Alþýðublaðið - 24.03.1963, Síða 3
Mannekta hjá útgerðinni:
ALLIR FARA
í IÐNAÐINN
FRETTIR hafa af því borizt, a'ð
fólksekla sé hjá Útgerðarfélagi i
Akureyrar og sé það eitt til bjarg
ar vandræðaástandi, að aflabrögð
togaranna væru í lakara lagi. Al-
þýðublaðið átti í gær tai við And
rés Pétursson, framkvæmdastjóra
og innti hann eftir þvl, hvort
þetta væri satt.
,Auðvaldslygi'
segir Castro
HAVANA, 23. marz. — Fidel
Castro, einræ&isherra á Kúbu,
lýsti því yfir í gærkvöldi, að frétta-
ritari Parísarblaðsins „Le Monde“
liefði aldrei haft blaðaviðtal við
sig. í viðtalinu, sem hér um ræðir
og birtist í „Le Monde“ í vikunni,
kvaðst Castro ósamþykltur Krústj
ov forsætisráðherra varðandi
brottflutning sovézku eldflaug-
anna frá Kúbu.
Castro kveðst hafa hitt franskan
blaðamann í hófi hjá ritstjóra
blaðsins „E1 Revolucion" hinn 1.
janúar s. 1. Hann hefði rætt við
blaðamanninn um allt milli him
ins og jarðar, en t. d. hefði hann
aldrei gagnrýnt ákvörðun Krústj-
ovs í haust um að flytja burtu
eldflaugarnar eða stefnu hans í
Kúbumálinu. Castro segir, að það
sem fréttamaðurinn hafi eftir hon
um sé tilbúningur.
FtOKKURINR
Verkalýð'smálanefnd AI-
þýðuflokksins vekur athygli
á fundinum í dag, 24. marz,
kl. 9,30 f ,h. með þátttakend-
unum í verkalýðsmálanám-
skeiði Alþýðuflokksins í Al-
þýðuhúsinu, uppi.
Andrés sagði, að satt væri, að
mannekla væri hjá útgerðarfélag
inu. Einkum vantaði sjómenn en
einnig fólk til vinnu í landi. Á-
standið hefði fremur versnað en
batnað síðan farið var að landa
á Akureyri, en á milli 1700 og 1800
tonn hafa borizt þar á land frá
fyrstu löndun í janúarlok.
Aðspurður um orsök þessarar
manneklu sagði Andrés, að engu
væri um að kenna nema góðæri
og miklum atvinnumöguleikum í
landi. Iðnaður ykist með ári hverju
á Akureyri og þangað streymdi
fólkið. Um utanbæjarfólk væri
naumast að ræða, það hefði nóga
atvinnu heima fyrir.
Eins og fyrr segir hafa tæp
1800 tonn borizt á land á Akur-
eyri, siðast landaði Sléttbakur þar
í síðustu viku 116 tonnum.
STARFSSVIÐ
• •
Reykjavíkurmót
í badminton
í gær kl. 14,30 hófst Reykja-
víkurmótið í badminton, en það fer
fram í Valshúsinu. — í dag kl.
13,30 verður úrslitakeppni móts-
ins á sama stað.
44 keppendur eru skráðir í 4
greinum íþróttarinnar. Mest er
þátttakan í tvíliðaleik karla, en í
þeirri grein keppa 19 lið og getur
oltið á ýmsu um úrslit. En við
einna harðastri viðureign má bú-
ast í einliðaleik karla, þar sem
keppendur eru 11, og þeirra á
meðal íslandsmeistarinn Jón Áma
son og Reykjavíkurmeistarinn
Óskar Guðmundsson auk annarra
snjallra leikmanna.
MJOG AUKIÐ
AÐALFUNDUR Félags íslcnzkra
náttúrufræðinga var haldinn dag-
ana 26. febrúar og 7. marz. Á þess
um fundi var lögum félagsins
breytt og starfssvið þess mjög auk
ið. Hingað til hefur félagið ein-
ungis starfað sem hagsmunafélag
fyrir þá náttúrufræðinga, sem
vinna við rannsóknastofnanir í
þjónustu ríkisins.
