Alþýðublaðið - 17.08.1962, Side 2
BitstjOxar: Gísli J. Ásipórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjórl:
BJÖrgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasím!
14 906. — Aðsetur: AlþýðuhúsiÖ. —Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
10. — Askriftargjald kr. 55,00 á mánuði. 1 lausasölu kr. T.00 eint. Útgef-
^ndi: Alþýðuflokkurinn. -- FramkvæmdastJóri: Asg*ir Jóhannesson.
;] ' '
>!
Von Mangoldt
FYHR Á ÁRUM urðu þjóðir að bjarga sér í við
skiptamálum með samningum hver við aðra og
beittu þá styrk sínum eins og þær bezt gátu. Nú
i|afa risið upp alþjóðlegar stofnanir á þessu sviði,
þar sem reynt er með sameiginlegu átaki að leysa
•vandamálin. Hafa þessar stofanir haft sérstaka þýð
ingu fyrir smáþjóðir, sem geta mun betur gætt
hagsmuna sinna í slíkum samtökum en einar sér.
íslendingar hafa tekið þátt í allmörgum slíkum
stofnunum um efnahagssamvinnu og hafa hvað eft
ir annað náð þar árangri, sem mundi torfenginn á
annan hátt. Hefur það verið okkur mikils virði, er
áhrifamiklir menn í þessum stofnunum hafa sett
sig inn í vandamál okkar og veitt okkur lið af vin-
semd.
Þýzki bankastjórinn Dr. Hans Karl von Man-
goldt er einn þessara manna, en hann var lengi mik
ill áhrifamaður innan Efnahagssanwinnustofun-
arinnar í París, en er nú forseti framkvæmdastjóm
ar Fjárfestingabanka Efnahagsbandalagsins. Af
iþessum sökum er von Mangoldt velkominn gestur
Hér á landi, er hann kemur í boði ríkisstjómarinnar
tjl að kynnast landi og þjóð af eigin raun.
Vísir þroskast
DAGBLAÐIÐ VÍSIR hefur á langri ævi ekki þótt
hafa sérstakan áhuga á auðjöfnun á íslandi. Blað-
ið hefur ekki verið í fararbroddi í baráttu fyrir
ráðstöfunum til að jafna aðstöðu ríkra og fátækra
í landinu. Nú bregður svo við, að blaðið birtir
hjartnæman leiðara um að ekki sé nóg að fyrir-
byggja skort, heldur verði að koma í veg fyrir ofsa
gróða einstakra stétta á kostnað almennings. Eru
það mikil tíðindi, að Vísir skuli nú vera kominn á
þessa skoðun.
Það hefur tekið Vísi langan aldur að komast að
þessari niðurstöðu. Meðan fámennur hrópur gróss
era ríkti yfir fátækum almúga landsins fyrr á ár
um, sagði Vísir ekki neitt. Þegar heildsala- og iðn-
rekendagróði hefur verið mestur — á kostnað al
mennings — hefur Vísir þagað. Þegar einkafram-
tkkið hefur þurft á meiri hlunnindum að halda,
hefur aldrei staðið á stuðningi Vísis.
£ En nú hafa síldarsjómenn mótmælt lækkun á
kjörum sínum, sem eru há í bezta síldarári, en mun
ifiinni þess á milli. Þá losnar um málbeinið á Vísi,
og hann kallar þetta „skort á þjóðfélagsþroska".
Úr því að Vísir er vaknaður, heldur hann vonandi
áfram. Hvernig er þjóðfélagsþroski fólksins í Snob
Hill og öðrum lúxusvillum Reykjavík? Ekki búa
síldarhásetar þar. Vill ekki Vísir leita og sjá, hvort
<ácki er ástæða til að amast við skort á þroska hjá
elnhverjum öðrum en sjómönnum?
GABOON-PLÖTUR - EIKARSPÓNN
24455^7/
Hallveigarstíg 10.
N Y K O M I Ð :
Gaboon, 16 — 19 — 22 m/m.
Hörplötur, 18 — 20 — 22 m/m.
Japönsk Eik, 1 - 1 14 - 1 14- 2 - 214“
. Þýzk Eik, 1 - 114 — 2“
•Oregon Pine, 3',4 x 614“
Eikarspónn, kr. 40/25 ferm.
Teak-olía í 1 — 25 1 brúsum.
Mjög hagstætt verð.
HANNES
Á HORNINU
★ Vakin athygli á
gætu tímariti.
;k Um ættvísi og þjóðleg;
an fróðleik.
■k Of hljótt um það, sem
vel er gert.
