Alþýðublaðið - 12.03.1961, Síða 4

Alþýðublaðið - 12.03.1961, Síða 4
Eðli vt'i'kalýðshreyí ingarinnar er ekki skyndiu])phláup, havaðafundir og æfin- týri, heldur míM'kvíst, slcitulaust strit fyrir málefnunum sjálfum.. islenzkt fólk er frá- hitið hugsunarhætti kommúnismans, og haa’n sigrar aídrei her á landi fj'rir atbeina íslendinga, Það er hið hættulegasta æfin- týri fyrir íslenzka alþýðu að taka sér merki mannanna ffcá Moskva í hönd og ganga mcð það út i baráttuna. Undir þvi merki mun hún bíða ósigur og falla. Islenzk vcrkalýðssamtÖk geta aldrei unnið fulln- aðarsigur nema með aðstoð og í bróður- legri sainvinnu við millisléttina, iðnaðar- mennina, hina lægst launuðu embættis- menn o. s. frv. Eg vænti þess, að reykvísk alþýða ski’ji þetta og fari eftir þvi, sem hún álítur skynsamlegast eftir rólega yfir-; vegun. .IÓ!i BaldvSnsson á Dagsbrúnarfundi 13. fcbrúar 1038. fólkinu saman og bjargarhvöt .in og óljós skilningur á því. að það gæti ekki skapað sér stöðu nema hver styddi annan, rak það saman í félög. Það var þetta, sem var að- gerast á tímabilinu frá því rétt fyrir aldamót og til ársins l&SO, en þá vil ég segja. að Alþýðu- sambandið og Aliþýðuflokkur- inn bafi verið búin að fá fast skipulag :— og 'hasla sér völl . til fulls, þó að þroski kæmi síðar. í dag eru fjörutíu og fimm ár liðin síðan Alþýðusamband íslands og Alþýðuflokkurinn voru stofnuð. Að vísu hafði óformlegur fundur verið hald •inn haustið 1915, til að undir- búa stofnun íheildarsamtaka, en hinn raunverulegi stofn- fundur er talinn vera 12. marz 1916. Frambaldsstofnfundur var haldinn 19. sama mánaðar. Ottó N. Þorláksson, marghert- ur baráttumaður meðal verka manna og sjómanna, var kos- inn forseti samtakanna fyrst í stáð og sat hann stofnfundinn sem fulltrúi frá Dagsbrún. Hann hafði verið einn af braut ryðjendum Bárufélaganna og ódrepandi áhugamaður. Af fé- lagslegum — og pólitískum á- stæðum munu félagarnir ekki hafa talið heppilegt, að Ottó skipaði formannssætið lengur en meðan verið var að koma samtökunum á laggirnar, enda var hann aldrei metnaðar- gjarn, heldur ávallt fyrst og fremst áróðursmaður og eld- sál. í hópi fulltrúanna frá Prentarafélaginu var herða- breiður maður, hlióðlátur, traustur og tillögugóður, en ekki mælskur — Jón Bald- vinsson. Hann var kosinn rit- ari samtakanna á fundinum 19. marz, en síðar sama haust var hann kosinn forseti og gegndi hann ibví starfi til dán- ardægurs árið 1938. Ég sagði í upphafi, að al- þýðan veldi sér foringja og skapaði þá í samræmi við þörfina á hverjum tíma. Jón Baldvinsson var ekki eldsál og' áróðursmaður, sem gat ruðst einn og beint af augum á ófærur. Þannig voru þeir Ól- afur Friðriksson og Ottó N. Þorláksson. Ég fullyrði, að þeim ibáðum hefði ekki tek- ist nógu vel að byggja upp samtök hægt og bítandi, hlúa að þeim, vaka yfir þeim — og gæta hvers smáatriðis. Það gat Jón Baldvinsson ibetur en þeir. Hann var maður upp- byggingarinnar, en ekki eld- hugi hins fyrsta dags í sögu hreyfingar. Alþýðan var fund- vís. Jón sat fundi og sagði ekki margt. Hann var ekki á fyrstu árum sínum mælskumaður, en hann var traustur maður og fyrirhyggjusamur. Það fann fólkið. Það þurfti ekki annað en að sjá hann til þess að skilja það. Alþýðunni tókst valið svo vel, að enn í dag er Jón Baldvinsson talinn farsæl asti foringinn, sem alþýðusam tökin hafa átt. Allt starf hans næstu ára- tugina sönnuðu þessa fund- vísi alþýðunnar á réttan for- ystumann á réttum tíma. Ég á margar myndir af Jóni Baldvinssyni í minningum mínum: Hann hafði þann