Alþýðublaðið - 27.01.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.01.1963, Blaðsíða 3
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Höfundur leikritsins „Á undan- haldi“, sem Þjóðleikhúsið hefur nú hafið sýningar á ,er ungur Frakki, Francois Billetdoux. Han ner vel menntaður fjölhæfur listamaður og hefur kynnst leikhúsinu frá flest- um hliðum, í leik, leikstjórn og tækniþjálfun undir stjórn ágæts leikhúsmanns. Leikrit hans, fyrrnefnt, ber þetta vissulega með sér. Það er unnið af mjög miklu næmi og eyra fyrir sviðrænum áhrifum, en það sem meira er, það er byggt upp af mik- illi sálfræðiþekkingu og ótrúlegri innlifun í hugsanagang og viðhorf þcss fólks, sem hann tekur til með- i ferðar. Þetta leikrit misinir ósjálfrátt á j „Húsvörð“ Pinters, sem hér var sýndur í fyrra, vegna þess mikla innsæis í afbrigðilegan hugarheim, sem báðir geta státað af, þó verk- in séu að ööru lítt skyld. Það hefur vefið fundið að þvi, að Billetdoux hyggist gieypa of stór- an bita með því að sökkva persón- um sínum svo djúpt á skömmum tíma, hugarflugi áhorfandáns sé ætlaður of stór hlutur. Sú rök- semdafærsla tel ég að eigi mjög takmarkaðan rétt á sér. Verkið er svo vel byggt upp, að enginn vandi er að fylgja hróöu undanhaldinu, þó skammar senur skipti mörkum og langt sé farið á skömmum tíma. Það hefur líka verið deilt um það hvert Billetdoux stefni sjálfur með verki sínu, hefur han nboð- skap í huga? er hann að benda á móral drykkjumannsins? lítilrnót- leik meðalmennskunnar? aldar- háttinn? Eða er hann einfaldiega að segja sögu þeirra fáu ,sem við fáum að sjá á sviðinu? Kona- og maður hittast, makar þeirra hafa tekið upp ástasamband sín á milli. Hin tvö ætla sér að semja hernaðaráætlun, en hverja? Konan býst við „að hitta hér mannii" -sem segir „Pam, þetta gerum við“ en hann spyr aftur henni til skelfingar, „Pam hvað eigum við að gera?“ Þetta er upp- haf harmleiksins. Hann er við- kvæmur- draumóramaðiír, sem hef- ur verið særður djúpu sári og veit engin ráð til að græða það, fullorð- ið barn, sem vantar móður. — Hún, konan, sem vann og þrælaði allan sólarhringinn af ástl! nákvæm, vicjðuieg, stolt. Konan, sem taldi sig hafa gefið allt, en hafði ekkert gefið. „Pam, hvað eigum við að gsra?“ Þau byggja skýjaborgir, gera á- ætlanir. um að sigra maka sína að nýju, en skortir kjaric, hún veik í styrk sínum, hann sterkur í veik- leika sínum. — Þau reyna að byggja upp ástasamband ,en „ég hef komizt að því, Pam, að þetta herbergi hefur ekki örvandi álirif á mig,“ segir hann og sofnar dauða- drukkinn. Hún, sem alltaf hefur haft það á tilfinningunni „að eitt- hvað furðulegt myndi gerast,“ veit að nú hefur það gerst. Hún hefur tápað — öllu. Hún leitar til flösk unnar, yfirgefur mann sinn og — drekkur. Sonur hennar fer á fund Cesarios, barnsins fullorðna. Biður hann að leysa vandann, en — „mér myndi aldrei koma til hugar að kvænast móður þinni bara til ■ leysa vandann," segir hann hneyksl aður — og hjólið heldur áfram að snúast, hraðar og hraðar, ferðin ofan brekkuna er þegar hálfnuð. Hann ætlar heim til Ítalíu, hún kemur með kænsku í veg fyrir það, eitt skal yfir bæði ganga. Þau læsa sig inni í íbúð hennar, drekka, slita öll vináttusambönd, öll sambönd, sem gætu orðið tU hjálpar, hrekjn son hennar úr húsinu, stynja: „Mik ið erum við einmana." Og enn cr ferðinni ekki lokið. Tími líður. Aftur liggja leiðir þeirra saman, við ömurlega krá, í ömurlegu hverfi. Þau liafa vart lengur mannsmynd, en leita enn saman á vit flöskunnar ,halda af stað, „en hægt — hægt.” Brattinn er líka ekki lengur sá sami, senn er komið á jafnsléttu — vesaldóms- ins. Þau sjá sem snöggvast húsið þar sem fyrri makar þeirra búa „stórglæsilegt". „Við gætum sung- ið undir gluggunum.” Leiðin liggur meðfram fljótinu, í köldu skoti kúrá þau, er son hennar ber að, dauðadrukkinn. líann fellur fyrir fótum þeirra, liggur. „Ég vil fara heim til þín, mamma,“ tautar hann í óráði. Hún krýpur við hlið hans. Rænir hann veski hans, kyssir hann „júdasarkossi“ á ennið.Kveð ur hann. „Góða nótt, elskan.