Alþýðublaðið - 14.11.1962, Side 4

Alþýðublaðið - 14.11.1962, Side 4
ísland gerðist aðili að Efnahags samvinnustofnun Evrópu þegar við stofnun hennar. Sú aðild hefur ver ið okkur mjög mikilvæg og reynzt •okkur gagnleg á margan hátt. Á ár unum 1948-1952 urðu íslendingar aðnjótandi hinnar rausnarlegu efna hagsaðstoðar Bandaríkjanna. íslend ingar liöfðu margvíslegt hagræði af greiðslukerfi því, sem stofnunin kom á fót og leysti af hólmi þá tvíhliða viðfikiptaK og greiðslu- samninga er áður höfðu verið grundvöllur milliríkjaviðskiptanna í>etta kerfi hafði sérstaklega mikla þýðin(gu fyrir íslendinga vegna t>ess, að okkur hentar ekki mikil kaup í ýmsum þeirra landa, þar sem góður markaður er fyrir út- llutningsvörur okkar. Þótt hægt miðaði í fyrstu, er þó nú þannig komið, að svo að segja öll aðildar- ríki Efnahagssamvinnustofnunar- innar hafa afnumið innflutnings- tiöft á sjávarafurðum öðrum en nýj xim fiski. Að tillögu íslendinga hafa verið gerðar ítarlegar athugan ir á sjávarútvegsmálum Vestur- Evrópu, og innan Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, sem nú hefur leyst Efnahagssamvinnu- stofnunina af hólmi, liefur verið komið á fót sérstakri sjávarútvegs- tnálanefnd, sem starfa skal stöðugt að athugunum á sjávarútvegsmál «m aðiidarríkja og stuðla að því, að viðskipti með sjávarafurðir verði sem frjálsust, en nefnd þessari var komið á fót að frumkvæði íslands. Loks er þess að geta, að Evrópu- sjóðurinn, sem er ein af stofnunum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, veitti íslandi mikilvæga íjárhagsaðstoð í sambandi við þá GYLFI Þ. GÍSLÁSON, viðskiptamálaráðherra, flutti ítarlega ræðu um Efna- hagsbandalag Evrópu og afstöðu íslands til þess á Alþingi sl. mánudag. Ræðan var mjög löng og mun Alþýðublaðið því ekki geta birt hana í heild. En meginhluti ræðunnar verður birtur í þrem blöðum. í upphafi ræðu sinnar ræddi viðskipta- málaráðherra efnahagssa(mstarf V-Evrópuþjóða eftir síðari heimsstyrjöld. Síðan ræddi ráðherrann þátttöku íslands í því samstarfi og fórust orð á þessa leið: endurskipulagningu á efnahags- málum þjóðarinnar, sem hafin var 1960, með því að veita íslandi lán gegn lágum vöxtum. ísland liefur og orðið aðnjótandi margvíslegrar tækniaðstoðar frá Efnahags- og framfarastofnunni. Þegar bent er á það liagræði, sem íslendingar hafa haffaf aðild sinni að Efnahags samvinnustofnuninni, verður þó einnig að hafa það í huga, að ís- lendingum var lengi vel erfitt að sækja mál sitt af festu innan stofn u|iarinnar vegna þeff, að þeir sjálfir höfðu litla viðleitni uppi til þess að koma á jafnvægi í efna- hagsmálum og afnema gjaldeyris- og innflutningshöft. Á þessu varð, svo sem kunnugt er, gagnger breyt ing á árinu 1960. Bandaríkin og Kanada eru fuij- gildir aðilar að hinni nýju Efna- hags og framfarastofnun, er leysti Efnahagssamvinnustofnunina af hólmi á síðastliðnu ári. Er stofn- uninni ætlað að vinna að því nýja verkefni, að samræma aðstoð aðild- arríkjanna við lönd, sem skammt eru á veg komin í iðnþróun. Þess er rétt að geta, að hin nýja stofnun mun ekki liafa sömu þýðingu íyrir viðskiptasamvinnu Evrópuríkjanna og fyrirrennari hennar', Efnahags- samvinnustofnunin, hafði. Ástæð- an er sú, að helzta vandamálið, sem nú er við að etja á sviði viðskipta- mála, lýtur að tollamálum. En hin nýja stofnun mun ekki, fremur en fyrirrennari hennar, fjalla um tollamál. Það viðfangsefni er á sviði viðskiptabandalaganna tveggja í Evrópu eða arftaka þeirra