sið á fjölda funda, þó að allir vissu að miklar deilur væru uppi, að innleiða þær ekki. Hann sat kyrrlátur, eins og klettur, £ sæti sínu og beið. Hann beið meðan deilt var og hlustaði vel. Hann færði sig stundum um sæti og seildist til bess að komast í snertingu við hópa, sem ekki sióðu í deilunum, að minnsta kosti ekki framar- lega, og ræddi við fólk. Svo þegar líða tók á fund og hinir deilugjörnu voru famir að mæðast, bað hann um orðið,. brá jafnvel á létt glens, eða sagði sögu af sjómanni eða bónda, sem sfcaðið hafði í kröppum dansi og sigrað, Hann bar ekki skrúð á sitt mál. Það var einfalt og lát- laust og svo bar hann frani lausn. Þannig samdi hann milli hópanna. Þannig setti hann niður deilur. Þannig lagði hann línur. Jón Baldvinsson var fyrst og fremst samningamaður og fyrirhyggjumaður. Menu treystu honum og trúðu fyrir málum. Það var sagt um marga menn, sem falin hafði verið úrlausn mála: „Bara hann geri nú ekki einhverja vitleysuna“. En það heyrði ég aldrei sagt um Jón Baldvins- son. Svo var annar eiginleiki, sem Jón hafði til að bera £ ríkum mæli: Hann skildi fólk, hann hafði mjög næmt inn- sæi. Það þýddi ekki að sperra upp neinar stélfjaðrir and- spænis honum. Einu sinni sem oftar kom ég heim til hans og ræddi við hann um einn af forystumönn um flokksins, sem ég bar mik- ið traust til og þá fyrst og fremst fyrir dugnað hans og áræði. Þegar við höfðum rætt málið nokkuð sagði Jón allt í einu: ,,Það vantar strengi í brjóst- ið á honum. Ég óttast að það verði honum að fótakefli fyrr eða síðar, og flokknum þá til skaða“. Mér var ekki alveg ljóst UM ALLA framtíð munu söguskýrendur sammála um það, að kynslóðin, sem skipu- iagði laTjþýðusamtökin á ár- unum 1896 til 1930, hafi skil- að ríkulegum arfi; að þessi arfur hafi í raun og veru lagt grundvöllinn að hinni nýju þjóðfélagsskipun og leyst þjóð ina úr fjötrum. Það er ekki nema eðlilegt, þegar litið er yfir sögu mik- illa og áhrifaríkra samtaka, að þá staldri menn fyrst og fremst við nöfn helstu braut- ryðjenda og forystumann- anna. Þá vill oft fara svro, að þeim er þakkað allt, sem gert var, að þeir hafi risið upp al- skapaðir, bent á leiðina og farið hana síðan með fjöldann á eftir sér. En þetta er að.minni skoð- un, sem byggist á margra ára- íuga reynzlu, mikill misskiln- ingur. Það er fjöldinn, nafn- laus og starfandi skarinn, sem alltaf á upptökin, sem alltdf ryður brautina og skapar sér forystumenn. Hitt er svo annað mál, að foringinn er sá möndull, sem hreyfingin snýst um og leiðir áfram brautina, en þó því að- eins, að hann sé í samræmi við aug og vilja fólksins sjálfs. Hreyfing verður til fyrir ijróun, og foringi birtist í sam væmi við þróunarstigið. ís- Leruk alþýða hafði um langt skeiö fundið það. óljóst þó, að b>ví aðeins gæti strit hennar fært henni þau gæði, sem hún þurfti til þess að geta lifað mannsæmandi lífi, að hún sam einaðist í félagsstarfi. Félags- starf var henni hins vegar framandi. Að nokkru leyti höfðu þó Góðtemplarareglan og fyrstu kaunfélögin kennt henni félagsrekstur, en alþýð- an var lítt menntuð í þessum greinum, og svo var hún á faralds fæti ef svo má að orði komast. Kauptún og kaupstaS- ir voru að myndast og fólkið flosnaði unp í sveitum og flutti til sjávarins, mættist úr ■öllum áttum á sama stað, ó- kunnugt og óvant margbýli, unoalið í einangrun og vinnu- hjúaaea. ekki beinlínis undir það búið að skipast í samtök — og heimta rétt sinn í sam- einingu. En ný atvinnutæki söfnuðu 4 12. marz 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.