Alþýðublaðið - 17.08.1962, Síða 15

Alþýðublaðið - 17.08.1962, Síða 15
Neville Shute s' jt leðursætinu o. fl. Síðan skrifaði hún ávísun fyrir upphæðinni og borgaði þarna á staðnum. Síðan fórum við og fengum okkur mat arbita. Ég kynnti hana fyrir Colin Hicks, yfirflugmanninum þarna, sem staddur var inni á veitinga stofunni. Hann bauð okkur upp á snafs en ég afþakkaði, þar sem við áttum eftir að fljúga til baka. Ég bað samt um engiferöl, og hún mjólkurglas. Ég sagði hon um að hún hefði verið að kaupa Moth vél af fyrirtækinu. Hann suurði um skrásetningarnúmerið og þegar ég sagði honum það, sagði hann: ,,Það er gamla vél- in hans majórs Strauther. Það er góð vél. Hann seldi hana vegna þess að hann var sendur til Indlands“. Svo sneri hann sér að henni. „Við ætlum að halda flugsýningu með Parísar flug- klúbbnum við La Baule í júni. Þangað ættuð þér að koma Vél- in yðar ratar þangað því hún var þar í fyrra“. „Til Frakklands", sagði hún hugsandi. Hann kinkaði kolli. Það er við Biskaya flóann, ekki ‘ langt frá Stó Nazarie. Vanalega hittum við Frakkana í Le Touq- uet og fáum okkar þar í gogg- inn, síðan fljúgum við saman það sem eftir er. Þetta er ekki erfitt flug og þarna skemmta all ir sér“. „Ég ætla að hugsa nánar um þetta“, sagði hún. „Ég hef nú ekki mikla reynslu enn sem kom ið er“. Við fengum okkur nú sæti við ' borð til að snæða hádegisverð. Hún virtist annars hugar, sat og starði út á flugvöllinn. „Eruð þér ánægð?“ spurði ég. Hún snéri sér að mér. „Já meira en lítið. Mér finnsta þetta . varla geta verið satt“. „Það er alltaf gaman að eign ast eitthvað nýtt. Það væri al- veg eins með nýjan bíl“. Hún kinkaði kolli. „Það er ekki bara það. Það verður allt annað að eiga flugvél. Maður verður svo frjáls ferða sinna. Sjáið þér til“, sagði líún. „Ég lief eiginlega aldrei komið neitt. En nú, að fara til Frakklands, — fljúga þangað í minni eigin flugvél, — ótrúlegt. Ég veit ekki hvort ég hef hugrekki til að gera þetta. Og ég veit að ég mun iðrast þess alla mína ævi, geri ég það ekki“. „Kunnið þér . .nokkuð . . í frönsku?" spurði ég. „Ég lærði frönsku þegar ég var í skóla", sagði hún. „En síðan eru liðin fimmtán ár. Ég er víst búin að gleyma hvað mað ur á að segja við flugvirkja á flugvelli". Ég brosti. „Þér verðið að finna yður farþega, sem er þess um hnútum kunnugur. Það eru margir hér sem mundu grípa tækifæri' til að komast til La' Baule fegins hendi“. „Það getur satt verið“, sagði hún. Hún var að hugsa um stund síðan sagði hún. „Hvað voru nú einkennisstafirnir aftur?“ „Ég sagði henni það. „G- EMLE”. „MLF“, sagði hún. „Morga Le Fay. Það ætla ég að kalla hana“. „Hver var Morgan Le Fay?“ Hún var systir Arthúrs kon- ungs“. „Morgan Le Fay::, endurtók ég. „Það er ekki svo slæmt nafn á flugvél. Viljið þér ekki láta mála nafnið á hana. Mála það með rauðum stöfum rétt fyrir neðan hreyfilinn. Það mundi verða ansi fallegt". Hún varð alveg himinlifandi. „Væri það hægt? Það mundi verða alveg dásamlegt“. „Það er vel hægt. Við skulum fara inn á skrifstofuna og biðja þá um að skrifa þetta nið ur áður en við förum“. Við gerðum það þegar við vor um búin að borða, og síðan stig um við upp í vélina sem við kom um á og flugum til baka til Duffington. Þegar hér var kom ið hafði henni farið lieilmikið fram í að fljúga yfirlandsflug. Þegar við fórum fram hjá Bed- ford, sagði hún í talpípuna: „Pascoe". „Já“, svaraði ég. „Ég bætti við fimm gráðum vegna vindsins, en eftir reykn- um frá járnbrautarlestinni þarna að dæma er vindurinn á austan. Ætti ég að breyta stefnunni?