Alþýðublaðið - 12.03.1963, Síða 3
8. dauðaslysið
varð á laugard.
Litli drengrurinn, Samúel Krist-
ánn Samúelsson, Fossvogsbletti 39
sem varð fyrir bifreið á Bústaðaveg
inum um kl. 11 sl. laugardagsmorg
un, lézt á sjúkrahúsi um kl. hálf
átta á laugardagskvöldið. Voru
það mikil meiðzli á höfði, sem
drógu hann til dauða.
BELGRAD, 11. marz (NTB
AFP). — Rússar munu
sennilega færa samskipti sín
við Albana á sviði stjórn-
mála og verzlunarmála í eðli
legt horf áður en langt um
líður, að því er haft var eft-
ir góðum, júgóslavneskum
heimildum í dag.
| Þetta er áttunda dauðaslysið,
| sem verður hér á landi af völdum
umferðar frá áramótum. Þetta er
jafriíramt þriðja dauðaslysið af
völdum umferðar í Reykjavík.
Fyrstu dauðaslysin urðu skömmu
eftir árapjót, er bifreið fór út af í
Reyðarfjarðarskriðunum og tvennt
lét lífið. Þá hefur eitt orðið í
Hafnarfirði, eitt í Kópavogi, eitt
í Mosfellssveit, eitt við Miklatorg
og einn maður lét lífið eftir að bíl
hans hafði hvolft í Hvalfirði.
Pilturinn, sem vgrð fyrir því
óláni, að aka á Samúel litla, gaf
sig fram við lögregluna í Reykja-
vík Skömmu fyrir klukkan tvö á
laugardag. Eftir að slysið varð,
| flúði hann á burt og kvaðst hafa
orðið ofsalega hræddur. Piltur
i þessi er um tvítugt.
Rússar eru mesta
fiskiskipafpjóbin
Frönsku verkföll-
in fara harðnandi
LONDON, 11. marz (NTB-Raut-
er). — Varaflotamálaráðherra
Breta, Charles Orr-Ewing, sagði í
Neðri málstofunni í dag, að Sovét
ríkin ættu stærsta fiskibátaflota
lieimsins. Sovézku togararnir
væru að miklu leyti notaðir til
þess að safna upplýsingum handa
leyniþjónustunni. Orr-Ewing
sagði í umræðum Neðri málstof-
unnar um flotamál, að liður í al-
mennri stefnu Rússa um auka á-
hrif kommúnista væri áreiðanlega
aukning siglinga þeirra.
Hann sagði, að í sovézka flot-
anum væru mörg hundruð kafbáta,
þar af 20 eða fleiri, sem knúnir
væru kjarnorku og margir, sem
búnir væru eldfiauguim Eldflaug
um þessum verður hins vegar að
skjóta frá yfirborði sjávar. Auk
þess hafa Rússar sett sér það mark
að eiga verzlunarflota upp á 20
milljónir brúttólesta fyrir 1980.
Hann kvað sendingu rússneskra
tæknifræðinga og útbúnaðar til
erlendra ríkja og byggingar hafna
tala sínu máli. Mörg þessara landa
hafa mikla hernaðarlega þýðingu.
í Jeman hafa Rússar varið rúm
lema 480 millj. (ísl.) kr. til hafn
arsmíði í Hodeida og bætt höfn
þar hafi mikla þýðingu í bylting
unni í landinu, sagði Orr-Ewing.
Rússar búa auk þessu nýju ríkin
herskipum og kafbátum. Egypta
land og Indónesía hafa nánast
fengið fullkominn flota.
I Orr-Ewing taldi, að hinir hrað
| skreiðu varðbátar, sem búnir eru
eldflaugum og Rússar hafa sent
til Indónesíu og eru í þann veg-
inn að senda til Indónesíu, sér- I
staklega mikilvæga.
Þessi fallega stúlka heit-
ir Gurli-Ann. Hún er dönsk
að ætt og uppruna, 21 árs.
