Austurland - 17.09.1921, Page 3
*||\USTURLAND
3
Hjartans þakklæti vottum við ölium þeim, er sýndu okk-
ur hluttekningu við andlát og jarðarför okkar ástkæru
dóttur, unnustu og fóstursystur, Maríu Elfsabetar Jónsdóttur.
Elísabet Gunnlaugsdóttir. Jón Sigurðsson.
Sigurður Stefánsson.
Ingibjörg Nielsen. Elísabet Kvaran.
Islenzkur Roquefort-ostur
(íslenzkur gráöaostur)
er álitinn jafngðður þeim heimsfræga franska gráðaosti. Hann
fæst að eins í verzlun St. Th. Jónssonar, Seyðisfirði. Heiðr-
aðir viðskiftamenn verzlunarinnar ættu að prófa hann. Aug.
Pellerine Margarine og Agra Margerine komið í verzlun
St. Th. Jónssonar, Seyðisfirði.
K O L
Frá í dag er verðið 90 krónur
fyrir 1000 kg., afhent á staðnum.
Seyðisfirði, 17. september 1921.
V. T. Thostrups Efterfolger
H.f. Framtíðin
Bryggja og huseignir
Hafnarsjóðs Seyðisfjarðarkaupstaðar verða leigðar frá næstu áramót-
um. Tilboð sem tilgreini eftirgjald og til hvers beiðandi ætlar að
nota eignina, séu komin hingað á skrifstofuna fyrir 15. okt. næstk.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði, 8. sept. 1921
Jón Þór. Sigtryggsson.
Settur.
Skósmíðavinnustofa
Sigurgísla Jönssonar, Seyöisf.
Selur viðgerðir á skófatnaði
ódýrar en nokkur annar í bæn-
um. — Samkepni um verð eða
vöndun algjörlega útilokuð. —
Fljót afgreiðsla.
Handunninn skófatn-
aður er beztur.
Smekkleysur og hortittir:
„ískalda náttmyrkrið drjúpandi á sál
mína dettahdi,
dragandi, hvíslandi, lokkandi, gyllandi
svæfandi.
Til þess að vinna það, sem þjóðin er
fingur í fettandi,
fallegar myndir og göfugar hugsjón-
ir kæfandi.
Eg ætlaði að bíða og sjá hversu
myrkrið er magnandi,
sem mannsandinn stendur nú gagn-
vart svo skjálfandi bifandi,
vita, hvort ísinn fer eigi af sál minni
flagnandi,
hvort ekki sé meira í veraldargamm-
inum lifandi.
Vafasamt er að fundin verði í ís-
lenzkum kveðskap nokkur ein vísa,
er sameinar jafn vel í sér og þessi
alt það, sem lýtir kveðskap og gerir
hann einkis virði og verra en það.
Er því eigi til þess takandi þó að
„skáldið" kryddi hvað eftir annað með
orðum eins og svellahá, hnjúkahá og
fannahá — og tali um að kossarnir
setjist á vangann, ennfremur nefni
„kossa og faðmlaga frekustu bjóða“.
Er slík gnægð af þessu í bókinni,
að undarlegt má það öllum virðast,
að Ársæll Árnason skuli vera útgef-
andinn. Skal hér nú staðar numið,
en að lokum bent á, í sambandi við
það sem áður er sagt, að næst fyrsta
kvæðið og tvö þau síðustu eru „á
borð við“ Stefán frá Hvítadal, „Qand-
reið“ minnir á Guðmund Guðmunds-
son (sbr. Gesturinn), o. s. frv.
G. G. H.
Hitt og þetta.
Jarðarför
Maríu Jónsdóttur fór fram að við-
stöddu miklu fjölmenni á þriðjudag-
inn var. Sungin voru þrjú kvæði, eitt
eftir Boga Benediktsson, annað eftir
Sig. Arngrímsson og þriðja eftir Sig-
urð Baldvinsson.
Skip.
E.s. Lagarfoss var hér um síðustu
helgi. E.s. Botnia kom hér í gær og
fór í dag. Farþega getið síðar.
Tíðarfar
hefur verið hið versta undanfarið,
mjög mikill snjór á fjöllum og alhvítt
í bygð. En nú virðist brugðið til hins
betra.
Afli
er góður þegar á sjó gefur.
Misprentast
hefur verð á kvensokkum í auglýs-
ingu E. J. Waage, kaupmanns, í síð'-
asta blaði. Sokkarnir kosta kr. 4,75.
Vinnulaun.
Vinnulaun i Canada hafa lækkað
frá 10—25 prc. við almenna erfiðis-
vinnu. Víða nemur lækkunin 15—
20 prc.
