Alþýðublaðið - 12.03.1961, Qupperneq 13
ÞAÐ VELDUR yfirvöldum
miklum áhyggjum í Vestur-
' Evrópu hve glæpastarfsemi er
' mikil meðal unglmga. Mismun
andi mikið er um afbrot ung-
' linga í hinum ýmsu löndum
■ Vestur-Evrópu, en yfirleitt
meira um þau 1 iðnaðarlönd-
unum þar sem meirihluti íbú-
anna býr í borgum. Fámenn
' lönd og minna þróuð tækni-
lega hafa lægri afbrotatölu
unglinga, t. d. eru afbrot ungl-
' inga hverfandá í Portúgal og
á Spáni svo 'sjaldgæf að þau
eru ekkert vanadmál þar í
landi.
Erfitt er að gera samanburð
á hinum ým«u löndum, vegna
þess hve skýrslugerð er hagað
á mismunandi hátt í hverju
landi. Fréttastofan United
Press lét nýlega safna saman
skýrslum hinna ýmsu landa
um þetta efr.i og fara helztu
niðurstöðurnar hér á eftir.
Afbrot hafa farið stórvax-
andi í Bretlandi síðan 1938 og
eru um helmingi fleiri í dag
en þau voru 1938. Það ár voru
skráðar 283 bús. ákærur í Eng-
landi og WaJ°s. og yfir 78 þús.
manna fundnir sekir um af-
brot. 1959 voru þau hins vegar
orðin um 675 þús. og 153 þús.
fundnir sekir. og fjölgaði í-
búunum bó aðeins um 10% á
þessum tíma. Á Skýrslunum
sést líka að bað var óheiðar-
' leiki fremnr «n ofbeldi sem
veitti brézku lövreglunni nóg
að starfa á b°«su tímabili. Af
675 þús. sk'áðum ákærum
voru 446 bús. biófnaðir og 134
þús. innbrot. Aðrir glæpir
voru þá nærri 50 bús. Kynferð
isafbrot vo~u . aðeins“ eins og
segir í pkvrqiunni 20 þús. —
annað ofbeldi og líkamsmeið-
ingar tæn 1 •* bús. og 141 morð.
Brezka löo-ro.oqan er ekki
' sammáb u-m bnð hvaða ástæð-
■ ur séu fvrir h°csum mörgu af-
brotum. en allir eru þó sam-
mála um bað að þéttbýli og
losaralegt heimilislíf eigi mik-
inn þátt í því. Um 80% þeirra
sem sekir fundust fyrir glæpi
í Englandi og Wales, voru
innan þrítugs aldurs, og 88,6
voru karlmenn. 15,1% glæp-
anna voru framdir af piltum
14—17 ára gömlum, 14,6 af
piltum 17—21 árs, 19,6 af pilt-
um 21—30 ára og aðeins
22,4% af körlum yfir þrítugt.
Hins vegar voru þar yfir
helmingur ákærðra kvenna
yfir þrítugu. Einn ljós blettur
var í þessum skýrslum, sem sé
sá að glæpum barna 8—12 ára
fækkaði frá 18,1% 1957 niður
í 16.9% 1959. Lögreglumenn
á Bretlandi telja að mikil
þörf sé á fjölgun í liði þeirra.
Afbrot, sérstaklega ungl-
inga valda yfirvöldunum tölu-
verðum áhyggjum á Ítalíu. —
Þar og í öðrurn löndum Suður
Evrópu eru aðrir glæpir al-
gengari en í Korður- Eyrópu.
Tölur sýna að fyrstu;3níu
mánuði ársins 1960 jukust
glæpir í landinu um 5% borið
saman við tímabil árið á únd-
an, en á þessu tímabili juk-
ust afbrot unglinga um 16 %.
Á Ítalíu eru morgingjar mun
fjölmennari en í Norður-ÍEvr-
ópu en þjófnaðir hins végar
mun færri.
Unglingar voru sekir um
helming allra þjófnaða, 50 af
1269 morðum. Mörgum þykir
það ískyggilegt að ungíingar
innan 14 ára skuli fremja helm
ing allra þjófnaða í landinu.
Fróðir menn telja að mikið at-
vinnuleysi, fátækt í sumum
héruðum landsins og rótleysi
í hinum fátækari fjölskyldum
S.-Ítalíu, sem nýfluttar eru
til iðnaðarhéraðanna á Norð-
ur-ítalíu, muni vera stærstu
orsakir þessa glæpafaraldurs
unglinga.
Frakkar eru nokkuð betur
settir í þessum málum og glæp
ir virðíist ekki fara vaxandi.
