Alþýðublaðið - 15.09.1962, Side 3

Alþýðublaðið - 15.09.1962, Side 3
Verkföll í Brazilíu og stjómarkreppa Fylgzt með skipum sem fara til Kúbu KIO DE JANEIRO, 14. septem ber (NTB-AFP). Verkalýðssamtök- in í Brazilíu fyrirskipuðu allsherj- arverkfall síðdegis til þess að leggja áherzlu á pólitískar og efna hagslegar kröfur eins og það var orðað. Fyrst og fremst er krafizt þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem þjóðin geti valið um áframhald- andi þingbundna forsetastjórn eða mikil völd forseta. Verkalýðssamtökin bera og fram ýmsar kröfur um kjarabætur. Verkfallið hafði strax áhrif á um ferðina á götunum, og síðdegis fóru verkamenn að yfirgefa vinnu staði. í Rio de Janeiro söfnuðust verkfallsmenn saman fyrir fram an járnbrautastöðina. í Sao Paulo héraði er hersveitir ÓEIRÐIR búnar skriðdrekum við öllu bún- ar, svo og 1. 2. og 3. herinn. For- ingi herráðsins, Machado Lopes, hefur tekið við störfum landvarnar ráðherra til bráðabrigða, en í nótt baðst Bvochado da Rocha forsæt- isráðherrar lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. í kvöld ræðir full trúadeildin hvort Goulart forseta skuli veitt umboð til þess að niynda bráðabirgðastjórn. Öldungadeildin samþykkti í morgun þá tillögu, er stjórnin hafði komið með, að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla 6. janúar til þess að ákveða hvort aftur skuli horfið til forseta-kerfisins. Gaulart forseti mun hafa í hyggju að skipa Nelson de Mello fv. landvarnarráðherra fersætisráð herra í stað Brochado da Rocha. 50. herforingjar lýstu yfir stuðn ingi við Nelson de Mello á fimmtu dag. ÞAÐ SLYS varð um kl. 9,30 í gær á mótum Njarðargötu og Hringbrautar að Reuault bifreið ók á dráttartaug, sem tengd var á billi bifreiða og skemmdist á þaki og framrúða sprakk. Engin slys urðu á mönnum. Málsatvik voru þau, að vörubifreið var að draga fólksbíl í gang og var kaðall strengdur á milli. Sá ökumaður Renault bifreiðarinnar ekki kaðal inn milli bílanria, er þeir voru að fara yfir Hringbrautina og ók á hann og sleit með fyrrgreindum afleiðingum. j WASHINGTON, 14. september I (NTB-Reuter). Bandríski flotinn ! hefur auknar gætur á skipum, sem sigla til og frá Kúbu, að því er full trúi flotans skýrir frá. Gæzluflug- vélar eru á sveimi yfir Karibahafi allan sólarhringinn, frá Flórdía og bandarisku flotastöðinni í Guant anmoflóa á Kúbu. Þetta eftirlit úr lofti hefur auk- izt undanfarnar vikur, að sögn talsmannsins. Bandarískir embætt ismenn og útsendarar framkvæma nú rannsóknir í öllum höfnum Ev rópu og öllum skipum, er leggja úr evrópskri höfn áleiðis til Kúbu. Skip sem sigla nálægt Kúbu er spurð um farm og ákvörð unarstað. MMMMHIUHMMMMMHHM' í fyrradag sagði flugfélagið Manico I Nicaragua, að sovézkar MIG-orrustuflugvélar færu eftir- litsferðir yfir KaríbahafL Flugfé lagið hefur breytt leiðum flugvéla sinna til Flórída til þess að forð ast það, að þær rekist á þotur þess ar. Vandræða- barcelona ástand í BARCILONA, 14, september (NTB-Reuter). Hinni stóru raf- tækjaverksmiðju Siemen-félagsiná var lokað í dag, og öllum starfs- mönnum verksmiöjunnar, 3 þús. að tölu, sagt upp. Þegar verkamennirnir mættu til vinnu sinnar var verksmiðjan lokuð og tilkynning um að þeim liefði verið