Alþýðublaðið - 21.03.1962, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 21.03.1962, Blaðsíða 15
A1 Guthrie sagði: „Hvað geng ur á?“ Granni ungi maðurinn sagði það sem Charlie liafði sagt hon um. Barþjónnijm hélt áfram að virða A1 forvitnislega fyrir sér. „Þetta var hávaxinn maður“, sagði hann. „Með brúnt hár og augu, stuttklipptur og flott klæddur. Gaf mér reglulega góða lýsingu á manninum sem hann var að leita að. Það gæli liafa verið þú“. „Nei“, sagði Al. „Það gæti ekki hafa verið ég. Ég þekki erjjan honum líkan. ,,Hann ýtti glasinu til barþjónsins. „Gefðu mér aftur tvöfaldan“. . Barþjónninn hellti í glasið hans. A1 drakk það í einum ieig. Hendur hans titruðu svo mjög að við lá að hann hellti niður. „Það var ekki ég“, sagði liann og leit iliilega á barþjón ínn. „Ég stel ekki annarra manna eiginkonum. En ég þekki svín sem gera það“. Ilann borgaði fyrir drykkinu Qg fór út. Barþjónninn og ungi maðurinn störðu á eftir hon- „Heldurðu að náunginn hafi verið að leita að honum?“ „Ég veit það ekki“ sagði bar þjónninn. „En sé svo kemur liann ekki aftur hingað. Og það er einmitt eins og ég vil hafa það“. ■ Þegar A1 kom út á götuna sló út á honum köldum svita. Það leit út fyrir að Ben Forbes hefði cinhvern veginn fundið hann. Ef þetta. var Ben Forbes og ef hann hefði komið inn á barinn á rangri stundu hefði Ben stokkið á hann og kallað á lög regiuna og þá hefði hann ver- ið búinn að vei-a. Hann hefði ekki einu sinni liaft konuna ti) að braska með. Guð. Og þeir iiefðu refsað honum. Þeir hefðu stungið honum inn án þess að hugsa um allt það, sem þeir höfðu gert honum. Réttlæti,»hel víti. Maðpr eins og hann var alltaf hafður fyrir rangri sök. Réttlæti var fyrir feitu fíflin, sem gátu borgaö fyrir það ekki fyrir verkamennina. Þeir myndu drepa hann og Lorene myndi dansa um og hlæja að honum og leggjast með hverjum sem var. Rautt ljósið yfir dyrum næstu krár blikaði gegn honum eins og aðvörunarinerki. Hann gekk þangað, hikandi og bjó sig und ir að flýja við minnsta hljóð. Forbes gat verið á næstu grös um. Hann gat staðið í ein- hverri dyragættinni. Hann gat vcrið að hringja í lögregluna. Ungur lögregluþjónn gekk eft ir götunni og sveiflaði kylf- unni sinni. Hann virti A1 Gut- hrie ekki viðlits. A1 leið betur. Það er ekki víst að þetta hefði verið Forbes, hugs aði hann. Það er fullt af hávöxn um mönnum með brúnt hár. Og kannske stakk konan hans hann af. Það skeður daglega. Og hvernig gat Forbes elt mig hing að? Ekki auglýsti ég hvert ég fór. Og enginn þekkir mig hér. Það gat ekki hafa verið For- bes. Hann fór inn á næstu krá. Sam Borchett var orðinn leið ur á ’úmræðuefninu og farinn að rífast við vinkonuna sem hjá honum sat. Það var ekki erfitt fyrir A1 að þekkja Borchett. Hann kipptist til þegar liann sá hve líkir þeir Borchett voru. Ekki í framan en svona yfir- leitt. Hann settist eins nálægt básnum og honum var unnt og pantaði sér í glasið. Vinkonan var skrækróma og henni var sama hver heyrði til hennar. „Af hverju valdi liann þig. Það iangar mig til að vita. Það er fullt af karlmönnum liérna inni en hann kom beint til þín“. „Þú heyrðir sjálf hvað hann sagði. Hann sagði að sér hefði skjátlast. Hvers vegna ertu eig- inlega að rífast? Honum skjátl aðist. Hann sagði það. Við skul um sleppa þessu“. „Þig langar mikið til að hætta að tala um þetta“. „Ég er bara orðinn leiður á þessu". „Já. Já. Því trúi ég vel. Hver er þessi Carolyn? Ha? Segðu mér það?