Alþýðublaðið - 10.08.1961, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 10.08.1961, Qupperneq 2
 » íttbrtjórar: Gísll J. Astþórsson (áb.) og Benedlkt Gröndal. — Fulltrúl rit- HBtJömar: Indriði G. Þorsteinsson — Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson. — fímar: 14 900 — 14 90S — 14 90Í Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðu- "fcú3ið. — Prentsmiðja Alþýðubiaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald kr, 45,00 á mánuöi. 1 lausasölu kr. 3,00 eint. Útgefandi Alþýðuflokkurinn. — Fra kvæmdastjóri Sverrir Kjartansson. Þróttmikið fcrotabú j UNDANFARNA MÁNUÐI hefur mátt lesa í Tím anum dag eftir dag frásagnir af því, hvernig við , xeisnarstefna ríkisstjórnarinnar hafi komið at : vinnulífi þjóðarinnar á -vonarvöl, allt væri komið I að hruni, og í framhaldsgrelnum hefur verið skýrt !• fná „þrotabúi“ ríkisstjórnarinnar. Nú heyrist skyndilega allt annar tónn í þessu | íolaði. Eysteinn Jónsson skrifar dag eftir dag — j eleki um hið slæma ástand atvinnuveganna, heldur ) ihve vel stæðir þeir séu. Hann heldur sem sagt 1 fram, að höfuðgreinar ,,þro'tabús!ns“ geti vel j. ,gréitt allt að 20% kauphækkun án þess að eyrir %■ ileomi á móti! Hann telur, að eftir liðlega eins árs ‘viðreisn geti atvinnuvegirnir allir greitt 10—20% ? kauphækkun án þess áð neítt þurfi að gera þeim | ■‘al' aðstoðar! | 'Ekki verður annað sagt en það sé þróttmikið * þrotabu, sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á, því sjald *- a.n kom það fyrir í ráðherratíð Eysteins sjálfs, að 1 at vinnuvegir gætu borið slíkar hækkanir, án þess - að hann legði á þjóðina hundruð milljóna ti'l að * mæta þeim. Afli og aflaleysi i 1>AÐ ER í eðli fiskimanna að gleðjast yfir góðum " afla og hverfa vandamál oft í þeirri gleði. Fyrir j lj>jóðina sem heild er vissulega ástæða t!l að fagna \ inverri vertíð, sem vel gengur. Hins vegar renna : uvo margar stoðir undir heildarafkomu þjóðarbús * íns, að vel þarf að ganga á mörgum stöðum til að ! afkoman geti talizt góð. Þannig er það nú með \ •sildina. Því miður geri!r hún ekki meira en að vega 1 ú móti aflaleysi á vertíð og hjá togurum. Á síðasta alþingi voru miklar deilur um afla í iörögð. Héldu stjórnarsinnar fram, að aflabrögð óiefðu verið mjög léleg síðastliðið ár, og hefði það * iiaft víðtæk láhrif til hihs verra á alla afkomu þjóð \ irinnar. Stjórnarandstæðingar héldu fram, að ekki 5 væri teljandi aflaleysi, en allur vandi viðreisninni i að kenna. 1 í ársskýrslu Landsbankans fyrir 1960 er frá því f aagt, að fiskafli! 1960 hafi verið 10% minni en 1959, sumarsíldveiði 50 000 lestum minni, og afli togaranna 25% minni en fyrra árið. Um þessar j .staðreyndir verður ekki lengur deilt, en getur ' nokkur maður véfengt, að slíkt aflaleysi sem þetta valdi þjóðinni! fjárhagslegum erfiðleikum? o—<i i ——— ................ Auglýsingasímii Alþýðublaðsins er 14906 Guðmu/idur R. Guðnvundsson og Josef Keller skrifa undir. Samid um fékk< nesk viðskipti HINN 30. júlí sl. kom hingað til Reykjavíkur viðskiptasendi- nefnd frá Tékkóslóvakíu til að semja um viðskipti landanna fyr ir fímabilið 1_ september 1961 til 31. ágúst 1962, á grundvelli þriggja ára viðskiptasamninga, sem undirritaður var í Prag í nóvember 1960. Samkvæmt vörulistum, sem nú hefur verið samið um, er gert ráð fyrir, að ísiendingar selji, eins og áður: fryst ílök, frysta síld, fiskimjöl, lýsi