Alþýðublaðið - 22.03.1963, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.03.1963, Blaðsíða 4
Hvenær kemur hún Kleopatra? ÞESSI mynd var tekin þegar verið var að taka síðustu „skotin“ af kvikmyndinni um Kleopötru, sem Elizabeth Taylor leikur í. Báðar voru frægar áður, Elizabeth og Kleopatra, en myndin virðist ætla að gera báðar frægari, þó það væri ekki af öðru en því, að menn eru búnir að bíða eftir myndinni von úr viti. Hér sézt Elizabeth og Richard Burton ásamt leikstjóranum Joseph Mankie- wiecs. í dagblað'inu „Sovétska Kúltúra" þirtist hinn 19. f.m. eftirfarandi grein íim íslenzku myndlistarsýn- inguna í Moskvu eftir listagagnrýn- jandann A. Baígusjev: „Eiair klettar íslands.“ Barátta fyrir sjálfstæði, þjóðleg vitund — þessar hugsjónir mörk- úðu bló.natíma hinna framsæknu ■foókmennta íslands. Hinar sömu fougsjónir hafa lyft íslenzkri inálaralist. Hún er þrungin ætt- garðarást og þjóðrækni. Áð bíða þess, sem boðið er, ■Jivort blítt er eða strangt, <i.g hvað sem helzt að höndum ber, _fið hopa aldrei langt, /4anda eins og foldgnótt fjall í frer pm alla stund, fove mörg sem á því skrubban skall SÚ skyldi karlmannslund. í þessu erindi íslenzka skáldsins feísla Brynjólfssonar birtist sú meg inhugsun, er einkennir málverk þriggja frægra íslenzkra málara, Jóhannesar Kjarvals, Ásgríms Jóns sonar og Jóns Stefánssonar. j Myndir þeirra eru hreinar og I strangar. „Hraun“, „Mosi á Víf- ilsfelli", „Eiríksjökull“, „Heiðar- landslag" — það er eins og norræn náttúra hafi storknað í þunga sin- um í hinum föstu litum og kulda- legu byggingu þessa landslags. i Þessir þrír listamenn hófu allir nám í Danmörku, héldu síðan á- jfram í París eða Berlín. En leit evrópskra listamanna á öndverðri öldínni að nýjum aðferðum vakti einungis áhuga þessara hjarta- hifeinu íslendinga en hreif þá ekki. „Engin af bókmenntastefnum þeim, sem upp komu í Evrópu um og eftir heimsstyrjöldina (fyrri) skaut nokkrum rótum á íslandi. Vér kynntumst súrrealisma, ex- pressjónisma, „neue Sachlichkeit“ KIIÖYCÍID BmÐJM li Tii ASþýðubiaHsins, Reykjavík íg 6ska a? gerast áskrifandi ao AiþýSublaVfnu Nafa............ » Heimiiisfang ... i • c o.s.frv. af erlendum bókum,“ sagði Kristinn Andrésson, fremsti könn- uður ísl. bókmennta og mikill kunnáttumaður í listasögu. Hið sama gæti hann hafa sagt um hina framsæknu málaralist íslendi.iga. Og enda þótt segja megi að Ásgrím ur hafi sætt áhrifum frá Césanne og Jón frá Matisse, þá er hér ein- ungis átt við æskuáhrif en ekki að fylgt sé þeirra stíl. íslendingarnir hafa reynzt sjálf- um sér trúir. Jóhannes Kjarval hefur næmt auga fyrir árstíðum 1 islands — sýnir sumargrænt land í einu verki en haustliti í öðru. Hrífandi er auðlegð hans í litum og samspil þeirra í tveim steinum, sem í fljótu bragði kunna að virð- ast eins. | Ásgrímur Jónsson sýnir hið forn- fræga Heklufjall gnæfandi eins og táknmynd yfir umhverfið, blátt yfir bláum snjó. Hann sýnir einnig ryðrauða hauítliti og djúpbláa kletta. Jón Stefánsson leitar hins ríkj- andi litar. Hann er áhrifamikill kóloristi. Heiðalandslag hans er þrungið litaauðlegð, en í næstu mynd er eins og hann vilji rétt- læta þennan óraunveruleika, sanna í reynd hina voldugu litaauðgi hins norræna morguns. Nektarmynd hans er hörkuleg og sýningargestum í geð. En samtím- is er sjálfsmynd hans sérkennileg naumast líkleg til að falla okkar fyrir sakir sterks svipmóts og nor- ræn yfirbragðs. Svo virðist sem þetta sterka svip mót sé aöaleinkenni þessarar litlu sýningar, sem um daginn var opn- uð í Pusjkin-listasafninu. A. Baigusjev. 