Félagið á nú að vera fræðilegur
vettvangur allra þeirra, sem lokið
hafa háskólaprófi í einhverri
grein náttúruvísinda, og á því að
‘gegna svipuðu hlutverki fyrir nátt
úrufræðinga og Verkfræðingafé-
’ag íslands gegnir fyrir verkfræð-
:nga.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, formaður er Dr. Björn Sig
irbjörnsson, erfðafræðingur.
Meðlimir félagsins eru 50 tals
ins.
Skipstapinn
Framh. af 1. síðu
aður, til þess að nótin sláist ekki
inn í skipið, þegar hún er uppi,
eða þegar henni er kastað. Þegar
svo sjór skellur á skipinu og fyllir
ganginn, er það auðvitað ekki til
bóta, að gangurinn skuli vera lok-
aður, sagði Sighvatur.
Aðspnrður um mennina, sem
fórust með Erlingi 4. sagði Sig-
hvatur, að Guðni, sem var neta-
maður, hefði komið á bátinn með
skipstjóranum í haust, er hann
tók við skipinu. Áður stjóma'ði
sonur Sighvats, Ríkharð, Erlingi
4. í tvö ár. Ásberg skipstjóri
stjóraaði áður Vestmannaeyjabátn
um Emmu, og er að' sögn Sighvats
Bjarnasonar þaulreyndur sjómað-
ur. Samúel Ingvason hafði verið
tvo daga á skipinu, og var þetta
önnur veiðiferðin, sem hann fór.
Aðspurður um það, hvort þessir
menn hefðu ekki verið syndir, —
sagði Sighvatur, að hann byggist
við því, og líklegast væri, að Sam-
úel hefði aldrei vaknað, en allt
bar þetta mjög brátt að, eins og
kunnugt er. Samúel svaf niðri í
lúkarnum, og sást hann ekki eftir
að brotsjórinn reið á skipinu. ,—
Aftur á móti sást til Guðna, en
hann var horfinn, þegar búið var
að opna gúmmíbátinn.
Aðspm-ður um það', hvort þess
væri ekki krafizt, að sjómenn
væru syndir, sagði Sighvatur, aff
svo væri ekki. Sjálfur kvaðst
hann hafa verið skipstjóri í 34
ár, og gæti hann ekki haldið sér
á floti, ef hann dytti útbyrðis eða
1 af bryggjuhaus.
I Sighvatur sagði, að það mættl
telja sérstakt lán, a'ð ekki skyldu
! fleiri farast, þar eð þetta bar svo
j brátt að, og hver sekúnda var dýr-
mæt. Þá riði á því að gera aUt
rétt og hugsa skipulcga, en ekkl
nema einn af hverju þúsundi væri
fær um það undir svona kringum-
stæðum.
Aðspurður um það, hvað yrði
um skipverja á Erlingi 4. sagði
Sighvatur, að ekkert væri farið að
ræða um það. Hann mundi ekki
leggja út í frekar útgerð, a.m.k.
ekki í vetur, — en hann á antn-
an bát á sjó, Erling 3. j
Fann upp handfæravindu
fíeð/ð fyrir bar-
áttu gegn hungri
BISKUPINN yfir íslandi hefur
ritað prestum landsins bréf, þar
sem hann hvetur þá tU að stuðla
með áhrifum sínum og fyrirbgen
að því, að sóknin gegn hungrinu í
heiminum megi bera sem beztan
árangur. Biskup beinir þeim til-
mælum til prestanna, að þeir kynni
þetta mál fvrir söfnuðum sínurn
og geri þaff aff bænarefni við eina
eða fiei.ri guffsþjónustur. Jafn-
framt biðtjr hann þá að vekja at-
hygli fólks á því, að þrátt fyrir
framlag íslenzka ríkisins til Mat-
vælastofnunav S meinuðu þjóff-
anna, væru g.iafrr einstaklinga,
sem af nægtem fcsfa ad taka, mjög
kærkomnar og æskilegar, en kirkja
íslands keninr slíkum gjöfum á-
leiðis til réttra aðila.