Gurli-Ann syngur í Klúbbn-
um þessa dagana, en hin vin-
sæla Margit Calva skrapp
heim til Þýzkalands til að
synjgja inn á hljóftnplötur.
Hún mun væntanleg aftur í
Klúbbinn, — en Gurli-Ann
verður henni skæður keppi-
nautur um hylli gesta, því að
auk þess sem Gurli-Ann syng
ur eins og engill, brosir hún
svona yndislega.
BAGDAD, 11. marz (NTB-
Reuter) — Uppreisnin í Norður-
írak, sem staðið hefur í átján
mánuði, er sennilega senn á enda,
sagði formælandi skæruliðafor-
ingjans Mulla Barazani í dag.
Verkstæði
brann
Drukknaði
Akureyri í gær.
í GÆR var farið að undr-
ast um mann hér á Akur-
eyri. Hafði hann farið
að heiman um morguninn og
þegar hann kom ekki í mat
var hafin leit að honum víðs
vegar um bæinn. Margir
tóku þátt í leitinni, m. a.
skátar.
í morgun var slætt við
Tangabryggjur og fannst þá
lík mannsins. Hann hét Páll
Halldórsson og var 55 ára
að aldri. — G. S.
AKUREYRI í gær.
Um klukkan 17,50 I gær kom
upp eldur í vcrkstæðisbyggingu
við Kaldbaksgötu. Slökkviliðið var
þcgar kvatt á vettvang, og tókst
því að kveða eldinn niður á tiltölu-
lega skammri stundu. í verkstæðis
byggingunni voru tveir bílar. Tókst
að bjarga öðrum, en hinn varð eld-
inum að bráð.
Húsið skemmdist mikið og tals
vert brann þarna af verkfærum.
Önnur verkstæðisbygging var
þarna í sambyggingu, en henni
tókst að forða.
kviknaði í út frá
logsuðutækjum
Eigandi hússins er Óskar Ingi-
marsson. Sagt er, að kviknað hafi
í út frá logsuðutækjum.
Bílvelta varð hér úti á Árskógs
strönd á laugardaginn, en ekki varð
slys á fólki.
Asíuinflúenzan er farin að
stinga sér niður hér. — G. S.
PARIS, 11. marz (NTB-Rauter)
Til áfloga kom og snarpra orða-
hnippinga milli lögreglu og verk-
fallsmanna í Austur-Frakklandi í
dag — í fyrsta skipti síðan verk
fall námumanna hófst fyrir 11 dög
um. Enginn meiddist og fljótlega
tókst að koma aftur á lögum og
reglu.
Jafnframt þessu er ljóst, að
verkfallsmenn hafa ekki í hyggju
að láta undan. Þeir neita enn að
hefja aftur vinnu, enda þótt þeir
eigi það á hættu að verða látnir
sæta brottrekstri, skaðabótum og
fangelsisvist. Um 1.000 verka-
menn frá málmnámunum í Lorra-
ine hafa hótað að fara í kröfu-
göngu til Parísar til þess að styðja
kröfur sendinefndar, sem á að
fara á fund Maurice Bokanowyin,
iðnaðarmálaráðherra.
í París óttast menn alvarlegar
umferðartruflanir ef járnbrautar
starfsmenn láta verða af hótun
sinni um verkfall á morgun. Ætl
unin er, að verkamennirnir leggi
] niður vakt þegar vaktaskipti
j verða. Nefnd nokkur mun ræða
I kröfur járnbrautarstarfsmanna á
' fimmtudag.
| Árekstrar lögreglunnar og verk
fallsmanna áttu sér stað í Merle-
bach á hinu stóra og mikilvæga
kolanámusvæði í Lorraine. Þegar
verkfallsverðir stöðvuðu fjölda
bifreiða námustarfsmanna skarst
lögreglan í leikinn svo að uniferð
um járnbrautabrú nokkra stöðv
aðist ekki.
