Alþýðublaðið - 14.11.1962, Blaðsíða 2
/Jttstjóran Gísli J. Astþórsson (áb) og Benedlkt Gröndal.—ABstoaarrltst)on
BJörgvln Guörauudsson. — Fréttarttstjórl: Sigvaldl Hjðtmarsson. — Simar:
14 800 — 14 902 — 14 903. P ugiýsingasiml: 14 906 — Aðsetur: AlþýöuhúslO.'
- Prentsmiðja Aiþýöublaðslns, Hverfisgötu 8-10 — ÁskriftargJöM ir. 65.00
6 mánuðí. 1 lausasöiu kr. 4.00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. - Fram-
kvæmdartjóri: Ásgeir Jóhannesson
ÍSLAND OG EBE
I VIÐSKIPTAMÁLARÁÐHERRA hefur nú
ákýrt Alþingi frá afstöðu ríkisstjómarinnar til Efna
bagsbandalags Evrópu eftir að fullrúar ríkisstjóm
arinnar hafa átt ýtarlegar viðræður við ráðamenn
bandalagsms og margvíslegar athuganir hafa far-
ið fram á áhrifum þeim, er bandalagið hefur og mun
bafa á utanríkisviðskipti Íslendinga. Ráðherrann
öagði, að ríkisstjórnin teldi nauðsynlegt fyrir ís-
lendinga, að semja um einhver tengsl við EBE,
bæði til þess að tryggja viðskiptahagsmuni þjóðar-
ínnar, svo og til þess að varðveita tengsl okkar við
Vestur-Evrópu og koma í veg fyrir að þjóðin ein-
angrist frá þeim þ.jóðum, sem henni eru skyldastar
og hún á tvímælalaust samleið með. Ráðherrann
r
sagði ennfremur, að ríkisstjómin teldi fulla aðild
íslands að EBE ekki koma til greina. Efnahags-
bandalagið mundi aldrei fást til þess að veita ís-
lendingum allar þær undanþágur, sem þeim væru
nauðsynlegar til þess að þeir gætu gerzt fullgildir
öðilar að bandalaginu. Spumingin væri því sú,
Mivort íslendingar ættu að saekja um aukaaðild að
EBE eða hvort þeir ættu að láta sér nægja að reyna
að ná viðskiptasamningum við bandalagið, sem fela
ínundu tollalækkanir í sér. Viðskiptamálaráðherra
sagði, að ríkisstjórnin teldi enn ekki tímabært að
Íkveða upp úr um það hvor leiðin yrði heppilegri
: íyrir ísland.
Eysteinn Jónsson formaður Framsóknarflokks
ins skýrði frá afstöðu Framsóknarmanna til Efna-
bagsbandalagsins við umræðurnar um skýrslu við-
i
íikiptamálaráðherra. Mælti hann eindregið með því
oð gerðir yrðu tollasamningar við EBE en hvorki
1 leitað eftir fullri aðild né aukaaðild.
Það er furðulegt, að Framsóknarflokkurinn
skuli telja sig færan um það á þessu stigi málsins að
kveða upp úr um það, að tollasamningar muni henta
íslendingum betur en aukaaðild. EBE hefur aðeins
gert aukaaðildarsamning við eitt ríki, þ. e. Grikk-
land en fulltrúar bandalagsins hafi lýst því yfir að
• ekki beri að líta á þann samning sem fyrirmynd
annarra aukaaðiidarsamninga, þar sem Grikkland
bafi á ýmsan hátt sérstöðu. Enn er því alveg ó-
Ijóst hvað aukaaðild annarra ríkja áð EBE muni
fela í sér. Og meðan það hefur ekki verið kannað
bver kjör íslendingar gætu samið um við EBE í
sambandi við aukaaðild er ekki unnt að útiloka þá
leið. Telja má fullvíst, að Íslendingar muni geta
fengið betri viðskiptakjör við aukaaðild heldur en
fineð því að gera tollasamning við EBE. Hins vegar
yrðu þeir þá einnig að taka á sig meiri kvaðir en
ella. En ef íslendingar geta samið um nægilegar
wndanþágur vegna sérstöðu sinnar við aukaaðild
foer þeim tvímælalaust að fara aukaaðildarleiðina.
En takist þeim ekki að fá nægilega góð kjör við
' aukaaðild er aðeins ein leið eftir, þ. e. tollasamn-
ingaleiðin.
f Miia——■ w—■iiimi hmm
Skipasmíðastöð NjarÖvíkur hf*
Símar (92) 1250 og (92) 1725, Ytri-Njarðvík.
TEL SÖLU
48 rúmlesta vélbátur. frambyggður. í bátnum er 235 hestafla Rolls-
Röyce-vél. Getur verið tilbúin á vetrarvertíð.
Upplýsingar á staðnum.
