Alþýðublaðið - 01.07.1962, Síða 4
HETJUSOGUR
íslenzkt myndablað
fyrir börn 8 - 80 árá
cg kappar
Iheftikomið
(^blaðsölur
kostar aðeins 10 krónur
Guðni Guðmundsson:
LBÐSSAIgíAÐUR kínverskra
kommúnistá í Fukienhéraði á
meginlandinu gegnt Formósu og
eyjunum Quemoy og Matsu
sem eru í höndum stjórnar Chi-
ang kai-sheks á Formósu , hefur
að sjálfsögðu vakið mikla at-
hygli víða um heim og talsverð-
an ugg. Ekki eru menn á einu
máli ijm hversu skýra skuli
þetta fyrirbæri, en ýmsar skýr-
ingar koma íil greina.
Það er að sjálfsögðu ekki ólík-
legt, að forustumenn kínverskra
kommúnista óttist að til ínnrás-
ar kunni að koma frá .Formósu
og því sé liðssafnaður þessi til
kominn I varnarskyni. Það er
svo sem ekki sérlega líklegt, að
hugsanleg innrás frá Formósu
yrði stjórninni mjög skeinuhætt
í sjálfu sér, en hún gæti haft
mjög alvarlega erfiðleika í för
með sér fyrir kommúnistastjórn
ina, þrátt fyrir það. Mönnum er
enn í fersku minni hinn
gífurlegi ílótti yfir landamærin
til Hong Kong fyrr- í sumar. Af
hvaða rótum,. sem sá fjölda-
flótti var runninn, þá bendir
hann m.a. til þess, að ástandið
í Kína sé ekki gott og viðhorf
íbúanna ekki slíkt, að hægt sé
fyrir kommúnistastjórnina að
bera fullkomið og óskorað
traust til viðbragða þeirra, ef
til innrásar skyldi koma. Að
þessu athuguðu getur því verið
um tvennt að ræða annaðhvort að
um beinar varnarráðstafanir sé
að ræða, eða stjómin telji árás
vera beztu vörnina vegna hins
ótrygga ástands í héruðunum úti
við ströndina.
Það er augljóst, að í hinuin
langvinnu átökum milli Banda-
rikjamanna og kínverskra komm-
únista eru eyjarnar Quemoy og
Matsu'kommúnistum hvað mestur
þyrnir í augum. Kínverjar hafa
löngum verið sannfærðir um það,
að Bandaríkjamenn hefðu í
hyggju að steypa kommúnista-
stjóminni í Kína af stóli. Þeir
svo fráleittt sem sú skoðun er,
og þeir eru vafalaust enn reiðu-
töldu Kóreustríðið sönnun þessa,
búnir til að trúa því, að stuðn-
ingur Bandaríkjamanna við Chi-
an'g Kai-Shek tákni það, að nota
eigi Quemoy og Matsu sem stökk-
Pífrl í „innrás auðvaldsins".
Annars má skjóta þvi hér inn,
að mjög er erfitt að gera sér
grein fyrir stefnu Kínverja í dag.
Svo miklar breytingar hafa orðið
þar í landi frá „stóra stökkinu
áfram“ og bjartsýninni, sem ríkti
þá, að ómögulegt er raunverulega
að gera sér grein fyrir hvernig
; ástandið innanlands er.
En allur liðssafnaður á megin-
landi Kína hlýtur óhjákvæmilega
að vera liður í því „einkastríði"
sem svo lengi hefur staðið milli
MAO TSE TUNG
Bandaríkjamanna og Kínverja.
Sú stefna Bandarikjamanna að
viðurkenna alls ekki kommúnista
stjórnina í Kína, miklu fremur
af „mórölskum og dulleskum"
ástæðum en nokkru öðru hefur
ekkert breytzt. Móðursýkislegar
og ofsalegar ásakanir Kínverja á
hendur Bandaríkjamönnum sýna
engin merki þess að minnka. Sam
skipti þessara tveggja ríkja eru
því í algjörri sjálfheldu og lítil
von virðist til bóta í bili, hvað
svo sem kann að gerast þegar
hin venjulega iillaga um upptöku
kínverskra kommúnista í Samein-
uðu þjóðirnar kemur fyrir alls-
herjarþingið næst.
Menn Velta því mjög fyrir sér,
hvað muni gerast í sambandi við
liðssafnaðinn nú og endurtekna
skothríð kommúnista á Quemoy
og Matsu. Menn muna það, að
þegar Kínverjar skutu hvað ákaf-
ast á þessar eyjar 1958, þá gerði
Krustjov sér ferð austur til að
benda þeim á, að Rússar styddu
ekki neinar fyrirætlanir um inn-
rás á þessar eyjar. Það má því
segja, að allt, sem gerist á þessu
svæði, sé raunverulega „einka-
mál“ þessara tveggja ríkja. Nú
'kunna menn að sp'yrja, hvort
Chinag Kai-Shek hafi ekkert að
segja í þessu máli. Það eru ýmis
merki þess á lofti, að stefna
Bandaríkjamanna í þessum heims
hluta byggist ekki lengur á hinni
dullesku hugmynd um gagn-
byltingu, en allt um það hcfur
Kennedy forseta enn ekki unnizt
tími til að setja fram neina skýrt
afmarkaða stefnu í þessum mál-
um, enda hefur hann í mörg
horn að líta. Hitt er nokkurn veg-
inn alveg víst, að þó að Cliiang
Kai-Shek hefði hug á að reyna
innrás á meginlandið, mundu
Bandaríkjamenn ekki leyfa það.
