Alþýðublaðið - 14.11.1962, Qupperneq 5
ta sjálfsagðri
Grunnavík-
urfé vænst
ÚRSKURÐUR Félagrsdóms í
málinu LÍV gegn ASÍ hefur vakið
mikla athygrli, og bíða - menn
spenntir eftir viðbrögðum komm
únista innan ASÍ og hvaða ráðstaf
•anir þeir gera gegn þessari „árás
á félagafrelsið og broti á stjórn-
arskránni” eins og Þjóðviljinn
nefndi það í gær.
Alþýðublaðið ákvað í gær að
ræða við þrjá menn, og fá fram
álit þeirra á niðurstöðu Félags-
dóms. Mennirnir voru Sigurður
Guðmundsson, meðlimur í vara-
Stjórn LIV, Guðmundur H. Garð-
arsson, form Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur og Hannibal
Valdimarsson, forseti ASÍ.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunír
frá því á hádegi í gær og langt
fram á kvöld, tókst blaðinu ekki
að ná í Hannibal, hvorki á skrif-
stofu hans né heimili, og verður
því að láta nægja fréttatilkynn-
ingu, sem blaðinu barst í gær frá
ASI, — og mætti ætla að væri
samhljóða áliti Hannibals á mál-
inu.
Sigurður Guðmundsson sagði:
„Um þá niðurstöðu Félagsdóms,
að Alþýðusambandinu sé skylt að
veita Landssambandi íslenzkra
verzlunarmanna aðild, er auðvit-
að elckert nema gott eitt að segja.
Alþýðusambandið var upphaf-
lega stofnað sem samtök launþega,
og það vill vonandi vera það enn
þann dag í dag. Af þeirri ástæðu
áttu samtök verzlunar- og skrif-
stofufólks að vera orðin aðili fyrir
löngu síðan. Ástæðan fyrir því,
að svo hefur orðið fyrst nú, er af
pólitískum toga spunnin. Komm-
únistum í stjórn ASÍ hefur verið
meira í mun að reyna að lialda í
.völd sín og óhrif innan ASÍ, með
,því að halda hinum fjölmennu
launþegasamböndum verzlunar-
og skrifstoíufólks utan Alþýðu-
sambandsins, heldur en að reyn-
ast trúir hinu upphaflega mark-
miði og tilgangi ASÍ.
En það hefur auðvitað ekki kom-
ið okkur Alþýðuflokksmönnum á
óvart. Til þess eru brottrekstrar-
tilraunir kommiínista og brott-
rekstur Verkakvennafélagsins
Framsóknar og Alþýðusambands-
Vestfjarða forðum daga, of glöggt
í minni.
■ Landssamband íslenzkra verzl-
unarmanna vildi gerast aðili að
ASI af stéttarlegum ástæðum.
Kommúnitar streitast á móti af
pólitískum ástæðum. Þeir urðu
undir, því réttur málstaður sigrar
jafnan rangan, þegar allt kemur
til alls. Aðild LIV að ASÍ styrkir
Og eflir bæði samtökin, og því ber
sannarlega að fagna niðurstöðu
Félagsdóms”.
Guðmundur H. Garðarsson, for-
maður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur sagði: „Verzlunarfólk
fagnar niðurstöðu meirihluta Fé-
lagsdóms um að ASÍ sé skylt að
veita LÍV inngöngu í sambandið
með fullum og óskertum réttind-
um, sem stéttarfélagasambandi, og
telur það, að með þeirri niðurstöðu,
sé verið að framfylgja og tryggja
lýðræðisleg réttindi í anda ís-
lenzku stjórnarskrárinnar".
„ASÍ var upphaflega stofnað
sem heildarsamtök alþýðunnar, og
sem slíkt hefur það notið styrks
og stuðnings íslenzku þjóðarinnar.
Sumir uppbyggjendur verkalýðs-
hreyfingarinnar hafa ætíð lagt allt
kapp á, að fá sem flest félög og
launþega til þátttöku í ASÍ og með
því eflt samtökin.' Nú bregður svo
við, að þeir sem sízt skyldu, nú-
verandi forystumenn ASÍ, heyja
miskunnarlausa baráttu gegn því,
að stór hópur launþega, verzlunar-
fólk fái -aðild að samtökum alþýð-
unnar á íslandi, á svipaðan hátt
og starfsfélagar þeirra á Norður-
löndum eru í alþýðusamtökum við
komandi Ianda“.
„Hverjir eru að misnota félags-
frelsið á íslandi og níða niður Al-
þýðusambandið? Það eru áhrifa-
miklir kommúnistar innan ASÍ,
sem vilja ekki lýðræðislega þróun
í íslenzkum alþýðusamtökum og
inntöku launþegafélaga, sem hafa
orðið til í samræmi við breytta
þjóðfélagshætti. Stéttarfélög, sem
styrkja heildarsamtökin og jafn-
framt sína eigin baráttu með þátt-
töku sinni í ASÍ.“
„Þetta er kjarni baráttu verzl-
unarfólks fyrir aðild sinni að ASÍ.
