Alþýðublaðið - 28.09.1962, Qupperneq 7
Það eru sams konar línur
í svörtum, hvítum og gulum
lófum mannanna
segír Amy
Engilberts
SÍMINN gengur án afláts í stofu
Jóns Engilberts, og allir vilja fá
að tala við dótturina, Arny. Amy
veit ekki sitt rjúkandi ráð. Allur
hennar tími er upptekinn, þár tii
hún yfirgefur landið og lieldur enn
á ný til Parísar til að læra meira
um þær dularrúnir, sem felast i
lófum manna.
—Varstu nokkur dulræn, þegar
þú varst lítil, Amy?
— Já, ég var það víst. Faðir
minn varð stundum að sitja yfir
mér á nóttunni, þá sá ég eitthvað
leiðinlegt í draumum.
— En ertu skyggn núna ’
— Nei, ég '’r það ekki, en ég er
næm fyrir sl'ku. Með nrerm 'á ég
við, að ég gæti þroskuð hjá mét
skyggnigáfu, en ég vil það ekki.
Ég er hrædd við það.
— Þegar þú lítur í hönd sérðu
þá aldrei neitt, sem kalla mætti
Ekyggnsýnir fram í framtiðina?
— Nei, ég legg ekki kapp á að
sjá slíkt. En það getur komið nieð
æfingu ef fólk vill. Mig dreymir
aftur á móti fyrir ýmsu því miður.
Til dæmis dreymir mig alltaf fyrir
dauðsföllum í fjölskyldunr.i. En ég
er fegin því, að ég er ekki skyggn.
— En þarf samt ekki næmi til
að geta lesið í lófa?
—Jú, það er líka nauðsynlcgc.
Það er einkennilegt, en nænu á
þessu sviði er miklu ftiun algeng
ara hjá konum en karlmönnum.
Það er líklega þessi sjötti sans,
sem stundum er talað um hjá
okkur kvenfólkinu.
— Hefurðu lesið í lófa í París?
— Já, ég hef gert dálítið af því,
bæði fyrir kunningja rnina og
eins ókunnugt fólk. Ég bef lesið
í lófa fólks af ýmsu þjóðerni bæði
jí svarta lófa, gula og hvíta, en lín
j urnar virðast svipaðar í þeim öil-
um.
— Hefurðu lesið í þinn eigin
lófa?
— Já, það hef ég gert.
— Geturðu þá ekki snúið á for-
Jögift?
— Ég ætti að minnsta kosti að
geta haft einhver áhrif á það, sem
koma skal, því að þótt forlögin
leggi eitt Og annað á manninn, hef
ur hann þó alltaf að einhverju leyti
frjálsar'hendur.
—Hefur einhver önnur spáð í
! lófa þinn?
| — Já, einu sinni spáði sígauna-
Ikona í lófa minn. Hún virðist. hafa
|vitað nokkuð, hvað hún söng. Mér
jsýnist, að margt af því, sem hún
jsagði geti staðist.
— Eru sígaunarnir snjallir spá-
menn?
' — Það ér upp og ofaft. E’instaka
sígauni virðist háfa hæfileika tjl
að sjá framtíð manna í lófa, en
þeirra fræði er af sama toga spunii
inn og mín, því að allt er þetta
komið frá Indiandi, þar sem lófa
lestur og stjö;nuspeki eiga vöggú
sína.
— Segirðu fólki frá þvi. livað
framundan er, hvernig sem það er?
— Já, yfirleitt.
— Hvérnig bregzt fólk við?
Vill fá henni
völd í Evrópu
Amy Engilberts.
— Misjafnlega, allt eftir skap-
gerðinni.
— Trúir þú á annað líf, Amy?
— Ég trúi á þróun. Þa'ð er erfitt
að segja, hvort á að kalla það ann
að líf, ég er ékki spíritisti, ef að
þú átt við það, en ég trui þvi, að
eitthvert áframhald sé eftir þetta
líf. Annars væri þetta allt svo ó-
skiljanlega tilgangslaus.
— Bregður þér aldrei, or þú
lítur í Jófa?
— Jú, og satt að segja firrnat
mér lífið nú orðið stundum svo til
gangssnautt. Fólk getur átt svo
ótrúleea bágt.
— Á hvaði aldri or það folk,
sem leitar til þín til að fretta um
íramtíðina?
— Það er á öllum aldri.
— Hvað heldur þú, að sá eizti
hafi verið gamall?
— Það kom hingað kpna' íiáit á
tíræðisaldri.
— Hvað vildi hún fá að vita?
— Hún vildi gjarnau rifia upp
liðna tíð og forvitnast um það
sem framundan var.
ENSKA blaðið „Evening News“
hefur nýlega kastað fram þeirri
hugmynd, að Elízabet drottning
verði keisarafrú í sameinaðri Ev-
rópu. í anda markaðsbandalags-
ins gæti EHzabet orðið sú per-
sóna, sem bezt gæti tengt hin mis-
munandi Iönd saman, segir greinar
höfundur, sem er þekktur baup-
maður í London.
Enska á að vera aðaltungumál-
ið í þessari ríkjasamsteypu, segir
höfundurinn, — enda sé hún alls
staðar orðin frambærileg. Hvort
sem Svíi hittir Portúgala, eða
Frakki Dana, alls staðar er ensk-
an töluð.
