Alþýðublaðið - 21.01.1961, Side 9

Alþýðublaðið - 21.01.1961, Side 9
 Við sögðum síðan Ortizi, að gaman væri að tala við einn Spánverjann og þótti hanum það sjálfsagt. Kall- aði hann á skeggjaða gítar leikarann ,sem við minnt- ust á í upphafi, og kynnti hann fyrir okkur. Heitir hann Baltazar. — Og þér leikið á gítar? Já — og sýni einnig flam ingo-dans. Annars hef ég dundað talsvert við að mála. Ég hef kynnzt dálítið zígaunum hjá Barcelona, en þar á ég heima. Hef ég ýmislegt lært af þeim, t. d. söng og dans. Ég hef kennt þeim á gítar og teikn að af þeim myndir. — Málið þér abstrakt? — Nei, ég er expression- isti. Mér þætti gaman að kynnast íslenzkum málur- um og er ákveðinn í að dvelja hér í dálítinn tíma og halda hér sýningu eftir mánuð eða svo. Við vildum ekki tefja hina erlendu listamenn öllu lengur með óþarfaspurn- ingum. Spurðum við að lokum hvað væri vinsæl- asta lagið á Ítalíu um þass ar mundir. Aldo varð fyrir svörum og brosti: 'Vinsældum Ro- mantica, sem var lag ársins á Italíu, virðist vera að hraka. Sennilega er vin- sælasta lagið nú „Folle Bandervola", sem þýðir ,,smáfáni“. Að ofan: Spánverji blæs. T. v. Ovtizi við pí- anóið. Efsta myndin er af hljómsveitinni (með gítar Aldo). dregið ráðið frá því, ísland væri svo nálægt Norður- pólnum að þar væri mikill kuldi. En nú höfum við komizt að því, að hér er miklu heitara en okkur var sagt. 'Veturnir í Milano eru oft miklu verri. — Hvernig stóð á því að þið fóruð hingað? — Við vildum gjarnan kynnast landinu og erum mjög ánægðir með dvöl okkar. Islendingar eru mjög viðkunnanlegt fólk og unga fólkið kátt og f jör- ugt. Kannski ekki eins og á ítalíu, en samt mjög fjör- ugt. Stúlkurnar eru mjög fallegar, og að sumu leyti dálítið öðru vísi en þær ítölsku. — Þið flytjið aðallega ítalska tónlist? — Já, en einnig mikið af Suður-Ameríku músik — eins og t. d. cha-cha-cha ■— Við útsetjum lögin flest sjálfir og höfum samið sum þeirra, 'Við erum fimm í hljómsveitinni, 2 Italir og 3 Spánverjar. — Á- stæðan fyrir því, að við fengum Spánverja í hljóm- sveitina með okkur er sú, að við höfum gaman af „Latin-amerískri“ tónlist og auðvitað leika hana eng- ir betur en þeir, sem hana þekkja frá blautu barns- beini. — Og hvernig finnst ykkur íslenzkir hljóðfæra- leikarar? — Þeir, sem við höfum kynnzt virðast mjög færir í sinni grein. Þeir leika mjög vel jazz svo og jive-ið ómissandi. — Við höfum hlustað á Elly Vilhjálms syngja ítalska lagið Roman tica og fleiri itölsk lög og gerði hún það mjög vel. -—- IJér er á ferðinni afbragðs góð söngkona, sem þætti góð hvar sem er í heimin- um, einnig á ítalíu. —- En hafið þið heyrt einhver íslenzk lög? — Já, og við höfum feng ið áhuga á þeim. 'Við höf- um fengið 6 gömul íslenzk lög 0g erum við að hugsa Um að útsetja 4 þeirra í cha-cha stíl og leika þau á plötu. :yrendur, skaut því inn í, að sér r virðist þætti dálítið einkennilegt ri en al- að hætta að vinna kl. hálf á ítalíu. tólf því að venjulega 11 dálítið skemmtu þeir langt fram á mdi, en morgun, til 5 eða sex. En mum við þetta gerir auðvitað ekkert ð þá. — til sagði hann, því minni tileg til- vinna fyrir okkur! kkur og — Og hvernig finnst ykk n að kom ur Suðurlandabúum veðr- Að ungt ið hér? Þegar við ákváðum að Aldo fai’a hingað var okkur ein- ITNA ANDI Átlas silki í kjóla nýkomið. Verzlurtin SPEGILLENN Laugavegl 48. — Sími 14390. Stúdentafélag Reykjavíkur heldur almennan fund um bjórmálið í Sjálfstæðishúsinu á morgun kl. 2. Stjórnin. Búrfellsbjúgu bragðast bezt. Kjötverzlunin BURFELL Skjaldborg v. Skúlagötu. — Simi 1-9750. Húsmæður! Ný bátaýsa, heil og flökuð, saltfiskur, skata. Ný síld. FESKHÖLLIN og útsölur hennar. — Sími 1-1240. Vanur bókhaldari gerir SKATTFRAMTÖL yðar. Pantið tíma gegnum síma. Guðlaugur Einarsson, málflutningsstofa. — Símar 16573 — 19740. Áskriftars't-n!nn er 14900 Alþýðublaðið 21. jan. 1961 §

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.