Stór hluti verzlunar- og skrifstofu-
fólks, eru afkomendur sjómanna,
verkamanna og annars launafólks,
sem upphaflega stofnaði ASÍ ár-
ið 1916“.
„Þessir afkomendur brautryðj-
roun
endanna, vilja njóta þeirra rétt-
inda, sem forfeður þeirra skópu
og þjóðfélagið hefur hlúð að, en
ekki láta nota þennan rétt gegn
launastéttum í pólitískum til-
gangi“.
„Afurhaldsmenn í verkalýðsmál-
um eru þeir menn innan ASÍ, sem
vilja engar breytingar og þola
ekkert nýtt, hvorki menn né mál-
efni. Eru það vissulega hnignunar
merki á ASÍ, að þeir aðilar skuli
ráða þar ríkjum, sem neita sjálf-
sagðri og. eðlilegri þróun, sem
myndi stórauka áhrifamátt alþýðu-
samtakanna fyrir tilstyrk einnar
fjölmennustu launastéttar lands-
ins“.
„í stuttu viðtali er eigi hægt að !
gera fleiri atriðum skil, sem vert
væri að minnast á, en ég vildi
hvetja alla góða íslendinga til að
fylgjast vel með viðbrögðum
kommúnista í máli verzlunarfólks,
því þar kemur glögglega fram lýð
ræðisást þeirra og hvers væri að
vænta fyrir óbreytta þjóðfélags-
þorgara, ef kommúnistar næðu
völdum á íslandi.
Fréttatilkynningin frá A.S.Í.:
Vegna dóms þess, sem kveðinn
hefur verið upp í dag í Félags-
dómi með eins atkvæðis meirihluta
j í máli Landssambands ísienzkra
| verzlunarmanna gegn Alþýðusam-
bandi ísiands, gerir miðstjórn AI-
| þýðusambands íslands eftirfarandi
ályktun:
Miðstjórnin lýsir undrun sinni
yfir þeirri niðurstöðu meirihluta
Félagsdóms að hægt sé að dæma
Framhald á 14. síðu,
Isafirði, 11. nóv.
ALLS var slátrað hjá Kaupfélagi
ísfirðinga 8659 fjár, þar af voru
7832 dilkar. Hæsta meðalvikt hjá
Kaupfélagi ísfirðinga höfðu dilk-
ar, sem Hallgrímur Jónsson,
hreppstjóri frá Grunnavík, lagði
inn, eða 19,77 kíló. Hann lagði
inn 130-140 dilka.
Eins og Alþýðublaðið hefur áð-
ur sagt frá fluttist allt fólk frá
Grunnavík í haust, og er nú
sveitin í eyði. Grunnavíkurféð hef
ur jafnan verið mjög vænt eins
og hér sést. Alls mun Grunnavík-
urféð, sem slátrað var, hafa verið
um 1000 að tölu.
Meðalþungi allra þeirra dilka,
sem slátrað var hjá Kaupfélagi Is-
firðing var hcldur meiri en sl.
haust eða pú 15,37 kg. á móti 15,18
kíló haustið 1961.
Kaupfélag Isfirðinga tók á móti
nú í haust 139 tonnum af dilka-
kjöti. Kaupfélagið starfrækir eig-
in kjötfrystingu í Edinborgarhús-
inu á Isafirði. Allt þetta kjötmagn,
auk kjöts af fullorðnu fé og stór-
gripum, sem Kaupfélag Isfirðinga
tekur á móti, er selt á heimamark-
aði. B. S.
Fræðsla
um gólf
Kirkjuritið
er komið út
KIRKJURITIÐ, 9. hefti, 28. ár-
gangs, er nýkomið út. Ritið flyt-
ur m. a. Hugleiðingu eftir sr. Þor-
grím Sigurðsson, sem flutt var
við setningu kirkjuþings í Reykja-
vík í haust, greinin Gildi kirkj-
unnar eftir Ilalldór Kristjánsson
frá Kirkjubóli, Trúleysinginn og
hinir kristnu, þýdd grein eftir Al-
bert Camus, Heimilið, kirkjan og
sakramentið eftir sr. Magnús Guð-
mundsson á Setbergi, Norrænn
prestafundur eftir sr. Jakob Jóns-
son, Vísindin um vegin eftir Úlf
Ragnarsson, Húsmæðraskólinn á
Löngumýri eftir sr. Ingólf .Ást-
marsson, Pistlar eftir ritstjórann,
sr. Gunnar Árnason og fleira efni
er í ritinu.
teppi
kk fram af bryggj-
unni, en var bjargað
ísafirði, 8. nóvember
SL. MIÐVIKUDAGSKVÖLD féll
eldri maður fram af bæjarbryggj
unni og í sjóinn og var það
mesta mildi, að honum var bjarg-
að, en þá var hann búinn að velkj
ast í sjónum a. m. k. 15—20
mín og orðinn töluvert þrekað-
ur.