sagt upp var í and- dyrinu. Þá grýttu verkamenn bygg inguna og brutu margar rúður. Seinna efndu þeir til mótmæla- mundar fyrir framan verksmiðj- una og varð lögreglan að skerast í leikinn. Verkamennirnir skipu- lögðu seinagang í fyrri viku til þess að leggja áherzlu á kröfur sínar um 170 peseta lágmark dag- launa. fangelsum HEGNINGARHUSIÐ við Skóla- vörðustíg hefur í áratugi gegnt því hlutverki, að taka á móti gæzluföngum, sem hafa dvalið þar um lengri og skemmri tíma. Hafa verið fluttir þangað' menn alls- staðar að af landinu, enda er hvergi hér á Suðurlandi, nema á Akranesi, aðstaða til að geyma menn yfir nótt. Ilegningarhúsið er fyrir löngu orðið of lítið og óhent- ■ ugt til að sinna þessu hlutverki. j I Kópavogi, þeim vaxandi kaup- . stað, er engin fangageymsla og I ekki einu sinni aðstáða til að I geyma menn yfir eina riótt. Hefur Ríkasti maður Sýr- lands forsætisráðh. Er gamall Vichysinni DAMASKUS, 14. september (NTB-Reuter). Khaled Azm, sem oft er kallaður rikasti maður Sýr lands, er orðinn forsætisráðlierra landsins, í sjötta sinn. Þjóðþingið lýsti yfir trausti á honum með 156 atkv. gegn einu í nótt. í gær hafð'i stjórn dr. Bashir Azmehs beðizt lausnar. Azm, sem er úr íhaldsflokknum er sextugur að aldri og talinn einn fremsti stjómmálamaður Sýrlend inga. Hann hefur tvisvar sinnum beðið ósigur í forsetakosningum, fyrst árið 1955 fyrir Shukri Kn- tvatli og aftur árið 1961 fyrir Naz- em Kudsi. Hann var forsætisráð herra frá júlí til apríl 1941 og var skipaður af frönsku Vichy- stjórninni, og aftur forsætisráð- herra 1949—50. Hann var handtek inn í byltingunni í marz s. 1. en var seinna sleppt úr háldi. Hann hóf feril sinn sem kaupsýslumað ur og á fjölda iðjuvera. Azm skýrði þinginu svo frá í dag, að Sýrland væri komið fram hjá mestu hættunni. Hann sagði, að stefna stjórnar hans mundi byggjast á algeru hlutleysi og virð ingu fyrir Sameinuðu þjóðunum. Þá skýrði hann frá fyrirhugaðri stjórnarskrárbreytingu, og mun hér vera um stjórnarskrána frá 1950 í breyttri mynd að ræða. Sam kvæmt núverandi bráðabirgða stjórnarskrá getur forsetinn leyst upp þingið með samþykki stjórn- arinnar. j Iögreglan þar þurft að fara með I alla gæzlufanga til Reykjavíkur svo og þá, sem þurft hefur að halda Inni yfir nótt. Blaðið ræddi við lögrcgluna þar í gær, og fékk þær upplýsingar, að mjög æski- legt væri, að sköpuð yrði aðstaða til geymslu á föngum a.m.k. nætur langt. í Hafnarfirði eru rúm fyrir 9 menn til næturgistingar. Þar er ekki gert ráð fyrir geymslu á mönn um til Iengri tíma en einnar næt- ur, þó það hafi verið gert. Þar er engin aðstaða til að elda mat eða annars er til þarf. Alla gæzlufanga verður að flytja til Keykjavíkur. í Keflavík er heldur engin að- staða til geymslu á mönnum, nema rétt yfir blánóttina. Sama er um KeflavíkurflugvöII og þaðan verð- ur einnig að flytja alla gæzlu- fanga til Reykjavíkur. Af þessari upptalningu er ljóst, að fangahúsið við Skólavörðustig- inn verður að taka á móti mönn- um frá öllum þessum stöðum, enda er þar stundum yfirfullt. Hegn- ingarhúsið er einnig mjög óhent- ugt að því leyti, að það er í miðj- um bænum, og þar er opinber dóm- salur og mikill umgangur. WIHHHUMVMMMMMMMM Hlerað um EM Alþýðublaðið hefur hlerað að geimfarinn Titov sé frétta ritari Morgunblaðsins á EM í Belgrad og annar geimfari sennilega á leið til Venusar annist sama verk fyrir ríkis varpið. 