Alþýðublaðið - 17.08.1962, Síða 3

Alþýðublaðið - 17.08.1962, Síða 3
Samningi um Guineu misjafnalega tekið DJAKARTA OQ WASHING- TON, 16. ágúst, (NTB-Reuter). íbúar Djakarta, sem er fánum prýdd, fögnuðu í dag fregninni um samning Hollendinga og In- donesa um Vestur-Nýju-Guineu, kvöldið áður en Indónesar halda hátíðlegt sautján ára afmæli sjálfstæðis. Formælandi utanríkisráðuneyt- isins sagði í dag, að Bandaríkja- níenn væru mjög ánægðir með lausn deilunnar, sem fékkst með friðsamlegum samningaviðræðum. Formælandi hollenzka utanrík- isráðuneytisins skýrði frá því í dag, að að Hollendingar og Indó- nesar hefðu orðið ásáttir um, að koma á ný stjórnmálasambandi sín á milli, en Indónesar slitu því 17. ágúst 1960. Frá Hollindia berast þær fregn- ir, að hollenzkir íbúar séu óá- nægðir með samninginn. Margir Verður Kongó sambandsríki BRUSSEL OG ACCRA, 16. ág- úst, (NTB-Reuter). Moise Tshombe Katangaforseti sagði í dag í viðtali við Brussel- blaðið „Le Soir“, að hann væri mjög ánægður með tillögu Cyril- íe Adoula, forsætisráðlierra Kóngó. Stjórnarskráin mundi kveða á Mælir gegn aðild Breta SACKVILLE, 16. ágúst, (NTB-Reuter). FORINGI Social Credit flokks- ins í Kanada, Robert Thompson, Iagðist eindregið gegn aðild Breta að efnahagsbandalagi Evrópu í dag, og hélt því fram, að samveldið mundi geta boðið Bretum talsvert betri kjör en EBE gæti. Thompson hélt því fram, að Kanadamenn svikju Breta á neyðarstund þeirra, og Iýsti yfir, að þjóðin ætti að vinna að því að Bretum yrðu boön- ir aðrir kostir en EBE. um, að Katanga yrði aðili að kóngósku sambandsríki. Tshombe kvaðst fús til þess að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn- arskrármálið. AFP-fregn frá Accra hermir, | að Kwame Nkruma Ghanaforseti1 hafi ráðlagt Adoula forsætisráð-1 herra að fallast ekki á stjórnar- skrártillögu þá, er gera mundi Kongó að sambandsríki. Öflug einingarríki er það, sem þarf í Afríku, segir i áskorun Nkrumah til Adoula. Joseph Kasavubu forseti gaf í dag út lög, en samkvæmt þeim er Kóngó-héruðunum fimm, sem lúta miðstjórninni, skipt í 16 ný héruð. Ekki verður hreyft við Katanga-héraði. Lagt var til fyrir nokkrum vik- um, að Norður-Katanga yrði fyrsta héraðið, sem þingið samþykkti. Ef þetta hefði verið gert yrði veldi Tshombe skipt í tvo hluta. Það var innanríkisráðherrann, Kamitatu, sem gerði grein fyrir hinum nýju lögum í útvarpsræðu. Landamerki hinna nýju héraða fela í sér skiptingu eftir ættbálk- um. Leopoldville-héraði er skipt í fjögur aðskilin héruð, Equator í tvö, Orientale í þrjú, Kasai í fimm og Kivu í tvö. höfðu grert sér vonir um, að Hollendingar mundu ekki undir- rita samninginn eftir atburð þann, er átti sér stað fyrir nokkrnm dögum, þegar fjöldi fallhlífarher- manna hélt til margra staða á eynni. Blöðin í Haag kalla samninginn ýmist „uppgjöf" (íhaldsblöð) eða „létti” (sósíalistablöð), en öll eru þau sammála um, að smárikið Holland hefði ekki átt sér neins annars úrkosta en að láta undan hinu óhjákvæmilega. Frjálslynda blaðið Algemeine segir m. a.: Ef eitthvað er ljóst í þessu máli hlýtur það að vera það, að enn er það vald, sem ræður lögum og lofum í heímin- um. Þetta kemur alls ekki rétt- læti við. Holland er lítið land. Það barðist í heimsstyrjöldinni síðari með öllum verzlunarflota sínum. En