Dómurinn
erður örlagaríkur
ÚRSKURÐUR Félagsdóms út af
inntöku verzlunarmanna í Alþýðu-
samband íslands markar áreiðan-
lega tímamót í verkalýðsmálum
hér á landi og raunar markar hann
tímamót víðar í þjóðlífi íslendinga
Það er alveg víst, að hvernig sem
þetta mál fer nú í framkvæmd,
þá mun þetta koma í ljós. Dómur-
inn hefur ekki orðið sammála, því
miður, og ekki ætla ég mér þá dul
að dæma á milli, ég hef engin skil-
yrði til þess að kvcða upp ncinn
dóm um lagalcgar flækjur máls-
ins.
þess, þá hefðu verzlunarmenn vcrið
teknir inn með Iófataki — og allir
glaðzt yfir því sem sigri samtak-
anna.
FÉLAGSDÓMUR HEFUR kveö-
ið upp sinn dóm, en mér er sagt
að núverandi stjórn Alþýðusam-
bandsins muni ekki lcggja til að
þeim dómi verði framfylgt á þingi
sem kemur saman innan fárra daga
Þar mun inntökubeiðni verzlunar
manna verða felld, að minnsta
kosti er það fullyrt meðal þeirra,
sem ráða í sambandinu.
ÞAÐ ER ÞESSI ÞRÓUN, sem ég
álít að muni valda þáttaskilum. Ég
óttast klofning sambandkins, en
slíkur klofningur mun þegar árin
líða Ieiða til þcss, að lægst laun-
uðu verkamennirnir verða einir
eftir, en það mun verða örlagaríkt
fyrst og fremst fyrir þá, sem veik
asta hafa aðstöðuna eins og dæmin
sanna svo áþreifanlega frá síðustu
árum. Og það er ekki æskilegt —
og var sannarlega ekki tilgangur
inn uppliaflega, að veikja aðstöðU
þeirra lægst launuðu.
Hannes á horninu
Bátahöfn á ísa
firði stækkuö
EN ÞAÐ VEIT ÉG, að alls stað-
ar i heiminum eru verzlunar- og
skrifstoíufólk sjálfsagt í allsherjar
samtökum laanþeganna, og víða
er það einn meginþáttur þeirra.
Það er engum blöðum um það að
fletta, að frá sjónarmiði verkalýðs-
samtakanna eiga verzlunarmenn að
fylgjast með meginhópnum. Þeir
eiga að vera í Alþýðusambandinu.
HITT ER SVO allt annað mál, að
það getur verið rétt, séð frá laga-
legu sjónarmiði, aö Alþýðusam-
bandið eigi að ráða því sjálft, hvaða
samböndum það veitir viðtöku —
og þá gctur það alveg eins neitað
sjómannafélagi um upptöku eða
verkamannafélagi, enda hefur þgð
rekið verkamannaféiög úr sam-
bandinu — af pólitískum ástæðum.
MÖNNUM ER LJÓST, að stjórn
Alþýðusambandsins vill ekki taka
samtök verzlunarmanna inn vegna
þess, að sagt er að fulltrúar verzl-
unarmanna á þing sambandsins,
munu vera á annarri pólitískri
skoðun, en núverandi stjórn þess.
Hefði vissa verið fyrir því, að þeir
myndu fylgja nuverandi stjórn
ÍSAFIRÐI, 10. nóvember.
FUNDUR var haldinn í Alþýðu-
flokksfélagi ísafjarðar í gærkvöldi.
Form. félagsins, Gunnlaugur Ó.
Guðmundsson setti fundinn og
stjórnaði honum. í fundarbyrjun
bauð hann velkomna til starfa með
limi, sem gengu í félagið á fund-
inum.
Á fundinum fór fram kosning
fulltrúa á flokksþing. Kosnir voru:
Aðalmenn:
Birgir Finnsson.
Jón H. Guðmundsson.
Varamenn:
Pétur Sigurðsson.
Þórður Einarsson.
Þá flutti Guðmundur Guð-
mundsson, yfirhafnsögumaður, yf-
irgripsmikið og fróðlegt framsögu-
erindi um hafnarmál ísafjarðar.
Hann gerði glögga grein fyrir
helztu áföngum í þeim málum allt
frá því, að fyrsta liafnarnefnd
kaupstaðarins tók til starfa, en
fyrsti fundur Hafnarnefndar ísa-
fjarðar var haldinn 1. október ár-
ið 1887.
Sérstaklega ræddi hann um yfir-
standandi hafnarframkvæmdir, en
það er stækkun bátahafnarinnar,
sem byggð var á árunum 1933—
34. Hór er um verulega stækkun
bátahafnarinnar að ræða, m. a-
lengist viðlegukantur hafnarinnar
um 100 metra. Stórvirkur krani,
eign Vitamálastjórnarinnar, hefur
unnið að uppgreftri í sambandl
við framkvæmdina, og var áætlað
að grafa þyrfti burtu a. m. k. 24
Framhald á 14. s£ðu.
2 14- nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