Alþýðublaðið - 31.12.1961, Qupperneq 2
Elístjórar: Gísll J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Ejörgvin Guömundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
14 906. — Aösetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
C—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
Nýju ári heilsað
. :ENN eitt ár er liðið. Þótt gengið hafi á ýmsu verð-
! ur ekki annað sagt en það hafi verið íslendingum
' -gott. Aflabrögð hafa verið góð, vinna mikil og al-
menn velmegun í landinu, heilsufar með bezta
| móti.
: Samt sem áður var þetta ár mikilla átaka og
1 flokkadrátta. Erfiðustu vandamálin voru ekki af
: völdum náttúruafla eða annarra óviðráðanlegra
! ástæðna. Þau voru fyrst og fremst tilbúin af lands
■ 'tólkinu sjálfu. Eftir því sem meira er til skiptanna
j viírðast skiptin verða erfiðari. Flestar atvinnu-
stéttir, frá hinum lægst launuðu verkamönnum
til hátekjumanna, gera háværar kröfur um kjara-
' bætur. Enda þótt framleiðsla þjóðarbúsins aukist
. eins mikið og framast standa vonir til, mundi það
trauðla duga til að uppfylla allar kröfumar.
; Þrátt fyrir slíka erfiðleika er engin ástæða til
'bölsýni um framtíð þjóðarinnar — þvert á móti.
Þjóðfélagið hefur stigið þýðingarmikil skref í átt-
ina til félagslegs réttlætis og öryggis, svo að fáar
þjóðir hafa þar betur gert. Fjármálum þjóðarinnar
gagnvart öðrum löndum hefur verið komið á fast-
' an grundvöll og þar með endurvakið lánstraust
íslands. Aðstaða er þannig fengin til nýrra stór-
átaka, og um það gerð fimm ára áætlun, svo að
: unnið verði skynsamlega og af hagsýni í framtíð-
’ inni.
' Á hinum alþjóðlega vettvangi verður íslending
'um að skiljast, að einangrun þeirra er að fullu
'iokið. Við verðum að taka þátt í samskiptum þjóða
1 af ábyrgð og einurð, taka á okkur skuldbindingar
og njóta hlunninda eftir atvikum, en treysta því
ekki a^rinlega, að stórveldin hneigi sig djúpt fyrir
! dvergum, eins og þau að vísu gert oft.
' Enda þótt íslendingar megi sem heild allvel við
una sitt hlutskipti í samanburði við aðrar þjóðir,
steðja uggvænlegar hættur að frelsi og tilveru
! þjóðarinnar, sem og að öðrum frjálsum þjóðum.
Þessar hættur eru útbreiðsla kommúnismans í
öllum sínum myndum, en hann stefnir vísvitandi
a5 eyðileggihgu alls þess, sem frjálsir menn hafa
' barizt fyrir. síðan á dögum Forn-Grikkja. Örlög
Eistlands eru örugg vísbending fyrir smáþjóð.
! Þessari ógnun ber að mæta með árvekni og stöð-
! ugri baráttu hér á landi eins og annars staðar.
; Alþýðublaðið ber við þessi áramót fram þá ósk
: fyrsta, að þjóðin beri gæfu til að leysa svo innan-
■ landsdeilur sínar, að sem flestir geti við unað,
: þótt seint verði allir ánægðir. Takist það, munu
önnur vandamál reynast auðleystari með sameig-
inlegu átaki. Á alþjóðlegum vettvangi eru nýárs-
1 óskirnar um frið, afvopnun og öryggi uncþr merkj-
1 um Sameinuðu þjóðanna.
Gott og farsælt nýár!