“ „Ég er búinn að segja þér það. Ég þekki enga Carolyn. Ég hef aldrei séð þennan náunga og ég þekki ekki konuna hans. Viltu þegja?” „Fyrst þú hefur aldrei séð konuna hans hvers vegna er þér þá svona áfram um að tala ekki um hana?“ Þau héldu áfram að ræða þetta fram -og aftur en A1 heyrði ekki til þeirra eftir að hann heyrði nafnið Carolyn. Honum varð óglatt. Carolyn. Það lék eng inn efi lengur á því að Ben For bes hafði verið að leita hans. Iíann leit æðislegu augnaráði til dyra. Borchett reis á fætur og gekk lit og konan æpti á eftir hon- um: „Tíkarsonur“. Barþjónninn fór til að róa hana. Allir horfðu á hana. A1 sá enga lögreglu- þjóna. Hann elti Borchett út. Öll þessi vinna allar þessar á- ælanir til einskis. Forbes myndi ekki gefast upp. Hann myndi stinga nefinu ofan í allt þangað til hann fyndi lyktina. Kannske hafði hann heyrt eitt hvað í kvöld. Kannske var hann að ná í lögguna. Guð. Ég gaf honum .oc lang'n frest, hugsaði Al. Hann hefði aidrei fundið mig ef ég hefði haft það tvo daga. Hefur hann alls ekki talað við Lorene? Þegar liann kom heim til sín þaut hann upp stigann og inn í svefnherbergið. Hún var enn eins og hann hafði skilið við hana, he” hennar og öklar bundnir við fjóra rúmstólpana og keflið i munni hennar. Augu hennar opn uðust og allur líkami hennar stirðnaði. Hann þreif teppið of- an af henni og fór að leysa hana. ,,Við förum“,. sagði hann. „V'ð förum héðan“. Hún stai'ði á hann og stundi en hann losaði ekki um keflið. Þeim mun færri hljóð, sem hún gæfi frá sér núna, þeim mun betra. Svo mundi hann eftir því sem hann átti í hinu herberg- inu. Það var ekki milcið, en hann málti ekki missa það. Sérstak- lega ekki bys'Suna. Og matinn. Og viskíið og bjórdósirnar. Hann fór frá Carolyn og tók saman draslið, tróð því í pappakassa og koddaver. Hann tók líka teppi. Gamli ítalinn myndi sleppa sér — en hvað um það. A1 fór alklifjaður út að bíln- um þi'isvar sinnum og alltaf beið hann eftir því að einhver berði að dyrum og skipaði honum að koma út með hendurnar fyrir ofan höfuðið. Leyfum þeim að koma. Hann kæmi út. Hann hefði Carolyn eins og skjöld fyrir framan sig. Þá gátu þeir skotið. Hann teygaði af flöskunni á eldhúsborðinu í hvert skipti sem liann fór fram hjá henni. Þegar iiann hafði lokið verki sínu, stakk hann flöskunni í vasann og fór upp á loft. Hún starði á hann stórum aug um og hræðslulegum. Leyfum henni að vera hræddri. Hún verður hræddari áður en yfir lík- ur. Djöful er hún ljót. Hann hafði bundið hana þannig við rúmið, að það leit út fyrir að hún lægi þarna og biði eftir hon um, en hann hefði ekkert snert hana, þó hann hefði fengið borg að fyrir það. Hún var skítug og horuð og hún átti ekkert eftir nema þessi stóru augu, sem störðu á hann eins og liann væri eitrað skorkvikindi. Hann losaði úlnliði hennar og neyddi hana til að setjast upp. Hann batt hendur henn ar fyrir aftan bak og leysti svo ökkla hennar. „Stattu upp“ sagði hann og hún stóð upp. „Farðu niður stigann,“ — sagði hann og hún fór niður stigann og hann gekk á eftir henni og slökkti ljósin. Hann leit út um gluggann, en það var engan að sjá. Hann tók um handlegginn á Carolyn og ýtti henni út fyrir. Hann stóð á tröppunum og hlustaði. Það var dimmt í liúsinu við hliðina á, gamli maðurinn var farinn til vinnu sinnar og gamla konan var háttuð. Hann ýtti Carolyn niður tröppurnar. Hún sleit sig skyndilega af honum og hljóp meðfram hús- inu og út á götuna. Hann náði henni áður en hún komst langt. Hann sló hana nið- ur, svo hún féll niður í beð, þakið gömlum stilkum, sem eitt sinn voru blóm. „Þú og þessi helvítis maður þinn,“ sagði hann. „Þú og þessi helvítis mað ur þinn.