Alþýðublaðið - 06.01.1961, Side 2
'JíStaWéMlí GHsll 3. ÁstþóTSSKi (áb.) og BecedUct GrPndal. — TuBtrúar rlt-
-^danar: Slffvaldi Hjálmarsson og IndriSi G. Ihjrsteinsson. — Frettastjórx.
iWrgvln GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingaslm.
H Jöá. — ASsetur: Aiþj'AuhúsiS. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hveröa-
8—10. — Áskriltargjald: kr. 45,00 & mánuSi. í lausasílu kr, 3,00 eint
ififÓiteDCÍi: AlOýð'ullokkurlnu. — Pramkvsamdastlóri< Sverrlr Kjsitansson
Ein Be!gía - eða tvær?
ÞAÐ ER VONANDI, að átökin í Belgíu leiði
i ekki til skiptingar belgíska ríkisins. Þar hafa
um langt skeið búið tvær þjóðir, Flæmingjar og
Vallónar, sem talar hvor sitt mál. Sambúðin hef-
ur ekki verið vandkvæðalaus, en þó gengið furðu
vel og tvímælalaust verið báðum þjóðum til
góðs. Sameinuð Belgía og þegnum sínum öflugri
! og getur veitt þeim bétra líf en tvö smærri ríki.
Við lifum á öld mikilla þjóðerni'stilfinninga, og
allir viðurkenna í orði rétt hverrar þjóðar til
sjálfstæðis, ein ef hún óskar þess, í sambandi við
aðrar ef það er vilji hennar. Þessum kenningum
er fylgt í hraðvaxandi mæli í hinum frjálsa heimi.
Þegar Sovétríki'n eða Kína eiga í hlut, eru smá-
þjóðir ekki spurðar, hvers þær óska.
Þjóðemisstefnan hefur verið uppspretta margs
góðs og hefur veitt fjölda þjóða þær aðstæður, er
þeim hafa bezt reynzt til framfara og farsæls lífs.
Hins vegar gétur þjóðernisofstæki og þröngsýni í
þeim efnum verið stórhættulegt, og eru dæmi þess
fjölmörg.
Víða hafa þróun sögunnar eða landfræðilegar
aðstæður leitt til farsælla bandalagsríkja, svo sem
í Kanada, Mexíkó, Brazilíu, Indlandi, Nigeríu,
Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu — og Belgíu. Það væri
óviturlegt að leysa þessi ríki upp í sjálfstæðar
einingar hvers þjóðarbrots, er í þeim býr. Þau
hafa fundið sameiginlegan grundvöll, sem hefur
reynzt mjög vel.
Hin kaþólska íhaldsstjórn Belgíu hefur valið
þann kost, að leysa efnahagsvandamál, sem meðal
annars stafa af missi mikillar nýlendu, bæði með
: iskattahækkunum og ni'ðurskurði á tryggingum og
; félagslegum réttindum. Þessu hafa jafnaðarmenn
; mótmælt og hlotið til þess stuðning alþýðuflokka
víða í álfunni. Með þeim stuðningi er ekki verið
að ýta undir ofbeldi eða óeirðir, sem í mörgum
tilfellum renna undan rifjum kommúnista, er
: reyna að gera verkföllin að þeirrl byltingu, sem
þeir þrá.
Jafnaðarmenn vöruðu Eyskens forsætisráðherra
fyrirfram við slíkri lagasetningu. Þeir telja, að
stjórn hans hafi viljandi stofnað til þeirra valda-
étaka, sem fram fara í landinu. Stéttaskiptin í
Belgíu er meiri en íslendingar þekkja. Námumenn
i og aðrir verkamenn búa þar við krappari kjör en
hér þekkjast. Viðbrögð þeirra hlutu því að verða
hörð, þegar höggvið var í þá félagsmálalöggjöf,
sem þeir hafa byggt með áratuga baráttu.
Eyjaliós
ÞAÐ má scffja, að hún
komi með seinni skipun-
um, myndin að tarna, en
á vctrum vilja samgöng-
ur við Eyjar vera slitr-
óttar. Svona gerðu þeir
í Vestmannaeyjum á
gamlárskvöld. Trausti
Jakobsson tók myndina.
H a n n es
á h o r n i n u
■fe Kæra á lögreglustjóra.
ýV Embættismennirnir og
almenningur.
'fo Blmdfullir prestar.
er þetta úr sögunni, sem betur
fer, en í staðinn vil ég taka upp
viðurlög við því er prestar velt-
ast svínfullir á almannafæri, —
spilla samkomum fólks, aka ölv-
aðir og hegða sér þvert ofan í
það, sem talið er sæmilcgt.
& Steypum göturnar.