Það er einnig nokkuð villandi
á skýrslunum að mikill fjöldi
glæpa hefur að unclanförnu
verið framinn af alsírskum
hermdarverkamönnum og þar
við bætist að lögreglan hefur
ekki getað sinnt venjulegum
glæpum eins og áður, vegna
þessara hermdarverka. Inn-
brot voru yfir 10 þús. talsins
í París 1950 en yfiir 14 þús.
1959. Morð jukust frá 1957 í
201 á sama tíma en auk þess
drápu Serkir t. d. 391 mann
á árinu 1959. Hvað afbrot ungl
inga snertir telur þarlend lög-
regla að orsök þeirra sé aðal-
lega lélegt húsnæði og skortur
á heppilegum félagsstörfum
og skemmtunum.
í Vestur-Þýzkalandi var á-
standið þannig í þessum mál-
um að um 40 % þeirra sem á-
kærðir voru fyrir þjófnaði og
fjárkúgun voru unglingar á
aldrinum 14—21 árs, og voru
þar oft skipulagðir hópar að
verki. Morð eru hins vegar
sjaldgæf meðal unglinga, voru
aðeins 35 unglingar fundnir
sekir um morð af 332 morð-
ingjum. Lögreglan segir að
glæpir unglinga hafi færst í
aukana síðan 1954, þegar fyrst
var farið að halda sundurlið-
aðar skýrslur um glæpi. —•
Þiófnaðir hafa aukizt mest.
Það kemur í ljós að glæpir
eru ekki alvarlégt vandamál
á Soáni, þrátt fyrir fátækt
þjóðarinnar sem er meiri en
t. d. Ítalíu og mun meiri en
þjóða Norður-Evrópu. Það ber
þó að hafa í huga að lögregl-
an er sterk og vel skipulögð á
Spáni og heimilislifið fast og
rótgróið. Afbrot unglinga eru
ekki sérlega alvarleg. Ungling
ar sem hanga þar á götuhorn-
um, áberandi í klæðaburði, og
nefnast „gamberros11 eru ekki
álitnir skapa alvarlegt vanda-
mál en vera þó hálfgerð plága.
Það var nýlega gert að lögum
á Spáni að það varðaði vfð
lög að veita ekki manni hjálp
sem ráðist væri á af glæpa-
mönnum.
í Portúgal er lítið um glæpi
og enginn unglingalýður lög-
reglunni til ama og foorgurum
til óþæginda. Vopnaðir glæpa
menn fyrirfinnast þar varla
eða ekki og einungis minni
háttar innbrot í verzlanir og
smá þjófnaðir. Það ev ekki á-
litin nokkur hætta á því að
gangandi menn verði fyrir ár-
ás í Lissabon, og hefur borg-
in þó yfir eina mill.ión íbúa.
Þjófnaðir eru algengastir
allra glæpa í Hollandi og um
90% allra glæpa. Morð voru
hins vegar aðeins 14. Kynferð
isglæpir voru á þriðja þúsund
talsins. Lögreglan hefur gert
ýmsar ráðstafanir til að vinna
gegn afbrotum unglinga.
í Belgíu fer glæpum tiltölu
lega fækkandi. Alls komu um
eitt þúsund afbrot unglinga
fyrir dómstólana og voru flest
þeirra fyrir bíla og bifhjóla-
þjófnaði. Unglingar áttu nær
enga hlutdeild í meiriháttar
glæpum. Piltum og stúlkum
innan 18 ára aldurs er bannað-
ur aðgangur að dansskemmt-
unum í landinu. Þar eru fáar
mjög stórar borgir og telja
menn að það eigi sinn þátt í
því hve afbrot eru tiltölulega
fá.
Ástandið í þessu efni er svip
að í Austurríki og í Belgíu.
Þar fer glæpum fækkandi og
alvarlegir glæpir fremur sjaid
gæfir. Bíla- og bifhjólaþjófnað
ir og smáafbrot unglinga eru
aðalverkefni lögreglunnar. —
Helztu orsakir glæpanna má
leita í húsnæðisskorti, lágu
kaupi og því hve áfengi er þar
ódýrt.
Þá komum við að Norður-
löndunum. í Svíþióð aukast
afbrot unglinga greinilega og
sýna nýlegar skýrslur að um
6000 unglingar í 'Stokkhóhni
eru eiturlyfjaneytendur. Bíla-
þjófnaðinn sem áður voru al-
gengir hefur fækkað nokkuð
að undanfömu eftir því sem
bætt lífskjör hafa gert fleiri
unglingum kleift að kaupa sér
bíla. Mikinn hluta glæpa ungl
inga telja menn að rekja megi
til uppleystra heimila, skortsá
heppilegu félagslífi og heil-
brigðum áhugamálum og vönt
un á fleiri stofnunum, sem
g°fa unglingunum tækfæri til
slikra starfa.
Framh. á 14 síðu
Alþýðublaðið — 12. marz 1961 13