Alþýðublaðið - 27.02.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 27.02.1962, Blaðsíða 4
•k II U G E T T f L A R R A er nít ján ára og lítur vel út í bikini. Hún hefur rið kjörin Ungfrú Frakkland 1962 og mun koma fram sem fulltrúi lands síns í fegurðarkeppni víða um heim á næstunni. — oá menn lienni miklum frama á þessari braut, enda sé hún ,,. enjulegri“ en margar aðrar af hennar sauðahúsi. Kirkja Oháða safnaðarins tiefur eignazt pípuorgel EG HEFI oft á undanförnum árum dáðst að þvi og þakkað hversu vel hefur gengið bygg- ing Kirkju Óháða safnaðarins •og allt starf, sem unnið hefur verið í sambandi við hana, svo sem að öflun ýmissa góðra kirkjugripa. Og i rauninni hef- ur allt þetta starf verið ævin- týri líkast og byggt á samhug ■og samtökum tiltölulega fá- menns hóps, miðað við fjölda bæjarbúa. En aldrei hefi ég xláðst eins að þeim fórnum þessa fólks, skjótum handtök- um og höfðinglegum aðgerð- um og síðustu dagana í sam- hándi við útvegun pípuorgels til kirkjunnar, sem nú hefur keypt og verið vígt við guðs- þjónustu í kirkjunni kl. 2 á sunnudaginn. Það var fyrst fyrir alvöru farið að liugsa og íala um þetta orgel sl. haust, og nú er það komið. Það liðu aðeins 2 — 3 dagar frá því að fest voru kaup á því og þar til það var kbmið upp í kirkjunni sökum þess að við náðum í þýzkan or- gelsmið, sem sá um uppsetn- ingu þess. Kvenfélag kirkjunn- ar gaf 70 þúsund krónur til orgelsins, og hefur áður gefið margar stórgjafir til kirkjunn- ar. Þetta félag hefur unnið dæmafátt afrek fyrir kirkju sína á örfáum árum, og skort- ir mig orð til þess að þakka þessum konum fórnfýsi og dugnað þeirra frá upphafi. Auk þess liafa ýmsir cinstaklingar gefið til orgelsins eins og birt mun verða á öðrum stað í blaðinu og hafi þeir allir kær- ar þakkir. Eg vil einnig leyfa mér að þakka formanni safn- aðarins, Andrési Andréssyni, og safnaðarstjórninni allri, sem ákvað orgelkaupin, fyrir einstakiega góðan skilning á því að útvega þyrfti viðeigandi bljóðfæri' í kirkjuna. Það er skoðun okkar allra og von, að þetla hljóðfæri, pípuorgelið, verði enn til þess að auka kirkjusókn og glæða ást til ^ 27. febrúar 1962 Alþýðublaðið mwwvwwwwwwwmwwwvwmw wwvvvvvvvvvwwvvwvvvvvvwvvwvvvwwww í CASTLETOWN á eynni Mön í írlandshafi býr mað- ur að nafni dr. Gerald B. Gardner og á hann og stjórn ar galdrasafni i borginni. Hann segist sjálfur vera göldróttur, og getur skýrt frá slíku án nokkurrar hættu fyrir sjálfan sig, því að það er gömul hefð á Mön að fara vel með galdra menn og slíka. Manarbúar eru nefnilega af keltnesku kyni og meðal Kelta hefur alltaf verið Jitíð með þó nokkrum velvilja til galdra manna, a.m.k. hefur aldrei verið venja hjá þeim að of- sækja göldrótta, og þeir hafa alltaf haft gott sam- band við álfa og annað huldufólk. Fyrrnefnt safn er aðeins opið á meðan skemmti- ferðamannastraumurinn er mestur á Mön, en blaðamað ur frá Nevv York Times fékk fyrir skemmstu að skoða safnið og eru upplýsingarn- ar hér hafðar eftir honum. Dr. Gardner var ekki við. Hann var á fcrð á megin- landinu, hvort scm hann hefur farið þá fcrð með eðlilegu eða yfirnáttúrlegu móti. A safninu er m. a. minnismerki um eina mann inn, sem nokkru sinni hef ur verið tekinn af lífi á Mön fyrir galdra. í pésa segir dr. Gardner frá því, að allmörg réttar- höld hafi farið fram á eynni vegna galdra, en uppáhalds dómsorð kviðdóma á eynni liafi í raun og veru verið þessi: „Saklaus, en má ekki gera það aftur.“ Aðeins einu sinni brást þessi snjalla lausn, en það var í máli konu nokkurrar, sem brennd var fyrir galdur árið 1617. Dr. Gardner segir í pésa sínum, að brátt fyrir ofsókn ir hafi galdrar aldrei lagzt af. Hann segist vera með- limur í hóni brezkra galdra manna, sem í séu 13 galdra menn og konan alltaf fyrir- liðinn. Á safninu er furðulegasta samsafn af „vígðum“ sverð unr, töfrasprotum, ,útreið- arsóp‘, grösum. smyrslum og öðrum hlutum, sem galdramönnum eru hand- gengnir, auk þumlaskrúfa og annarra pyntingartækja, sem notuð voru við galdra menn. í einum skáp er að finna fjölda muna, sem notaðir voru til að verjast ,illu auga.