LÖGREGLUSTJÓRI í stórum
kaupstað hefur verið kærður
fyrir vanrækslu í embættis-
færslu. Ég hef ekki hugmynd
um hvort kærurnar eru á rök-
um reistar, en mér kæmi þó ekkj
á óvart þó að svo væri, ekki
vegna þess að þessi tiltekni lög-
reglustjóri kynnj að vera slæ-
legri í embætti en margir aðrir,
heldur af því, að það er orðiö
ríkt í íslendingum og ekkj sízt
cmbættismönnum þeirra, að sjá
í gegnum fingur, að hliðra sér
hjá, að skjótast fyrir horn, þeg-
ar vanda ber að liöndum.
iEF VEL VÆRI leitað, hy-gg
ég að finna mætti vanrækslu í
embætt'isfærslu að meiru eða
minna leyti mjög víða — og þá
| vitanlega ekkj síst hjá þeim,
sem eru friðsamir í eðli sínu.
ég tala nú ekki um ef þeir eru
latir. Vitanlega er þetta mikill
galli og getur valdið algeru öng
þveiti í löggæzlu og lagafram-
kvæmd. Hér á ég ekki eingöngu
við sýslumenn eða lögreglustjóra
— eða yfirleitt þá, sem eiga að
sjá um lagaframkvæmd, heidur
og um aðra.
í GAMLA DAGA voru prest-
ar, jafnt ungir sem gamlir, svift-
ir kjóli og kalli ef þeir eignuðust
krakka í lausaleik. Ég hef allt-
aí hneykslast á þessu ofbeldí,
sérstaklega þegar ungir og ó-
» kvæntir prestar áttu í hlut. Nú
EN ÉG VAR að tala um kærða
lögreglustjóra, Ég sé að kunn-
ingi minn einn reynir að koma
þvi inn hjá fólki, að kæran á
þennan tiltekna lögreglustjóra,
sé af pólitískum rótum runnin.
Ekkj hef ég nokkra trú á því. í
fyrsta lagi er þessj tiltekni lög-
reglustjóri, þó að hann sé að lík
indum mesti myndar maður, —
ekki pólitískur ‘höfuðstóll, —
ekkert um hann deilt og alls
ekki um hann baiúst, hann er
aðeins eins og nokkurs konar
sundmerkj fyrir sína flokks-
menn.
ÞAÐ ÞARF meira en lítinr.
pólitískan ofsa til þess að kæra
embættismann að ósekju fyrir
dómsvaldinu í landinu — og
flokksbarátta er ekki svo hörð
hér nú orðið og tillitslaus að
gripið sé til slíkra aðgerða. Ég
held að kæran sé sprottin af því,
að ekki er tékið nógu hart á
ýmsum þeim afbrotum, sem
nauðsynlegt er að kenna fólki
að forðast, en margir ibókstaf-
lega leika sér að fremja,
BLÖÐIN skýra frá því áliti
Jóns Vestdals, að steyptar gölur
séu ódýrari í rektsri en malbik-
aðar götur. Þetta hefur okkur
marga grunað svo árum skiptir
eða allt síðan steyptur var
spottinn af Suðurlandsbraut. —
,Svo virðist sem nú sé mikil
vakning í þá átt að steypa götur
og eru þetta ein stærstu t'íðindi
í samgöngumálum okkar.
EF ÚR ÞESSU verður minnk-
ar rykið, sem allt ætlar að kæfa
á sumrum í þurrkatíð og vega-
viðgerðir verða sjaldgæfari. —
Hvað segja menn til dæmis unj
veginn milli Reykjavikur cg
Hafnarfjarðar? Hann hefur aila
tíð verið hin mesta hörmung og
slæmt upp á að horfa skóbæting
arnar á hverju vori æ ofan í æ,
og aðeins tjaldað tíl einnar næt-
ur. Hafnarfjarðarveg ættj að
steypa — og breikka, fyrstaa
allra vega.
Hannes á horninu. !
Skipí um
myndir í
Ásgrímssafni
SENN er ;að 'ijúka sýningis
á myndum 'þeim í Ásgrírns-
safni sem sýndar 'hafa verið
þar síðan safnið var opnað
5. nóv. síðastl.
Flestar af myndunum hafai
ekki komið fyrir almenningg
sjónir áður, og eru þær frá
ýmsum tima'bilum og stöð-
um á landiinu. Meðal þéirra
eru elztu myndirnar í safn-
inu, málaðar um aldamótin.
Einnig eru á þessari sýn-
ingu nokkrar andlitsmyndir.
Sýningunni lýkur sunnu-
daginn 15. janúar, en þá v'erð
ur skipt um myndiir. Næst
verða sýndar í Ásgrímssafn!
þj óðsagnateikningar og vatns
litamyndir eingöngu.
Safnið verður lokað í viku
tíma meðan verið er að
íkoma fyrir nýrri sýningu, og
verður hún opnuð sunnudag-
inn 22. janúar.
Ásgrímssafn, Bergstp.ðar-
Framh. á bls. 15. \
2 6. janúar 1961 — Alþýðublaðið