Alþýðublaðið - 27.02.1962, Blaðsíða 14
Þriðjudagur
SLYSAVARÐSTOFAN
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður íyrir vitjanir
er á sama staft ki. B—16.
-o-
Minningarspjöld Styrktarfél.
Iamaðra og fatlaðra fást á
eftirtöldum stöðum: Bóka-
búð Braga Brynjólfssonar.
Verzl. Roða, Laugaveg 74.
Verzl. Réttarholt, Réttar-
holtsvegi 1. Skrifstofu fé-
lagsins að Sjafnargötu 14.
f Hafnarfirði: Bókaverzl.
Olivers Steins og í Sjúkra-
samlagi Hafnarfjarðar.
o—o
Eimskipafélag
íslands h.f.
Brúarfoss fór frá
Hamb. 24.2 til Á1
borg Dettifoss kom
tii Rvíkur 21.2 frá
Iiamborg Fjallfoss fór frá Rost
ock 25.2 til Khafnar Goðafoss
fór fró Rvík 23.2 til Dublin og
baðan tn Mew York Gullfoss
kom til Rvíkur 25.2 frá Khöfn
og Leith Lagarfoss kom til Ak-
ureyrar 26.2 fer þaðan til Vest
mannaeyja og Faxaflóahafna
Reykjafoss fór frá Hull 24.2 til
Rvíkur Selfoss fer frá Nevv
York 2.3 til Rvíkur Tröllafoss
fór frá Rotterdam 24.2 til Ham
borgar Tungufoss fer frá Norð
firði í dag 26.2 til Raufarhafnar
Og Rvíkur Zeehaan fór frá
Keflavík 22.2 til Grimsby og
Tfull.
SkipaútgerS ríkisins
Hekla er á Austfjörðum á norð
urleið. Esja fer frá Rvík í dag
vestur um land í hringferð Herj
ólfúr fer frá Vestmannaeyjum
Itl. 21 í kvöld til Rvíkur Þyrill
var við Færeyjar á hádegi í gær
á leið til Hamborgar Skjald
breið cr í Rvík Herðubreið er á
Austfjörðum á norðurleið.
Skipadeild S.Í.S.
Hvassafell er í Rvík Arnarfell
er í Antwerpen Jökulfell lestar
á Vestfjarðahöfnum Dísarfell
er í Rotterdam Litlafell kemur í
dag til Rvíkur frá Vmeyjum.
Helgafeli er í Gufunesi Hamra
fell fór 18. þ.m. frá Rvík áleiðis
fil Batumi Margrethe Robert
fór 21. þ.m. frá Wismar áleiðis
til Gufuness
Jöklar h.f.
Drángajökuli fór í gærkvöldi
■frá Hafnarfirði áleiðis til Mour
mansk. Langjökull er í Rvík
Vatnajökull er á leið txl Rvíkur
frá Hamborg.
o-—o
Minningarspjöld
kvenféiagsins Keðjan fást
Qjá: Frú Jóhönnu Fossberg,
gími 12127. Frú Jóninu Loíts-
dóttur, Mikiubraut 32, sími
12191. Frú Ástu Jónsdóttur,
rúngötu 43, sími 14192. Frú
Soffíu Jónsdóttur, Laugarás-
vegi 41, sími 33856. Frú Jónu
Þórðardóttur, Hvassaleiti 37,
lími 37925. í Hafnarfirði hjá-
Frú Rut Guðmundsdóttur,
Austurgötu 10, súni 50582.
Flugfélag
íslands h.f.
Millilanda
flug Gullfaxi er
væntanleg til
Rvíkur kl. 16.10
í dag frá Khöfn
og Glasgow Ský
faxi fer til Glas
gow og Khafnar
kl. 08.30 í fyrra-
málið. Innanlandsflug: í dag er
áætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir) Egilsstaða, Sauðár
króks og Vmeyja. á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar,
Húsavíkur, ísafjarðar og V.eyja
o—o
Kvenfélag Neskfrkju hefur
kaffikvöld, þriðjud. 27. feb.
kl. 8,30 í Félagsheimilinu.
Konur eru beðnar að fjöl-
menna.
0—0
Aðalfundur Kvenréttindafélags
íslands var haldinn þ. 21. febr.
1962. Formaður, Sigríður J.
Magnússon var endurkjörin í
stjórn voru kosnar Svava Þór
leifsdóttir, Lóa Kristjánsdóttir
og Guðbjörg Arndal. í vara-
stjórn Anna Sigurðardóttir,
Guðríður Jónsdóttirog María
Þorsteinsdóttir Aðrar stjórnar
konur eru Lára Sigurbjörns
dóttir, varaformaður og kosn
ar á landsfundi Guðný Helga
dóttir, Guðrún Heiðberg Krist
ín L. Sigurðardóttir og Val
gerður Gísladóttir.
o—o
Á Elliheimilinu verða föstu-
guðsþjónustur alla níuvikna
föstuna, á hverju föstudags
kvöldi kl. 6,30. Allir vel-
komnir. Heimilisprestur-
inn.
o—o
félags Háteigssóknar eru af
íreidd hjá Ágústu Jóhanns
dóttur, Flókagötu 35, As-
augu Sveinsdóttur, Barma
ílíð 28, Gróu Guðjónsdótv
ir, Stangarholti 8, Guð-
ojörgu Birkis,. Barmahílð
45, Guðrúnu Karlsdóttur,
Stigahlíð 4 og Sigríði Ben-
nýsdóttur Barmahlíð 7.