“ Hann sló hana og líkami hennar kipptist til við högg hans. Hún velti sér yfir á gangstíginn undir fótum hans. Hann dró hana á fætur, sló hana, hristi hana. „Eg ætti að drepa þig,“ sagði hann og skilja þig eftir. Hann langar svo til að finna eitthvað." En hann gerði það ekki. Ekki strax. Ekki ennþá. Hann neyddi hana til að ganga út að bílskúrn um og til að setjast inn í bíl- inn og hún reyndi ekki að sleppa aftur. Hann hélt að hún væri hálfmeðvitundarlaus, hún var svo máttlaus, þegar hann batt hana aftur. Það var gott. Þá gat hún ekkert gert af sér. Hann henti yfir hana teppi og opnaði dymar á bílskúrnum. Það var enginn á götunni, þegar hann ók á brott. Hann vissi ekki enn hvert hann var að fara. En honum leið betur, þegar hann var kominn út úr South Flat. Hann fór út fyrir borgartakmörkin og ók upp í sveit. Það var eitthvað sem hann þurfti að muna. Þegar hann loks mundi það rétti hann úr sér, drakk það, sem eftir var í flöskunni og lienti henni út úr bílnum. — Gamli bíllinn hóstaði. A1 virti akrana sem streymdu fram hjá fyrir sér. Hann hugsaði um kon una í baksætinu og um Ben Forbes og hann brosti. Skrattinn hafi það, hugsaði hann, þau ráða ekki við mig. Eg er ósigrandi. Eg sigra, alltaf. 18 Ernie MacGrath og Bill i Drum óku snemma morguns inn’ í South Flat, vestan frá. Con- nor og Postapak fóru austan að. Þeir spurðust fyrir á þeim stöðum, sem Ben hafði komið á og á öðrum stöðum, sem ekki voru opnir að nóttu til, svo sem í matvöruverzlunum. Klukkan rúmlega tíu fór Er- nie inn í litla italska verzlun. Þegar hann kom aftur út, var hann sannfærður um að hann hefði fundið það, sem hann leit aði að. Hann sendi Bill Drumm til að í tala -við herra Frescatti, sem bjó hinum megin við hornið og sem hafði nýlega leigt stórum ljós- hærðum manni hús. Þessi stóri ljóshærði maður keypti brauð og niðursuðuvörur í litlu verzl- uninni og hann varð reglulega andstyggilegur, ef hann var spurður vingjarnlegri spurningu um einkamál sín. Ernie ók upp eftir götunni. Hann virti fyrir sér húsið. — Það var dregið fyrir alla glugga og bílskúrsdyrnar voru opnar. Bíiskúrinn var tómur. Þegar hann ók lengra, sá hann að bakdyrnar voru einnig opn- ar. Ernie snéri við og ók aftur að horninu. Það voru áhyggjudrættir um- hverfis varir hans. Fimmtán mínútum síðar komu Packer lögregluforingi og Ste- panek til þeirra. Þeir höfðu Ben Forbes með sér. Ernie var á WWWWWWWMWWWWMM jSfjérn || (Frama ( ! > Hin nýkjörna stjórn Frama, J! ! | talið frá yinstri: Björh Sig- !! J! urðsson, Grímur Friðbjörns- ! ‘ !! son, Samúel Björnsson, Berg <; ! > steinn Guðjónsson, Sófus J! ! | Bender, Jakob Þorsteinsson, !! ; [ Narfi Hjartarson. !! Gest Sigurjónsson vantar < > $ á myndina. . $ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. marz 1962 J5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.