*' Hverfur á braut, en hvert? „Hvert. sem við viljum," tautar Cesareo með sljóu flýrubrosi og tjaldið fellur. Þannig er í stuttu máli gangur þessa leiks. Sigurður Grímsson hefur þýtt leikinn og gert það með ágætum. Baldvin Halldórsson annast leik- stjórnina og nær mótuðum heildar- svip umkomuleysis. Gunnar Bjarnason hefur gert leiktjöld og gerir leiknum minnst gagn þeirra, sem að honum vinna. Fortjöldin eru ósmekkleg, baktjald ið yfirleitt gott, en sú lausn, teni fundin hefur verið á notkun hliðar- | tjaldanna, er fulleinföld og smekk lítil. Ef til vill á þessi leikur líka betnr heima á minna sviði? Nokkur smáatriði skemma sýn- inguna. Leiksviðsmenn utan sviðs í bakgrunni við skiptingar, hendi. i er kemur inn til að laga spjald, fat á borði, vatnslaust, með þurri tusku, sem stöðugt er undin upp úr engu. Nokku rtilsvör leikenda, sem bjargað er meira með tækni en nógri kunnáttu orðanna. j En þessi sýning er ekki slæm. Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik- ur forsmáðu eiginkonuna. Það er mikil reisn yfir Guðb.iörgu í upp- hafi, hæfileg uppgetð í brosi, þótti j í fasi og rödd. Þegar fer að síga undan brekkunni, á hún líka góða J túlkun, oft stórkostlega. Ef til vill mætti hún þó vera jafndrukknari, jafnsljórri að lokum. Engu að síð- ur lofsverð túlkun. Róbert Arnfinnsson leikur Ces- areo Grimaldi, förunautinn. Gervi Róherts er gott og raddbeiting hans oftast ágæt, en þó misgóð 02 maatti verða drykkjumannslegri á stundum. Hann er „ítalskur" i hreyfingum. Karakterinn er mjög fastmótaður og túlkun hans frá- bærlega örugg, og betri er á líður. Sljóleiki hans samrunninn og mátt Á undanhaldi": Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Róbcrt Arnfinnsson. þau vinna hlutverk sín með hjart- anu, en ekki kaldri skynsemi. ugur undir lokin. Mjög góð túlkun 1 Jóhann Pálsson leikur soninn og skilningur á hlutverkinu. Aðals-' nijög þokkalega og tekst vel að merki aðalleikendanna er það, að samhæfa barnið í manninnm og manninn í barninu. Vonandi eiga margir eftir að sjá þessa sýningu. Högni EgOsson. MEÐ SKÁKMÖNNUM Harðnar enn á daln- tim á skákþinginu eftir Björn Þorsteinsson. Sennilega var skárra að fara á e3. 17. Rxe4 BxeS Ef dxeS, þá Db6f 18. De3 d4 19. Rd5 dxD 20. RxD axR 21. fxe4 f4 og svartur stendur bet- ur. í MEISTARAFLOKKI á Skákþingri Reykjavíkur eru 24 þátttakendur. Þeim var skipt í þrjá riðla, og sem kunnugt er, komast tveir efstu menn úr hverjum riðli áfram í úrslita- keppni ásamt þeim Friðriki Ólafssyni og Inga' R. Jóhanns- syni, sem boðið var til móts- ins. Nú er lokið 4 umferðum undanrásanna og eru efstir í A-riðli, þeir Sigurður Jónsson og Björn Þorsteinsson með 3 vinninga. í B-riðli, Haukur Angantýsson með 3Vs vinn. og í C-riðli er efstur Jón Hálf- dánarson með 4 vinninga. Teppnin er það jöfn, að erf- itt er að segja til um hvérjir komizt áfram, cn búast má við, ar um það verði hörð barátta. Núverandi Reykjavíkurmeist- ari Benóný Benediktsson, hef- ur ekki verið í essinu sínu það sem af er mótinu, en von- andi á hann eftir að ná sér á strik. í eftirfarandi skák sjáum við hinn unga og efnilega skákmeistara, Jón Hálfdánar- son, leggja að velli hinn reynda skákmeistara, • Kára Sólmunds- son. Hollenzk vörn. HVÍTT : Kári Sólmundsarson. SVART : Jón Hálfdánarson. 1. Rf3 g6 2. d4 f5 Þetta er hið svokallaða Len- ingradafbrigði. 6. Dcl Kári fer sínar eigin leiðir í byrjuninni. 17. ... 18. Rd2 19. Khl Bf4 Dd6(0 6. 7. 8. 9i 10. 11. exd Bb5 Rc3 0-0 BxR Betra en bxB. 12. Re5 13. Df4 cxd d5 Db6 Rf6 0-0 DxB Dc7 Dd8 Ef a. g3, þá Bxg3. 20. hxg3, Dxðý 21. Kfl, f4 og svartur virðist hafa vaxandi sókn. b. h3, þá g4! t. d. hxg, Dh6! og vinnur. 20. Re4(?) Bxh2 ? — örvæntingarleiknr, en hvítur var allavega glataður. 3. b3 4. Bb2 5. e3 Bg7 c5 Rc6 Hvitur hótaði Rxg6 14. Hfel Re4 15. f3 g5! Sterkur leikur. 16. Dcl 20. ... 21. DxgSf 22. fxe 23. Dh4 24. e5 fxe4 Kh8 Bf4 Bg3 Dg6 og hvítur gafst upp. 25. Dxe7, Dh5f og mátar í næsta leik. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 27. janúar 1963 3 1

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.