Alþýðublaðið - 17.08.1962, Síða 10

Alþýðublaðið - 17.08.1962, Síða 10
K.R.: Heimir Guðjónsson, Krist- inn Jónsson, Hreiðar Ársæls son, Sveinn Jónsson,, Helgi Jónsson, Ellert Schram, Örn Steinsen, Jón Sigurðsson, - Gunnar Guðmannsson, Gunn f ar Felixson, Sigþór Jakobs- son. Vlalur: Björgvin Hermannsson, Þor steinn Friðþjófsson, Ámi Njálsson, Ormar Skeggjason, Guðmimdur Ögmundsson, Elías Hergeirsson, Þorsteinn Sívertsen, Steingrímur Dag- bjartsson, Bergur Guðnason, Bergsteinn Magnússon, Matt hías Hjartarson. Dómari: Baldur Þórðarson. »_Eftir nokkurt hlé á íslandsmót- inu í knattspyrnu vegna lands- leikja og annarra orsaka, léku KR og Valur í fyrrakvöld. Leiknum lauk með jafntefli 2 gegn 2. Ekki er hægt að segja að þau úrslit hafi vériö sanngjörn, því mestan hluta jfeiljsins var allt frumkvæðið í höndum KR-inga, sem sýndu oft dágóðan Ieik, ef þess er gætt að þeir urðu nú að leika án flestra landsliðsmanna sinna, sem eru í sárum eftir hinn mikla hildarleik við íra sl. sunnudag. í byrjun var leikurinn daufur en KR-ingar þó mun frískari og baráttufúsari. Gunnar Felixson skorar fyrsta markið á 10. mín. og var aðdrag- andi þess sá, að þeir Gunnar Guð- mannsson og Jón leika saman upp miðjuna, Jón sendir síðan knött- inn lítið eitt út og fram til vinstri en þar nær Gunnar Felixson knett inum hann leikur lítið eitt inn í vítateig Valsmanna, markvörður Vals, Björgvin hleypur út, en Gunnar spyrnir yfir hann og í mark Valsmanna. Vafalítið hefur vindurinn hjálpað nokkuð til í þessu tílfelli, en úthlaup Björg- vins var mjög misráðið. KR-ingar ná nú enn betri tökum á leiknum og eru því sem næst í stöðugri sókn það sem eftir er hálfleiksins Þeir Sigþór og Gunnar Felixson eiga báðir góð tækifæri til að skora, en tókst það ekki og má þakka það ágætri frammistöðu Björgvins markvarðar. Framan af seinni hálfleik sat við það sama KR-ingar sóttu nær látlaust, en Valsmenn vörðust. Jón Sigurðs- son skoraði 2. mark KR í byrjun hálfleiksins eftir nokkur mistök í vörn Valsmanna. Heldur fer þó að lifna yfir Valsmönnum skömmu eftir miðjan seinni hálfleik. Á Berg ur ágætt tækifæri á 30. mín. en Heimir bjargar með ágætu út- hlaupi. Flestir þóttust nú sjá fram á verðskuldaðan sigur KR-inga, en það fór á annan veg. Matthías | tekur horn á 35. mín. og skorar | beint úr því án þess að KR-ingar jfái að gert. Framh. á 14. síðu KR átti mun meira í leikn- *■ um gegn Val á miðvikudags- kvöldið og hefði átt skilið að sigra, en leiknum lauk mcð jafntefli. Á þessari mynd horfa Valsmenn á eftir boltanum í netið, Jón Sig- urðsson skorar annað mark KR-inga. FRÍ 15 ára Frjálsíþróttasamband íslands (FRÍ), varð 15 ára í gær. Dagsins var ekki minnzt að öðru leyti en því, að fyrrverandi formenn og núverandi stjórn komu saman til að ræða gamla, góða tíma og hug- leiða hvað gera verði til að auka veg frjálsfþróttanna í landinu. Vann og tapaði FÆREYSKA landsliðið í knatt- spyrnu lék síðasta leik sinn hér á landi í þetta sinn í fyrra kvöld. Færeyingarnir mættu meistara- flokki ÍBK á grasvellinum í Njarð- víkum. Leiknum lauk með sigri ÍBK 4 gegn 2. í hálfleik var staðan 4:1, en í síðari hálfleik var aðeins skorað eitt mark og það gerðu gerðu Færeyingar. Einnig lék 3. flokkur HB, sem hér er staddur í boði Víkings við jafnaldra sína úr. Keflavík. Fær- eyingar sigruðu með 5:1. f ■ /1 " I 1 ' frjölsum nja Góður árangur á héraðsmóti Nú kynnir FÁLKINN lið AKUREYRINGA í I. deild íslandsmótsins í knattspyrnu Athugasemd stjórn K.S.