Alþýðublaðið - 22.03.1963, Side 16
44. árg. — Föstiidagur 22. marz 19S3 - 68. tbl.
HJÓLUM
ÍSAUPFÉLAG Hafnfirðinga liefur
fiu opnað nýja verzlun, sem er frá
brufiðin öðrum verzlunum að þv'í
íeyti. f.ð liún er á hjólum. Er þarna
vn að rseða mjög stóran bíl, sem
■ befur verið keyptur frá Svíþjóð,
finnréttur eins og fullkomnasta
verziun og nefna forráðamenn
tkaupfélagsins hann kjörbúðarvagn.
Til marks um stærð bílsins má
geta þess, að hann er 2,25 m. á
breidd, 8,70 m. á lengd og 3 njr’á
ÚTKÖLL
SLÖKKVILIÐIÐ í Hafnarfirði var
tvisvar kvatt út í gær. í annað
einnið var kominn eldur upp í vél
arrúmi mb. Sæborgar, sem var
mppi í skipasmíðastöðivni Dröfn.
Mdurinn var fljótt slökktur og
fikemmdir hverfandi Iitlar. — Þá
f.kömmu síðar var slökkviliðið kall
íi'& sð gænum Litlu-Brekku í
Gaiðiiiíreppi, þar sem börn liöfðu
frveikt; mannlausu og lélegu húsi,
íiem síóí' til að rífa bráðlega. —
tSkemmdii á húsinu urðu allmikl-
ar, en tjórt er ekki mikið eigi að
Bíður.
Þá var slökkvilið Hafnarfjarðar
kvatt að húsinu Brautarholti í
Garðahreppi í fyrradag. Reyndist
Jjjar vera um misskilning að ræða,
ít»ar sem maður hélt bruna vera í
fcúsinu, sent raunar var utan þess.
'jfár maður þar að kveikja í rusli,
c<g fór heldur óvarlega að.
liæð. I lionum er djúpfrystir, stórt
kæliborð, stór kæliskápur, vigt:,
búðarkassi og allt, sem nauðsyn-
legt er í góðri verzlun. Ef allar
hillurnar í vagninum væru lagðar
hlið við hlið, væru þær um 54 m.
á lengd.
Ragnar Pétursson, kaupfélags-
stjóri, fór fyrir nokkru til Sví-
þjóðar til að kynna sér rekstur
slíkra vagna, og festi þá um leið
kaup á einum. Er þetta fyrsti vagn
sinnar tegundar, sem kemur hing
að til lands. Víða í Bandaríkjunum
og Vestur-Evrópu eru slíkir bílar
mikið í notkun, og meðal annars
eiga kaupfélögin í Svíþjóð 200
slíka. Hafa þeir alls staðar gefið
góða raun.
Kaupfélagið hyggst nú með vagn
inum bæta þjónustu við íbúa
þeirra hverfa í Hafnarfirði og
Garðahreppi, sem verst eru settir
með tilliti til verzlana. Öllu er svo
haganlega fyrir komið, að í bílnum
verða milli 350—400 vörutegundir,
svo húsmæður þurfa ekki að kvíða
að of lítið úrval verði. Þá geta
þær auðveldlega slcoðað varning-
inn, því vagninn er mjög rúmur.
ÍÞessa akandi verzlun mun Agnar
! Aðalsteinsson annast, og er liann
einnig bílstjórinn.
Þess má geta í þessu sambandi,
að Kaupfélag Hafnfirðinga varð á
sínum tíma til þess að stofna eina
af fyrstu kjörbúðum landsins. .—
Formaður kaupfélagsins er Jóhann
Þorsteinsson og aðrir í stjórn eru:
Hallsteinn Hinriksson, Hermann
Guðmundsson, Stefán Júlíusson 6g
■ Þórður Þórðarson. Kaupfélagsslj.
ler Ragnar Pétursson.
SPILAKVOLD verður í Iðnó
í kvöld klukkan 8,30 stund-
víslega. Sigurður Ingimund-
arson alþingismaður flytur
ávarp. Fiokksfólk er hvatt
til þess að f jölmenna og taka
með sér gesti.
Bíll - búð
ÞESSI mynd er tekin í kjör-
búðarbílnum í gær, og sést
vel, hve rúmgóður ltann er.
Á myndinni sést verzlunar-
stjórinn, og bíistjórinn, Agn
ar Aðaisteinsson, en hann
hefur starfað lengi hjá kaup
félaginu. Vinstra megin á
myndinni sést kæligeymsl-
an, en framar í honum er
djúpfrystir og stór kæliklefi.
MUSICA Nova heldur tónleika að
Hótel Sögu n. k. sunnudag kl. 14.
30. Á efnisskránni eru þessi verk:
Nocturne, eftir Jón Leifs, Cont-
raste, eftir Béla Bartok, Zwanzig
Gruppen, eftir Bo Nilsson og
Hlými, eftir Atla Heimi Sveins-
son.
Atli er fæddur í Reykjavík 1938.
