Alþýðublaðið - 03.10.1961, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 03.10.1961, Qupperneq 7
Stjarnfræðilestur Þorsteins Guöjónssonar og hin verðandi heimsfræði Þar sem grein þessi fékkst ekki birt í 'Visi, vill Alþýðublaðið ljá henni rúm. UNDARLEGA er þeim mönn um farið og ekki vel, sem hata vísindi, og kom mér á óvart ag sjá svo lágkúruleg- an hugsunarhátt koma fram hjá ekki ómerkari rithöfundi en ég hef haldið Guðmund G. Hagalín vera. Lestur Þor- stens Guðjónssonar, sem út- varpað var þann 30. f. m, var vel skýr og að öðru leyti óað finnanlegur, og hlýtur það því að hafa slaíað af óbeit Guðmundar á hinu stjarn- fræðilega efni, að honum skyldi verða eins illt af að heyra þann lestur og fram kom í Vísisgrein hans dag- inn eftir. Eitt af því, sem mér þólti gott að heyra í lestri Þor- steins, var svo sem nú skal greina: Eins og kunnugt er, þá hafa menn nú um skeið talið mikla ástæðu til að ætla að stjörnuheimurinn sé að gliðna sundur, vetrarbraut- irnar að fjarlægjast hver aðra, og hefur af þessu komið fram sú kenning, að einu sinni hafi heimurinn verið eínn samanþjappaður efnis- kökkur, sem síðan hafi tvístr azt vegna gifurlegrar spreng ingar. En samkvæmt athug- unum sem þarna var getið um, virðist þessu þó vera öðruvísi varið. Samkvæmt þeim athugunum hefur fjar- lægðin milli vetrarbrautanna lítið eða ekki vaxið frá því í einhverri órafjarlægri fyrnd. Og nú ætla ég, þó að það komi ef til vill illa við einhvem, að minna á hug- mynd um þetla efni, sem hér á landi kom fram fyrir mörg um árum, en hlýtur nú stuðn ing af sams konar kenningu útlends vísindamanns. En kenningin, sem lesa má um í Framnýal dr. Helga Pjeturss er á þá leið, að vetrarbrautir þær, sem mönnum er nú kunnugt um, og fleiri, séu einungis sem eindir í yfir- vetrarbraut, sem þó sé ekki nema ein af mörgum, og að það stafi af gífurlegum snún ingshraða þessara yfirvetrar braular, að ljósið frá sumum þessum eindum sýnist rautt. Bendir dr. Helgi í þessu sam bandi á það, að snúningur vetrarbrautar vorrar í heild, sem menn uppgötvuðu all- miklu síðar en flug sólnanna, sé stórum hraðari en hreyf- ing sú sem á sér stað í hverju einu sólkerfi, og að ástæða sé því til að ætla, að hreyfing yfirvetrarbrautar sé einnig stórum meiri en hvörfun hverrar einnar, sem svarar þar aðeins til eindar. En hvað sem þessu líður, þá er þó eitt, sem er örugglega víst. En það er, að hvenær sem því er haldið fram, að alheimurinn sé nokkru stærri en haldið hefur verið fram áður, þá er þar verið á leiðinni fram til hins rétta. Hvort sem mönn- um líkar það betur eða verr, þá er hún óhjákvæmileg sú ályklun, að heimurinn sé ó- endanlegur bæði í tíma og í rúmi, því væri hann það ekki, þá vantaði hann sína frum- orsök. Sérhvað, sem er, er undantekningarlaust til orðið fyrir sambönd við ann- að, og liggur því í augum uppi að hver takmörkuð heild hlýt ur ævinlega að vera hluti annarrar stærri heildar. Þorsteinn Jónsson á tllfsstöðum. hvernig ég lagði þá? * NÚ ERU ekki bjar.trr dagar hjá N a s s e r hinum e&ypzka: ríkið hans kofn- aði, í tvennt. En hann ber s'g karlmannleg-a á mynd- rnni. Hún er tekiu fáeinum minútum eft.r að hann hót aði uppreisnarmónnum eidi og brennisteini í út- varpsræðu. Þrír ráðherrar úr stjórn hans hlýða á merstarann. Og bak við skrifborð Nassers er að hætti ernvaldsherra — inynd af honum sjálfum. WWMMWMMWWMMWWMM 400 FISKIFRÆÐINGAR Á RÁÐSTEFNU WASHINGTON (UPI) —- Ráðstefna 400 fiskifræðinga frá 50 löndum verður sett hér í síðasta mánuði Ráðstefna þessi er haldin að tilhlutan matvæla og landbúnaðarstofn unar SÞ og fjallar um fiskinn sem fæðutegund, það sem skeð hefur á sv.