Um allt kolanámusvæðið í Lorr
aine voru haldnir stórir og smáir
verkfallsfundir. Yerkfallsvörður-
inn á námusvæðunum var efld-
ur. I
Stjórnin hefur boðið tæplega
6% kauphækkun, sem á að g^rast
smám saman á þessu ári. Verka-
menn krefjast 11% kauphækkun-
ar, en stjórnin neitar að semja
meðan verkfallið setndur jyfir.
\erkamenn vilja ekki hætta verk
fallinu fyrr en stjórnin drþgur
kiöfuskipun sína til baka.
)
Leynilögre
þrautin
í þætti Péturs Péturssonar sl.
sunnudagskvöld var leynilögreglu
getraun, sem sumum þótti nokk-
uð erfið. Til að gera leikinn auð-
veldari birtast hér þau atriði, sem
gæti auðveldað Iesendum blaðs-
ins lausn þjófnaðarmálsins:
Þrenn hjón, Gísli, Helgi, Eiríkur
og konur þeirra voru boðin til
kvölddrykkju hjá Finni Grámann
og frú, hér í bæ. Finnur hefur
það fyrir tómstundaiðju að safna
sjaldgæfum peningum, og umrætt
kvöld sýndi hann gestum sínum
myntsafnið stoltur mjög, eins og
við var að búast. En þegar veiz.on
var um garð gengin og gest'rnir
farnir, kom það í Ijós að emn
allra verðmætasti peningurinn í
safninu var horfinn. Þjófurinn var
einn hinna sex gesta, en hver?
Og hér koma svo þau atriði úr vehl
unni sem ef til vill gætu orðið til
þess að varpa Ijósi á málið:
1. Maki þjófsins hafði tapað í
bridge kvöldið, sem verknaður-
inn var framinn.
2. Gísli gat ekki ekið bifreið, þar
sem hann var aö nokkru leyti
lamaður.
Framh. á 14. síðu
BONN — Varaform. vestur-
þýzkra jafnaöarmannaflokksins,
Fritz Erler, sagði í dag, að stjórn
Adenauers hefði ekki sagt allan
sannlejkann um aðgerðirnar gegn
tímaritinu „Der Spiegel“ í okt.
Flnnar viöbúnlr
stjérnarkreppy
DAMASKUS, 11. marz (NTB-
Reuter). — í dag voru enn hóp-
göngur á götum Damaskus til
stuðnings hinni nýju stjórn Salah
Bitar í Sýrlandi, jafnframt því
sem yfirvöldin efldu. v.örðinn. við
sendiráð Jórdaníu og Saudi-
Arabíu. '
HELSINGFORS 11. marz (NTB-
FNB) Að loknum löngum og heit-
um umræðum fulltrúa ríklsstjórn-
arinnar og samtaka ríkiþstarjfsi-
manna fullyrtu deiluaðilar í dag,
að ekkert hefði miðað í samkomu-
lagsátt í launadeilunni. Samþykkt
var að halda áfram viðræðum
á morgvf.
Stjómmálamenn í Helsingfo'
telja ástahdið alvarlegt og segja
hættuna á stjórnarkreppu nú vera
staðreynd.
Er hinar nýju samningaviðræður
hefjast á morgun munu þing-
flokkarnir koma saman til fund-
ar. Ætlunin er að leggja fram til
löguna um laun ríkisstarfsmanna
seinna um daginn ef ekkert óvænt
gerist á fundum þingflokkanna,
t.d. eitthvað, sem getur leitt til
þess, að ^tjórn Karjalainéns falíi,
eins og haft er á orði hjá mönnum
sem standa stjórninni nærri.
Fjórði OÁS-mað-
urinn líflátinn
París, 11. marz.
NTB-Reuter.
Jean-Marie Bastien-Thiry,
fv. ofursti úr flughemum,
var tekinn af lífi í morgun
í Divry-virkinu, tæpri viku
eftir að hann var dæmdur til
dauða fyrir forystu um til-
raunina til að myrða de
GauIIe í ágúst í fyrra. — de
Gaulle hafnaði beiðni hans
um náðun. Þá breytti hann
dauðadómum í ævilanga
hegningarvinnu yfir 2 mönn-
um, de la Tounaye og Pre-
vost.