Alþýðublaðið - 11.12.1962, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 11.12.1962, Qupperneq 1
43. árg. — ÞriSjudagur tt. desember 1962 — 174. tbl. Aðalveiðin í Skeriadýpi GÓÐ síldveiði var í lyrrinótt í Skerjadýpinn, en lítið aflaðist hins vegar í Jöknldjúpi og KoIIuál. Síld in, sem veiddist í Skerjadýpi var yfirleitt millisíld. STUTTU MÁtl ★ Fulltrúi Bandaríkjanna á af— vopnunarráðstefnunni í Genf hélt ræðu í dag og hvatti Rússa til að koma enn meir til móts við tillög- ur Vesturveldanna nm eftirlit með kjarnorkusprengingum. Rétt áður hafði Tsarapin fulltrúi Rússa flutt raeðu og lýst yfir, að sovézk yfir- völd gætu hugsað sér að setja upp þrjá „svarta kassa” til eftir- lits með kjarnorkusprengingum neðanjarðar í Sovétríkjunum. — Fulltrúi Breta kvaddi sér síðar hijóðs og kvað að visu mikils virði hvað Rússar hefðu komið til móts við tillögur Vesturveld- anna en þó væri sannast sagna að þörf væri á 300 „svörtum köss- um” í Sovétríkjunum en ekki þrem. Fréttaritarar líta svo á, að tilslakanir Rússa sýni, að af séu allar grunsemdir þeirra um njósn ir vegna eftirlitsins með tilraun- tmum. ★ Baden-Powell lávarður, sonur Baden-Powel lávarðar, stofnanda .skátahreyfingarinnar, lézt í Lund- únum í dag. Hann var aðeins 49 ára gamall er hann lézt. HLERAD Blaðið hefur hlerað — í fyrrinótt og í gærkveldi munu samtals 49 skip hafa fengið um það bil 42 þúsund tunnur. Nokkur skip sprengdu nætur í Skerjadýp inu. í gærdag var bræla á miðun- um og. veðurspá óhagstæð fyrir kvöldið. Allmörg skip, einkum þau sem snemma voru búin að landa héldu þó aftur á miðin í gær. Margir bátar lágu í vari á Sand- víkinni í gær. Sæmilegur afli var hjá mörg- um þeirra báta, sem leggja upp í Reykjavik. Eftirtalin skip komu hingað í gær með síld: Ófeigur II. 1100, Reynir VE 700, Þorlákur 1000 Sólrún 2100, Akraborg 900, Guð- rún Þorkelsdóttir 1600, Sigurður Bjarnason 200, Halldór Jónsson 500,.Helgi Flóventsson 1700, Helga 1900, Sæþór 150, Ásgeir 600, Víðir SÚ 450, Seley 1100, Björn Jónsson 350, Sæúlfur 200 og Erlingur IV. 150. Sæúlfur og Sigurður Bjarna son fengu afla sinn í Jökuldjúpinu Aflinn hjá Keflavíkurbátum var yfirleitt góður. Sigurfari SF fékk í gærmorgun 900 tunnur í Jökul- djúpinu og Ólafur Magnússon fékk 800 tunnur í Kolluál. Þessir bátar komu til Keflavíkur í gær með afla úr Skerjadýpi: Jón Finnsson 1800. Jónas Jónasson 500, Vonin 1800, Árni Geir 1350, Ingiber Ólafsson 1300, Gunnólfur 1000, Guðfinnur 900, Jón Guðmundsson 600. Manni 300, Heimir SU 700, Guðbjörg 700. Til Grindavíkur: Sigfús Berg- mann 1500, Hrafn Sveinbjarnarson 900, Hrafn tvíhlóð og kom til Keflavíkur í gærdag með 700 tunn ur. Þórkatla fékk 1000 tunnur á sunnudagskvöld og 900 tunnur i gærmorgun. Þorbjörn 1200 tunnur. Til Vestmannaeyja komu fjórir bátar í gær: Marz 450, Gjafar, Halk ion og Media með 350 tunnur hver. Til Sandgerðis bárust í gær 3750 mál úr þessum bátum: Víðir II. 1400, Mummi 920, Freyja 620, Jón Gunnlaugsson 100, Jón Oddsson 400, Muninn 285, Hrönn 25. Sæ- unn og Hrönn sprengdu nætur sín ar. AÐ Tcresía Guðmundsson veð- urstofustjóri hafi mætt á fundi fjárveitinganefndar Alþingis nýlega. Þá hafi for- maður nefndarinnar sag.t að nefndarmenn vildu fá að vita eittlivað um veðrið. Þá svar- aði Teresía um hæl: —Það er mesta furða hvað veðrið er gott, eins lágar fjárveitingar og við fáum! AÐ Jón Sigurðsson, bassaleik- ari, sé byrjaður að semja 100 þúsundasti farþegi F.