„Svo sem kunnugt er, liefur
Matvælastofnun Sameinuðu þjóð-
anna gengizt fyrir skipulagðri sókn
til þess að bæta úr skortinum í
heiminum. Það er staðreynd, að
meira en helmingur jarðarbúa líð-
ur skort, hefur ekki viðurværi,
er nægi til þess að halda heilsu
og kröftum og vantar víða mikið
á, að svo sé. Hér er um mein að
ræða, sem hinum beztu mönnum
þykir einsætt að unnt sé og skylt
að bæta, og tekur það fyrst og
fremst til þeirra þjóða, sem lifa í
allsnægtum."
Svo segir í bréfi biskups til ís-
lenzkra presta. Alkirkjuráðið hef-
ur látið þetta mál til sín taka, fyrr
og síðar, og hefur aðalframkvæmda
stjóri Alkirkjuráðsins með um-
burðarbréfi óskað eftir því, að
prestar og söfnuðir minntust þessa
sérstaklega í boðun og bæn. Jafn-
framt hefur hann sent út sérstaka
bæn, til nota við guðsþjónust.ur,
en bænin er samin af dr. Martin
Niemöller, einum forseta Alkirkju-
ráðsins.
JÓN ÞÓRÐARSON, tæknilegur
framleiðslustjóri á Reykjalundi,
hefur fundiff upp vélknúna hand-
færavindu, sem mun létta miklu
erfiði af þeim sjómönnum, sem
stunda handfæraveiðar, auk þess
sem afköst munu aukast um allt
að helming.
Alþýðublaðið átti í gær tal við
Jón Þórðarson og spurðist fyrir
um vinduna.
Jón sagði, að nú væru komin
hér um bil tvö ár síðan maður
kom að máli við hann og spurði,
hvort hann mundi ekki geta smíð-
að handfæravindu til þess að
létta sjómönnum störf sín. Jón
hófst handa með athuganir í þessu
sambandi, og nú hefur þekktur
skipstjóri, Haraldur Kristjánsson
í Reykjavík, reynt nýju færavind-
una á skipi sinu Kristínu, og er
hann sérlega ánægður með árang-
urinn. Hann hefur og frá því
skýrt, að auðvelt sé fyrir einn
mann að nota tvær vindur í einu.
Vinda Jóns gengur fyrir sjó,
sem dælt er með vissum þrýst-
ingi. Með litilli sveif er línukefl-
ið látið renna færinu út eða
draga það upp, og gefa eftir, þeg-
ar alda hristir bátinn eða þegar
stórfiskur er á. Vindan vegur um
sextán kíló.
Jón hefur fengið viðurkenningu
hjá Fiskimálasjóði íslands fyrir (
uppgötvun sína, og hefur hann nú
í bígerð að framleiða 50-100 vind- j
ur, sem eiga helzt að verða til-
búnar fyrir haustvertíðina. Mar-
inó Pétursson kaupmaður, hefur
tekið að sér sölu á vindunum hér
lendis og erlendis.
Aðspurður um það, hvort hann
hefði gert fleiri merkar uppgötv-
anir, sagði Jón, að hann hefði ver-
ið að grúska í ýmsu. Hann hefði
verið sá fyrsti, sem hóf plastiðn-
að hérlendis og ekki alls fyrir
löngu seldi hann þýzku fyrirtæki
vól, sem vindur upp plaströr og
ýmislegt slíkt úr plasti. Þessi vél
var á vörusýningunni í Hannov-
er, en fyrirtækið, sem keypti
hana, er eitt hið stærsta sinnar
tegundar, — framleiðir steypuvél-
ar fyrir plast.
Jón sagðist einnig hafa undir-
ritað samning um sölu á sérstök-
um einangrunarrörum til Dan-
merkur, en hann á hugmyndina
að gerð þeirra.
Jón Þórðarson er 41 árs að
aldri, nam plastframleiðslu í Eng
landi, en hefur .frá 1953 starfað
sem tæknilegur framleiðslustjóri
á Reykjalundi.
Uppfinningamaðurinn bætti því
við í lok samtalsins, að þótt hann
hefði fundið upp handfæravél —
| væri hann forhertur landkrabbi.
j Hefði satt að segja aldrei á sjó
komið nema á farþegaskip i ferða
lögum.
Jón Þórðarson við færavinduna.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. marz 1963
\ mm æi ■vifiíFi m
l