Alþýðublaðið - 07.02.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 07.02.1962, Blaðsíða 4
»AWe ITALIR nálar í Vatikaninu höfðu mikil áhrif á flokkinn á bak við tjöldin, en tök þeirra hafa farið minnkandi undanfarin ár, enda hefur Jóhannes páfi gert sitt til að draga úr stjórn málaafskiptum þeirra. En raunverulega fóru áhrif kirkj unnar að dala þegar fyrir 2 árum, þegar Fanfani mynd- aði þriðju stjórn sína, — en hann hefur verið helzli fram á maður vinstri arms flokks- ins. Á flokksþingi DC í Napoli á dögunum var stefnuskrá sú, sem Fanfani og Aldo Mo- ro, framkvæmdastjóri flokks ins og helzti leiðtogi miðju- manna (þ- e. þeirra, sem standa á milli hægri og vin- stri blakkanna), standa að samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Hún kom ekki beinlínis til atkvæða, heldur mörkuðust kosningar í flokks stjórnina af afstöðunni til stefnuskrárinnar. Hópur Mo- ros fékk 75 sæii í flokksstjórn — Fanfani fékk 39 og minni hópur vinstri manna 21, eða samtals 135 sæti. Hægri mehn, undir forustu Mario Scelba, fyrrverandi forsætis- ráðherra og fleiri, fengu 25 sæti. Auk þeirra e:ga ýmsir fyrrverandi forsætisráðherr- ar og fram á menn sæti í flokksstjórninni, auk þess sem þingmenn kjósa 12 full trúa, en alls eiga 176 menn sæti í flokksstjórninni, svo að meirihlutinn er öruggur. Það er enginn efi á því, að það fylgir því nokkur áhælta fyrir þá Fanfani og Moro að taka þessa stefnu, en það er áhætta, sem þeir gera sér ljósa og er raunverulega nauð synleg enda vinstri menn á FANFANI SARAGAT NENNI ^ snúum við stígvélinu til vinstri, herrar mínir! ALLT ÚTLIT er nú fyrir, að ítalir fái vinstri stjórn. Á þingi kristilega demókrata- flokksins í Napoli í sl. viku unnu þeir menn slórs'igur, sem vilja , opna til vinstri," eins og það hefur verið kall- að, og er Amintore Fanfani forsætisráðherra fremstur þar í flokki. Hann hefur síð- an beðizt lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt og situr stjórn- in nú sem bráðabirgðastjórn þar til Gronchi forseti hefur ákveðið hverjum skuli falið að mynda nýja stjórn. Er talið, að til þess þurfi hann eigi minna en viku, enda þarf hann samkvæmt regl- unum að ræða við fjölda manns þar um. Búast má við ákvörðun upp úr miðri þess ari viku. Það, sem meint er með , opnun til vinstri“ á ítalíu, er, að kristilegi demókrata- flokkurinn myndi stjórn með jafnaðarmannaflokki Sara- gats (PSDI), sem hefur 17 þingsæli, og Repúblikana- flokknum (PRI), sem hefur 6 þingsæti. Sjjálfur hefur kristilegi demókrat(aflokkur- inn 273 þingsæti, eða allir flokkarnir til samans 296 sæti af 596 í fulltrúadeild- inni. Til þessa hafa þessir flokkar setið í stjórn og stuðst við hægri flokka. en nú er hugmyndin að leita stuðnings til vinstri, og er þá ekki um annað að ræða en semja um stuðning við Nenni og jafnaðarmenn hans, sem til skamms tíma vom í mjög náinni samstöðu með komm- únistum. Þetta er þróun, sem allir framfarasfnnaðir menn á ítal'u hafa verið að vonast eftir síðastliðið ár eða svo, og er vonandi, að tilraunin tak:st. Blað Nenni, Avanti, hefur ekki tekið ákveðna af- stöðu til málsins, þegar þetta er skrifað, en það hefur held ur ekki tagzt gegn þessari lausn, svo að menn eru mjög vongóð:r. Til dæmis um á- huga almennings á því, að slík lausn takist, má geta þess að daginn eftir sigur Fanfanis og félaga hans á fiokksþinghiu í Napoh seld- ist blaðið upp, svo mikill var áhugi manna á að sjá við- brögð Nennis. . Til þess að gera okkur bet ur ljóst ástand það, sem skap azl hefur á Ítalíu, skulum við gera okkur dálitla grein fyrir flokkaskiptingunni þar. Tveir flokkar eru þar langstærstir, kristilegir demókratar og kommúnistar, jafnaðarmenn eru sterkir en klofnir í tvo flokka (Saragat og Nenni) aðallega vegna afstöðunnar til kommúnista. Síðan eiga ýmsir smáflokkar fulltrúa á þ'ngi og hafa áhrif langt um fram stærð sína vegna lykil- aðstöðu í stjórnarmyndun- um. 1 kristilega demókrata- flokknum (DC) eru kaþólskir menn, sem raunverulega hafa hinar margvíslegustu stjórn- málaskoðanir, allt frá yzta hægri væng til yzta vinstri vængs. Sú var tíðin, að kardi ítalíu augljóslega í miklum meirihluta. Hin mikla spurn ing er, hvernig Nenni snýst við málinu. Hann hefur þeg- ar slitið hinu nána sambandi sínu^við kommúnista í þjóð- málum, en heldur henni enn í bæjarmálum og í verkalýðs- félögunum. Flokkur hans er raunverulega klofinn í lýð- ræðisjafnaðarmenn, sem fylgja mjög línu Saragáts* og svokallaða vinstri menn, sem heimta áframhaldandi samvinnu við kommúnista. Lýðræðissinnaði armurinn í flokknum er í meirihluta, en sá meirihluti er tiltölulega lítill og erfitt er að gera sér grein fyrir því hve mikið til- lit Nenni telur sig neyddan til að taka til þeirra, sem kommúnistum fylgja. Það má segja, að hin raun- verulega ástæða til þess, að kristilegir demókratar hafa nú hafizt handa um að „opna til vinstri" hafi verið afstaða sú, sem Giuseppe Saragat, leiðtogi jafnaðarmanna, tók þegar snemma í haust, er hann lýsti því yfir, að hann og flokkur hans vildu fá rót- tækari stjórn en þá, sem set- ið hefur undanfarið og hefur átt líf sitt að verulegu leyti undir últra-íhaldsöflum eins og konungssinnum og ný fasistum. Hann hefur í vetur skrifað greinar í blað sitt, La Giustizia, þar sem hann hef- ur m. a. rakið hina félags- legu þróun á Ítalíu og heimt að, að stjórnmálaástandið yrði lagað eftir þeirri þróun, sem þegar væri orðin, og þá væri ekki hægt að gleyma verkalýðsstéttum landsins. Síðan hefur La Malfa, leið togi repúblikana, tekið í Framhald á 14. síðu. ^ 7. feibr. 1962 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.