Alþýðublaðið - 07.02.1962, Side 13

Alþýðublaðið - 07.02.1962, Side 13
'VIÐ, sem lifðum fyrri heims styrjöld og endalok hennar, munum eflaust mörg, að þá risu upp sjö ný ríki í Evrópu, sem öðluðust frelsi og sjálf- stæði. Þau voru: ísland, Finn land, Eistland, Lettland, Lit- háen, Tékkóslóvakía og Júgó slavía. Og um leið sá mann- kynið hilla undir nýja von sálta og friðar, þar sem þjóð- ir framtíðarinnar, bæði stór- ar og smáar gætu lifað saman í sátt og friði. Þessi bjarta von var byggð á því, að hin sára reynsla og hörmungar, sem heimsstyrjöldin hafði lagt á mannkynið, mætti reyn ast því svo eftirminnilegur lærdómur, að aldrei framar myndi nokkrum þjóðarleið- togum detta í hug að leysa deilumál, á svo villimann- legan hátt, að úthella blóði meðbræðra sinna. Síðan þessi bjarta og hlýja von yljaði mannkyninu, eru liðin rösk 40 ár. ÖU vitum við, að önnur heimsstyrjöld hefur geysað hræðilegri hinni fyrri. Þjóðir undirokaðar og afmáðar,, aðrar hlutaðar í sundur og upp á þær þrengt stjórnarháttum, sem valdið hafa hörmungum og land- flótta. En að vísu var bölvun og ógn nazismans útrýmt, en það var skammgóður vermir, því í stað nazismans hefur kommúnisminn, þessi skelfi- legi skuggi, einræðis, glæpa, ofbeldis og kúgunar, fallið á mannkynið, með þeim, afleið- ingum að fjöldi þjóða hefur verið sviptur frelsi, aðrar undirokaðar og innlimaðar og fóik’.ð rifið saklaust burt frá heimilum sínum, og flult óravegu í gripavögnum í fangabúðir, þar sem harkan og þrælasvipan skipa öndvegi. Og þjóðirnar þrjár, Eist- land, Lettland og Litáen. sem öðluðust frelsi og sjálfstæði um líkt leyti og Island, urðu fyrstu fórnarlömbin, sem helhrammur kommúnismans kramdi í sundur og afmáði sem frjálsar þjóðir. Örlögum Tékkóslóvakíu og flestra ann- arra Austur—Evrópuþjóða, þarf ekki að lýsa á aðra lund en þá, að þær urðu kommún- ismanum að bráð. En í frelsis morði kommúnista á ung- versku þjóðinni, nær grimmd in, svikin og slægðin há- marki, er ungverska þjóðin reis upp sem einn maður, og krafðist þess sjálfsagðasta, sem nokkur þjóð getur kraf- izt, að mega búa frjáls í sínu eigin landi. Og er sól frels- isins virtist vera að renna upp yfir ungversku þjóðina og samningar standa yfir, er grimmdin, svikin og slægðin samantvinnuð á laun á svo lúalegan hátt af ráðamonn- um kommúnista, að einstætt er talið, því í miðjum samn- ingum eru eld og stálspúandi rússneskir skriðdrekar látnir slevpa sér yfir fólk'ð óvið- búið, kremja og drepa syni og dætur Ungverjalands í þúsundatah, svo að blóð þeirra rennur í straumum á strætrftn Búdapeslborgar — og frelsissól'n, sem tekin var að skína, seig aftur og hneig í blóðhafið. Og neyðaróp ung versku þjóðarinnar bárust að eyrum alls mannkynsins, eftir leiðum tækninnar, og hinn frjálsi heimur og Sam- einuðu þjóðirnar hlustuðu í vanmætti sínum með hryll- ingi og skelfingu, en gátu enga hjálp veitt. En hvað bíður þessara aðila í Berlín- ardeilunni. vonandi heiðar- legir samningar en ekki auð- mýking? Flótti milljóna manna frá Austur-Þýzka- landi og tilburðir kommún- ista til að stöðva landflótt- ann, hafa vakið stórfurðu um allan heim, svo kaldhæðnir og niðurlægjandi þykja til- burðir þeirra, steypumúr, gaddavír og gapandi morðtól eru þrautameðulin, sem kommar treysta bezt, til að halda fólki í sælunni, sem þeir hafa verið að leita að og reyna að skapa í 44 ár, en árangurinn nær óstöðvandi. Ætla mætti nú, að þessi neikvæði árangur, og nær sam felld hryllileg, blóði storkin ofbeldis, glæpa og kúgunar- slóð kommúnismans, og þá ekki sízt í þeirra eigin landi, eftir upplýsingum flokksþing- anna tveggja síðustu að dæma og í öðrum löndum, hefði orðið öllum frjálsum þjóðum áminning um að halda vel vöku sinni, — og efla varnir huga og handa, svo að helslóðir alheimskom- múnismans mættu aldrei um lönd þeirra liggja. 