í kom frá Eyjum í gær 100 ÞUSUNDASTI farþegi Flugfélags íslands á þessu ári kom frá Vestmannaeyj- um i gær. Var það sjö ára gömul falleg og brosmild stúlka, Guðrún Amardóttlr. Hún kom til Reykjavíkur á- samt móður sinni, Elínu Að- alsteinsdóttur og tveim systr- um. Þegar Guðrún steig út Úr flugvélinni á Reykjavíkur- flugvelli í gær, færði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi F. í. henni blómvönd og minjagrip. Þá gaf hann henni ferðirnar fram og til baka. Guðrún sést hér á myndinni ásamt móður sinni og systr- um, og eins og eðlilegt er, þá Ljómar hún af ánægju. Þetta er ekki ómerkur á- fangi hjá Flugfélagi íslands, þar eð aldrei fyrr hefur far- þegatalan orðið eins há. Hæst var hún 1960, þá 81.500 óg í fyrra 77.894. Má því búast við því, að áður en þetta ár er liðið, verði farþegaaukn- ingin meiri en 20 þúsund frá þvi sem hún hefur verlð mest. Það sem veldur þessu, mun aðallega verið aukið . milli- landaflug og aukið innan- landsflug með bættum flug- vélakosti. Siglufirði í gær: Það kom upp mikil óánægja hér í bænum, þegar það fréttist, að Ileklan hefði brcytt áætlun og mundi ekki koma liingað aorður fyrir jólin, en ekki var viteð um aðra ferð fyrir hátíðina suðuV nteð skipi. Ei' rætzt hefur úr, því að vitaskipið ÁrvaUur mun koina hér við um næstu helgi, — og GuII- foss verður hér 17. dcsembcr. ★ 15 lík hafa þegar fundizt í námunni í Pennsylvaníu, þar sem Aframhaldandi róstur i kommaflokkum: STALÍNI GAGNS tónlistina við ballet Guð- /sprengingin Varð fyrir helgina. laugs Rósinkrans En 22 námumenn eru enn ófundn- ir. STALINISTAR hafa enn meirililuta í Sósíalistafélagi Reykjavíkur, enda þótt þeir hafi látiö í minni pokann fyrir liði SÍA-manna og Lúðvík Jósefssyni á flokksþinginu á dögunum. Kom þetta fram á fundi hér í Reykjavík síðastliðið föstudagskvöld, þar sem gerð var samþykkt gegn „klíkustarfsemi”. í gærkvöldi voru svo haldnir mikilvægir fund- ir í öllum sellum félagsins. Það kom greinilega í ljós á föstu dagsfundinum, að Brynjólfur Bjamason og hans menn hafa tögl in og hagldirnar í Sósíalistafélag- inu í höfuðstaðnum. Enda þótt Bryn,jólfur væri sjálfur farinn austur fyrir tjald, þar sem hann hefur sýnilega átt brýn erindi eft- ir flokksþingið, héldu menn hans algenun yfirburðum á fundinum. Gerð var allítarleg samþykkt, þar sem fordæmd var klíkustarf- semi innan flokksins, og leynist ekki, að þar er átt við Lúðvík Jós- efsson og samsæri hans til að ná völdum í flokknum. Aðeins einn maður hélt uppi veikum vörnum og spurði, hvort enginn mætti gera neitt, nema stjómendur flokksins á hverjum tíma, en í at- kvæðagreiðslu voru aðeins 3 á móti fordæmingu klíkustarfsins. Einar Olgeirsson flutti ræðu á fundinum og réðist hann meðal annars harðlega á Finnboga Rút Valdimarsson. Taldi hann, að Finn bogi mundi vera potturinn og pannan á bak við allt klíkustarfið. Þá réðist Einar harðlega á Karl Framh. á 3. sí'íiu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.