Alþýðublaðið - 21.03.1962, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 21.03.1962, Qupperneq 16
■mHWMWWWWWWWtWWWWWWMWWMWWWWWWWMMWWMMtWWWWM EF flóttalegur snáði kemur með svona seðil upp á vas- ann og vill kaupa brjóstsyk- ur fyrir tíkall — þá ætti af- greiðslufólk að athuga sinn gang! Ef flóttalegur snáði vindur sér með samskonar seðil inn á bílstöð og pantar bii — þá ættu bílstjórar líka að athuga sinn gang. Það er saga að segja af þessum seðl um oftast nær, eins og frétt in okkar hér á síðunni sannar LÍTIO FOLK - OJKSMG) 43. árg. — Miðvikudagur 21. marz 1962 — 67. tbl. MEIRI AFLI - EN FÆRRI RÖÐRAR Sandgerði, 20. marz. FARNIR voru 11—12 róðrar á tímabilinu 1.—15. marz s. I. Seytj- unum í gær og fram að hádegi í dag, en þá stytti upp og var ágætt veður á miðunum eftir hádegi. Bát án bátar, sem róa með línu, fóru arnir voru allir á sjó í gær, en samtals 178 róðra á þessum tíma, og fengu 1569 tonn. Mestur afli í róðri var 13. marz, en þá fékk Pét- ur Jónsson 17,3 tonn. Heildaraflinn frá áramótum til 15. marz var 4.428 tonn í 479 róðr- um. Meðalafli í róðri var 9,2 tonn. Hæsta afla hafði á þessum tíma Freyja 427,3 tonn í 41 róðri, Smári 403,8 tonn í 39 róðrum og Mun- inn 383,6 tonn í 40 róðrum. Auk þess hafa bátar frá öðrum verstöðvum lagt á land hér síðan á áramótum samtals 950 tonnum, sem aðallega er netafiskur. Síðastliðna vertíð var afli 20 báta frá áramótum til 15. marz 3996,7 tonn í 526 róðrum. Meðal- afli þá var 7,6 tonn í róðri. Bátarnir eru ennþá á línuveið- um, en aðrir eru að skipta um og hefja netaveiðar. Þoka var á mið- afli var tregur. Þó voru tveir bát- ar með um 13 tonn, og var annar þeirra Guðmundur Þórðarson. Inflúenzan gengur enn, en veld- ur ekki teljandi töfum á róðrum. Þó hafa nokkrir bátar orðið að sleppa róðrum. Skólasókn er orð- in sæmileg. — Ó. V. PENINGAVESKI með álitlegri fjárupphæð var stolið af ritstjórn Alþýðublaðsins á dögunum. Lög- ceglunni var þegar gert aðvart, og síðar um daginn komst upp um sökudólginn. Var það níu ára dreng ur, sem aldrei hafði áður komið við sögu lögreglunnar, — og varla við því að búast svo ungur sem hann var. Drengurinn hafði gripið peninga veskið og hugðist þegar notfæra sér hinn fljótfengna gróða. Vatt bann sér í verzlun og bað af- greiðslustúlkuna að skipta fyrlr sig 1000.00 króna seðli. Stúlkunni fannst einkennilegt, að svo ungur dregnur skyldi hafa þessa peninga undir höndum. Hún hringdi á lögregluna, og filð rannsókn málsins kom i ljós, að litli dréngurinn var þartu kominn með veskið ög peningana, sem stol- ið var á ritstjórn Alþýðublaðsins. Samkvæmt frásögn lögreglunnar er hér ekki um einstæðan atburð að ræða nema að því leyti, að hér tókst að koma vel og fljótt upp um hnuplið. En á þessu nýja ári hefur oft borið við, að stolið hafi verið peningaveskjum fólks á vinnustöð- um og þá ekki ltvað sízt í verzlun- um, — þar sem afgreiðslufólkið hefur engan öruggan stað til að geyma fjármuni sina á. Stórtæk- ustu stuldirnir þessarar tegundar það sem af er árinu voru í Kjör- garði, þar sem tekið var veski með ÚT hefur verið gefin ný gjald- skrá fyrir aukaverk presta, og birtist hún í síðasta Lög- birtingablaði. — Þar segir, að héreftir kosti 55,00 kr. að láta skíra barn, ferming ásamt undir- búningi kostar 225,00 kr. hjóna- vígsla 170.00 kr. greftrun 110,00 kr., endurskoðun kirkjureikninga 25,00 kr. og vottorð, sem prestur gefur í embættisnafni 10,00 kr. Viðvíkjandi tiltekið verð á greftrun, skal það tekið fram, að flytji prestur samkvæmt beiðni, ræðu við hjónavígslu eða jarðar- för, ber honum cérstök greiðsla fyrir það. Ennfremur er skylt að veita presti fylgd, honum að kostnaðarlausu, þegar lians er vitj að til aukaverka, svo og að greiða fararkostnað hans, ef nota þarf bát eða bifreið. ÞOKAN TEFUR FLUGIÐ SMAVEGIS tafir liafa orðið á flugsamgöngum vegna þokunnar, en innanlandsflug hefur þó geng- ið að mestu óbrcytt. Flugvellin- um í Reykjavík var lokað um miðj- an dag í gær í 4—5 tíma. Um klukkan 5 var flugvöllur- inn opnaður aftur, og var von á flugvél frá Akureyri, en þangað var flogið fyrr í gær. Þá var einn- ig flogið til Þórshafnar og Horna- fjarðar og ein flugvél var á leið til Vestmannaeyja. Engar flugvélar flugu um Kefla víkurflugvöll á sunnudag og mánu- dag, en er blaðið hafði samband við flugvöllinn í gær hafði Loft- leiðavél lent og var nýfarin. Þá var von á lítilli vél frá Grænlandi. Þoka var á Keflavíkurflugvelli í þessa tvo daga, en engin þoka var þar í gær þótt spáð væri versn- andi skyggni í nótt. miwwwwwwwvwww SKELLINOÐRU var stolið í fyrri- nótt í porti við Rauðarárstíg 3. Númerið er R-314. Hún er tvílit, dökkgræn og gul- græn. Gæti einhver gefið upplýs- ingar um skellinöðruþjófnaðinn er hann vinsamlega beðinn að gera rannsóknarlögreglunni aðvart. 1 Bjartara veður VEÐURSTOFAN spáði þoku í nótt. Breytingarnar eru lieldur hægar, en veðurfræð ingurinn, sem blaðið talaði við í gær, sagði, að þokan mundi sennilega haldast næsta sólarhring, þó að held ur væru líkur á bjartara veðri í dag en í gær. Þokan er mest í Faxaflóa. Annars staðar á landinu var bjartviðri í gær. twwwwwwwwww

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.