Þriöjudagur
27. febrúar
8.00 Morgunútv.
12.00 Hádegisútv.
13.00 „Við vinn
una Tónl. 15,00
Síðd.tónl. 18.00
Tónl.íími barn
anna: Jórunn Við
ar kynnir vísna
lög með aðstoð
Þuríðar Pálsdótt
ur 18.20 Vfr. 18.
30 Þingfr. 19.00
Tilk. 19.30 Fréttir 20.00: Tón
leikar: Tony Mottola og félag
ar leika bandarísk þjóðlög og
alþýðulög. .20.15 Framhaldsleik
ritið: „Glæstar vonir“ eftir
Charles Dickens og Oldfield
Box; sjöundi þáttur. 20.50 Tón
leikar: Hornkonsert nr. 4 4 es-
dúr (K495) eftir Mozart. 21.05
„Hindin sem þráir vatnslindir“
hugleiðing um heimspeki (Ein
ar Pálsson) 21.50 Söngmálaþ.
þjóðkirkjunnar. 22.00 Fréttir og
Vfr. 22.10 Passíusálmar (8) 22.
20 Lög unga fólksins (Guðrún
Ásmundsdóttir) 23.10 Dagskrárl
VOTTAR JEHOVA
Frh. af 7. síðu. J
berar Votta Jehóva þurfa ckki I
að „vitna 60 stundir á mánuði", (
heldur ákveður hver einstakling-
ur sjálfur, hvað hann vill gera
mikið fyrir trú sína. Ef meðlim-
um annarra trúflokka íinnst, að
Vottar Jehóva geri of mikið, þá
er það sennilega af því, að þeir
miða við sína eigin flokksmeð-
limi, sem gera lítið eða ekkert.
Kenningar
Votta Jehóva
eru eins og fyrr segir,
grundvallaðar á Biblíunni, sem
og er viðurkennt óbeinlínis i rit-
inu. Að sjálfsögðu trúa þeir hin- j
um athyglisverðu spádómum1
Jesú Krists um endurkomu hans
og atbui-ði þá, sem þá mundu
eiga sér stað, að sögn hans.
Áminning hans. við postulana
liljóðar svo: „En gætið sjálfra
yðar, að hjörtu yðar ofþyngist
ekki við svall eða drykkjuskap,
og áhyggjur fyrir lífinu, og komi
svo þessi dagur skyndilega yfir
yður eins og snara; því að koma
mun hann yfir alla þá, sem búa
á öllu yfirborði jarðarinnar. Ver-
ið því ávallt vakandi og biðjandi,
til þess að þér megnið að um-
flýja allt það, sem fram mun
koma, og að standast frammi :Cyr-
ir ,,manns-syninum“ (Lúk. 21:34-
36). Sannkristnir menn hafa allt-
af verið vakandi gagnvart þess-
um atburðum, því að þeir vissu
að með þeim mundi koma upp-
fylling bænar meistarans: „Komi
í-íki þitt, verði vilji þinn, svo á
jöi-ðu sem á himni“. Þó hefur
það alltaf verið þannig, að þeim,
sem þykir gott að sofa, vilja ekki
láta vekja sig.
Kristindómur
— eða ekki?
Þá bendir biskup á nokk-
ur trúaratriði, sem hann telur að
sanni alveg fyrir yíst, að Vottar
Jehóva séu ekki kristnir. Um það
má varla telja hann dómbæran,
eins og við skulum nú sjá, enda !
