Alþýðublaðið - 14.11.1962, Síða 3
STRÍÐIÐ HARÐNAR
í INDLANDI
Nýju Delhi, 13. nóv. (NTB —
Reuter).
HARÐIR bardagar geysuðu a
flestum vígstöðvum í gærdag.
Efri deild indverska þingsins
samþykkti í gær samhljóöa stefnu
Nehrus í landamærastyrjöldinni
við Kínverja.
Ríkisstjórn Indlands ákvað í
gær að banna sölu á gulli, til þess
að koma í vcg fyrir óheiðarlegt
brask og óeöliléga hækkun á gull-
verðinu. Einng er talið að með
þessari ráðstöfun hafi stjórnin ver
ið að reyna að tryggja sölu á
skuldabréfum, sem hún hefur gef-.
ið út til næstu fimmtíu ára.
Þingmcnn efri deildarinnar
fögnuðu með Iófataki, þegar bréf ■
frá Ayub Khan, forseta Pakistans !
til Nehrus. var lesið upp. í bréfi
þessu segir Ayub Khan að landa-
mærastríðið sé ógnun við friðinn
og skapi hættulegt óróaástand á
svæði,; sem stjórn Pakistans sé
mjög þýðingarmikið.
Nehru er 73 ára í dag og á
fimmtán ára ferli hans sem for-
sætisráðherra Indlands er landa-
mærastríðið, sem nú geysar alvar-
legasta vandamál, sem hann hefur
liaft við að stríða.
Sjálfur segir Nehru núna, að
hann hafi verð barnslega blindur
gagnvart hættunni af kommún-
ismanum í Kína, en hann hefur
verið gagnrýndur fyrir að her og
herbúnaðnr Indlands var í slíku
eymdarástandi, sem raun bar vitni,
er kommúnistastjórnin í Kína hóf
nnrás sína í haust. Nehru hefur þó
ekki sætt neitt svipað því eins
harðri gagnrýni og fráfarandi
varnarmálaráðherra, Krishna Me-
non, og það er víst mál, að ind-
verska þjóðin lítur á hann sem
bezta foringja sinn í dag í hinni
alvarlegu styrjöld við Kína og sem
nú ógnar sjálfstæði hennar og fram
tíð.
Samkvæmt fréttum kínversku
dagblaðanna, virðast hafa verið
mjög harðir bardagar á landamær
unum í gær. Kínverjar segja að
indverskir ofbeldismenn hafi gert
harða hríð að landamærastöðvum
Kínverja, en þeim árásum hafi ver-
ið hrundið eftir margra stunda
harða bardaga en ekki hafi þó enn
linnt árásum víðast hvar.
Njósnarar
handteknir
á Kúbu
Havana 13. nóv.
(NTB-AFP)
ÖRYGGISLÖGREGLA Kúbu hélt
því fram í gær að hún hefði liand-
tekið foringja leyniþjónustu
Bandaríkjanna á Kúbu og með
honum sex aðra meðlimi leyni-
þjónustunnar 2. nóvcmber sl.
Segir leyniþjónustan að for-
inginn Miguel' Angel Orozco hafi
játað að bandaríska stjórnin hafi
áformað skemmdarverk og ýmis
önnur ráð til að veikja efnahag
Kúbu.
Einnig var sagt að í ráði hefði
verið skyndi-árás í Nicaragua,
sem hefði átt að líta vit eins og
hermdarárás frá Kúbu, einnig var
sagt. að Bandaríkjastjórn liefði á-
formað að hertaka eyjuna Cayo
Romano og mynda þar stjórn sem
óvinveitt væri Kúbu og búa hana
síðan með vopnum.
Castró-stjórnin hélt því fram að
um leið og njósnararnir hefðu ver
ið handteknir hefðu fundizt mikið
af Bandarískum vopnum, sem lög
reglan hefði gert upptæk.
JARNO
AUNIR
London, 13. nóv.
(NTB —Reuter)
MACMILLAN forsætisráðherra
Breta sagði á fundi í Neðri Mál-
stofunni í gær, að Rússar mundu
sennilega halda áfram kjarnorku-
tilraunum sínum, þó að þeir hefðu
að nafninu til ætlað að Ijúka þeim
núna um næstu helgi.
Macmillan sagði þetta í svari
við fyrirspurn um hversvegna
Bretar hefðu nú ákveðið að hefja
aftur tilraunir með kjarnorku-
vopn. Eins og kunnugt er hafa
Bretar samið við Bandaríkjamenn
um að taka þátt i tilraununum í
Nevada-eyðimörkinni.