Myntin skal vera pund með
hundrað einingum — svo að farið
sé bil beggja, en ekki skulu þekkj-
ast ensku pundin né „yard.”’
— England þarf engu að kvíða
að ganga í bandalagið.
Við erum þekktir sem stjórn-
málamenn og diplomatar, og brátt
yrðum við ráðandi í bandalaginu,
j með mesta verzlun og sterkasta
aðstöðu, segir greinarhöfundur.
j Sem til styrktar ummælum sín-
um um'Elízabetu drottningu sem
leiðtoga rikjasamsteypunnar, seg-
ir kaupmaðurinn, að hún sé virt
og dáð um alla Evrópu og sé hin
eina mögulega persóna sem tii
greina komi.
Mér varð
ekki um sel
. . . þegrar ég las frásögn
Moggans í gær, um byggingir
skipbrotsmannaskýlis á
Ströndum. Um efnið segir
meðal annars: „AIls voru
notaðar 21 hella tií skýíis-
gerðarinnar, allar þungar,
þær stærstu um 180 km.
tÍMWmMWW%MWiWW*WWÍ
Tvær stefnuyfir
lýsingar ASl
KVEÐUR VIÐ ANNAN
TÓN EN ÞÁ KOMMAR
VORU í RÍKISSTJÓRN.
V%M**%*%**M4*v***vw> i^wwwv MII)STJÓR\ Alþýðusambands ís-
Saga
næsta
bæjar
ANGELINA Pastore, 18
ára gömul ítölsk stúlka,
hugðist hlaupast að heiinan
með elskhuga sínum og ætl-
aði aff stökkva í faðm hans
ofan af svölum hússins,
Eini gallinn var sá aff elslc-
huginn, Tomasso Pappalat-
tera, gat ekki gripið hana.
Hún var flutt á sjúkrahús
með brotinn liandlegg og
skrámur.
MtWMHWHWMWIWMWWtW
Iands kom saman til fundar 20.1
sept. sl. til þess að samþykkja
„stefnuyfirlýsingu”, er kommún-
istar höfffu samið fyrir fundinn. 1
stefnuyfirlýsingunni segir m. a.:
„Nú er enn stefnt aff því með
rangri stjórnarstefnu í efnahags-
málum að skerffa kjör launastétt-
anna. Og í sömu stefnuyfirlýsingu
segir að ríkisvaldiff hafi framfylgt
tvennum gengisfellingum” öllum
launastéttum til stórtjóns”.
Það er greinilegt af stefnuyfir-
lýsingu þessari að kommúnistar
eru ekki í ríkisstjórn. Er það eink
ar fróðlegt að bera þessa stefnu-
yfirlýsingu saman við stefnu Al-
þýðusambandsstjórnar 1956-1958,
er þeir Hannibal og Lúðvík sátu
sem fulltrúar komma í ríkisstjórn.
Þá var tónninn nokkuð annar í
stefnuyfirlýsingum Alþýðusam-
bandsstjórnar.
Vinstri stjómin gerði ráðstaf-
anir í efnahagsmálum í des. 1956,
sem voru í rauninni dulbúin geng-
isfelling, þar eð allt vöruverð stór-
hækkaði af völdum nýrra skatta,
er á voru lagðir og skattar þessir
voru beinlínis á lagðir til þess að
komast hjá beinni gengisfellingu.
Miðstjórn Alþýðusambandsins kom
saman til fundar 6. apríl og var
Hannibal sjálfur í forsæti. Var þar
gerð ályktun og í henni sagði m. a.:
„Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar
í efnahagsmálum í desember sl.
miðuðu einkum að því tvennu að
tryggja varanlegan rekstursgrund-
völl framleiðsluatvinnuveganna
og nauðsynlegar verklegar fram-
kvæmdir. Miðstjórnin og efnahags
málanefnd höfðu aðstöðu til þess ;
að kynna sér og hafa áhrif á þær
leiðir, er farnar voru og sam-
þykktu þá að veita bæri ríkisstjórn
inni starfsfrið þar til séð væri
hvort fyrrgreindum markmiðum
yrði náð”.
j Síðar sagði:
„Af framansögðu er það álitj
miðstjórnar og efnahagsmálarxefnd
ar að ekki sé tímabært að leggjaj
til almennra samningsuppsagna að'
Framh. á 14. síffu 1
BRÆÐURNIR
OG "FRÆNKAN'
leikhúsinu. Stefán fer me'5
stórt hlutverk í Ieiknum og
hefur hlotiff mjög góða dóma
fyrir geðþekkan leik og liefur »
Y’ unnið hug og hjörtu leikhús- j
gesta. Björn fer aftur á móti
með minna hlutverk í leikn-
MYNDIN er af bræðrunum um. „Frænkan” hefur veriff
Stefáni og Bimi Thors, sem sýnd fjórum sinnum viff ágæta
leika í Ieikritinu „Hún frænka aðsókn og verður næsta sýn-
mín” um þessar mundir í Þjóð- ing í kvöld.
iWWWWWWWWWWWWWWWWWttWWWtWWWWWtWWWWW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. sept- 1962 : J