★ Ðæmi uhi ónýtja ís-
lenzka framleiðslu.
JÓN Kr. SKRIFAR: „Mig furð
ar dálítið á því hve hljótt er um
Nýjar Kvöldvökur í þeim búningi
sem þær hafa birzt okkur á síð-
ustu tveimur árum. Kvöldvökuút-
gáfan á Akureyri keypti þetta
gamla og góða tímarit og skapaði
því ákveðið hlutverk, sem nauð
synlegt var og er framar öllu þjóð-
legt. Undir titlinum stendur:
„Tímarit um ættvísi og þjóðlegj
fræði.“
NÚ HEFUR TIMARITIÐ komið
út í tvö ár og þjónað þessum til-
gangi sínum af mikilli kostgæfni
svo að hvert hefti flytur manni
mikinn og góðan fróðleik um þessi
mál, sem eru okkur íslendingum
svo hugstæð eins og bezt sannast
á því, hve mjög við kaupum end-
urminningar og sagnir úr þjóðlíf-
inu. Margir ágætir menn eru í rit
stjórninni: Einar Bjarnason, Gísli
Jónsson, Jón Gíslason og Jónas
Rafnar læknir, en það mun vera
hinn síðasttaldi, sem vann mest
og bezt að hefja útgáfu tímarits
um þettá efni.
í RITINU er ntikill fjöldi greina
um ættvísi og.skrifar Einar Bjarna
son, sem mun nú vera fróðastur
allra íslendinga um ættir, greina
flokk sem hann nefnir: „Um ís-
lenzka ættstuðla." Þetta er vísinda
leg ritgerð full af margvíslegurn
fróðleik, sem leitast við að leiða
ættir manna af skjölum, annálum
kirkjubókum og fleiri heimildum.
En sagt er, að hvergi sé eins auð-
vclt að rekja ættir og hér á landi.
ENNFREMUR ERU GREINAR
um merka íslendinga og merkis-
heimili. Þær eru skemmtilegri til
lesturs en ættfærslugreinarnar,
sem að líkum lætur, enda er hér
um að ræða bráðskemmtilegt les-
efni. Ég verð að segja það, að mér
»berst varla upp í hendurnai
skemmtilegra og fróðleiksríkara
tímarit en Nýjar Kvöldvökur í þess
um búningi.
JÁ, MÉR ÞYKIR of hljótt unl
þetta ágæta tímarit. Það mun ekki
enn hafa náð þeirri útbreiðslu,
sem það á skilið. Það mun því eiga
erfitt fjárhagslega, enda mun það
varla bera mikinn áróðurskostnað
Ég vona, að þú hafir það mikinn á-
huga á svona fræðum, Hannes
minn, að þú sjáir þér fært að
vekja athygli á ritinu. Hér í Reykja
vík hefur það afgreiðslu í bóka-
verzlun Stefáns Stefánssonar á
Laugavegi 8. Þar geta menn bæði
keypt það í lausasölu og gerst á-
skrifendur að því.
GRAMUR SKRIFAR: „Nýlega
keypti ég kúst, sem búinn er til
hér á landi. Stráið í þessum kúst-
um er svo hart og stökkt, að þeir
endast ekki nema skamma stund.
Þeir sópa illa og stráið brotnar svo
að áður en við er litið, er kústur
inn orðinn ónýtur. Það er slæmt
þegar íslenzkur iðnvarningur reyn
ist svona illa. Áður gat maður
keypt sér kústa með mýkri stráum
Er ekki hægt að bæta um þetta?“
Hanncs á horninu
Jaðarsmótið
næsfu helgi
ÍSLENZKIR Ungtemplarar halda
fimmta mót sitt að Jaðri um næstu
helgi, en þing samtakanna hefst
þar á föstudagskvöld. Tjaldbúðir
munu verða að Jaðri um helgina
og vcrður tjaldbúðasvæðið flóðlýst
Jaðarsmótið verður sett á laugar
Framhald á 5. síðu.
EIRICH
mótsraums hrað steypulirærivélar.
Einnig sérstakir blandarar fyrir efnaiðnað og leirkerasmíði.
Rúmtak frá 50 — 2000 lítrum í blöndu.
Öruggasta samblöndun á stytztum tíma.
Tilboð óskast án skuldbindingu. Bréfaskipti á dönsku, norsku,
sænsku, ensku og þýzku.
V. L0WENER
VESTERBR03ADÉ9 B - K0BENHAVN: V. - DANMARK
TELEGRAMADR.: STA ALL0WENER - VeLEX: S-S85
2 17. ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