íisk- niðursuðu, auk fleiri vara. Frá Tékkóslóvakíu er m. a. gert ráð fyrir kaupum á vefn- aðarvöru, skófatnaði, búsáhöld LlIIl, I UUUgicil, Jdlill Ug um, margs konar iðnaðarvélum og verkfærum, bílum, hjólbörð um, auk fleiri vara. Af íslands hálfu önnuðust þessa samninga: dr. Oddur Guð jónsson, Björn Tryggvason, Pét ur Pétursson og Yngvi Ólafsson. Bókun um framangre'nd við skipti var í gær undirrituð aí utanríkisráðherra Guðmundi í. Guðmundssyni og Josef Keller, iforstjóra í utanríkisverziunar-. ráðuneytinu í Prag, en hann van formaður tékknesku nefndar- innar ij HANNES Á HORNINU ýV Friðarspillar í ágætu tjaldstæði Akur eyringa. Ofsakeyrsla oflátunga úr Kópavogi. ýV Viðhaldið á Hafnar fjarðarvegi. FRIÐRIK SIGURÐSSON skrif ar: „Ég er nýkominn heim úr ferðalagi til Norðurlandsins, meðai annars frá Akureyri. Ak ureyringar eiga hrós skilið fyrir snyrtmennsku í umgengni og ræktun á lóðum sinum og um margt annað eru þeir til fyrir- myndar. Akureyri mun vera eini bærinn, sem sér ferðamönn um fyrir tjaldstæði með aðgangi að salerni og hreinlætistækjum. EN ÞVÍ MIÐUR kunna ekki ekki allir að meta framtak Ak- ureyringa. Kvöld eitt er ég á- samt fjölmörgum öðrum höfðum slegið tjöldum okkar á stað þennan bar þar að bifreið- innj Y-000 og hófu far- þegar hennar upp háreisti mikla, en hurfu síðan brott að sinni. Kl. 2 eftir miðnætti kom áðurnefnd bifreið öðru sinni og voru nú farþegar hennar enn háværari en áður og bifreiðar stjóri þeirra ók með ofsahraða um tjaldbúðirnar og þeytti ó- spart bilhornið, stóðu skrilslæti þessi það sem eftir var nætur og varð engum mann svefns auð ið þá nótt en börn skjálfandi af hræðslu í tjöldum sínum. VEIT ÉG af samtali mínu við fólk, að það vildi með glöðu geði greiða sanngjarna leigu fyr ir tjaldstæðið sem færi fyrir greiðslu vaktmanns er kæmi í veg fyrir að svona atburðir kæmu fyrir svo að þreyttir ferðalangar gætu í næði notið næturhvíldar í hinum fagra 'höf uðstað Norðurlands. Væri leitt til þess að vita ef hugulsemi Ak ureyringa yrði að leggjast nið ur vegna örfárra skilsmenna úr höfuðstaðnum eða næsta ná- grenni. Vona ég Hannes minn að þú komir þessu á framfæri í dálkum þínum og sjáir þér fært að birta númer bifreiðarinnar“, NEI, ÞVÍ MIÐUR Friðrik, Mig langar til að birta númeí þessara Kópavogsbrifreiðar, er* ég get það ekki. Ef ég hefði I höndum staðfestan vitnisburð nokkurra manna um svona skrílsmennsku, væri allt öðru máli að gegna. VEGFARANDI skrifar,, en bréf hans misfórst og barst mér ekki fyrr en nú. „ Ennþá eimj sinni hefur vegamálastjórnin lát ið hefja viðgerð á Hafnarfjarðar vegi, þ e. hinum malbikaða vegi milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Og enn þá eru við höfð sömu vinnubrögðin, skó- bætur hér og þar, myndaðir ný- ir hólar og skellir og mikið af smágötum og holum á veginunl skilið eftir. Ég skora nú á vega málastjóra að fara um veginn og sjá þessar andstyggilegu framkvæmdir. Þetta er ábyggi- lega það dýrasta viðhald á vegi hérlendis og engin ending. í FYRRA VORU teknir kafl- ar af þessum vegi og sett slétt slitlag yfir. Það virðist nú eina lausn á viðhaldi þessa vegar, en ekki sú handaskömm, sem þarna má sjá. Ég er ekki að kasta steini að þeim sem verkið vinna, þeim er sjálfsagt fyrirlagt að hafa þetta svona. Vinna með lð legum áhöldum og algerlega úr Framliald á 14. síðu. 2 10. ágúst 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.