Alþýðublaðið - 21.03.1962, Blaðsíða 2
Bítstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoöarritstjórl:
Björgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargjáld kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Goðafoss . . . og fleiri
FREGN um tilraun þriggja skipverja á Goða-
fossi' til að smygla miklu magni af happdrættismið
um frá írlandi til Bandaríkjanna hefur vakið ugg
og umtal hér heima. Þjóðin finnur,' að þetta, er
ekki aðeins harmsaga þriggja sjómanna, heldur
toendir þetta mál til þjóðfélagslegra meinsemda,
sem kunna að vera alvarlegri en fólk grunar.
I áratugi hafa veigamiklir þættir íslenzkrar lög
gjafar verið sniðgengnir af fjölda landsmanna, en
ríkisvaldið hefur ekki haft vilja eða getu til að
framfylgja lögunum. Þannig hefur verið með
j skattalög, áfengislög, gjaldeyrislög og smyglið. Eng
inn hefur verið talinn verri maður, þótt vitað væri
að hann bryti af sér á þessum sviðum. Hefur þvert
á móti verið brosað að þeim sérvitringum, sem
gáfu rétt upp til skatts, skiluðu erlendum gjaldeyri
til bankanna og smygluðu ekki, þegar tækifæri
gafst.
Það mundi fara hrollur um þúsundir góðra borg
ara á íslandi, ef einhver flytti tillögu um að stofn-
sett væri spilavíti í landinu, Það á heima í þeim ger
spilltu útlöndum, segja menn. En samt sem áður
tíðkast happdrætti í stórum stíl og bingó er talinn
barnaleikur, þótt hvort tveggja sé í mörgum öðr-
um löndum kallað réttu nafni og bannað eða haft
undir eftirliti sem hvert annað fjárhættuspil.
Við allt þetta bætist slappleiki í dómsmálastjórn
Íslendinga, sem verið 'hefur meiri eða minni í ára
tugi. Alþýða manna trúir því ekki, að hinir „stóru“
þurfi mikið að óttast eða sitji nokkru sinni af sér,
þótt þeir verði dæmdir. Það hefur ekki verið hugs-
að um að byggja fangagejnnslur, nema fyrir
drykkjumenn, svo að dæmdir menn komast oft
ekki að. Eitt og eitt félag eins og Olíufélagið hafa
verið grandskoðuð en hve mörg önnur fyrirtæki
mundu þola slíka rannsókn? Hve mörg fyrirtæki
hafa tvenns konar bókhald og hvers vegna? Það
heyrist stundum um fjárdrátt einstaklinga í starfi,'
en oftar er hilmað yfir slíkt til að forðast, að dóm-
stólar komiist í bókhald viðkomandi aðila.
Enda þótt glæpamenn aki ekki um göturnar með
vélbyssur og grófasta spilling, sem þekkist erlend
is, virðist ekki tíðkast hér, er íslenzkt þjóðfélag rot
ið af fjárhaglegri spillingu, sem fram kemur í öllu
því, sem að ofan var nefnt. Þegar ungir menn, sem
hafa alizt upp við hugsunarhátt þessa ástands, ætla
. að reyna íslenzka „sjálfsbjargarviðleitni“ í öðr-
um löndum, eru þe:r skyndilega orðnir sakamenn.
Lækningin verður að byrja 'hér heima hjá okkur
sjáyurn.
4 .
.................. nwm—■ ... ..........
a
Aúglýsingasíminn er 14906
2 21. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FYRRUM VAR SAGT þegar ung
ur maður komst á togara: „Hon
um er óliætt. Hann er búinn að fá
togarapláss“ Nú er öldin önnur.
Skipstjórar geta sagt þá sögu. Það
er af sem áður var, að skipsstjór
um og togaraeigendum væri mút
að til þess að fá pláss hjá þeim.
Þá þekktist það, að skipsstjórafrú
tók „vinnumann" — og sctti síðnn
á togara til bónda síns, og vinnu
maðurinn og frúin og maður henn
ar vissu fyrirfram til hvers refirn
ir voru skornir. „Vinnumaðurinn“
fékk svo vinnumannskaup, lítinn
eyri og nokkrar flíkur, en frúin
fékk togarakaupið. Svojiegar árið
var liðið, var oftast staðið við það,
að vinnumaðurinn héldi plássinu,
en stundum var það líka svikið —
og sagan hófst aftur.
