Alþýðublaðið - 01.05.1962, Page 1
ö '■■/í'.'y
l> UR ATVINNUUFINU
EINS og' kunmigt er, hafa ís-
lendingar selt allmikið magn
af Iiraðfrystum fiski til Banda-
ríkjanna og þá í ýmsum gerð-
um og stærðum pakkninga.
Ein tegund þessara pakkn-
inga eru liinar svonefndu blokk
ir, sem vega þetta frá lO—MVz
Ibs. eða þar um bil. Eru þær
framleiddar bæði úr ýsuflök-
um og þorskflökum. Þarf mjög
að vanda þessa framleiðslu, og
þá ekki sízt með hárrétta
stærð þeirra og útlit allt, því á
Bandaríkjamarkaði keppa þar
við íslendinga aðallega Kan-
adamenn, Norðmenn og Danir.
í fréttabréfi Sjávarafurða-
deildar SÍS nú fyrir skömmu,
er grein eftir Einar Jóhanns-
son, sem átti þess kost á sl.
hausti að fylgjast með vinnslu
þar vestra úr íslenzku blokkun-
um og einnig þeim kanadísku.
Eýsir liann í fyrrnefndu frétta-
bréfi útliti blokkanna íslenzku
og segir meðal annars:
„Þær kanadísku voru mjög
sléttar, hornréttar og allir flet-
ir beinir. Úrgangur við sögun
þeirra var hverfandi lítill. Hins
vegar voru íslenzku blokkirnar
mjög misjafnar. Framleiðsla
sumra húsanna var ágæt, en
aftur á móti mjög slæmar hjá
öðrum.
Aðalgallarnir, sem ég sá,
voru:
1. misþykkt
2. pappi í honum
3. blokkirnar liolóttar
4. kantar ósléttir
5. blokkirnar bognar.“......
„Loks rákumst við á nokkrar
blokkir, sem ekki höfðu feng-
ið neina pressu meðan þær
voru að frjósa. Slíkar blokkir
eru til einskir nýtar“...„Við
skulum líta á þetta mál frá sjón
arhóli kaupenda. Þeir, eins og
við, vilja fá sem mesta nýt-
ingu úr því hráefni, sem þeir
kaupa. Það ætti ekki að vera
neitt launungarmál, að þeir fá
lélegri nýtingu úr íslenzku
blokkunum, en þeim kanad-
ísku, norsku og dönsku, mest
vegna þeirra galla, sem ég
liefi talið hér að framan.
Við skulum vera þess minn-
ugir, að enda þótt hráefnið sé
gott, þá hefur það ekki allt
að segja við sölu fiskafurða
og keppinautar okkar hafa
cinnig oft ágætt hráefni. Við
fáum mjög gott verð fyrir
okkar blokkir þegar þær selj-
ast. En ég er hins vegar ekki
viss um að íslendingar geri
sér grein fyrir þeirri döpru
staðreynd, að vegna lélegrar
nýtingar og hás verðs á ís-
Ienzku blokkunum, kaupa
flestir framleiðendur fiskrétti
í Bandaríkjunum fyrst sínar
blokkir í Kanada, síðan í
Noregi eða Danmörku. Þegar
þessar birgðir þrýtur, kaupa
þeir frá íslandi."
Það er hárrétt hjá greinar-
höfundi, að það er ömurleg
staðreynd, að islenzku blokk-
irnar skulu seljast síðast og
ekki fyrr en hinar velúclít-
andi blokkir frá öðrum lönd-
uin eru seldar. Það er nefni-.
HÉR ER MIKIÐ I HÚFI
ÞAÐ fara margar hendur um fiskinn, áður en hann kemst á borS neytandans. ÞaS má segja að ævintýr-
ið sé rétt að byrja þegar fiskurinn er dreginn úr sjón um. Meðfyigjandi grein fjallar um þá brýnu þörf, að
allir aðilar geri sér hliósf hvílík verðmæti þeir eru með i höndunum og hve mikið er í húfi að vinnu-
brögð þeirra séu í fullkomnu lagi.
lega ekki nóg, að sum frysti-
húsin eða jafnvel langflest
þeirra framleiði rétta gerð af
blokkunum, og þótt þau séu
bara fá íslenzku frystihúsin,
sem framleiða ekki réttu
blokkirnar, þá er það nóg til
þess að bandarísku kaupend-
irnir forðast: „PRODUCE OF
ICELAND."
llér er ekki liægt að skelia
skuldinni á fisldmennina og
ef til vill ekki heldur í öllum
tilfellum á starfsfólk frysti-
liúsanna, sem vinnur við fram
leiðslu blokkanna, því mis-
lögun blokkanna stafar oft
frá lélegum pönnum eða frysti
tækjunum sjálfum.
Mér er tjáð að nú sé mjög
eftir þessu litið lijá liúsunum
og er það gott. Það mun vera
regla að frystihúsin, sem
starfa allt árið, þurfi eftir
liverja 6 mánuði að fá lög-
gildingu um hæfni til að
mega framleiða fisk til sölu
erlendis. Og ekkert hús má
hefja starfsemi án slíkrar lög
gildingar. Þá væri ekki úr vegi
aö öll áhöld væru gaumgæfi-
lega atliuguð af trúnaðarmönn
um Fiskmatsins, svo að fyrir-
byggt yrði að þau gætu
skemmt lögun eða rétt útlit
pakkninganna.
Það var góð og nauðsynleg
ráðstöfun að taka þessa reglu
upp, að löggilda húsin til
vinnslunnar um ákveðinn
tíma. En þá dettur manni í
hug hvort þessi löggilding
ætti ekki að vera nokkuð víð-
tækari. Til dæmis að í byrj-
un hvers árs væru löggiltar
stöðvar þær, sem verkuðu salt
fisk og skreið. Hús, sem verk
uð er skreið í eða saltfiskur,
eru úandi og grúandi af smá-
um lífverum, séu þau ekki
Framh. á 4. síðu.
. BLAÐ
43 árg. - ÞriSjudagur 1. maí 1962 - 98. thl.