ði fiskifærði og fiski veiða undanfarna áratugi og stefnu þá, sem líklegt er að fylgt verði í náinni framtið á sviði fiskirannsókna og fiski veiða. Þetta er fyrsta alþjóðaráð stefnan sem haldin er þessar- ar tegundar og er aðalmarkmið hennar að skipuleggja og auka rannsóknir á fiski og hlutdeild hans í fæðu mannkynsins. Rætt verður um leiðir til að auka fiskiframleiðslu heims ins. sérstaklega þó hinna van þróuðu þjóða sem og um leiðir til að auka fiskineyzlu fólks, en það er álit fiskifræðinga að aukin fiskneyzla myndi geta stórbætt úr núverandi eggja- hvítuskorti í fæðu ýmissa þjóða. T. d. eiga að fara fram um ræður og rannsóknir á því, hvernig hægt sé að auka fiski neyzlu vanþróaðra þjóða, ann að hvort með auknum fiskiveið um þeirra sjálfra eða aðkeypt um fiski Á þessu sviði sem svo mörigum öðrum, sem ráð stefnan f.iallar um, verður að taka ýmis eínahagsleg vanaa mál tii umræðu. Meðal þeirra mála. sem REYTI rædd verða, er hvort hægt sé að auka fjölbreytni þeirra fæðutegunda. sem unnar eru úr sjónum. e:ns og t. d. fram leiðsla þess, sem nefnt hcfur verið „fiskihveiti“. Einnig verður rætt um sjávarafurðir til dýraeldis. Þá verður líka rætt um rannsókn hafsvæða, leitað að nýjum miðum o. s. frv. Allar þær þjóðir, sem þátt taka í fráðstefnunni, leggja fram skýrslur um fiskiveiðar sinar og fiskirannsóknir. Er þær hafa verið teknar til gaum i gæfilegrar athugunar, verður ■ ákveðið' á hvaða þætti fiskLj rannsóknanna verður lögð I mest áherzla í framtíðinni. ÝMISLEGT bendir til þess, að nokkrar breytingar séu í vændum á Spáni, og örfáar breytingar hafa þegar verið gerðar, þótt þær virðist reynd ar fljótt á litið þýðingarlitl ar Bjórinn er á góðri leið með að verða vinsælli meðal al- mennings en vínið, það er orðið erfitt að fá vinnukonur og húshjálp og pesetinn er orðinn tryggur og öruggur gjaldmiðill. Spánska stjórnin er að banna hið fræga spánska „síesta“ um miðjan daginn með þeim afleiðing- um, að Sþánverjar verða að fara fyrr í rúmið þ. e. a. s. fyrir miðnætti í stað nokkru ‘ eftir miðnætti eins og lengi hefur tíðkast. Aður var verzl unum lokað í nokkra klukku tíma um miðjan daginn en opnar langt fram á völd, en nú á að taka upp þann opn unartíma, sem almennur er annars staðar £ Evrópu. 'Vax andi fjöldi verksmiðja, sem risið hafa upp eins og gorkúl ur á síðastliðnum árum, hef ur haft það að verkum, að nú er orðið illgerlegt að fá vinnukonur, því stúlkurnar vilja mun heldur vinna þar en á heimilunum. Heyrzt hefur að í vændum sé ný löggjöf um skiptingu og nýtingu landeigna. Bend ir margt til þess, að ný lög gjöf verði sett fyrir þingið í desember næstkomandi áður en þingmenn fara í jólaleyfi Nokkur atriði þessara nýju laga eru kunn að meira eða minna leyti, bæði vegna um mæla ýmissa embættis- manna og skrifa í hinum rit skoðuðu dagblöðum. Tölu- verðar umræður • hafa verið um breytingar á landbúnað- armálum eftir að Franco fór í ferðalag um stóran hluta Suður-Spánar, þar sem eru mikil landbúnaðarhéruð. Vitað er að nefndir hafa fjallað um þessi mál og haía þær lagt fyrir stjórnina.tvær hugsanlegar lausnir, en ekk— ert er vitað um innihaléfr þeirra. Ein breyting á landbúnað— armálum er þó þegar komin fram. Landbúnaðarverka— menn fengu fyrir nokkruí bættar sjúkratryggingar og heilbrigðisþjónustu til sam ræmingar við það sem verka menn í íðnaðinum hafa þeg— ar fengið. Stjórnareigendur hafa tekið þessum breyting um illa. Þeir vilja fremur borga hærra kaup, allt að 200 krónum á dag, þeim sem hjá. þeim vinna um uppskerutím. ann, en að borga mun lægra kaup föstu starfsfólki. Sérfræðingar í landbúnað— armálum segja, að eina ráð ið til að koma góðri skipan á nýtingu jarða sé að skatt— leggja illa nýttar jarðeignir, svo að eigendurnir sjái sig tit neydda að selja þær. Á tímum spánska lýðveld— isins var ákveðin skipting- stórjarða jafnhUða eignar- námi á þem. Sú tilraun mis- tókst, því fólkið, sem tók við- jörðunum, kunni oft og tíðfc um ekki að rækta þær. Tveim árum eftir skiptinguna kom í ljós, að uppskera á ekru var mun minni en hjá fyrri eij? endum. Endurbætur í land- búnaði eru orðnar knýjandi nauðsyn á Spáni. Um helm- ingur Spánverja stundar larwi búnað, en tekjur landbúnað- arins nema þó aðeins 27 c/a þjóðarteknanna. Alþýðublaðið •—; 3. okt. 19611 ’J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.