færir hann engin rök fyrir full-
vrðingum sínum. Varðandi fyrsta
atriðið, að Jesús var skapaður,
höfum við ótvíræð ummæli Páls
postula: „Því að hann (Jesús) er
ímynd hins ósýnilega G u ð s , |
frumburður allrar skepnu“. (Kol. I
1:15). Annað atriðið er greinileg
kenning Biblíunnar, að þessi
frumburður skepnu Guðs, hinn
mikli andasonur hans, bar þetta
nafn, Míkael, á himni, áður en
hann kom til jarðar, og fæddist
sem maður. Nú, um það, að Jesús
hafi orðið Messías við skírnina,
þá er þessi kenning eins biblíu-
leg og hún getur verið, enda rit-
ar Ásmundur Guðmundsson fyrr-
verandi biskup, í skýringar sínar
við Markúsarg-ðspjallið (Rvk
1950), á bls. 50: „Hann var
smurður við skírn sína af anda
Guðs. Þá varð hann hinn smurði,
Messías“. Og að Kristur hafi ckki
risið upp líkamlega, segir Pétur
postuli greinilega: „Hann var að
vísu deyddur að líkamanum til, ;
en lifandi gjörður sem andi“. >
(1. Pét. 3:18). Fjórða atriðið er
jafn mikill misskilningur, því við
trúum alls ekki eins og biskup
virðist halda þar. Aftur á móti
er óhætt að afneita þrenning-
unni, því Jesús Kristur kenndi
alls ekki slíka fjarstæðu. Þessi
hugmynd er heilaspuni, sem
r
heiðingjar hafa buið til og helzta
vörn áhangenda hennar er líka,
að hún sé óskýranlegur leyndar- j
dómur. Nú, þá er komið að jól- :
unum, en um jólaleytið geta allir
lesið í fjöldamörgum tímaritum
urn heiðinn uppruna jólanna og
jólasiðanna, og þar sem þessi
kenning er Biblíunni og kristin-
dóminum óviðkomandi, (Kristur
hélt ekki jól og bauð ekki held-
ur lærisveinum sínum að gera
það>, þá halda Vottar Jehóva
sjálfsagt ekki jól. Þó teljum við
það einkamál manna, hvort þeir
vilja gera það eða ekki. Okkur
er alveg sama, þótt biskup ís-
lands haldi jól, og okkur finnst,
að honum geti staðið á sama,
hvort við gerum það eða ekki.
Varðandi síðasta atriðið, ódauð-
leika mannssálarinnar, þá er
þessi kenning alveg eins óbiblíu- j
leg og liinar: „Sú sálin, sem ]
syndgar, hún skal deyja“, segir
orð Guðs. (Ezekíel 18:4). Enda
afneitaði Lúther sjálfur þessari
kenningu og sagði, að páfinn
hefði búið hana til (Vörn Lúth-
ers, 27. grein, „Adversus Exe- j
chabilem Antichrist Bullam“,
Wittenberg 1520).
V í s a ð
á b u g .
Vegna þessara augljósu |
staðrcynda vísa Vottar Jehóva á
bug öllum þeim tilhæfulausu
staðhæfingum, sem biskup ber
fram. Nú getur almenningur
sjálfur séð hvers konar „fræðsla"
hefur verið látin i té, og síðan
dæmt sjálfur án þess að láta
aðra dæma eða hugsa fyrir sig,
en slíkt brýtur í bága við frjáls-
ræði það, sem Guð veitti mann-
inum við sköpunina. En þeir,
sem vilja fræðast nánar um starf
og kenningar Votta Jehóva, geta
þá snúið sér til okkar til þess að
öðlast áreiðanlega fræðslu.
Fyrir hönd Votta Jehóva,
Laurits Rendboe.
FYLGÍÐ
HRYNUR
Framli. af 16. síðu
Stjórn Iðju skipa nú þessir
menn: Guðjón Sv. Sigurðsson,
formaður; Asgeir Pétursson, vai-a-
formaður; Ingimundur Erlends-
son, ritari; Ingibjörg Arnórsdótt-
ir, gjaldkeri, og meðstjórnendur:
Jóna Magnúsdóttir, Steinn Ingi
Jóhannesson og Guðmundur Jóns-
son. — Stjórn Trésmiðafélagsins
skipa þessir: Jón Snorri Þoi'leifs-
son.form. Stui’la H. Sæmundsson,
varaform. Benedikt Davíðsson,
ritari. Lórens Rafn Kristvinsson
vararitari og Asbjöi-n Pálsson
gjaldkex-i.
VARÐSKIPIÐ Maria Júlía fór
á sunnudaginn suður að Stafnnesi
og tók síldarnótina, sem hefur ver
ið þar á floti síðan laugardags-
kvöldið 17. þ.m„ að talið er að
SStuðlaberg hafi farizt á þeim slóð
um.
Er varðskipsmenn drógu nótina
inn var endi hennar fastur ein
hvers staðar við botninn, en þarna
er um 46 m. dýpi. Talið er fullvíst
að Stuðlaberg liggi þarna á botn
inum um 1,4 sjómílu frá landi.
Botninn er þarna mjög ójafn
og erfitt að gera öruggar dýptar
mælingar, þ.e. að greina livort
þarna liggur skip, eða livort það er
mishæð á botninum.
Maðurinn minn,
VILHJÁLMUR GUÐMUNDSSON,
Álfaskeiði 3, Hafnarfirði, andaðist 24. þ. m. í St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði. 1
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og annarra vandamanna.
Bergsteinunn Bergsteinsdóttir.
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Hellissandi, Birkimel 10 A, lézt 24. þ. m.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 2. marz kl. 10,30 frá Fossvogs-
kirkju. -- Athöfninni verður útvarpað.
Blóm afbeðin, en þeir, sem vildu minnast hennar, láti Björgunar-
skútusjóð Breiðfirðinga njóta þess.
Steinunn Jónsdóttir Bra^i Agnarsson
Kristín Jónsdóttir Hannes Tómasson
Þorsteinn Jónsson Áslaug Einarsson.
££ 27. febrúar 1962 — gUÞýðublaðið