Alþýðublaðið - 24.06.1962, Blaðsíða 16
43. árg. — Sunnudagur 24. júní 1962 — 142. tbl.
fram samninga um sölu á nokkru
sildarmagni, þannig, að alls er nú
búið að selja síld og síldarafurð-
ir fyrirfram fyrir 160—180 millj.
króna.
Tekizt hefur að selja um 14000
tonn af mjöli og 10—12000 tonn
af lýsi.
f fyrra fluttu íslendingar út
síldarlýsi fyrir 136 millj. króna og
sildarmjöl fyrir 211 millj. króna.
Árið 1960 fluttu íslendingar út
síldarlýsi fyrir 230 millj. króna, og
mjöl fyrir 112 millj. kr. í fyrra
fluttu íslendingar út 12800 lestir
af síldarlýsi til Bretlands fyrir
72.2 millj. króna og rar Bretland
stærsti lýsiskaupandi okkar. Sama
ár var mest flutt út af síldar-
mjöli til Bretlands einnig, eða
13.300 lestir fyrir 77,1 milljón.
ÍSLEN'DIXGAR eru nú búnir að
selja fyrirfram síidarlýsi og mjöl
fyrir 145—150 milljónir króna. —
Auk þess er búið að gera fyrir-
leg og í formi fyrirlestra.
Þeir munu hiýða á 2-3 fyrir-
lestra um umferðarmál. Er-
lingur Pálsson yfirlögreglu-
þjónn, sér um þá hlið mál-
anna.; Einnig munu haldnar
verklegar æfingar í um-
ferðarstjórn á götum úti.
Á Landsmótinu munu lög
reglu-skátar bera sérstaka
rauða klúta. Foringi lögreglu
skáta sveitarinnar verður
Tómas Hjaltason. Piltarnir
eru á aldrinum 17 til 23
ára.
götunum á næstunni. Nú á
nefnilega að fara að þjálfa
20 manna skátasveit, sem
annast á löggæzlu á Lands-
mótinu í sumar.
Á ÞingvöIIum er búizt við
mjög mikilli umferð, að
minnsta kosti suma daga
mótsins, og er mikið undir
því komið, að hún gangi
greiðlega. Skátunum til
fulltingis á Þingvöllum verða
lögregluþjónar.
Þjálfun skátanna - hér í
Reykjavík verður bæði verk-
Hörður setti
nýtt norður-
landamet
REYKVIKINGAR skyldu
ekki kippa sér upp við það,
þó þcir sjái skáta í búningi
við umferðarstjórn hér á
Á SCNDMÓTI, scm hald-
ið var í Sundlaug Vestur-
bæjar í gær, var sett nýtt
Norðurlandamet. Var það
Hörður B. Finnsson, ÍR, sem
synti 200 m. bringusund á
2.36.5 sek. en gamla Norð-
urlandametið átti finnskur
MEÐAL margra Vestur-Islend-
inga, sem nú eru hér á ferð, er
kominu góður gestur til Iláskóla
íslands, prófesor Tryggve Oleson
frá Háskólanum í Manitoba. —
Mánudaginn 25. þ. m. kl. 5,30 e.
h. flytur prófessor Tryggve fyrir-
lestur í háskólanum :
Úr miðaldasögu Kanada.
Erindi þetta fjallar um fyrstu
ferðir Evrópumanna til Amer-
íku, sambandið milli Grænlands
og Ameríku og sambúð Evrópu-
manna og kynblöndun við Skræl-
ingja. Prófessor Tryggve mun
rekja nokkrar ferðir Evrópu-
manna til Ameríkumanna á 14.,
15. og 16. öld, ýmist ferðir sem
farnar voru raunverulega eða að-
eins í ímyndunarafli sagnfræð-
inga.
Þess má geta, að prófessor
Tryggve er að vinna að stóru riti
um sögu Kanada. Erindi sitt flytur
hann á íslenzku. Öllum er heim-
ill aðgangur.
Fékk
900
funnur
viðEyjar
ferð: 13. Banaslys af ýmsum or-
sökum : 13.
Þessar tölur eru teknar upp úr
Árbók Slysavamafélags íslands
1962, en í henni eru skýrslur yfir
allar slysfarir 1960 og 1961. Þar
segir: „Árið 1961 verður aftur á
móti í tölu meiri slysaára, eitt
það mesta, sem orðið hefur á
friðartímum um árabil, eða sam-
tals 60, þar af 34 drukknanir.”
Með skipum fórust 16, 8 féllu
útbyrðis og drukknuðu, 5 fórust
af slysum á sjó og 5 drukknuðu
við land. Þá urðu 7 manneskjur
fyrir bifreiðum og biðu bana, 4
létu lífið í bifreiðaárekstrum og
öðrum bifreiðaslysum. Tveir biðu
bana í dráttarvélaslysum.
Þá konra banaslys af ýmsum or-
EITT mesta slysaár í sögu
þjóðarinnar var 1961. Þá urðu sam
tals 60 dauðsföll af völduin slysa,
en árið áður voru þau 44. Slysin
flokkast þannig: Sjóslys og
drukknanir: 34. Banaslys af um-
sökum. Þar lætur einn lífið af voða
skoti, fjórir láta lífið við að hrapa
eða við byltur, eitt slys verður á
vinnustað, tveir kafna af reyk, einn
lætur lífið af bruna og fjórir láta
lifið í ýmsum öðrum slysum.
í skýrslunni segir m. a. „Það
skuggalegasta við slysaskýrslum-
ar fyrir þessi ár er, hversu marg-
ir drukkna við að falla útbyrðis
og við land, eða í ám og vötnum.
Orsök þessara slysa er langoftast
hrein óvarkárni og oft eftirlits-
leysi.”
í árbókinni er ennfremur skrá
fyrir aðstoð, sem björgunarskip-
in, þ. e. skip Landhelgisgæzlunn-
ar, hafa veitt bátum á árunum
1960 og 1961. Árið 1960 voru það
139 skip og á sl. ári 134 skip.
VELBATURINN Reynir
frá Vestmannaeyjum kom
til heimaliafnar í gær með
900 tunnur af fallegri síld,
sem báturinn hafði fengið
um ldukkustundar siglingu
frá Eyjum, eða skammt vest-
ur af Þrídröngum. Reynir
kom fyrir tveim dögum til
Eyja og var þá með .820
tunnur. Öll sQdin fer I
bræðslu, en ekki var vitað
í gær, hvort skipið færi út
aftur.
TIZKUKONGAR sækja gjarnan hugmyndir
sínar í hvcrdagslífinu — að þeir segja. Hér er
eitt dæmi — að þeir halda fram. Sumarbún-
ingur stúlkunnar á sem sagt að vera sniðinn
eftir hversdagbúningi enskra kaupsýslu-
manna — að höfundurinn fullyrðir. Hattur-
inn er þá eftirlíking á liarða hatti kaupmanns
ins, slaufan á slaufunni hans og svo er stúlk-
an með regnhlíf og „gammosíur".