Alþýðublaðið - 12.12.1962, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 12.12.1962, Blaðsíða 5
KIRKJUAFMÆLI, - EN ENGINN VEIT, HVAÐ KIRKJAN ER GÖMUL Seyðisfirði í gær. Haldið var upp á 40 ára af- mæli kirkjunnar hér í gær. Það er þó ekki eiginlegur aldur henti- ar, því að þessi sama kirkja hef- ur verið endurbyggð á ýmsum stöðxun allt frá tímum kaþólsku á landi hér, að því að álitið er. Ekki hefur verið unnt að grafast fyrir um það, hvað kirkjan er gömul í raun og veru, en 40 ár eru liðin síðan hún var síðast endurbyggð hér í Seyðisfjarðar- kaupstað. Fyrst var kirkjan í Dverga- steini, en var síðan endurbyggð á LEIÐRETTING í GREIN, sem birtist í laugar- dagsblaðinu um blökkumenn ) Bandaríkjunum, varð meinleg prentvilla. Yillan er í öðrum dálki, annarri málsgrein. Síðasta setn- ing málsgreinarinnar. Er rétt svona: Hefur það jafnan sýnt sig, þar sem blökkumenn gegna opin- berum stöðum, að samkomulag hinna hvítu og blökkumanna hefur bátnað, ékki sízt í skólunum. svonefndum Hjalla á Vestdals- eyri. Þaðan fauk hún í fárviðri og var þá endurbyggð niðri á eyr unum undir hjöllunum, en árið 1922 var hún svo endurbyggð hér á Seyðisfirði. Haldin var guðsþjónusta í kirkjunni í gær, en um kvöldið var haldið samsæti, þar sem rak in var saga kirkjunnar svo langt aftur, sem unnt var, þar voru haldnar aðrar ræður sýndar kvik myndir og fleira var til fróðleiks og skemmtunar. Alsírsöfnunin AFLIÍSA- FJARÐAR- BÁTANNA I NÓVEMBERMÁNUÐI var afli ísfirzku línubátanna sem hér seg- ir: lestir sjóf. Guðbjartur 150 22 Guðbjörg 139 22 Víkingur II. 124 21 Straumnes 112 20 Ásúlfur 111 20 Gunnhildur 109 18 Guðný 107 20 Gunnvör 107 19 Hrönn 106 20 Lúcíu- hátíð ÍSLENZK-SÆNSKA félagið heldur hinn árlega luciufagnað sinn í Leikhúskjallaranum, fimmtu daginn 13. desember kl. 8:30. Drukkið verður luciukaffi að vanda og mun lucian og þernur hennar sjá um það. Ambassador Svía, von Hartsmansdorff mun halda ræðu og sýnd verður litkvikmynd frá Svíþjóð. Að lokum verður stiginn ðans. Þetta ár mun lusian koma beint frá Gautaborg, sem fulltrúi syst- urfélagsins þar í borg. Var stúlka þar valin sérstaklega til fararinn- ar og mun hún koma með flugvél Loftleiða á mánudagskvöld. Anna Þóra og Einar Ingi 100,oo Safnað af 94 ára konu 2.500,oo Gamalmenni 200,oo N. N. 500,oo P. G. 100,oo Kristján Sveinsson 100,oo H. G. 200,oo N. N. 1.000,oo B. E. 200,oo J. G. 200,oo Þrír bræður 100,oo Denni 205.oo Halldór 100,oo N. N. 200,oo Kamilla 100,oo' Stefanía Björnsdóttir 50,oo Þórunn Gísladóttir 100,oo Ólafur Helgason 500,oo M. G. Selfossi 150,oo 5 börn, sem aldrei hafa verið svöng 250,oo II. S. 100,oo Börn 100,oo Ónefndur 300,oo Kr. G. 500,oo Hanna 500,oo J. B. 500,oo P. S. G. 300,oo Baldvin Þ. 500,oo Ingibjörg Guðmundsdóttir 300.oo E. H. 400,oo N. N. 100,oo B. B. 200,oo J. K. 200,oo N. N. 50,oo F. Ó. 100,oo Silla 100,oo Benedikt Kristjánsson 150,oo Agnar Jónsson 100,oo S. J. 25,oo Ónefndur 300,oo R. J. 25,oo Sunnudagaskólabörn í Langholtssókn 165,oo Gunnlaugur 300,oo Kona 200.OO J.ón.as Jpnasson, Álfheim- um 9 200,oo H. S. í. 7770,oo N. N. 1.000,oo Þorsteinn Bergmann 1.000,oo Fólk í Hafnarfirði 500,oo Gerður 100,oo Sibbi og Vala 100,oo N. N. 100,oo Egill 100,oo Sigurbj. Þorbj. 100,oo N. N. _ 500.OO 11 ára bekkur Á. S. í Vogaskóla 505,oo Kristín H. 100,oo Stella lOO.oo Guðbjörg Aradóttir 150,oo E. og G. 300,oo G. 100,oo N. N. 300,oo N. N. 100,oo Ónefndur 300,oo Ónefnd kona úti á landi 200.oo G. S. lOO.oo Lionskljbburinn Njörður 3.600.oo N. N. 300,oo Heiða og Brynja 500,oo F. G. 300,oo S. G. G. G. Dadda og Dedda H. H. Júlíus Guðnason Stelpur í 10 ára bekk E Austurbæjarskóla N. N. L. Einn, Tveir, Þrír N. N. K. S. Ólafur Jakobsson Stefán Einarsson Samtals kr 150,oo 100,oo 300,oo 100,oo 500,oo 300,oo 250,oo 300, oo 200,oo 200,oo 500,oo 100,oo 26.845,oo Ný skáldsaga eftir Gunnar í síðastliðinni viku kom út ný skáldsaga eftir Gunnar M. Magn úss: Vefaradans. Bókin hefúr und- irtitilinn: „Úr veröld ungra elsk- enda“, en bókaútgáfan Dvergham ar gefur hana út. Þetta er þriðja