Þetta atvikaðist þannig, að
maðurinn, Sigmundur Guðnason
frá Hælavík, en hann er þekkt-
ur hagyrðingur, til heimilis á
ísafirði, var meðal farþega á
Fagranesinu, sem var að koma
úr Djúpferð þetta kvöld. Sig-
mundur verður 69 ára gamall í
næsta mánuði og er orðinn mjög
sjóndapur. Fagranesið lagðist,
við bæjarbryggjuna á venjulegi
um stað.
Sigmundur fór upp á bryggj-
una og hugðist halda heim, en í
stað þess að ganga upp bryggj-
uua gekk hann fram eftir henni,
og steyptist fram af bryggjunni
í sjóinn. Enginn veitti þessu at-
hygli, enda komið myrkur.
Sigmundur fór á bólakaf, en
skaut fljótt upp aftur og náði þá
handfestu á bryfegjus.faur, og
skömmu síðar öruggu taki á
járnbolta, sem stóð út úr staum-
um.
Hann kallaði strax á hjálp, en
menn, sem voru á bryggjunni,
m. a. þeir, sem voru að vinna
við Fagranesið, lieyrðu ekki
hróp hans lengi vel og virðist
sem köll hans hafi illa borizt upp
á bryggjuna. Þó heyrði skjp-
verji á Fagranesinu einhver
hljóð nokkru eftir að Sigmund-
ur féll í sjóinn, en gat ekki
greint hvaðan þau bárust, og
spurði hann mann, sem á bryggj-
unni var, hvort liann heyrði ekk-
ert óvenjulegt.
Ekki gátu þeir þó greint hvað-
an köllin bárust og mun þó ann-
ar þeirra þó hafa gengið fram
eftir bryggjunni; töldu þeir
helzt, að þetta væru drykkjulæti
manna, sem staddir væru á hafn
arbakkanum í Neðstakaupstað.
Maður, sem var á gangi ofar-
lega í Hafnarstræti, heyrði neyð-
arköll Sigmundar, og áttaði sig
strax á, að einhver væri í nauð-
um staddur við bæjarbryggjuna.
Hann hraðaði því ferð sinni
þangað, en er hann kom á vett-
vang, voru menn, sem þar voru
staddir, búnir að átta sig á því
hvað um var að vera, og búnir
að finna hinn nauðstadda mann
og byrjaðir björgunina. Strax
var farið með Sigmund í hus f ná
grcnninu og læknir sóttur. Sig-
mundur var býsna hress eftir
volkið. Hann fór heim til sín um
kvöldið og náði sér fljótlega og
virðist ekkert hafa orðið meint
af þessari þolraun.
B. S.
ÚTGÁFU- og fræðslustarfseml
Neytendasamtakanna hefur nxí
tekið á sig svip með útkomu nýrr
ar gerðar af Neytendablaðinu. Er
það í stærra broti en verið hefur,
og eru leiðbeiningar Neytendasam-
takanna, sem hingað til hafa ver-
ið gefnar út í bæklingaformi, fellcl
inn í blaðið. Að þessu sinni fjalla
þær um gólfteppi, en ætla má,
eins og í ritinu segir, að leiðbein-
ingar um val og meðferð á þeim
séu nauðsynlegar og tímabærar.
Fyrir sögn þess kafla blaðsins vek-
ur strax forvitni: „Teppaheiti, sem
segja ekkert um gæðin“.
Neytendablaðið er hvergi til
sölu, heldur sent meðlimum sam-
takanna, og muiiu 3 tölublöð koma
út fyrir áramót, send skilvísum
meðlimum fyrir 45 króna ársgjald.
Spjaldskrá yfr hina 5500 meðlimi
samtakanna hefur verið endurskoiS
uð undanfarið mjög ítarlega, óg
eru menn sérstaklega áminntir um,
að láta skrifstofuna vita, ef þeir
fá ekki blaðið næstu daga, en
breytt lieimilisfang verður að til-
kynna til öryggis. Þó hefur veriS
reynt eftir föngum að tryggja það,
að blaðið komist rétta leið til me<S
lima. Samtökin eru öllum opin,
hvar sem þeir búa á landinu.
Neytendablaðið kemur út síðar
í þessum mánuði, en bæði eru þau
prýdd skemmtilegum íorsíðumynd-
um eftir Halldór Pétursson, list-
málara. Meginefni næsta blaðs er
fróðleikur um kartöflumál og ma4
og flokkun garðávaxta.
Ekkert ákveðib
um Færeyjaflug
EITT dagblaðanna. í Reykjnvíís
skýrði frá því í gær, að FJugfélagt
Islands myndi hefja reglubundn-
ar áætlunarferðir til Færeyja íí
apríl n. k. Vegna þessarar fréttar
ræddi blaðið í gær við blaðafull-
trúa F. í. Sagði hann þessa fréíá
ranga, þar eð ekkert hefði veriO
ákveðið um reglubundið flug titt
Færeyja, en eins og allir vissrf
hefðu þessi mál verið lengi í aís»
hugun án þess að nokkrar
kvarðanir hefðu verið teknar.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. nów. 1962 §>