Alþýðublaðið - 24.12.1961, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 24.12.1961, Blaðsíða 5
'X l ADÞYÐUBLAÐIÐ fór á kreik og spurði fólk um jólin. Það hitti sjó mann, skrifstofustúlku, gamla konu á Elliheim- ilinu og strák sem var að lóna við höfnina. Hér eru mínútuviðtölin, sem við áttum við þetta fólk. VIÐ HITTUM 94 ára gamla konu, Borghildi Magnúsdótt- ur í herbergi 210 á Elliheim- jlinu Grund. Hún. er hin hressasta, þrátt fyrir aldur- inn og situr viS prjóna sína, þegar við komum inn. — Hver finnst þér mestur munur á jólum nú og áður? — Fólk var þá vant minni hátíðahöldum en pú, enda lífsskilyrði allt önnur þá, og gjaf r þess vegna mun minni og færri þegar ég var ung en nú tíðkast. Samt held ég að fólkið hafi oft ekki verið síður ánægt þá en nú. Ann- ars finnst mér kærleikurinn vera meiri nú en þá og menn yfirleitt gjöfullj núna. Þegar ég var ung voru ýmsir stór- ríkir menn, sem aldrei gáfu neinar jólagjafir til fátækra á jólunum. Nú held ég, að öll um sé rétt eitthvað og er það vel. — Finnst þér fólk eyða of miklu fé til jólagjafa? — Nei, það held ég ekki. Annars get ég lítið sagt um það, ég gef ekki svo mikið sjálf. — Hvað ætlar þú að gefa í jólagjaf'r? — Meðan ég get prjónað, gef ég jólagjafir, en ég er bara að verða svo ónýt til þess. Ég gleð fólkjð mitt með sokkum og vettlingum, sem ég held að komj bórnunum vel. Að öðru leyti gef ég fólk- inu lííið, enda dýrt að lifa fyrir gamalt fólk, sem hefur yfirleitt lítið fé handa milli fram yfir hið nauðsynlega. — Gamla fólkið kemst serr? bet- ur fer allvel af og þökk sé fyrir það, en lítið verðuv af- gangs til jólagjafa. NÆST hittum vfð Anton Líndal bryta á Dettifossi, en sk'pið er nýkomið í höfn er- lendis frá. — Farinn að undirbúa jól- in? — Konan hefur haft mest fyrir því. Maður hefur nátt- úrlega komið með eitthvað heim til jólanna, en það var ekki mik'ð fyrir þvi haft. — Verður þú á sjónum um jólin? — Nei, sem betur fer. Þá fer ég í sumarfri, þvi ég hef geymt það þar til núna. — Hefur þú oft vcrið á sjó yfir jóíjn? — í fyrra vorum við í höfn um jólin, í Rússlandi. Þá eiga allir um borð frí, sem frí geta átt, hátíðamatur á borðum, teknar upp jólagjaf- ir, lesið, sofið og borðað, og allt gert til að gera jóiin sem hátíðlegust fyrir áhöfnina. — Héldu líússamir jólin hátiðleg á sama hátl og við? — Nei, það var unnðl jóla- dagana, en hins vegar voru einhver hátíðali(j::l um ára- mótin, sem komu að ein- hverju leytj a. m. k. i stað jólanna. I SÆLGÆTIS-gerð nni Opal er m«kið að gera fyrir jólin eins og viða annars stað ar. Stúlkum hefur verið bætt við til að geta sinnt aukinni eft rspurn í jólaösinni og þær koma víða að og úr ýmsum skólum. Þær vjlja samt fátt segja um jólin og jólaundir- búning þeirra, nema hvað þær hlakka tsl jólanna og ætla að nota töluverðan hluta af kaupi sínu til jólagjafa handa vinum og kunningj- um. Á sknfstofunni eru stúlk- Framhald á 15. siðu. Alþýðublaðið — 24. des. 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.