skáldsaga Gunn ars, hinar fyrri eru: Brennandi skip (1935) og Salt jarðar (1941). Gunnar M. Magnúss er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur fyrir rit- störf sín. Kunnastar eru eflaust unglingabækur hans, sem sumar hverjar hafa komið út í erlendum þýðingum og munu~áð~'íhinnsta kosti þýðingar verá^i^^fonni um þeasar mundir. ÞjFffijrggja eftir hann tvenn smásagrtliipÍJígj'ein ljóða bók og eitt safn leiítfij§í, að ótöld um fjölda annarra rita um fslenzka menn og íslenzka sögð^íMá þar til nefna Virkið í norðri (þrjú bindi) og Þúsund og ein nótt Reykjavíkur (tvö bindi). Vefaradans Gunnars er 155 bls. ' , mssm Gunnar M. Magnús. Sagan er nútímasaga úr lír’i fólks og gerist í Reykjavík á ára tímabili. ungl fim. 1 Húsmæðra- fundurinn JÓLAFUNDUR Húsmæðrafélags Reykjavíkur verður að þessu sinni í Lídó. Á fimmtudag 13. des. heldur Húsmæðrafélagið sinn árlega jóla- fund í Lídó kl. 8:30 e. h. Reyk- vískar húsmæður bíða ævinlega með eftirvæntingu þessa fundar, og margar fyrirspumir hafa bor- izt hvenær hann muni verða. Séra Jónas Gíslason talar. Einnig verð- ur þarna margt til fróðleiks til að létta jólaundirbúninginn. Blóma- skreytingamaður frá Alaska sýnir og segir frá einföldum skreyting- um. Borð verða dúkuð og dekkt með jólamat frá Veizlustöðinni og Síld og fisk. Þá verður til sölu upp- skriftir af hverskyns mat, kökum og ábætisréttum. Allt annað fá konur endurgjaldslaust og eru vel- komnar meðan húsrúm leyfir. Jólaópera á veg- um Musica Nova MUSICA NOVA efnir til tón- Ieika að Hótel Borg í kvöld klukk- an 21:00. Á efnisskránni verða þessi verk: Serenade fyrir fiðlu eelló og píanó, eftir 32 ára gamlan Dana, Jan Maegaard. Verkið -er samið árið 1960. Duo fyrir klarinett og fiðlu eft- ir Gunnar Berg, danskt tónskáld. Gunnar Egilsson og Ingvar Jónas- son leika. Sónata fyrir hörpu eftir Paul Hindemith. Einleikur á hörpu leik ur Jude Mollenhauer Webster isjá ú>-dálka mynd). Er þetta í fyrsta skiþti, sem leikinn er ein- leikur á hörpu á tónleikum Mu- sica Nova. Afstæður I og II fyrir fiðlu, celló og píanó, eftir Leif Þórarins son. Björn Ólafsson, Einar Vig- fússon og Þorkell Sigurbjörnsson leika. Þetta verk hefur ekki veriO flutt áður hérlendis. Það var frum ílutt í New York, og heí’ur m. a* verið leikið i Danmörku. ÞRJÚ SÖNGLÖG eftir FjölrÁ Stefánsson. Hanna Bjarnadóttir og Jórunn Viðar flytja Þessi lö/j |voru frumflutt í Vín á árinu, sem leið, og voru einnig flutt á nor - í’ænu tónlistarhátíðinni í Kaup- , mannahöfn í haust. Lögin eru I samin við kvæði úr bókinni ,,Titr«— ; inn og vatnið“ eftir Stein Steinarr, | Musica Nova ráðgerir tónleika :í | iok febrúar, og verður þá m. a. ^ kynnt Verk eftir Atla Heimi Svein:r son. Um jólin ráðgerir Musica Novfi að flytja jólaóperu Menottis, '„Amal og næturgestirnir”, semv ■ hvarvetna hefur notið feikna vin- ' sælda. B.A. prófs- menn stofna félag HINN 6. þessa mánaðar var stofnað í Reykjavík félag þeirra, sem lokið hafa B.A.-prófi við há- skóla. Markmið félagsins er að efla kynni meðal félagsmanna og gæta hagsmuna þeirra, stuðla að vexti og viðgangi B.A.-deildar Há- skóla íslands og að kynna stúdent- um möguleika til framhaldsnáms og atvinnu að prófi loknu. Formaður félagsins var kosinn Erlendur Jónsson, en aðrir í stjórn: Adólf Guðmundsson, Guðmundur Hansen, Ingólfur A. Þorkelsson og Ólöf Benediktsdóttir. Félagið mun sækja um aðild að að Bandalagi háskólamanna. (Frá félagsstjórn). Skrifstofustúlka óskast á skrifstofu landlæknis frá næstu ára-f mótum. Ei'ginhandarumsókn með upplýsingó um um fyrri störf og menntun skulu sendaF skrifstofunni fyrir 27. þ. m. Nauðungaruppboð Húseignin Urðarstígur 10 , Háfnarfirði, þinglesin eigrt Hlöðvers Helgasonar, verður eftir kröfu Vilhjálms Arnason- ar hrl. seld á opinberu uppboði sem fram fer á eigninni) sjálfri, föstudaginn 14. þ. m. kl. 3 e. d. Uppboð þetta var auglýst í 73., 76. og 77. tbl. Lögbirtinga» blaðsins. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. des. 1962 §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.