Alþýðublaðið - 24.03.1963, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.03.1963, Blaðsíða 7
Þetta er hann Ómar Ragnarsson. Myndina tókum við í einu af stúdíóum útvarps ins fyrir skömmu. Ómar kemur fram í þætti Péturs Péturssonar, „Sitt af hverju tagi“, sem hefst klukkan 21,00 í kvöld. -SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLKI Nábúinn: Skilaði ég þér ekki garðsláttuvélinni fyrir mánaðamót- in? Eigandinm Nei þú lézt nú ekki verða af því. Nábúinrt: Ja, hver skrambinn, ég sem ætlaði að fá hana lánaða aft- ur. ★ Viðskiptavinurinn: A þetta að heita te eða kaffi? Það er á bragð ið eins og steinolía. Þjónninn: Þá er það te. Kaffið er á bragðið eins og terpentína. Flórídabúi, að handleika melónu: Eru þetta stærstu eplin, sem þið getið ræktað hér um slóðir? Kaliforníubúi: Gættu þess að vín berið springi ekki. — Mamma, elskarðu mig? — Já auðvitað geri ég það. — Af hverju skilurðu þá ekki'viö pabba og giftist manninum, sen* á sælgætisbúðina á horninu? ★ — Svo Jói karlinn var lífið og sál- in í veizlunni. — Já, hann var sá eini, serr* gat talað hærra en útvarpíð. ★ Tommi: Mamma, hún Duna sýsf- ir híýtur að sjá í myrkri. Mamma: Af hverju heldurðu það? Tommi: í gærkveldi sátu hún og- Bjössi inni í stofu og það var allt slökkt. Svo heyrði ég hana allt í einu segia: Þú hefur ekki rakað þig í dag Bjössi. ALÞÝSUBLAÐiÐ - 24. marz 1963 ^ í VIKUNNI, sem leið bárust fjöldamargar lausnir við sunnu dagsþrautinni. Ekki er hægt að birta nema þrjú sýnishorn að þessu sinni, en síðar munu ef til vill birtast fleiri af þeim lausnum, sem okkur bárust nú í vikunni, því marg ar voru prýðilegar. Bezta lausnin kom frá Arn- ari Bjarnasyni Skólavegi 21, Kefiavík. Hann sendi okkur nokkur orð. Þau beztu voru að okkar dómi, brestur og hús eins og sjá hér að neðan. Hann má vitja 100 krónu verð launanna á afgreiðslu Alþýðu- blaðsins. Ólafur Torfason, Faxaskjóli 22, 11 ár sendi okkur orðið kross, ritað eins og sjá má hér að neðan. Keppnin heldur áfram, af nógu er að taka, merkið lausn - irnar: Alþýðublaðið, Sunnu- dagsþraut. JOZKUR verksmiðjuverkamað- ur átti í nokkru stríði við vinnu- veitanda sinn vegna ákvæðisvinnu uppbótar. Vinnuveitandinn fékk sóknarprestinn á staðnnm til að taia sínu máli við verkamanninn. Presturinn sagði verkamannin- um, að hann skyldi bara vera á- nægður með þau laun, sem hann fengi. — Verksmiðjueigandinn er góður maður, sagði hann, ogf þetta gengur allt saman með guðs hjálp. Næsta dag mætti verkamaður- inn til vinnu með Biblíu undir hendinni. sem Iiann lagði við hlíð vélarinnar, sem hann átti að vinna við. Hann fékk sér síðan sígar- ettu, en hófst ekki annað að. — Hvað á þetta að þýða? spurði verkstjórinn, þegar hann sá tU hans. — Presturinn sagði, að þetta gengi allt með guðs hjálp, svar aði verkamaðurinn. Nú bíð ég bara eftir að véiin fari í gaug. Og það fór hún líka. Verkamaður inn fékk þá launauppbót, sem styrrinn stóð um, og þá drap hann. í sígarettunni og fór aftur að vinna. NÍTJÁN ára gamall piltur í Las Vegas í Bandaríkjunum var ný- lega staðinn að verki við að stela Úr verzlun. Dótnarinn dæmi hann úr verzlun. Dómarinn dæmdi hann iiuij, sem- hann hafði stolið .úr og hafa þar gætur á, að ekki væri neinu stolið. Sunnudagur 24. marz. 8.30 Létt morgunlög. — 9.00 Fréttir. — 9.10 Veðurfregnir. 9.20 Morgunhugleiðing um músik: „Johann Sebastian Bach, líf hants og list“ eftir Nikolas Forkel; III. (Árni Kristjánsson). 9.40 Morguntónleikar: a) Helmut Walcha leikur á orgel tokkötu og fúgu í d-moll og pastorale í F-dúr eftir garh. , b) Pavel Listitsian syngur lög eftir HSndel, Schumann o. fi. c) Frá tónlistarhátíðinni í Besancon í Frakklandi: Píanókonáert nr. 1 í C-dúr op. 15 eftir Beethoven (Wilhelm Kempff og Fílharmoníusveit franska útvarpsins leika; Antal Dorati stjórnar). 11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur: Séra Óskar J. Þorláksson. —» Organleikari: Dr. Páll ísólfsson). 12.15 Hádegisútvarp. 13.05 íslenzk tunga; IV. erindi: Nýgervingar frá síðari.öldum (Dr, Halldór Halldórsson prófessor). 14.00 Miðdegistónleikar: 15.30 Kaffitíminn: — (16.00 Veðurfregnir). 16.40 Ræða á ársþingi Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi 18, febr. s.l. (Dr. Richard Beck forseti félagsins). 17.30 Bamatími (Skeggi Ásbjarnarson): 18.20 Veðurfregnir. 18.30 „Vakna Dísa, vakna þú“: Gömlu lögin sungín og leíkíu. 19.00 Tilkynningar. — 19.30 Eréttir. 20.00 Einsöngur: Joan Sutherland syngur aríu úr óperunni „Ernani1* eftir Verdi. 20.10. Umhverfis jörðina: Guðni Þórðarson virðir fyrir sér fljótin helgu í Indlandi. 20.35 Tónleikar í útvarpssal: Sinfóníuhljómsveit íslands leikur sín - fóníu nr. 100 í G-dúr (Hemaðarhljómkviðuna) eftir Haydn. — Stjórnandi: Jindrich Rohan. 21.00 Sitt af hverju tagi (Pétur Pétursson). 22.00 Fréttir og veðurfr. — 22.10 Danslög. — 23.30 Dagskraiíok, Mánudagur 25. marz (kvölddagskrá). 20.00 Um daginn og veginn (Guðmundur Jósafatsson frá Branös- stöðum). 20.20 Ástardúett úr óperunni ,-Tristan og Iso!de“ eftir Wagner (Frida Leider og Lauritz Melchior syngja). 20.40 Spurningakeppni skólanemenda (10): Hagaskóli og VogaskóLi keppa í þriðju umferð.. Stjórnendur: Árni Bcðvarsson cand. mag. og Margrét Indriðadóttir. 21.30 Útvarpssagan: „íslenzkur aðall" eftir Þórberg Þórðarson; XVI. (Höfundur les). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmar (37). 22.20 Hljómplötusafnið (Gunnar Guðmundsson). 23.10 Skákþáttur (Sveinn Kristinsson). — 23.45 Dagskrárlok. HIN SlÐAN

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.