Þessi ákvörðun stjórnarinnar
hefur sætt mikilli gagnrýni í
brezka þinginu og hafa þingmenn
Verkamannaflokksins bent á að
tilraunir sem þessar séu bæði á-
byrgðarlausar og tíminn sem þær
skulu fara fram illa valinn.
Macmillan sagðist ekki búast
við að þessar tilraunir hefðu nein
áhrif á samningatilraunir um af-
nám kjarnorkutilrauna. Hann
sagði að þessar tilraunir Breta og
Bandaríkjamanna þýddu ekki það
að Bretar væru hættir við að
reyna að koma á samkomulagi um
afnám kjarnorkuvopna. Þvert á
Skriístofa FUJ
■ v ■
NEIIRU — 73 ára gamall í dag.
móti vonaði brezka stjórnin að
slíkt samkomulag yrði sem fyrst
gert meðal kjarnorkuríkjanna.
Skspakom-
ur til ísa-
fjarðar
ísafirði, 10. nóv.
ÞAÐ sem af er þessu ári hafa
530 skip farið um' Isafjarðar-
höfn.
Arið 1961 komu hér 565 skip.
Árið 1960 komu hér 522 skip.
Arið 1959 komu hér 553 skip.
1 þessum tölum eru ekki talin
ísfisk fiskiskip, og ekki heldur
fiskiskip frá verstöðvunum við
Isafjarðardjúp. B.S.
Loftárás á
-Katanga
Leopoldville 13. nóv.
(NTB-AFP)
FORMÆLANDI Kongó-stjórnar í
Leopoldville sagði frá því í gær að
orrustuþotur stjórnarinnar í El-
isabetville hefðu gert loftárásir á
ýmsa staði og þorp í Norður-Kat-
anga.
Umferð til Albertville og fleiri
staða í Norður-Katanga hefur ver-
ið bönnuð af öryggisástæðum.
Þessar loftárásir voru staðfest-
ar seinna í gær í Leopoldville, en
ekki var þó búið að fá nákvæmar
fregnir um skaðann né hve marg-
ir hefðu látið lífið í þessum árás-
um. Sagt var að að minnsta kosti
fimm menn hefðu látið lífið er
loftárás var gerð á þorp eitt sem
er miðja vegu milli Albertville og
Minono.
Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
í Kongó skýrðu frá því að rann-
sókn væri nú hafin í þessu máli
en of snemmt væri þó að segja
neitt frekar um málið að svo
komnu máli.
KARIO: Nokkrir íranskir flug-
menn hafa flúiíí til Egyptalands.
Þeir flúðu þannig að þeir flugu
vélum sínum tl Egyptalands I
stað þess að fljúga til Jemen, sem
þeir sögðust hafa haft fyrirskip-
anir um.
Ágrip af
efnafræBi
ÁGRIP af efnafræði til notk
unar við kennslu í i'ro.rnhalds-
skólum eftir Helga Hermann
Eiriksson, 4. útgáfa er komin úc
hjá ísafoldarprentsmiðju.
STAPAFELL, hið nýja
olíuflutningaskip SÍS og
Olíufélagsins, kom til Kefla-
víkur s. 1. mánudag. Skip
þetta mun leysa úr brýnni
þörf olíuflutninga út á lánd,
og annast þá ásamt Iútlafelli.
Stapafell er 1126 burðarlest-
ir. Á því verður 16 manna
áhöfn, og er skipstjóri þess
Arnór Gíslason, sem áður
var með Jökulfellið (sjá
mynd). Stapafell var smíðað
í skipasmíðastöð D W. Kre-
mer Sohn Shipyard í Elms-
horn í Þýzkalandi. Það lagði
af stað hingað til lands 7. þ.
m. og var nákvæmlega 100
klukkustundir á leiðinni.
Skipastóll SÍS er nú samtals
28.600 tonn, og þar af er
Ilamrafellið 16.730 tonn.
SÍS og Olíufélagið eiga sam-
an til lielminga þrjú olíuskip.
Áætlað var að Stapafell
færi héðan með lýsi einhvern
næstu daga.
FUJ í Hafnarfirði hefur
opna skrifstofu í Alþýðu-
húsinu í kvöld, miðvikudag,
og öll miðvikudagskvöld
klukkan 8 — 10. Félagar eru
livattir til að Iíta inn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. nóv. 1962 3