'Víst hafa margar þjóðir t. d. England og Norðurlöndin, ef ísland er undanskilið, látið sér þetta að kenningu verða og haldið vel vöku sinni gegn þjónum heimskommúnismans, t. d. í Englandi fá þeir ekki nema innan við 1% í þingkosning- um. á Norðurlöndum 2—4%, en á íslandi 15—17%. Er hér ekki nokkuð alvar- legt umhugsunarefni fyrir íslendinga, því nú dylst eng- um lengur, að öll hugsun, störf og helsprengjuógnir Rússa snúast mest um einn brenn:punkt, heimsyfirráð. Hitt dylsl hugsandi mönnum heldur ekki, að áhugi Rússa fyrir íslandi fer vaxandi, og ber margt til, og því er það ekki með ólíkindum, þó að sú spurning vakni, óskar ís- lenzka þjóðin eftir þeim ör- lögum, sem helslóðir komm- únismans hafa skilið eftir í þeim löndum, sem þær liggja um? Og víst megum við íslend- ingar vera þess fullvissir, að valdamenn Rússa og þeir, sem semja heimsyfirráðaáætlanir þeirra hafa ekki gleymt því, og muna kannske betur en margir íslendingar, hvaða þýðingu lega íslands hafði á úrslit síðari heimsstyrjaldar og raunar líka á örlög þeirra eigin lands. Við munum sjálf sagt mörg hvernig komið var fyrir rússnesku þjóðinni nokkru fyrir stríðslok. Hramm ur nazismans hafði brotið undir sig einn bezta hluta landsins, hernumið og drepið milljónir manna, þjóðin orðin úttauguð af striðsþreytu, fæðu og vopnaskorti. Við munum líka hvað gerði þeim fært að heimta aftur land sitt og fólk úr klóm nazistanna. Skipalestirnar ensku og amerísku, sem varðar voru frá ströndum íslands, gerðu Rússum aftur kleift að ná landi sínu með matnum og vopnunum, sem þær fluttu til rússneskra hafna. Þannig varð landið okkar einn hlekk urinn í þeirri örlagaríku keðju, sem bjargaði Rússlandi og rússnesku þjóðinni undan oki nazismans, og einnig því, sem mikilvægast var, frelsi og menningu 'Veldurlanda. Þetta sýnir b.ezt þýðingu og mikil- vægi Islands í heimsátökun- um, hvort heldur er í baráttu um heimsyfirráð. eða til varnar frelsi og mannréttind um eins og veslrænar þjóðir hafa sameinazt um í Nato. Og nú í dag er Rússland orðið hrokafyllsta og eitt ægi legasta herveldi heims, — og hefði Nato ekki verið stofnað er næsta líklegt að flestir Evrópubúar styndu í dag und ir rússnesku oki og áþján. En nú loksins virðast augu íslenzku þjóðarinnar vera að opnast til FULLS fyrir þess- ari geigvænlegu hættu. Því nú bjarmar af nýjum degi og morgunroði nýrra samtaka og nýs skilnings á þessari hættu er að renna upp á þjóðar himin okkar, þar sem ungir menn úr öllum lýðræðis flokkunum þremur, hafa tek- ið höndum saman (nýir Fjölnismenn) og stofnað fé- lagsskap, til að fræða þjóðina um nauðsyn á að efla og styrkja vestrsana samvinnu og um þá geigvæn- legu hættu, sem öllum frjáls um þjóðum stafar af útbreið— slu kommúnismans. Og nú bíða Varðbergs- manna mörg verkefni og mik ilvæg. Því með helsprengju ógnunum Rússa í haust, hófst í rauninni nýr og hættulegur þáttur í