Alþýðublaðið - 22.01.1961, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 22.01.1961, Blaðsíða 2
C?Í*U J. Aatþórsaon (Sb.) og aenedlkt Gróndal. _ FuUtrúar rM- UHdcnar: Sisvaldl HJíiraarsson og Indriði G. Þorstelnsson. — Fréttastjðn: :BfOr*vtn GuBmundsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasimi-: ,11 >M. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfia- Snt* I—10. — Aakriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í iausasiSlu kr. 3.00 eint ðtMafcsdl: AlþýðuJiokkurtaa. — Framkvramdatrtjórii Sverxir KJartansaon. Dæmalausit fóstbræður VEIT EKKI hvert mannsmarn í landinu, að sá . er kaupir einhvern hlut, verður að greiða apd- virði hans? Hefur ekki hver fjárráða maður .. reynt, að sé hl-utur fenginn „uppá krít“ þarf hann . engu síður að borgast? ; Svo virðist, sem forustumenn sjórnarandstöð- : unnar skilji ekki þessar staðreyndilr. Þegar þeir i voru sjálfir í ráðherrastólum vinstri stjórnarinn . ar ásamt Alþýðufiokknum, var stofnað til stór-.. felldra skipakaupa, keyp’tir tappatogarar óg rhik- i ill fjöldi vél'báta, Síðan hélt Alþýðuflókksstjórnin áfram á sömu braut,,.og keypti auk þess nokkra , nýja togara, sefn vinstri stjórnin vanrækti að gera. Enn bættust við þetta ný kaupskip að ógleymd- um flugvélum. ' Þegar þessi tæki voru keypt, var mönnum full’'1 i .komnlega Ijóst, að þau yrðu að greiðast í bein- /hörðum gjaldeyri á fáum árum. Það lá fyrir, að ' 1959 yrði verðmæti þéssara nýju tækja 320 mill- . jónir og 1960 samtals 500 milljónir. Skýrar upp- i lýsingar sýndu, að greiðslubyrðin yrði þyngst í 1960—62. Nú láta forsvarsmenn framsóknar og kommun ista sem greiðslumar komi þeim á óvart. Þeir íala eins og þessar upphæðir í greiðslujöfnuði þjóð arinnar sýni ,,hrun:' hjá ríkisstjóminni. Eysteinn og Lúðvík vilja sem sagt láta hæla sér fyrir að hafa keypt bátana, en skamma ríkisstjórnina fyr- ir að borga þá. Eru þeir ekki dæmalausir, þessir I fóstbræður að austan? KynslóB Kennedys RÆÐA SÚ, sem hinn ungi forseti Bandaríkj- ! anna, John F. Kennedy, .flutti, er hann sór em- ; bættiíseið sinn, var stórbrotin hugvekja, sem vek- ; ur vonir um bjartari framtíð fyrir allan heiminn. : Kyndillinn hefur vissulega verið fenginn nýrri i kynslóð í hendur, og ræðan gefur tilefni til að vona, að sú kynslóð mundi sýna meiri þrótt, meiri j víðsýni, meiri festu og meiri skilning á vandamál < um atómaldarinnar en þeir menn, sem voru fædd ir og uppáldir á tímum hestvagna. Kynslóð Kennedys víðs vegar um hinn frjálsa heim tekur undir með honxun, er hann segir: Byrjum því að nýju — og munum háðir ,að kurt- eisi er ekki merki veikleika og einlægnina þai*f alltaf að sanna. Semjum aldrei vegna ótta. En óttumst aldrei að semja. ýý. Barátta hafin fyrir nýjum hugsjónum. Stéttaskipting er sjálfsögð. •fe Menntafólk á ekki að umgangast vinnandi fólk. ýý Út í bylinn með það! VIKAN BIRTIR aldarfars- mynd úr Menntaskólanum. Hún kemur fram í v.iðtali, sem ritstjóri blaðsins, Gísli Sig- urðsson, hefur átt við Mennta- skólastúlku. Myndin er skýr. Sjálfsagt er að birta hana, enda heimild fyrir framtíðina og dæmisaga um skólann, eða skól ana, skipulag fræðslumálanna og ávöxtinn af sáningu þjóð- félagsheildarinnar. Blaðið er ekki ámælisvert fyrir birtingu viðtalsins, en skoðanirnar, sem þar koma fram af vörum ungu stúlkunnar, eru eins og boð um eldsvoða. EIN AF GÖFUGUSTU hug- sjónum okkar mannanna er að skapa stéttlaust þjóðfélag, þar sem frjáls verkamaðurinn til sjós og lands nýtur ávaxtanna af stritj sínu og frjáls mennta- maðurinn er, cins og' vinnandi