Tapast hefur rauðgrá hryssa,
fjögra vetra gömul, aljárnuð, ótam-
in en bandvön. Finnandi er beð-
inn að gera aðvart
Sigurði Benediktssyni
í Fossgerði á Jökuldal.
Til sölu
hjá undirrituðum ársgömul kvíga
út af góðu kyni; einnig fjárhrútar
ungir, og brúarboltar 4 með fleiri
járnum í 16—20 álna langa brú.
Fossgerði, 20. ágúst 1921.
Guðmundur Snorrason.
Áskrifendur Þjóðv.félagsins og Bókm.-
félagsins, (lengra að), láti vitja ársbók-
anna til bókaverzlunarinnar á Seyðisfirði.
Með því að bókaverzlunin á Seyðis-
firði hefur tekið að sér umboð fyrir
„Sögufélagið“ í Rvík, veitir hún nýjum
áskrifendum móttöku,
Á timburflotanum
eftir
Maksim Gorki.
Framh.
— Halló, svefnpurkurnar ykkar!
Getið þið ekki haldið opnum augun-
um? heyrist kallað um flotann dynj-
andi röddu, er berst út yfir fljótið og
hljóðnar í fjarska.
Auðheyrt var á röddinni, að sá er
kallaði var styrkur maður og ákaf-
lyndur og vissi vel að hann hafði
kjark og þol til að bera.
Þó að orðin væru sem áminning,
áttu hásetarnir á timburflotanum þó
alls ekki sök á þeim. Öðru nær.
Sál, sem var þrungin þrótti og gleði
og þarfnaðist freisis, lét í ljós gleði
sína með þessu þrumandi hljóði.
Þykir þér karlsvínið grenja? sagði
Sergei ánægjulega og starði fram í
stafn prammans. Hann smáskríkti og
bætti við:
— O, vesalingarnir, nú láta þau vel
hvort að öðru. Ekki finst þér víst,
Mitrij, að þau séu öfundsverð?
Mitrij rendi tómlátlega augunum
TVÍRITUNARBÆKUR
fást eftir pöntun prent-
aðar og h e f t a r í
PRENTSMIÐJl) AUSTURLANDS
Tveir rétt nýir yfirfrakkar. annar sum-
ars, hinn vetrar, fást nú með tækifæris-
verði hjá Pétri Jðhannssyni, bóksala.
Stulka
óskast til vetrarvistar á Iítið heim-
ili hér á Seyðisfirði. Má vera ung-
lingur. Gefi sig fram sem allra
fyrst. Getur haft frítíma og notið
fræðslu, ef vill. Kaupkjör af sér-
stökum ástæðum venju fremur góð.
R. v. á.
Vátryggingar
Brunatryggingar
Sjóvátryggingar
Stríðsvátryggingar
Sigurður Jónsson
Simi 2 og 52.
UMBÚÐAPAPPÍR
fæst keyptur í
Prentsmiðju Austurlands.
Jörð til sölu.
Jörðin Minnidalir í Mjóafirði er
til sölu, ef viðunandi boð fæst.
Jörðin er vel húsuð og hirt og
laus til ábúðar í næstu fardögum.
Oddur Sveinsson.
Undirsæng, eða fiður, óskas
keypt. Uppl. í prentsmiðjunni.
fram í stafninn. Þar mótaði fyrir
tveim mannsmyndum í myrkrinu.
Hreyfðust þær fram og aftur, námu
við og við staöar nálægt hvor annari
— og svo varð ekkert greint, utan
svört, ógreinileg þúst.
— Getur það nú átt sér stað, að
þú öfundir þau ekki? spurði Sergei.
— Hvað varðar mig um synd þeirra
og sekt? sagði Mitrij í hálfum hljóð-
um.
— Nú, það er svona lagað, sagði
Sergei gletnilega og tróð á nýjan leik
í pípu sína.
Rauða ljósið geislaði út í dimm-
una. Nóttin varð svartari og svart-
ari og skýin grá og þung færðust nær
og nær yfirborði Jhins breiða, kyr-
láta fljóts.
Hvaðan hefurðu þessa vizku, Mitrij?
Er hún þér ef til vill meðfædd? Nei,
vinur minn, þú líkist ekki honum föð-
ur þínum. Faðir þinn er karl í krap-
inu. Gáðu nú að — 52 ára er hann
— og hann kjassar unga og faMega
stúlku. Stúlkan iðar af fjöri og ekki
verður því neitað, að hún elskar hann.
Nú, og hvað er svo sem hægt úr því
að bæta? Hún elskar! Og er í raun
og veru hægt annað en elska annan
eins garp og hann pabba þinn? Það