útbreiðslutækni kom múnista. Því takist þeim að skapa ótta skelfingu og und— irgefni einstaklinga og þjóða, með sínum tröllaukna víg- búnaði, auðveldar það að sjálfsögðu göngu margra inn í þrælakisluna stóru. Hér á íslandi hafa því Varðbergs- me.nn mikilvægu hlutverki að gegna, þeir eiga með starfi sínu og fræðslu að snúa vopn in úr höndum kommúnista, skapa í hugum fólksins hug- rekki í stað ótta, sjálfsvirð- ingu, metnað og sterka trú á landið f stað undirgefni við erlenda ógn hvaðan sem hún kemur. Og eflaust hefur hún vakið sársauka og runnið mörgum íslendingum til rifja, undir- gefni sú við erlent vald, er fram kom á alþingi eitt sinn í haust, er þar var til sam- þykktar tillaga um að mót B & É F mæla helsprengjuæði Rússa er leitt gæti til eitrunar and rúmsloftsins og að framvinda lífsins á jörðinni yrði kvöl og óskapnaður, er sjö alþingis- menn vildu ekki samþykkja þá tillögu. Mótmæli og áskor- anir til Rússa að hætta þess- um ógnum streymdu hvaðan æva að frá frjálsum þjóðum. J Skýringin á iframkomu þessara sjömenninga liggur sennilega í því, að á undan- förnum árum hefur það hent nokkra íslendinga að taka þá trú, sem veldur því að þeir fá mjög slerka tilhneigingu til að setja málstað Sovét- ríkjanna ofar og framar mál- stað ættjarðar sinnar, og eru þessir menn nefndir Moskvu kommúnistar. Mér fannst framkoma þess ara manna á alþingi i haust ekki sæma góðum íslending um, mér fannst næstum þeir bregðast ættjörð sinni, fyrir það er ég að átelja framkomu þeirra, en persónulega þekki ég tvo þeirra að góðu einú, og sökótt á ég ekki við neinn þeirra, frekar en við saklausu fuglana, sem sitja á trján- um fyrir utan gluggann minn, og syngja þar oft frjálsir og glaðir margan vorbjartan morgu.ninn. Og til þess held- Ur að styrkja átölur mínar í garð sjömenninganna, vil ég geta þess, að þrír samherjar þeirra, sem sumir kalla hálf kommúnista og sæti eiga á alþingi, brugðust ekki ættjörð sinni, en samþykktu mótmæl- in með þingmönnum lýðræð- isflokkanna. Kannske blund- ar í brjóstum þessara þre- menninga lítill vottur af þeirri frelsisþrá forfeðra okkar, sem leysti land- festar þeirra í Noregi og gaf þeim hugrekki að leggja á, djúpið út í óvissuna. t í Sé haft { huga mikilvægi þess, að mótmæla þeim ós|cöp| um, sem leitt gætu til að stór regnsvæði jarðar meng- uðust af óhollustu eða jafn- vel hálfeitruðust, og landið okkar Úggur einmitt á einu slíku regnsvæði — er senni- legt, að um undirgefni og hjásstu sjömenninganna eigi sér ekki margar hliðstæður i íslenzkri þjóðarsögu. En hvort heldur hjásela sjömenn inganna stafar af undirgefni og hugleysi eða einhverju öðru, þá er þeim hollt eins okkur hinum, sem huglitlir erum að festa sér vel í minni þá áminningu og aðvörun, sem sjáandinn mikli og þjóð ská'dig Matthías Jochumsson túlkar í einni persónu í leik- ritinu Skugga—Sveinn, sem nú er verið að sýna. Skugga- Sveinn er í leiknum mesti ógn valdur íslenzku óbyggðanna og hver hreyfing, hver radd- blær, og hvert svipbrigði. — Ketill túlkar svo átakanlega undirlægjuhátt og þrælslund við ógnvaldinn, að seint gleym:st En nú eru uppi I heiminum miklu hræðilegri ógnvaldar en Matthías túlkar í Skugga-Sveni. Því er full þörf á að hafa oft í huga hug leysi Ketils, og láta það verða Framhald á 14. siðu. Alþýðublaðið — 7. febr. 1962 J3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.