fólkið, aðeins tæki í hendi þjóðfélagsheildarinnar í lífs- baráttu hennar við öflun gæð- anna úr skauti þeirrar náttúru, sem hún á við að búa. — Við íslendingar þykjumst hafa komist þjóða lengst í áttina að stéttlausu þjóðfélagi á þennan hátt og við þreytumst aldrei á að stæra okkur af því, enda finnst erlendum mönnum, verkamönnum eins og mennta- mönnum einmitt þetta vera helzta aðalsmerki íslenzkrar þjóðar. — Ekkert myndum við álita eins varhugavert og hættulegt eins og að gil mynd- aðist milli starfsstétta og svo- kallaðra menntastétta. Sam- starf og sameining milli þeirra hlýtur að vera höfuðnauðsyn. Það er jafn nauðsynlegt, að maður njóti virðingar og viður- kenningar fyrir vel unnin störf, ekki vegna þess hvaða stétt hann skipar, heldur vegna á- ^tundunar sinnar, trúmennsku i og framkomu við þau störf, sem hann leysir af hendi, hver sem þau eru. ÐOKTOR SAMDI mikla rit- gerð. Vísindi lians voru þau, að börn vinnandi stétta væru verr gefin en börn embættis- manna. Þetta r.eiknaðj hann út í prósentum. Starf hans við samningu ritgerðarinnar og útgáfu bókarinnar, kostaði upp undir hálfa aðra milljón króna. Menntamálaráðuneytið gaf bókina út fyrir nokkrum árum. Ég náði í eitt eintak. Ég las það og gerði niðurstöðurnar að umtalsefni í útvarpinu. Út úr ummælum mínum varð mikill úlfaþytur, Bókin fæst hvergi. Það virðist farið með hana eins og leyniskjal. Upplagið virðist hafa lent í dyflissu. EN MENNTASKÖLA-stúlk- an, þetta eintak úr nemenda- hópnum, virðist, án þess að hafa beitt „vísindalegum að- ferðum“ eins og doktorinn þyk- ist hafa gert, hafa komist að sömu niðurstöðu. Hún er bólg- in af menntahroka, yfirstéttar- gorgeir og þó mun faðir hennar aðeins vera einn af „launa- þrælum“- ríkisvaldsins, ef svo má að orði komast. Ummæli hennar í nefndu viðtali í Vik- unnj eru meðal annars þessi: „Það hefur komist á stétta- skipting meðal unga fólksins . . . Hún er raunverulega kom- in á, en hún er svo laus í reip- unum, að það veldur árekstrum Það er ómögulegt, að allir sérn á sama bás . . . Útkoman verð- ur bara sú, að allir verða jafn- ir í lágkúrunni og lubbaskapn- um . . . Við skulum segja, affi ég eigi kunningja úr hópi skólafóiks og aðra úr, hinumi hópnum og svo býð ég í partý. Þá er eins og þetta fólk geti ekki sameinast og útkoman verður vandræði og leiðindi, Ég held að stéttaskipting sá nauðsyn og mér finnst allí benda til þess að þessi aðgrein- ing verffi mun skýrari þegai? fram líffa stundir . . .“ , ÞANNIG MÆLIR þetta ein- og leiffindum eins og t, d. þegar strákm og stelpa fara aff vera saman, sem eru sitt úr hvora umhverfi og ekkj með sömu menntun . . . Kannski eiga skólarnir einhvern þátt í þró- uninni . . . Stelpurnar í Mennta skólanum, sem ég þekki beztp umgangast alls ekki stelpura sem farnar eru að vinna . á Strákarnir geta frekar veriffi félagar, þótt þeir séu sinn af hvorri sort. En það byggist þá helzt á því aff drekka samaffi effa fara á kvennafar . . Þaffl er þá kannski helzt að skóla- strákar líti niffur á stelpurs sem farnar eru aff vinna . « Þaff þykir skrítiff og óviðeig- andi aff fólk úr ólíkum stéttum giftist . . . Mér finnst (stétta- skipting) sjálfsögð og eðiiieg. tak. En ekki virffist unga stúlk- an vera alveg ánægð í sínum hóp, Þaff er eittvhað heilbrigi Framhald á 14. síðu. Honduras Mahogni, kants'k, 1“ — 1!4“ — \V-2.“ Oregon Pine, kantsk 3!4“ — 5!4” — 61/4“ i Brenni •1“ __ 114“ 114“ _ 2“ ! Eik 1 1“ — 1Ví“ — 1%“ — 2‘* honðuras mahogni Nýkomið: 2 22. jan. 1961 — Alþýöublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.