4 22. marz 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ Minning: STEINUNN ANDRÉSDÚTTIR, i Fögrubrekku i Vík FYRRA laugardag var jarðsung- in frá Vikurkirkju frú Steinunn Andrésdóttir, eiginkona Magnúsar Ingileifssonar, verkamanns í Fögrubrekku í Vík í Mýrdal. Séra Páll Pálsson, settur-sóknarprestur jarðsöng. Fjölmenni var við útför- ina, margir Mýrdælingar svo og að- komufólk, þar á meðal stjórnin í kjördæmisráði Alþýðuflokksins á Suðurlandi, flokksbræður þeirra hjóna. Steinunn Karítas Andrésdóttir fæddist að Syðra-Hóli undir Eyja- fjöllum 4. maí 1885 og ólst upp á ýmsum bæjum undir Eyjafjöllum og kynntist í uppvexti harðrétti sinnar tíðar. Vann síðan fyrir sér á ýmsum stöðum, þar á meðal í j Vestmannaeyjum. Þar kynntist hún Magnúsi Ingileifssyni, og giftust þau í Vík 29. nóv. 1914 og vantaöi því eitt ár á, að sambúð þeirra ent ; ist í hálfa öld. j Þau hjónin, Steinunn og Magnús, eignuðust fimm börn, þrjá syni .j tvær dætur, en tveir af sonunum létust ungir, annar drukknaði I Víkurá 8 ára gamall, en hinn féll útbyrðis af síldarbáti 18 ára gamall Hin börnin, Fanney, Magnea Stein- unn og Andrés eru búsett í Reykja- vík, svo þau hjón höfðu um nokk- j ' rra ára skeið búið tvö saman á heimili sínu að Fögrubrekku í Vík. Fyrr á árum var Magnús þó oit fjarri heimili sínu með því að haun Hið nýja leikrit Sigurðar- Róbcrtssonar, Dimmuborgir, liefur nú verið sýnt 8 sinnum í Þjóðleikhúsinu. Það vekur að jafnaði talsverða athygli þegar nýtt íslenzkt leikrit er tekið til sýningar og svo varð einnig í þetta skipti. Næsta sýning leiksins verffur á sunnudagskvöld. Myndin er af Ævari Kvar- an í aðalhlutverkinu. var yfir tuttugu ár á „Skaftfell- ingi“ og mun þá oft hafa varið löngum stundum að heiman og ein. att í all miklum háska í grályndum veðrum við Suðurströndina, þannig að umsjá lieimilisins yrði að ma'.ra og minna leyli í liöndum Steinann ar. Með Steinunni í Fögrubrekku er falliii í vaiinn góð kona, sem var lærdómsríkt að kynnast. Hún hafði ríka tilfinningu fyyir því, sem var fagurt, og hún miðlaði öðrum af lífsgleði sinni. Hún var líka vinsæl og virt af þuim, er hana þekktu. Hún mun snemma hafa skilið, hvar skórinn kreppti að í samfélaginu og vegna framsýni sinnar hafði hún einarða skoðun á þjóðmálum til stuðnings Alþýðuflokknum og var sjálfri sér samkvæm alla tíð. Þeir sem þekkja til atvinnuhátta í Vík og stjórnmálaátakanna í Vestur- Skaftafellssýslu fyrir kjördæma- breytinguna, þeir skilja, hvað felst á bak við það, að hafa skoðun svo óliagganlega að vilja taka afleiðing um, sem óvíða á landinu munu þekkjast jafn heiftarlega og í Vík í Mýrdal. Alþýðuflokkurinn og Alþýðublað ið hljóta að votta Steinunni og eft- irlifandi manni hennar djúpa virð- ingu og þökk fyrir órofa tryggð við þann. málsitað, sem bygglr frama sinn á því bezta, sem mann- lífið getur boðið. U. Stef. TALAR UM FINNLAND Á samkomu Náttúrufræðifélags- ins í 1. kennslustofu Háskólans mánudaginn 25. marz n.k. kl. 20.30 mun dr. Finnur Guðmundsson segja frá ferð sinni um Finnland sumarið 1958 og sýna litskugga- myndir þaöan. Erindi dr. Finns mun einkum fjalla um norðurhér- uð landsins, m.a. Lappland.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.