Hann stundaði nám í píanóleik við
tónlistarskólann hjá Rögnvaldi
Sigurjónssyni og lauk prófi þaðan
vorið 1957. Að loknu prófi í for-
spjallsvísindum við Háskóla ís-
lands 1959, fór liann til Kölnar og
lagði stund á tónsmíðar, píanóleik
og hljómsveitarstjórn við tónlist-
arháskólann þar í borg. Þaðan
brautskráðist hann 1962. — Hlými
(= hljóma) er sett saman af fjór
um eigindum, andstæðum þeirra
og afbrigðum, andstæðum afbrigð-
anna o. s. frv., auk tengiþátta á-
samt andstæðum tengiþáttanna og
afbrigðum. Höfundur, stjórnandi
og flytjendur hafa mismunandi
strangar forskriftir um hvað gera
skal á hverjum tíma. Niðurröðun
þess, sem hljómar, er bæði saman-
þjöppuð og gisin, þ. e. sagt eins
mikið og unnt er á sem stytztum
tíma — sagt eins lítið og unnt
er á sem mestum tíma.
Svíinn, Bo Nilsson, er fæddur
1937. Hann hefur staðið mjög fram
arlega í flokki hinna yngstu tón-
skálda Evrópu. „Zwanzig Grupp-
en“ eru samdar árið 1958. Sérhver
hljóðfæraleikari leikur 20 tónarun
ur og ákveður sjálfur í hvaða röð
þær eru fluttar. Flutningsröð skal
breytast frá einni yfirferð til ann-
arrar, en hver yfirferð tekur 3
mínútur. — Áheyrandinn hlýðir
þannig á síung fyrirbrigði hljóms,
hljóðfalls og tónblæs.
Béla Bartók og Jón Leifs ættí
ekki að þurfa að kynna. Atli Heim
ir sagði á fréttamannafundi fyrir
skömmu, að liann væri nú að
vinna að ballett, sem fullgerður
yrði í sumar, en ekki bjóst hann
við, að unnt yrði að flytja hann
I hérlendis.
VÍN, 21, marz (NTB-Reuter). —
Þjóðþingið í Ungverjalandi sam-;
þykkti einróma í dag víðtæka sak- i
aruppgjöf, sem merkir, að nokkr-
um mönnum, sem handteknir voru
eftir byltinguna í október/nóvem- i
ber 1956, verður sleppt úr haldi. |
Sakaruppgjöfin nær til almennra
stríðsglæpa, og einnig til slíkra
glæpa, sem drýgðir voru í gagn-
byltingunni 1956, eins og komizt er
að orði. Hún nær einnig til flótta-
manna og glæpamana, sem nú eru
hafðir í betrunarbúðum, segir í
upplýsingum frá Búdapest.
Sakaruppgjöfin varðar ekki fólk,
sem dæmt hefur verið fyrir glæpi
gegn ríkinu, njósnara og þá, sem
gerzt hafa sekir um glæpsamlegt
athæfi mörgum sinnum. Einnig er
fólk, sem gerzt hefur sekt um land
ráð, undanskilið. En þessir fangar
geta einnig sótt um sakaruppgjöf.
★ Stjórnmálamenn telja, að Joszef
I Mindzenty, kardínáli, æðsti yfir-
maður kaþólsku kirkjunnar í
Ungverjalandi, sem dvalizt hefur
sem flóttamaður í bandaríska
sendiráðinu í Búdapest síðan 195G,
muni geta sótt um uppgjöf saka.
Ungversk yfirvöld handtóku
hann 1949 og var hann sakaður
um að hafa reynt að steypa ung
versku stjórninni. Einnig var liann
sakaður um gjaldeyrissmygl. —
Tveim mánuðum síðar var hann
dæmdur í ævilangt fangelsi.
í júlí 1955, tilkynntu yfirvöldin,
að fangelsisdómurinn hefði verið
numinn úr gildi og hann gæti nú
lifað í stofufangelsi. Fjórum dög-
um eftir uppreisnina 1956 slapp
hann úr varðhaldinu. Hann leit-
aði hælis í bandaríska sendiráðinu
þegar uppreisnin hafði verið bæld
niður.
★ Janos Kadar, forsætisráðherra,
sem bar fram tillöguna um lög um
sakaruppgjöf, hélt því fram, að
tími væri kominn til að fjarlægja
öll vandamál, sem tengd eru at-
burðunum 1956. Það eru svo að
segja engin fjandsamleg öfl i Ung
verjalandi. Enn kýs hlutf fólks
ekki frambjóðendur alþýðufylking
arinnar, en það er erfitt markmið
að.sannfæra það um, að stefna okk
ar. er sú rétta, sagði hann.
Kadar sagöi, að staða Ungverja
lands í utnríkismálum hefði baln
að mikið að undanförnu og sam-
búðin við kaþólsku kirkjuna væri
eðlileg. Það er ekki nauðsynlegt
lengur að heyja pólitíska baráttu
gegn kaþólsku kirkjunni, sagði
hann.
Kadar sagði, að þeir, sem trú-
aðir væru, og þeir, sem *nga trú
aðhylltust, væni jafnréttháir. —
;Hann lagði áherzlu á, að samskipti
Ungverja við öll ríki hefðu batnað
og’ væru orðin eðlileg.
★ Stjórnmálamenn telja, að um-
mæli Kadars tákni, að stjórn lians
leggi mikla áherzlu á bætt sam-
skipti við Bandaríkin og Vestur-
Þýzkaland. Einnig telja þeir, að
ungverska stjórnin muni sam-
þykkja, að V.-Þjóðverjar komi á
fót verzlunarmálaskrifstofu í Búda
3. SÍOA