nú eru þaö stórveldin, sem eru allsráðandi. AÐALVEIÐIN ÚT AF GERPÍ SÆMILEG síldveiði var í gær- dag, og fengu margir bátar góð köst út af Gerpi og Hvalbak. Veð ur var gott í gærkvöldi og veiði horfur góðar. Bátarnir munu hafa lóðað á töluverða síld á þessum slóðum. Sæmilegt veður var á síldarmið unum í fyrradag og fyrrinótt, en lítil veiði. Var vitað um 31 skip með 12.610 mál og tunnur. Aðal- veiðisvæðið var ASA af Dalatanga og SSA af Gerpi. Frá síldarleitinni á Siglufirði: Víðir II. 500, Hafþór RE 40, Gylfi 70, Stígandi ÓF 250. Frá síldarleitinni á Raufarhöfn: Sigurður AK 300, Gjafar 750, Bjarmi 150. Frá síldarleitinni á Seyðisfirði: Skipaskagi 200, Sólrún 400, Freyja GK 500 Steinunn 650, Sigrún 700, Seley 750, Guðfinnur 300, Guðm. Þórðarson 500, Árni Geir 400, Þór katla 400, Guðný 100, Ólafur Magn ússön EA 500, Náttfari 200, Sigur- fari BA 300 Halkion 200, Skírnir 500, Eldey 400, Hvanney 500, Sigur björg KE 500 Hafrún ís 1000, Höfr- ungur II. 800 Ólafur Magnússon AK 300, Ingiber Ólafsson 300, Tálknfirðingur 350. P. Nenni slasast ROM 16. ágúst (NTB-iReuter) Foringi ítalskra vinstri-sósíalista Pietro Nenni fannst í dag meðvit undarlaus á fjallsbrún nálægt Aosta í ítölsku Ölpunum. Nenni sem meiddist mikið á höfði, var fluttur á sjúkrahúsið í Aosta þar sem læknir skýrði frá skömmu seinna, að Nenni væri kominn til meðvitundar, en sennilega hefði hann höfuðkúpubrotnað og brotið nokkur rifbein. Faðerni Sverris konungs véfengt AFMÆLI REYKJA- VÍKUR I ÁRBÆ AFMÆLI Reykjavíkur er á morgun. Til hátíðabrigða verður boðið upp á þjóðleg skemmtiat- riði á útivistarsvæðinu við Arbæ. Þessi nýlunda var fyrst reynd á Jónsmessuvöku í sumar og hefur gefizt vel. Útivistarsvæðið verður opnað að vanda kl. 2 en lokaö kl, 7. Stræt- isvagnaferðir verða frá Lækjar- torgi kl. 2, 3, og 4 auk Lækjar- botnsferða kl. 1.15 og 3.15 en heimferðir aukalega kl. 6 til 7 eftir þörfum. Þjóðdansasýning verður kl. 4.15 og glímusýning kl. 5,15 en að auki mun • Lúðrasveitin Svanur leika þjóðlög við Árbæ kl. 3.15 ef ástæður leyfa. í sumar hafa verið sýndir sænskir og íslenzkir þjóðdansar á sýningarpalli á túninu og nú síð- ast glíma og hráskinnsleikur á laugardögum kl. 5. Einkum hafa erlendir ferðamenn verið þakk- látir fyrir að sjá þessar þjóðlegu íþróttir. Þjóðdansafélag Reykja- víkur og Glímudeild Ármanns hafa séð um þessi skemmtiatriði. SAGAN segir, að Sverrir kon- ungur sé fæddur árið 1151, en hann hefur þótzt vera að minnsta kosti sjö árum yngri en hann var í raun og veru, segir norski pró- fessorinn Halvdan Koht í grein í norska tímaritinu „Historisk Tid skrift". Sverrir eigi að hafa sagt rangt til um aldur sinn til þess að hann gæti haldiö því fram, að hann hafi veriö sonur Sigurðar konungs munns. Þegar Sverrir var 24 ára gamall sagði móðir hans (Gunnhildur) hon um, að hann væri óskilgetínn og faðir hans væri ekki éiginmaður hennar, Unás kambari, eins og hann hefði haldið áður. Einnig segir sagan, að Sverrir hafi verið prestvígður maður er hann fékk þessa vitneskju. Sam- kvæmt kunnum heimildum er hægt að gera ráð fyrir að hann hafi fengið að vita þetta árið 1174. En samkvæmt þágildandi kirkju- lögum gátu menn, sem ékki höfðu náð þrítugsaldri fengið prestvígslu Sverrir hefði þá átt að vera fædd ur 1144, og þá var óhugsandi