Alþýðublaðið - 27.07.1962, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 27.07.1962, Blaðsíða 16
Brúuðu Jökulsá á Fjöllum HÚSAVÍK, 24. júlí 1962. Um sl. helgri fóru nokkrir áhugra- menn frá Akureyri, Húsavík og Reykjadal't S.-Þing. og brúuðu Jokulsa a Fjöllum skammt sunnan við Upptippinga (sjá mynd) Settir voru 4 stálbiiar, 10 m. iangir, yfir ána, þar sem hún fellur í þröngu gljúfri, og siðan sett timburdekk á. Ferðaféiag Húsavíkur veitti brúargerðinni fjárframlng og ýmsir fleiri aðilar studdu fyrir- tækið. Yfirverkstjórn með brúar- gerðinni hafði Haukur Árnason byggingaiðnfræðingur á Akur- eyri og með í ráðum var einnig Jón Guðmann verkfræðingur á Akureyri. Er brúargerðinni var lokið, var ekið yfir hana á 4 jcppabif reiðum og haldið til Hvanna- linda undir forustu Jóns Sigur geirssonar frá Heliuvaði. Var það mjög greiðfært. Áður en haldið var til byggða var brúin tekin af, en brúarsmið irnir hyggjast styrkja hana og ganga betur frá henni síðar, svo að hægt verði að aka yf;r hana á stærri bifreiðum. Með brúargerð þessari opn- ast ferðafólki nýtt svæði á ör- æfunum (Krepputungan), sem áður hafði verið s«o til lokað, eða mjög erfitt að komast í. Er nú hægt að aka í Hvanna- lindir og einnig standa vonir til að hægt verði að aka mjög ná- Iægt Kverkf jöllum. VAR OGI TVEIR dómar voru kveðnir upp £ gær í Félagsdómi Keykjavíkur. Báðir voru þeir í málum þar sem skorið skyldi úr um hvort upp- sögn samnings væri gild eður éi. í báðum máluniun voru samn- ingsuppsagnir dæmdar ógildar. í málinu milli Félags Gisti- og Veitingahúsaeigenda gegn Féiagi Framreiðslumanna féll dómur á þá lund að samningsuppsögnin væri ógild, þar eð hún hafði ekki verið tilkynnt til sáttasemjara með þeim fyrirvara sem tilskilinu er í 16. gr. laga nr. 18 frá 1934. Verkfall þjóna er því ólögmætt. Félagi framreiðslumanna var gert að greiða þrjú þúsund krónur í málskostnað. ALLT RÍKISSTJÓRNTX hefur í meira en eitt ár veitt Framsóknarflokkn Uin aðstöðu til að fylgjast nákvæm lega- með öllum viðræðum, sem Váðherrar eda aðrir trúnaðarmenn Ktjórnarianar hafa átt við aðrar Þjóðir um-Efnahagsbandalag Evr- ópu. Jafnframt hefur Fretnsóknar- flokkurinn fengið aðgang að öllum skjölum og upplýsingum um ntál 4ði og mörg tækifæri til að ræða *WWWWVWVWWWWWW Vísitala 117 stig Kaupiagsnefnd hefur ranu- sakað vísitölu framfærslu- kostnaðar í byrjun júlímán aðar þessa árs og reyndist hún vera 117 stig. Er það einu stigi hærra en í júníbyrjun þessa árs, en þá reyndist hún vera 116 st. (Frá Hagstofu íslands). /VVvvriVW', V——i allt þetta efni við ráðherra. Hafa þeir Hermann Jónasson og Ey- steinn Jónsson oftast haft sam- band við stjómina um þessi mál, en ráðherrarnir Gylfi Þ. Gíslason og Bjarni Benediktsson hafa tek ið þátt í viðræðunum af hálfu stjómarinnar. Alþýðublaðið getur upplýst þetta í tilefni af dylgjum Þjóðviljans í gær um áð Framsókn hafi fengið að vita eríthvað, sem þjóðin megi ekki vita. Gerði Þjóðviljinn þessa síðustu árás í tilefni af því að rit stjóri Aiþýðublaðsins lét í það skína í grein „um helgina" síðast-' liðinn sunnudag, að Framsókn j fengi að fylgjast vel með þessu máli. I Eins og ríkisstjórnin hefur marg | sinnis skýrt frá, hefur aðcins veriðj um könnunarviðræður að ræða, en ákvörðun um stefnu íslands hef ur ekki verið tekin. Hafa margar viðtæður verið spurningar og svör um túlkun hinna ýmsu atriða, sem málið varða, svo og önnur tæknileg atriði. Tilgangur kommúnista með skrifum sínum er að læða þeirri trú inn hjá almenningi, að ríkis- stjórnin sé búin að taka ákvarðan ir og jafnvel sækja um aðild að Efnahagsbandalaginu, en haldi því leyndu fyrir þjóðinni. Þetta ér hin mesta fjarstæða enda má geta nærri, að Framsóknarflokkur inn hefði rofið samband sitt við stjórnina í þessu máli og skýrt frá því opinberlega ef svo væri Má nærri geta, að væri ríkisstjórn in að svíkjast aftan að þjóðinni eða ieyna hana einhverju, mundi hún ekki setja Framsókn svo ræki lega inn í málið. Hitt málið, sem dómur féll í var milli Landssambands ísl. útvegs- manna og Farmanna-og fiskiniátiíiá sambandsins.. Þar féll dómur á þann veg að uppsögn LÍÚ á samn ingum við Farmanna-og fiski- mannasambandið frá því 10. maí í vor var dæmd ógild. Samningar milli þessara aðila eru því enn í fullu gildi. LÍÚ var dæmt til að greiða þrjú þúsund krónur í máls kostnað. Trúnaðarmannaráð Félags fram reiðslumanna samþykkti ú fundi í. gær að boða verkfall að nýju frá og með 4. ágúst hafi samningar ekki tekist fyrir þann líma. í gærkveldi byrjuðu þjónar aft ur að vinna og voru véitíngahúsin í bænum opin með eðliieguín hsétti Washington, 26. júlí. NTB-Reuter. Ameríska kjarnorkumála- nefndin hefur tilkynnt, að ekkert tjón hafi hlotizt af hinni mis- heppnuðu tilraun yfir Johnston- eyju á þriðjudag. Borðuðu brauð i Reykjavík, lagðir í sjúkrahils í Keflavík n Sterk einkenni taugaveikibróður TVÆR stúlkur frá Keflavlk voru á ferð í Reykjavík í fyr'ri viku. Komu þær meðal aunars ina á matsölustað og snæddu þar brauð sneiðar með saiati á. Þegar þær voru komnar heim tæpum sólar- hring síðar, fengu þær báðar þján ingar í maga og voru flutiar á sjúkrahúsið í Kefiavík urdir hand leiðslu Arinbjarnar Ólafssonar, héraðsiæknis. Við rannsókn kom >. Ijós, að báðar höfðu þær sýkst af TAUGA- VEIKIBRÓÐUR og mátti gjörla rekja smitunina til þess, er þær borðuðu brauðið í Reykjavík Einnig höfðu tveir Kcflvíking ar verið á ferð í Reykjavik fyrir helgina og fengið sér þar svipaða máltíð og ungu stúlkurnar' með þeim afleiðingum, að sólarhring síðar voru þeir lagðir á sjúkrahús, báðir með sterk einkenni veikinn ar. Reykjavík Blaðið átti tal við Arinbjörn lækni í tilefni þessa atburðar og taldi hann engum vafa bundið, að Franihald á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.