“ Ég leit niður. Þetta var alveg rétt hjá henni. „Vindurinn er ekki mjög sterkur. Ég mundi bæta svo sem tveim gráðum við upprunalegu stefnu. Ég held við séum komin full vestarlega“. Þegar við lentum í Duffing- ton, var ekki nokkur sála þar, því klúbburin n er lokaður á mánudögum. Hún ók vélinni upp að dyrunum á flugskýlinu, sem voru lokaðar. Við fórum út og opnuðum dyrnar og ýttum vélinni inn. Þegar við vorum bú in að því sneri hún sér að mér og sagði: „Mikið er ég yður þakklát fyrir að fórna mér frí- deginum", sagði hún. „Mér hef ur fundist þetta alveg yndisleg- ur dagur. En ég hugsa að þér getið ekki sagt það sama“. „Þetta var allt í lagi mín vegna“, sagði ég. „Ég ætlaði ekki að gera neitt sérstakt. Ég ætlaði kannski að verzla svolít- i ið, en ég get alltaf gert það“. „Ætlið þér að gera eitthvað sérstakt í kvöld?“ „Nei“. „Munduð þér vilja koma og borða heima hjá mér?“ spurði hún dálítið feimnislega. „Með mér og móður minni?“ „Það mundi mér þykja mjög gaman“, sagði ég. „Um hvaða leyti ætti ég að koma?“ „Klukkan sjö? Við borðum vanalega um það leyti“. Ég kinkaði kolli. „Það hentar mér vel. Ég ætla að fara og skrifa i loggbækurnar, síðan fer ég heim og skipti um föt, svo kem ég. Ég gekk upp að húsinu hennar um kvöldið, nýrakaður og skrýddur mínum beztu fötum. Ég hafði aldrei komið þarna áð- ur, en óg hafði séð húsið úr lofti á hverjum degi. Þetta var gamalt hús. Þetta kvöld fannst mér leiðin að húsinu frá vegin- um lengri og húsið allt meira en mér hafði áður fundizt. Stofustúlka með stífaða svuntu kom til dyra og vísaði mér til stofu. Frú Marshall og móðir hennar stóðu upp til að bjóða .mig velkominn, og ég var kynntur fyrir móður hennar, frú Duclos. Ég kannaðist við hana í sjón þótt við hefðum aldrei talast við. Mér leizt ekkert meira en svo á hana. Þær buðu m'ér snafs og ég kaus Sherry. Meðan nemandi minn var að sækja sherrið og glösin fór sú gamla að ræða við mig. „Brenda segir mér að hún sé búin að kaupa flugvél", sagði liún. „Ég brosti. „Það er rétt“, Svo spurði ég: „Samþykktuð þér það?“ Það rumdi í henni. „Það skipti nú víst ekki miklu máli hvort éé hefði samþykkt það eða ekki. En — mér finnst þetta allt í lagi meðan hún drepur sig ekki á þessu. Þér sjáið til þess a3 hún geri það ekki“. „Það geri ég eftir beztu getu“, „Standið upp og leyfið mér að líta á yður“. Ég stóð upp og hún og eftiis smá stund sagði liún: „Brenda segir að þér hafið skotið niður ellefu Þjóðverja í stríðinu“. „Já“, sagði ég. „Ég er hrædd ur um að. ég hafi gert það“. „Um hvað eruð þér hrædd-> ur?“ „Ekkert", sagði ég. „Nú finnst' mér ekki eins mikill heiður að hafa gert þetta eins og mér fannst þá“. „Eruð þér að verða friðar- sinni eða hvað? Hvað heitið þér annars, ég get ekki haldið áfram að kalla yður Pascoe höfuðsmann' ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. ágúst 1962 15 '

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.