.-Preston (2:0) (1:0) Tottenh.-West Ham (2:0) (3:0) Burnley-Everton (1:3) (3:0) 75.667 áhorfendur sáu þenn- an leik, sem er metaðsókn síðan 1947 á deildarleik í Englandi. Cardiff-W. Bromw. (3:1) (1:1) II. deildarleikimir um jólin: Brighton-Scunthorpe (1:1) Charlton-Plymouth (6:4) (4:6) Huddersf.-Stoke C. (0:0) (2:2) Liverpool-Rotherh. (2:1) (0:1) Luton-Líncoln (3:0) (1:1) Middlesbro-Leyton (2:0) Norwich-Ipswich (0:3) (1:4) Southampt.-Brist. R. (4:2) Sunderl,- Sheff. U. (1:1) (1:0) Swansea-Portsmouth (4:0) (1:1) l>erby Co.-Leeds (2:3) (3:3) I. deild. — Laugard .31. des.: Aston Villa-Blackpool 2:2 Bolton-W. Ham 3:1 Burnley-Newcastle 5:3 Framhald á 14. síðu. MAURICE NORMAN hinn snjalli miðframvörður Tottenham, en liðið hélt áfram sigurgöngunni um jólin, vann West Ham. bæði heima og heiman. EINS OG FYRR hefur verið getið, hefur Skíðaráð Reykja- víkur auglýst skíðanámskeið í Skíðaskálanum í Hveradölum um hátíðamar. Stefán Kristjánsson, íþrótta- kennari, annast þetta námskeið. Eitt kvöldið milli hátíða var blaðamönnum boðið að vera með í kvöldferð. Guðmundur Jónasson sér um akstur héðan til skíðaslóða á Hellisheiði. Bíl- ar Guðmundar eru núna í mjög góðu ásigkomulagi, og er varla val á betri langferðabílum hér sunnanlands. í Skíðaskálanum dvelur nú fjöldi fólks við skíðaiðkanir, og hafa gestgjafar Skíðaskálans tekið á leigu Hafnarfjarðarskál- ann, sem ætlaður er fólki, sem hefur svefnpoka og eigið nesti. í Skíðaskálanum eru mjög skemmtileg herbergi, gufubað, allar veitingar, þjónusta og allt hið ákjósanlegasta. Ungu gest- gjafarnir, Sverrir og Óli, hafa á skömmum tíma unnið sér traust og velvild, ungra og gam alla, sem skíðaskálann sækja. Er Skíðaskálinn fagurlega skreyttur um hátíðarnar. Stefán Kristjánsson, íþrótta- kennari, sagði í viðtali við blaða menn, að daglega hefði komið fjöldi barna og unglinga úr Reykjavík að morgni dags og dvalið við nám allan daginn. Margir komu dag eftir dag, og framfarir ungra nemenda voru ótrúlega miklar. Sum bamanr.a eru nú fær um að renna sér á minni hátcar skíðabrautum. Á- huginn er óbilandi, og æskilegt væri, að forx-áðamenn skíðaí- þróttarinnar sjái um leið til framhaldskennslu fyrir nem- endur þessa. Skemmtilegt var að sjá hve margir foreldrar fylgdu börnum sínum í fyrstu kennslustund, en eftir það voru Guðmundi Jónassyni og bii- stjórum hans trúað fyrir börn- unum báðar leiðir. Stefán hefur beðið blaðamenn sérstakega að benda Reykvíkingum á nauð- syn þess, að böm og unglingar haldi áfram skíðaæfingum sín- um, þar sem enginn skíðamað- ur getur náð árangri í skíðaí- þróttinni, nema með stöðugri þjálfun. Stefán bauð blaðamönnum með sér út í upplýsta brekkuna við Skíðaskálann, þar sem skíðalyftan var stöðugt í gangi. Reykvískir skíðamenn sýndu þar listir sínar í braut, sem Stef án lagði. Það er óhætt að segja, að í þessu dásamlega veðri, stillilogni og frosti, var glæsi- leg sjón að sjá okkar snjöllu skíðamenn sveifla sér með mikl um hraða niður brekkumar. Stefán stjórnaði, sem áður er sagt, þessu æfingakvöldi og bað &é 4. janúar 1961 — ÁlþýðiiWáWð INGVAR markahæstur ÞAÐ HEFUR nú komið á daginn, að Ingvar Elísson, Akranesi, var markahæstur í I. deild sl. sumar, eins og sagt var í viðtali við hann hér á síð- unni; en vegna misskilnings var hann þá sagður hafa skorað ,,aðéins“ 15 mörk. Leiðrétting var síðan birt, þar sem Þórólfur Beck, KR, skoraði 15 mörk og þeir því taldir jafnir. Við nánari atlxugun hefur komið í Ijós, að Ingvar skoraði 16 mörk og er því markahæstur. Mörkin skiptast þannig á leiki: 4 gegn Akureyringum á Akra- nesi, 3 gegn Fram í Reykjavík, 3 gegn Fram á Akranesi, 2 gegn Keflvíkingum á Akranesi. 2 gegn KR á Akranesi, 1 gegn Val í Reykjavík og 1 gegn Keflvík- ingum i Keflavík. gf Félaoslíf -sV KÖRFUKNATTLEIKS- DEILB KR. Piltar, athugið. Þeir, sem ætla að æfa með II. fl. karla núna í vetur, eru beðnir að hafa samband við formann deildarinnar á æfing- unni í kvöld kl. 10,15. Stjórnin. wwwwwwwwmwww i Nieder leikari ölympíumeistarinn Bill Neider hefur undirskrif- að eins árs samning um að gerasí kvikmyndaleikari. — Fyrsta hlutverk hans verður að leika Jack Dempsey, gamla heims- meistarann í þungavikt. Það er franska kvik- myndafélagið Transcin- ema, sem ráðið hefur Nieder. Dempsey hefur látið sve um mælt, að Nieder sé rétti maðurinn til að leika hann. MMWMWMhWWMWWWW þess getið að skíðamenn væru nú, þrátt fyrir snjóleysið í haust komnir í sænulega þjálfun, og væri vonandi að skíðaæfingar gætu haldið áfram á svipaðan hátt og hingað til. Eftir „útivistina“woru blaða mönnum og keppendum boðið að veizluborði hjá gestgjöfum Skíðaskálans. Mjög skemmtileg skíðakvikmynd var sýnd og skemmtu gestir sér síðan við söng og gítarundirleik Sigurð- ar Þórarinssonar fram á kvöld. Slíkar kvöldferðir á skíða- slóðum eru mjög skemmtilegar, og bíða blaðamenn með til- hlökkun, eftir næsta tækifæri I til að komast á skíðaslóðir.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.