Alþýðublaðið - 27.01.1963, Síða 9

Alþýðublaðið - 27.01.1963, Síða 9
vinna hvað sem hann óskar í Bandaríkjunum. Þó að einhver komizt á svona samning’, þá þarf það ekki að tákna að liann sé þar með orðinn ein helzta stjarnan í Hollywood, eins og flestir gaetu haldið, heldur get- ur það þýtt, að ÖU þessi sjö ár, fái „Ieikarinn" aldrei hlutverk í kvikmynd. Annars eru tekjurnar af þessu ágætar, en mér finnst starf ið vera of bindandi. — En svo að við snúum okkur aftur að París, hvað heitir fyrir- tækið, sem þú hefur unnið hjá þar? — Það heitir Dorian Leigh Par- ker og þar starfa um það bil 60 stúlkur sem ljósmyndafyrirsætur. Það er Dorian Leigh Parker sem veitir þessu fyrirtæki forstöðu og yfirleitt hefur hún verið talin vandlát á stúlkur, og má ég því teljast heppin. Vinnudagurinn hjá okkur er mjög misjafn, allt frá einni klukkustund á dag upp í 15 stundir á sólarhring. • — Og kaupið? — Við erum á tímakaupi, og einstaka sinnum á dagkaupi, ef svo er um samið fyrirfram. Mill- jónamæringur? Nei, það er dýrt að lifa í París, og þó að tekjurnar séu ágætar, þá eru þær fljótar að fara út í þuskann. Hún er dýr- asta borg -í heimi. Verð á fötum í París er svo hátt, að engu lagi lagi er líkt, það er blátt áfram ó- trúlegt.. Sem dæmi get ég nefnt að mig langaði til að fá mér fannhvíta kápu, ófóðraða en fal- lega. Hún kostar 30 þús. kr. ísl. Það geta ekki nema milljónerar keypt sér föt á tízkuhúsunum í París. Allur almenningur lætur sauma á sig fatnað eftir sniðum í tízkublöðunum. — Hvernig kanntu við Frakka? __ Eg læt frekar lítið af þeim, það er viss svipur á Frökkum, þeir eru allt öðru vísi en við. — Eru frönsku karlmennirnir betri en þeir íslenzku? — Þeir snúast mikið meira í kringum kvenfólkið og pata mikiö út í loftið. íslendingar fara sér mun hægar. — Hvar bjóstu í París? — Eg bjó alltaf á hóteli. Fyrst var ég í stóru hóteli, en þar var svo óheimilislegt, að ég gafst upp og fór á annað ódýrara og minna, þar sem voru engir lyftuþjónar og maður gat þverfótað fyrir picca lóum. Þar var dálítið rólegra og heimilislegra. — Varstu einmaúa? — Mér leiddist stundum. — Fórstu mikið út að skemmta þér? Ja, af og til. En maður kynnist Frökkum ekki svo náið. Ef maður ætlar að heimsækja fjölskyldu í París, þá er alltaf tiltekinn stað- ur, þar sem á að matast og síðan er setið á veitingaliúsi eða á dans stað, — þar eru aldrei heimboð Framh. á 13. síðu MYNDIN af Mariu hérna fyrir ofan er tekin af dönskum ljós myndara, sem heitir Gunnar Larsen. Alþýðublaðið fær send- ar myndir frá ýmsum fréttastofum út um heim, og obbinn af þeim sýnir brosandi stjórnmálamenn, frosthörknr I Evrópu og kvikmyndadísir í baði. En nú í vikunni brá svo við, að við fengum senda mynd af íslenzkri stúlku, — sem jú hefur kom- izt til frama í París, — en man eigi að síður að hún er íslendingur. Þetta er María Guðmundsdóttir. í textanum, sem fylgdi myndinni, stendur að Maria sé ungfrú ísland, en þarna sýni hún nýjustu Parísartízku, sem sé konu í karlmannsskyrtu. Það er einnig sagt. að María hafi um skeið verið mjög vinsæl ljósmyndafyrirsæta í París, „og það efar engmn eftir að hafa séð hana“ segja þeir merku menn. En um hina myndina, sem ljósmyndarinn okkar, Rúnar Gunnarsson tók, viljum við aft- ur á móti segja: „Þarna fer saman kvenleg fegurð og snjöllljósmyndatækni.“ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 27. janúar 1963 $

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.