Alþýðublaðið - 10.08.1961, Side 1
42. árg' — Fiirdmtudagur 10. ágúst 1961 — 175. tbl.
MALBIKAÐ Á MELUNUM
MIKLAR framkvæmdir fara fram þessa dagana á
Ilagatorgi og svæðinu umhverfis Neskirkju, Er unnið þar
af kappi við að lagfæra götur og torg og lóðir, þar sem
Reykjavíkursýningin í tilefni 175 ára afmælis bæjarins
verður haldin þar vestra, eins og áöur hefur verið sagt
frá í fréttum. Mvndin sýnir malbikun á Hagatorgi, Lengst
til vinstri sést bændahöllin, en til hægri sér í liáskóla-
bíóið. (Ljósm Alþbl. G. G,)
UM NÆSTU ÁRAMÓT verð
ur væntanlega tilbúin fyrsta
framkvæmdaáætlun fyrir
þjóðarbú Islendinga. Verður
þar gerð grein fyrir fjárfest-
ingu á öllum sviðum þjóðlífs-
ins á árabilinu 1962—66, þann
ig að þjóðin geti unnið skipu-
lega og á hagkvæman hátt að
uppbyggingu næstu franitíðar,
en ekki af handahófi eins og
oft hefur verið.
Ríkisstjórnin fékk hingað til
lands síðastliðið vor þrjá af
færustu sérfræðingum Norð-
manna til þess að vinna með
íslenzkum sérfræðingum að
samningu fyrstu Fimm ára á-
ætlunarinnar. Hafa þeir starf-
að síðan í byrjun júní og hafa
aðsetur í Framkvæmdabankan-
um. Þeir hafa farið víða um og
nágrcnni, en auk þess ferð til
Norður- og Austurlands.
Hinir norsku sérfræðingar
eru þessir: PER TVEITE, sem
stjórnað hefur gerð þjóðhags-
áætlana í Noregi, en þar hefur
um árabil verið starfað eftir ná
kvæmum framkvæmdaáætlun-
um: OLAV SÆTERDAL, sem
starfaði lengi fyrir OEEC og
mun nú veita forstöðu þjóð-
hagsáætlunardeild norska fjár-
málaráðuneytisins, og loks —
ROLF THUDESEN, sérfræð-
ingur á sviði iðnaðar, landbún
aðar og fiskveiða. _ .
Til starfa með þessum Norð
mönnum hefur ríkisstjórnin
sett nefnd eftirtalinna manna:
Jónas Ilaralz ráðuneytisstjóra,
sem er formaður, Jóhannes
Nordal bankastjóra og dr.
Benjamín Eiríksson banka-
stjóra. Auk þess vinnur hag-
deild Framkvæmdabankans, —
hagfræðideild Landsbankans
og Hagstofan einnig mikið að
þessu verkefni.
Fyrst og fremst er unnið að
skipulegu yfirliti yfir þarfir
þjóðarinnar fyrir fjárfestingu
á þeim sviðum athafnalífs, sem
fyrir eru, og kohia þar til íbúða
byggingar, vegir, hafnir, brýr,
samgöngutæki, sími og svo
framvegis. Auk þess lilióta að
verða í áætluninni nýjar at-
vinnugreinar eða nýjar stór-
framkvæmdir í greinum, sem
fyrir eru. Þegar slíkt yfirlit
liggur skipulega fyrir, eiga
Framhald á 15. síðu.
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN 1962-66
TILBÚIN UM NÆSTU ÁRAMÓT
þústind
kr. sekt
PEARSON skipstjóri á tog-
aranum Southella frá Hull var
dæmdur til að greiða 260 þús.
króna sekt fyrir landhelgis-
brot. Afli og veiðarfæri voru
gerð upptæk og skipstjórinn á-
frýjaði dómnum til Hæstarétt-
ar. Hann viðurkenndi ekki brot
sitt.
j Málinu lauk eklti fyrr en um
kl. 3 í fyrrinótt og var tekið til
dóms um miðnætti þegar vörn
| hafði verið flutt. Erlendur Þor-
steinsson, bæjarfógeti á Seyðis-
firði dæmdi ásamt 2 meðdóm-
urum eins og venja er, en verj-
andi skipstjórans var Gísli ís-
Ieifsson.
| Afli og veiðarfæri voru gerð
upptæk, sem fyrr segir, og
jvoru metin á 150 þús. kr. —-
Pearson skipstjóri setti 510 þús.
króna tryggingu og fór strax
frá Seyðisfirði að málinu
loknu. Ef sektin er ekki greidd
innan fjögurra vikna hlýtur
hann 8 mánaða fangelsi.
S.R. fær
þri
skipi
SÍLDARVERKSMIÐJUR rík-
isins hafa nú tekið á leigu
þriðja síldarflutningaskipið.
Heitir það Klofter, og kemur til
Austfjarða um helgina. Það get
ur borið um 5300 mái af síl .
Þegar þetti skío bætist við,
geta öll þrjú síldarfl itninga-
skip S.R. borið um 14 þúsunft
mál í einu.
LUSAKA, 9. ágúst. .
(NTB—REUTER).
ÞAÐ kom til nýrra átaka í
norðurhluta Norður-Rhódesíu
í dag, er í liós kom, að þjóð-
legi sjálfstæðisflokkurinn hefði
verið’ bannaður á vissum svæð-
um landsins.
Norðurhéraðið er stærst
hinna 8 héraða landsins og
hefur þar komið til skemmdar
verka og ofbeldis undanfarið.
i
EINRÆÐI
OG TRÚ