Í. frá VEGNA furðulegra og ósmekk- legra skrifa í einu af blöðum bæjarins fyrir skömmu varðandi heimsókn Færeyska landsliðsins vill stjórn Knattspyrnusambands íslands taka fram eftirfarandi: Færeyska landsliðið kom til Reykjavíkur að kvöldi 2. ágúst s. 1. og tók stjórn knattspyrnu- sambandsins á móti gestunum við skipshlið og snæddi siðan með j þeim kvöldverð á hótel Garði, , þar sem þ'eir gistu. Landsleikurinn j fór fram, svo sem kunnugt er, I föstudaginn 3. ágúst undir blakt- HÉRAÐSMÓT HSÞ fór fram að Laugum í s. 1. mánuði. Þátttak- endur í héraðsmótinu voru ails 52 frá 9 félögum, en auk þess tóku 12 KR-ingar þátt í mótinu, sem gestir. Áður haíði verið getið um árangur þeirra í blaðinu. Veður var gott þegar mótið fór fram og áhorfendur allmargir. Ahugi fer nú vaxandi fyrir frjáls- íþróttum í Þingeyjarsýslu og margt efnilegt íþróttafólk hefur komið fram undanfarið. Kennari HSÞ í sumar var Stefán Krist- jánsson, íþróttakennari, Reykja- vík. Stigahæsta félagið á héraðs- mótinu var Völsungur, Húsavík og vann bikar, sem Óskar Ágústs son, íþróttakennari hefur gefið. Hér eru helztu úrslit: Langstökk karla. Ingvar Þorvaldsson V 6,61 Sigurður Friðriksson E 6,21 Höskuldur Þráinsson M 5,99 Konráð Ólafsson V 5,78 Þrístökk karla. lngvar Þorvaldsson 14.03 Sigurður Friðriksson 13,64 Ófeigur Baldursson G&A 12,52 Haukur Ingibergsson G&A 12,34 Hástökk karla. Emil Ragnarsson V 1,50 Tryggvi Valdemarsson E. 1,55 Ófeigur Baldursson G&A 1,55 Emil Ragnarsson V 1,59 Framhald á 14. síðu. <nvmv> andi fánum Færeyja og íslands. Að leiknum loknum var setin virðuleg veizla í boði borgarstjór- ans í Reykjavík, Geirs Hallgríms- sonar. Fór veizlan fram í öllum atriðum svo sem endranær eftir landsleiki og var íþróttasambandi Færéyja, svo og hverjum einstök- um þátttakanda í ferðinni færðar þar gjafir. Daginn eftir landsleikinn var gestunum boðið í ferðalag og var! stjórnarmeðlimur K. S. í. farar- stjóri í þeirri ferð. Heimsóttu i Framh. á 14. síðu 100 m. hlaup karla. Höskuldur Þráinsson M 11,4 Sigurður Friðriksson E 11,4 : Ingvar Þorvaldsson V 11,6 i Konráð Ólafsson V 11,9 ■ 400 m. hlaup. Tryggvi Óskarsson R 57,4 Þorsteinn Jóhannesson M 58,7 Bergsveinn Jónsson B 60,3 Stefán Óskarsson R ■ 60,8 Ingvar Jónsson 63 Höskuldur Þráinsson M 65,0 1500 m. híaup. Halldór Jóhanness. Magna 4:12,8 Tryggvi Óskarsson R 4:20,7 Gísli Sigurðsson E 4:47,0 Sveinn Helgason M 4:59,0 3000 m. hlaup. Halldór Jóhanness. Magna 9:06,4 Tryggvi Óskarsson R 9:50,2 4x100 m. hlaup Sveit Mývetninga 48,0 Sveit Völsunga 50.8 ÍSLENZKIR k rfuknatt- leiksmenn mv.» • þreyta fjóra landsleiki I haust. Þeir taka þátt í Po'-r p keppn- inni i Stokkh < '• 2.-4. nóvember eins o-r skýrt hef- ur verið frá é s!'’"nni. En áður en sú k n-> fer fram munu íslendingr leika landsleik ge.en ckotum í Glasgow 29. ok> Síðar mm"r ‘3 flyíja ýmsar fleiri fr/u ' -á körfu- k nattleiksmönnmn. vnww Kitstjórb ÖRN EIÐSS0N Jafntefli KR og Vals 2:2 10 ,17. ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ : 1; ■ . • i — -i \i"~ ;*i J Yi C. :■• .WWWWVWkVWVkVWWiAWVtyVI'

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.