Alþýðublaðið - 01.07.1962, Page 13
/
* -
ROTTERDAM presturinn Ds.
G. Julius^ sem hreifst af
kirkjutónlist' við Karíbahaf og
olli straumhvörfum í kirkju-
lífi Hollands og víðar.
í NÝJU Páls-kirkjunni í
Rotterdam hafa verið haldnar
jozz-g'uðsþjónustur frá upp-
hafi. Ungir áhugamenn sjá um
tónlistina.
Hvað skyldu íslendingar segja við því,
ef einn góðan veðurdag hljómaði jazztón-
list út um opnar kirkjudyr, er prestur
hefði nýlokið prédikun sinni. Hváð skyldi
söfnuður prestsins segja, ef hann tæki upp
á því að gæða kirkjugestum á nýtízku jazz
tónlist milli þess að hann blessaði söfn-
uöinn?
Þetta eru spurningar, sem eru engan
veginn út í hött, því að sá siður hefur
þegar 'stungið sór niður, m. a. í Hollandi
og Þýzkalandi að jazzhljómsveitir leika við
guðsþjónustur.
I Hamborg hafa verið tvær guðsþjónust-
ur á þessu ári, irieð þvi sniði og presturinn
sem' stendur fyrir því, segist vera að reyna
að velja æskunni færan veg til Drmottins.
Hann hefur þennan sið eftir hollenskum
presti, Dr. G. Juíius í Rotterdam. Hann
var prestur í stríðinu á herskipi og varð
fyrir ýmsum áhrifum í Norður- og Suður-
Ameríku og Yestur-Indíum, sem leiddu
hann inn-á þcssu braut í starfi sínu, þegar
h^nn snéri heim.
Hjá ýmsum þjóðflokkum við Karíbahafb
fann hann kirkjutónlist, þrungna fyllingu
og alvöruþrunginni guðsdýrkun, sem
- Framhald á 12. síðu.
I
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 1. júlí 1962 J3