auk Albióðatollmálastofnunarinn- ar (GATT) ísland hefur ekki gerzt aðili að Alþjóðatollamálastofnuninni og hefur því að sjálfsögðu engin áhrif getað haft á þær umræður, sem þar hafa farið fram um lækkun tolla. Segja má, að á undanförnum ár- um hafi ísland lítið erindi átt í alþjóðasamtök, sem hafa það að höf uðmarkaði að vinna að lækkun tolla og innflutningsgjalda, þar sem íslendingar hafa hvað eftir annað á árunum eftir síðari heims- styrjöldina þurft að hækka slík gjöld vegna óraunhæfs gengis. Á hinn bóginn hefur ísland notið þeirra tollalækkana á útfiutnings-' vörum sínum, sem orðið hafa í markaðslöndunum, vegna þess, að í viðskiptasamningum okkar við þau hafa verið ákvæði um svo nefnd „beztu-kjör“ báðum aðilum til handa. Vegna þeirra breytinga á efnahagsmálum þjóðarinnar sem orðið hafa á síðustu árum, hefur nú skapazt grundvöllur fyrir aðild að Alþjóðatollmálastofnuninni, og tel ég að taka ætti hana til athugunar, þegar þeirri endurskoðun á ís- lenzkri tollalöggjöf, sem unnið hef ur verið að undanfarið, er að fullu lokið, en vonir hafa staðið til þess, að Alþingi það, er nú situr, geti fengið frumvarp til nýrrar toll- skrár til meðferðar. íslenzk stjórnarvöld tóku þátt í þeim viðræðum, sem fram fóru inn an Efnahagssamvinnustofnunarinn ar árið 1957 og 1958 um stofnun frí verzlunarsvæðis allra aðildarríkja stofnunarinnar. Augljóst var, að þar var um að ræða mál, sem mjög snerti viðskiptahagsmuni íslend- inga. Ef keppinautar okkar í fisk- útflutningi og markaðslönd okkar yrðu ein viðskiptaheild, en við stæðum utan hennar, hlaut aðstaða okkar í samanburði við keppinaut- ana mjög að versna. Værum við hluti af slíku fríverzlunarsvæði, mundum við annars vegar öðlast frjálsan aðgang að mörkuðum þess en liins vegar verða að fá viður- kenningu á sérstöðu okkar að ýmsu leyti. Átti þaö raunar ekki við um ísland eitt, að sérstaða var talin nauðsynleg. Grikkir, írar Portúgalsmenn og Tyrkir töldu sig einnig þurfa á ýmis konar sér- stöðu að halda, ef af stofnun frí- verzlunarsvæðis yrði. Árið 1958 flutti ég hinu háa Alþingi tvær skýrslur um þetta mál og rek því ekki einstök atriði þess nánar hér. Eriverzlunarumræðurnar fóru út um þúfur í árslok 1958, svo sem ég hef þegar getið. Á það reyndi aldrei, hvort við hefðum getað fengið viðurkenningu á þeirri sér- stöðu okkar, sem lögð hafði verið áherzia á. Mér er þó óhætt að segja, að í undirbúningsviðræðunum virt- ist ríkja skilningur á sérstöðu okk ;ar, sem og þeirra landa annarra, sem ég nefndi. Þegar hafinn var undirbúningur að stofnun Fríverzlunarbandalags sjö-veldanna, var íslendingum ekki boðið að taka þátt i þeim undirbún ingí og ekki heldur Grikkjum, ír- um eða Tyrkjum. Var sú afstaða sjö veldanna eðlileg með tilliti til þeirrar sérstöðu, sem við höfðum haft, og eins með tilliti til þess, að Fríverzlunarbandalaginu var fyrst og fremst ætlað að vera fríverzlun- arsvæði fyrir viðskipti með iðnaðar vörur og ekki ætlað að taka nerna að takmörkuðu leyti til landbúnað- ar- og sjávarafurða. Stofnun viðskiptabandalaganna tveggja gat í fyrstu ekki haft mikil áhrif á utanríkisviðskipti íslend- inga. Stafaði þetta af því, að tolla- lækkanir innan bandalaganna áttu sér stað smám saman, og hins veg ar skyldi sameiginlegur tollur Efnahagsbandalagsins á sjávaraf urðir ekki byrja að koma til fram- kvæmda fyrr en í ársbyrjun 1962 Þar að auki mátti búast við, að nokkur dráttur yrði á því, að bandalögin mötkuðu stefnu sína í sjávarútvegsmálum. Ríkisstjómin