4MMMMMHHHHMMMMMM Rússar láta undan BERLIN, 14. sept. (NTB- Reúter) Sovézk yfirvöld í Berlín urðu í dag við þeim til mælum Breta að nota stræt- isvagna í stað brynvarða bif- reiða til þess að flytja her- menn að rússneska minnis- merkinu í brezka borgarhlut- anum. Þangað eru hermenn fluttir daglcga til þess að leysa af varðliða. Fulltrúar vesturveldanna höfðu gefið Rússum frest til vikuloka til þess að svara tilmælunum. Hér þykja Rússar hafa sýnt mikinn skilning að þessu sinni. Vestrænn formælandi lét svo um mælt, að Rússar ; hefðu svarað tilmælunum degi áður en fresturinn rann út. mmmmmmmmwmmmmmw Námsstyrkur til Noregs ÚR Minningarsjóði Olavs Brun- borgs, stud. oecon., verður ísl. stúdent eða kandídat veittur styrk- ur árið 1963 til náms við norskan háskóla. Styrkurinn er að þessu sinni 1100 norskar krónur. Umsóknir skulu sendar skrif- stofu Háskóla íslands fyrir 1. okt. 1962. Æskilegt er, að umsækjend- ur s’endi með umsókn skilríki xun námsferil sinn og ástndum. ★ USUMBURA: Þjóðþingið í Bur undi hefur ákveðið að hefja að nýju mál á hendur átta mönnum sem fundnir eru sekir um laun- morðið á fv. forsætisráðherra Ur- undi, Louis Rwagasore krónprins 13. október í fyrra. Ráðgjafarþing Evrópuráðsins kemur saman RÁÐGJAFARÞING Evrópu- ráðsins situr á fundum í Strass- bourg 17.-23. þ. m. Fyrstu tvo dagana verða haldnir sameigin- legir fundir ráðgjafarþingsins og Evrópuþingsins svonefnda, en á því eiga sæti þingmenn frá þeim 6 ríkjum, sem eru í Efnahags- bandalagi Evrópu. Af íslands hálfu mun Þorvaldur Garðar Kristjánsson sækja ráðgjafarþing ið að þessu sinni. Á dagskrá þingsins eru m. a. almennar umræður um stjórn- málaþróunina í Evrópu. Að auki verður m. a. rætt um efnahags- samvinnu ríkjanna í Evrópu og Norður-Ameríku, um orkumál og um flutninga og umferðarmál. Þá verður fjallað um starfsemi ým- issa Evrópustofnana, um ástand- ið í Albaníu, um flóttamannamál og um löjrfræðilega aðstoð við vanþróuð lönd. Einnig verður rætt um starfsemi Evrópuráðsins á sviði lögfræði, menningar- og sveitarstjórnarmála. Mikiö um ber á Snæfellsnesi KRÖKKT hefur verið af berj- um á Snæfellsnesi í sumar. Stór- ir Tangferðabílar hvaðanæva að af landinu hafa komið með fólk á Snæfellsnesið til að tína. Nú mun búið að fleyta rjómann ofan af. Bændurnir, sem berjalandið eiga, hafa margir hverjir verið ó- (ánægðir með afraksturinn af á- jvaxtaekrum sínum, því að fólkið ! hefur tínt ber í löndum þeirra án I þess að spyrja leyfis og greiða ! fyrir. I Bæði hefur verið mikið af kræki berjum og bláberjum á Snæfells- nesi í sumar, en annars staðari á landinu hefur verið næsta lítið um ber, sérstaklega hér Sunnanlands. Nyrðra hefur verið sæmilegt berja sumar. Þórður bóndi á Sæbóli, sem nefna mætti berjasérfræðing lands ins, vill ekki gera mikið úr berja- tekjunni í ár. Hann segist _háfa komið á Snæfellsnes nú í hau|t. Þá hafi verið búið að tina mjpg mikið, en þó hafi nokkuð verið áð fá á víð og dreif um nesið. f ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. sept- 1962 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.