Tollahækkun
Framh. af 1. síðu.
stofnaö hafa tollar millj Efna-
hagsbandalagsríkjanua innbyrð-
is verjð lækkaðir í nokkrum á-
föngum og nemur heildartolla-
lækkunin nú 30% og hefur ver-
ið gert ráð fyrir 10% lækkun tií
viðbótar nú um áramótm, og ef
t'l vill 20W lækkun, Hvort
um svo mikla lækkun verður að
ræða í raun og veru er aðal-
iega komið undir því, hvort það
tekst að ná samkomulagi í
deiluimi um viðskiptahætti
með landbúnaðarafurðir mnan
Efnahagsbandalagsins, en um
þá deilu hefur mjög ver.ð rætt
í fréttum undanfarið og er ekki
vitað nú á þessari stundu, livort
samkomulag tekst fyrir áramót.
Hins vegar var ekk; gert ráð
fyr:r því, að tollabreytingar
á sjávarafurðum gagnvart
þjóðum utan bandalagsins
hæfust fyrr en nú um
þessi áramót. Nú verða því
fyrstu sporin stigin til samræm
ingar á tollum Efnahagsbanda-
lagsríkjanna og koma þeir því
ým'st til að hækka eða lækka
gagnvart öðrum ríkjum nú um
áramótin.
í tilefni af þessu hefur Alþýðu
blaðrð sni'^ð sér til Gylfa Þ.
Gíslasonar viðskiptamálaráð-
herra og spurt hann um hvaða
breytingar á tollum séu væntan
legar á sjávarafurðum í Efna-
hagsbandalagsríkjunum.
V ðskiptamálaráðherra sagðí,
að ríkisstjórnin hafl gert sér far
um að fylgjast sem rækilegast
með þeim breytingum, sem í
vændum væru nú um áramótm.
Það væri vitað. hvaða breyt-,
ing yrði á tollunum, en hins veg ,
ar Iægi ekki ljóst fyrlr, hvort í
e'nsökum löndum yrði um svo
nefndan toilkvóta að ræða, þ. e.
a. s. hvort enn um skeið yrði
leyft að flytja inn E/1 landanna
ákveðið magn án tollahækkunar
og þá ekki heldur um hversu
mikið magn yrðj að ræða fyrir
hverja einstaka vörutegund
hverju landi.
Þetta myndl ekki liggj.i ljóst
fyrir fyrr en eftir áramót n, en
kunnugt værj um ráðagerðir i
þessum efnum í að minnsta
kosíi sumum Efnahagsbandalags
ríkjanna.
Hins vegar gaf viðskiptamála
ráðherra eftirfarandi nppiýsing
ar um þær breytingar á sjálfum
tollunum, sem koma tif fram-
kvæmda nú um áramótin:
ÞÝZKALAND
ísuð síld: Tollur 6%, nema
15. febr. — 15. jún, þá er hann
eng.nn. Var áður enginn. allt ár
ið. (Endanlegur tollur: 20%.)
Ufsi, nýr: Tollur 4,5%, netra
I. marz — 31. júlí, verður þá
II, 5%. Var áður 10%, nema 31.
ágúst — 1. feb., þá var hann
enginn. (Endanl. tollur: 15%.)
Ný ýsa, langa, karfi, lúða,
þorskur: Tollur 11,5%, nema 1.
ágúst — 31. des. verður þá 4,5
%. Var áður 10%, nema 31.
ágúst til 31. des. þá enginn.
(Endanl. tollur: 15%).
• Framhald á 11. síðu.
S
!
*
s
S
s
s
s
. %
s
V
S'
V
s
V
s
Gleöilegt nýár!
Óskum öllum
viðskiptavinuiH
vorum góðs gengis
á komandi ári.
Brunabótafél ag
íslands
Gleðilegt nýárl |
Þökk fyrir viðskiptin. á liðna árinu
HAHBi*
Fullirúaráð Aiþýðuflokksins
í Reykjavík
óskar öllum Reykvíkingum
og öðrum landsmönnum
Farsæls árs
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
f
s
s
s
s
*
i
V
s
s
s
;
S'
S
I
s
s
s'
I
%
's'
s:
I
V
s'
I
í
s'
S'
V
s
s
V
s
s
s
fe 31. des. 1961 — Alþýðublaðið