Hins vegar er það jafnvíst, að
Bandaríkjamenn mundu hjálpa
Chiang að verjast ef með þyrfti.
Ein skýring á liðsflutningunum í
Fukien er sú, að setuliðið, sem
verið hefur í héraðinu, hafi þegar
verið þar svo lengi, að vinátta
þess við bændurna í kring hafi
gert það lið ótryggt stjórninni,
ef till átaka kæmi innanlands
vegna hungursneyðarinnar og
hins almennt erfiða ástands í
landinu. Þessi skýring gæti líka
vel verið rétt. Hin mikla breyt-
ing, sem orðið hefur í landinu
síðan í „stóra stökkinu" 1958,
hefur m.a. orðið til þess að Kín-
verskir kommúnistar hafa fyllst
reiði út í allt og alla, bandamenn
sína kommúnista i öðrum lönd-
um, og hlutlausa auk þess sem
illska þeirra út í lýðræðisríkin
hefur aukizt um allan helming.
Ekki er ólíklegt að erfiðleikarnir
innanlands geti haft eitthvað
svipuð áhrif á landslýðinn sjálfan
og hann fyllst reiði út í stjórnar-
völdin
Ef áframhald verður á skot-
hríð kommúnista á eyjarnar, er
ástæða til að fylgjast vel með
atburðum þarna austur frá, en
allt um það virðist tími til kom-
inn, að Washingon komi sér niður
á skýrari og ákveðnari stefnu
þarna, ekki sízt vegna þess hve
Bandaríkjamenn leggja nú mikla
áherzlu á varnir Suð-austur Asíu
í heild.. Það er ástæða til þess, að
Framhald á l'í. síðu.
Aöðlfundur AB
og Stuðla h.
ABALFUNDUR Almenna bóka
félagsins var haldinn 27. júní sl.
í greinargerð formanns bóka-
félagsins, dr. Bjarna Benedikts-
sonar, ráðherra, um starfsemi fé-
lagsins síðastliðið ár, kom fram,
að mikil grózka hefur v.erið í bóka-
útgáfu félagsins á árinu, bækur
hefðu yfirleitt selzt vel, enda
margt úrvalsbóka, og nefndi for-
maður sérstaklega í því sam-
bandi bækurnar, Svo kvað Tóm-
as, samtalsbók þeirra Tómasar
Guðmundssonar og Matthíasar
Johannessens, Ævisögu Hannesar
Hafsteins eftir Kristján Alberts-
son, Hafið, eftir Unnstein Stef-
ánsson og ritgerðasafnsbókina
Náttúra íslands.
Þá minnti hann á, að árið 1961
hefði verið hafin útgáfa bóka-
flokksins Lönd og þjóðir, cn só
bókaflokkur væri þegar orðinn
mjög vinnsæll.
Einnig nefndi hann útgáfu á
Skáldverkum Gunnars Gunnars-
sonar, og kvað ánægjulegt, að fé-
laginu skyldi auðnast að eiga hlut
að enn frekari úrbreiðslu á verk-
um Gunnars Gunnarssonar ineðal
þjóðarinnar.
Skýrsla framkv.stjóra félags-
ins, Baldvins Tryggvasonar sýndi,
að hagur félagsins er góður. Hann
drap einnig á starfsemi félagsins
það sem af er þessu ári, og sýndi
fram á, að félagið væri nú í ör-
um vexti. Sagði hann, að félags-
mpnnum fjölgaði stöðugt og hefðrt
t. . d. félagsmönnum í Reykjavík
fjölgað um 300 síðan um .áramót.
Stjórn bókafélagsins var öll end
urkjörin, en hana skipa:
Bjarni Benediktsson, ráðherra,
formaður.
Alexander Jóhannesson, próf.
Gylfi Þ.' Gíslason, ráðherra.
Jóhann Hafstein, bankastjóri.
Karl Kristjánsson, alþm.
Varamenn : Davíð Ólafsson fiski
málastj., Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóri.
í bókmenntaráð voru kjörnir :
Tómas Guðmundsson, form.
Birgir Kjaran,
Davíð Stefánsson,
Guðmundur Gíslason Hagalín.
Höskuldur Ólafsson
Jóhannes Nordal,
Framhald á 14. síðu.
Höfum fiu
skrifstofur okkar og vörugeymslur úr Hafnarstræti 1
oð Sætúni 8 (gegn Höfða)
Óbreytt símanúmer 2 4 0 0 0
O. Johnson & Kaaber h.f.
4 J. júlí 1962
ALÞYDUBLAÐI9