NÚ GANGA ÚTGERÐARMENN
og skipsstjórar á eftir sjómönnum
sem hægt er að nefna því nafni,
og biðja þá að koma til sín. Ég
hef séð skipsstjóra eigra um hafnar
bakkann, með skip sitt út á, og
snapa eftir mönnum. Ég hef líka
heyrt það, að stýrimenn, útgerðarí
menn og skipstjórar hafi „sjang
hajað“ drukkna menn um borð.
Er mér minnisstætt erindið, sem
einn þeirra sem „sjanghajaður“
hafði verið, flutti í útvarpið fyrir
nokkrum árum og sagði allt af
létta í gamansömum tón.
í FYRRI DAGA var sótzt eftir
togaraplássi. Þá var þó vinnan og
vökurnar svo miklar að um hreina
og beina þrælkun var að ræða.
Kunningi minn sagði mér þá sögu
nýlega, að þegar hann kom um
borð, f jórtán ára gamall hafði liann
aldrei frið fyrir bátsmanninum.
Hann hrinti honum og sparkaði í
hann, kom fram við hann eins og
hann væri úrþvætti. „Hann hefði
drepið mig hefðu ekki tveir af
hásetunum tekið mig undir sinn
verndarvæng," sagði hann. Ég
sagði: „En af hverju fórstu ekki
í land?“ Ég spurði eins og bjáni,
en mér varð það ekki ljóst fyrr
en ég sá svipinn á kunningja mín
um. Hann sagði: „í land? Nei,
það gat ég ekki. Það var svelti
heima og móðir mín og systkini
settu allt sitt traust á mig.“ Ég
gæti sagt þessa sögu vinar míns
miklu lengri. Ég skrái hana von-
andi seinna.
ÉG RÆDDI EINU SINNI við
Vilhjálm Vigfússon, sem nú er
látinn fyrir mörgum árum. Þá var
hann lögregluþjónn hér í bænum,
en áður hafði hann verið togara-
maður. Hann hafði riðið á vaðið,
fyrstur allra manna, með kröfur
um takmarkanir á vökum og þræl
dómi um borð í togurunum. En
enginn lifandi maður mátti vita
það, að hann hafði skrifað grein
ina, sem birtist í Alþýðublaðinu.
Hefði það vitnast, þá hefði hann
fengið pokann sinn, verið rekinn í
land, settur á svartan lista, og
aldrei framar fengið pláss.
HANN LÝSTI FYRIR MÉR aff-
búnaðinum. Viff skárum okkur
með flatningshnífnum og fundum
ekki til þess. Við féllum á andlitið
ofan í matardiskinn okkar. Svo
úrvinda vorum viff..“ Tveir sjó
menn, sem ég lá meff í sjúkrahúsi
í fyrra sögðu: „Þegar við komum
Framhald á 11. síffn.
Höfum opnað í Listamannaskálanum sýningu á ca. 1000 bókum frá bandaríska
útgáfufyrirtækinu McGRAW-HILL BOOK COMPANY, INC., í New York.
Bækurnar fjalla undantekningarlítið um tæknileg og vísindaleg efni, og skipar
útgefandinn þeim í þessa flokka: Aero íauties, Agriculture, Art & Music, Biology
& Zoologi, Business & Industrial Administration, Chemical Engineering, Chemistry,
Civil Engineering, Dictionaries, Economics, Education, Electrical Engineering, El-
ectronic Engineering, Control Engineerin g, Computers, Geography, Geology &
Meteorology, Minerology, Industrial Engineering, Mathematics & Statistics, Mec-
hanical Engineering Meehanics & Materials, Medicine, Metallurgy, Nuclear, Engi-
neering & Energy, Physics & Sociology.
Auk þessa viljum við benda á nokkur stórverk sem eru á sýningunni, t. d.
. ENCYCLOPEDIA OF SCIENCE AND TeCHNOLOGY í 15 bindum, ENCYCLO-
PEDIA OF WORLD ART í 5 bindum (verkið er að koma út og verður alls 15
bindi), og THE ILLUSTRATED, WORL D-OF-THE-BIBLE LIBRARY í 5 bind-
um. Gamla Testamentið er í 4 bindum, s em öll eru komin út, og Nýja Testa-
mentið verður 5 bindi og er eitt þeirra' k omið út.
Þeir sem hafa þörf fyrir bækur um hagnýt efni eða fræðibækur, ættu að
, líta inn á þessa sýningu og skoða bækurnar.
Bækurnar verða seldar og afhentar síð asta sýningardaginn, 27. þ.m., en tekið
verður á móti‘pöntunum alla sýningardag ana.
Sýningin verður opin daglega kl. 2 — 10 til 27. þ.m. — Aðgangur ókeypis.
Hafnarstræti 8. The English Bookshop . Símar 11936 og 10103.
/