að hann hafði getað verið sonur Sig urðar konungs munns, sem sjálíur var fæddur 1133 eða 1134. Onnur vitneskja, sem bendir til hins sama er þessi: Sverrir átti yngri systur, sem var gift og átti son. Þessa sonar hennar var getiö sem höfðingja hjá Sverri konungi 1184. Hann hlýtur þá að hafa ver ið að minnsta kosti tvítugur, ger um ráð fyrir að hann hafi verið 22 ára, og fæðingarár hans ætti þá að hafa verið 1162. Þegar dreng urinn fæddist hlýtur móðir hans að hafa verið fulltíða, gerum ráð fyrir að liún liafi verið 17 ára. Hún hlýtur samkvæmt þvi hafa fæðzt árið 1145. Þriðja vitneskjan, sem hnígur í sömu átt með tilliti til aldurs Sverris konungs er þessi: Þegar hann kvæntist 1185 átti hann fjög ur óskilgetin börn, tvo syni og tvær dætur. Saxo skýrir frá því, að elzti sonurinn Sigurður, sem fyrst var kallaður Unás, hljóti því að hafa verið fæddur þegar Sverrir taldi enn, að hann væri sonur Unás kambara. En einnig kann að vera að þau börn Sverris, sem ekki fæddust 1 hjónabandi, — Hákon, Sesselja og Ingibjörg, — hafi haft minniháttar konungstitla í fyrstu. Sigurður Sverrisson var kallað ur lávarður í stjórnartíð föður síns 1193 og Hákon var kallaður höfð- ingi árið 1197. Báðir hljóta að hafa verið að minnsta kosti tvítugir áð ur en þeir gátu hlotið ^höfðingja- nafnbót, og þeir fæddust sennilega MUHMHMMMtMMMMMMtM Rússar reka fréttaritara „Newsweek'' LONDON 16. ágúst (NTB- Reuter) William Bassow, eina fréttaritara tímaritsins banda ríska „Newsweek" í Moskvu hefur verið skipað að fara af landi brott. Tass-fréttastofan sem fregn þessi er höfð eftir segir að skrif Bassows hafi vakið almenna reiði í Sovét ríkjunum. MMtMMMMMHMMMHHHW í Færeyjum. Dóttirinn Sesselja, giftist höfðingja, sem kallaður var Einar prestur, seinna Einar kon- ungsmágur. En sagan getur ekki um hann fyrr en 1201, og þess vegna getur Sesselja verið fædd í Noregi. En seinna var hennar get ið sem elztu dóttur Sverris, og yngsta dóttirinn, Ingibjörg, giftist árið 1196 sænska konungssyninum Karli Sörkvissyni, sem féll 1198. Allt bendir þetta til þess, að báðar dæturnar hljóti að hafa fæðzt í Færeyjum einnig. Ef svo er hafði Sverrir eignazt fjölskyldu í Færeyjum áður en hann kom til Noregs 1176, og þá getur hann ekki hafa verið mjög ungur. Allt bendir þetta til þess, segir prófessor Koht, að Sverrir hafi lát- ið telja sig að minnsta kosti sjö árum yngri en hann var í raun og veru, og að því er mig varðar er ég ekki í neinum vafa um, að ár- talið 11444 cr réttara fæðingarár en 1151. Prófessoh Koht telur ósennilegt, að Gunnhildur hafi sagt Sverri að Sigurður konung munnur væri fað ir hans. Gunnhildur fór í pílagríms ferð til Rómar, og þar skriftaði hún fyrir presti .einum, og sagði frá syninum, sem hún átti utan hjónabands, og var prestvígður. Henni var skipað að segja syni sínum frá réttu faðerni hans. Um Sigurð konung munn mun Sverrir ekki hafa vitað annað en að hann hafi verið beittur svívirði legu ofbeldi. En það var nóg til þess að varpa á hann helgiljóma. Sverrir vildi feta í fótspor hans og hefja ætt hans til vegs og virðirigar Hugarburðurinn fór að blandast raunveruleikanum. Ei var lengur annar fulltrúi liinnar réttu kon- Framh. á 14. síðu ALÞÝÐUBLA0I0 - 17. ágúst 1962 J

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.