‘ Einn slíkra hluta er kökukefli úr gleri, sem fyllt er með þráðarhönk. Var talið, að hið illa auga mundi þurfa að fylgia þræð inum til að komast að fórn- arlambinu og villast algjör- lega í hönkinni. Mikið er um hvers kon- ar þjóðsögur og munnmæli á Mön, en hve margir af 48 þús. íbúum eyjarinnar trúa á sögurnar er erfitt að segja. Blaðamaðurinn segir, að erfitt sé að finna Manar búa, sem trúi á .litlu ver- urnar‘ eða ,þá‘, eins og álf- ar og hulduverur eru kall- aðar þar, eins og á Irlandi, en það sé álíka erfitt að finna menn, sem játa sig vantriiaða. Blaðamaðurinn heldur á- fram og segir, að á slíkum degi, sem þeim, er hann var á eynni, með grátt mistur loðandi við alla hluti, sitj- andi á hæðatoppum og lim gerðum, og jafnvel hlæjandi hafið, sé hægt að trúa liverju, sem er, að minnsta kosti sé eins gott fyrir efa- semdamenn að hafa ekki hátt. Skammt fyrir utan höfuð borgina, Douglas, er lítil brú, sem heitir Álfabrú. Það er venja Manarbúa að taka ofan og muldra kveðju til litla fólksins, þegar þeir fara þar yfir. Þeir, sem ekki hafa alveg týnt niður hinu keltneska máli, sem áður var talað á eynni, en er nú að mestu útdautt, fara með orðskvið, sem útleggst „friður sé með litla fólk- inu.“ Aðrir segja einfald- lega; „Halló, litla fólk.“ Til eru óteljandi frásagn- ir af ökumönnum, sem gleymt hafa að heilsa álf- unum á Álfabrú og sprakk hjá skömmu síðar, eða blönd ungurinn fór í vitleysu eða eitthvað þvíumlíkt. Sér fræðingur á staðnum segir, að litla fólkinu sé ekki um, að látið sé eins og það sé ekki til. Kaupsýslumaður einn, sem aldrei hefur trúað á huldufólk, er gott dæmi um afstöðu manna. í hvert skipti sem hann fer yfir brúna, klórar liann sér í höfðinu. Hann þarf að taka ofan hattinn til þess. Um daginn kom bréf frá enskum kaupsýslumanni, sem skrifað var utan á til álfanna á Mön og jafn- framf beðið um, að það yrði skilið eftir á limgerð- inu við brúna. Það var gert og dagnn eftir var það horfið. Annar Englendingur var á leið yfir brúna með vini sínum frá Mön, sem sagði honum frá veniunni, Eng- lendingurinn t% ofun og sagði: „Halló. litla fólk.“ — Rétt í því rann bíllinn til á veginum og rakst á stein vegg. Englendingurinn sagði; „Heyrðu, hvað gerizt, ef maður segir ckki halló við litla fólkið.“ Klerkur einn, sem skrif- aði bók, um eyjuna árið 1950, skýrði frá því, að margir Manarbúar. teldu ó- heillamerki að slétta hóla eða hreyfa v;ð þeim. Hann minntist einnig á þá trú fiskimnnna, að það væri líka óheillavænl0gt að nota hvíta st"ina í kiölfestu eða leggia úv höfn sem þriðia skin í v6ð Til að forð ast að verða briðii — fara annar og þviðii báturinn út hlið við hlið. oft bundnir saman. Klerkur sagði einnig, að margt „lieiðarlegt og áreið- anlegt fólk“ segðist hafa séð drauga, að verndargripir væru mikið notaðir og mörg hindurvitni í sambandi við dauða — lifðu enn. WWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWwWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWW málefnis kirkjunnar í hjörtum allra, sem hana sækja, ungra og aldinna, en í því sambandi má geta þess að á hverjum sunnudagsmorgni að vetrinum sækja eins mörg börn samkom- ur í þessari kirkju og liún frekast rúmar. Pípuorgeiið, sem nú hefur verið keypt til Kirkju Óháða safnaðarins er 5 ára gamalt og var áður í Kópavogssókn, en sú sókn ætlar nú að fá sér stærra orgel í hina nýju kirkju, sem þar er í smíðum. Orgel okkar er frá Walcker verksmiðjunni í V-Þýzkalandi og hefur reynzt sérlega vel og hiaut hin beztu meðmæli sér- fræðingsins, sem gekk frá því í kirkjunni. Þetta er 6 radda orgel og hægt að bæta við 2 röddum án þess að stækka þurfi orgelkassann. Jón G. Þór- arinsson, organisti í Bústaða- sókn, tók að sér um síðustu ára mót að gegna einnig organista- starfi við Kirkju Óháða safnað- arins með góðri samvinnu allra, sem hlut eiga að máli, og lék una, þegar orgelið var vígt. Emil Björnsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.