taldi því rétt að bíða átekta um skeið, en að láta vinna hér innan- lands að athugunum á áhrifum á hinna nýju viðhorfa á islenzka ut- anríkisverzlun og íslenzkan þjóðar- búskap yfirleitt. Komst skriður á þetta starf síðari hluta árs 1960, og var það unnið á vegum þeirrar embættisnefndar, sem komið hafði verið á fót í sambandi við fríverzl- unarumræðurnar árið 1957. Eins og ég minnist á hér að framan, fóru áhyggjur manna 1 Vestur-Evrópu vegna viðskipta- klofningsins vaxandi, eftir því sem tollalækkunum innan bandalag- anna miðaði áfram. í ársbyrjun 1961 var talið, að í undirbúningi væru viðræður um einhvers konar sameiningu bandalaganna. Ríkis- stjórnin tók þá til athugunar, hvort ráðlegt væri að leita aðildar að Fríverzlunarbandalaginu. Tilgang- urinn hefði fyrst og fremst verið sá, að öðlast samstöðu með Frí- verzlunarbandalagslöndunum í samningum við Efnahagsbandalag- ið, svo og að leita innan Fríverzlun arbandalagsins hagkvæmrar lausn- ar á sérstökum vandamálum okkar í því skyni, að sú lausn yrði for- dæmi, er lagt yrði til grundvallar í samningum við Efnaiiagsbanda- lagið. Það mælti einnig með því, að þessi möguleiki væri athugaður, að Fríverzlunarbandalagið hafði a£ ráðið að hefja umræður um stefnu sína í sjávarútvegsmálum á árinu 1961, og að í samningum Finna við Fríverzlunarbandalagið hafði tekizt að finna lausn á vandamál um þeirra, að því er snerti viðskipti við Austur-Evrópu, er liugsanlega gæti orðið okkur fordæmi. í sam- bandi við þessar athuganir áttu ís- lenzkir embættismenn óformlegar könnunarviðræður við embættis- menn nokkurra aðildarríkja Frí- verzlunarbandalagsins og fram- kvæmdastjórn þess. Þegar komið var fram í maí, var hins vegar orð- ið ijóst, að Fríverzlunarbandalagið mundi ekki semja sem heild við Efnahagsbandalagið, heldur mundu einstök lönd þess livert um sig leita aðildar að Efnahagsbandalag- inu og freista þess að fá hvert í sínu lagi lausn á sérvandamálum sínum, þótt gert væri að vísu ráð fyrir, að þau hefðu samráð sín í milli. Þegar svo var komið, taldi ríkisstjórnin það ekki geta verið til gagns, að ísland leitaði aðildar að Fríverzlunarbandalaginu, og var athugun málsins því hætt. Þess má geta, að umræðum um sjávarút- vegsmál innan Fríverzlunarbanda- agsins var frestað, þegar ljóst varð, hvert stefndi. Með tilliti til þeirra nýju við- horfa, sem voru að skapast í þess- um málum, ákvað ríkisstjórnin í maí 1961 að leita um þau samráðs við helztu hagsmunasamtök í land- inu. Hafa síðan verið haldnir fund- ir með fulltrúum þessara samtaka, þar sem þeim hafa verið kynnt við- horf málanna og þeir hafa gert grein fyrir sjónarmiðum sínum. Um mitt síðastliðið ár, þegar vitað var, að Bretar og Danir hefðu af- ráðið að sækja um aðild að Efha- hagsbandalaginu, var ekki álitið ó- sennilegt að hinar ýmsu þjóðir Vestur-Evrópu mundu eiga sam- leið í viðræðum sínum við Efna- hagsbandalagið, og þær færu fram samtímis. Ríkisstjórin taldi rétt, að íslendingar byggju sig undir að geta tekið þátt í slíkum viðræðurn, ef til kæmi. Þess vegna var leitað álits liagsmunasamtakanna á því, hvort ísland ætti að leita viðræðna um tengsl við bandalagið, að sjálf- sögðu þó án allra skuldbindinga. Voru fulltrúar hagsmunasamtak- anna að undanskildum fulltrúa Al- þýðusambands íslands, hlynntir því, að svo yrði gert. Reyndin varð 13. SfÐA Ræða Gylfa Þ. Gíslasonar um Efnahagshndalagið, fyrri hluti 4 14. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.