Baldur - 09.02.1903, Blaðsíða 4
EALDUR, g. FEBUtJAR 1963,
Nyja ísland,
NR eru þeir B. B. Olson og
Sigurjón Jóhannsson komnir heim
aftur úr gripakaupferð sinni. Þeir
hafa farið hina mestu ágætisför, og
(,Baldur“ kann þeim hina beztu
þökk fyrir framkvæmdirnar.
í uppeftir leiðinni komu þeir
við hjá W. S. Lister, sem býr
skammt fyrir norðan Winnipeg.
Ilann hefir stutthyrninga til sölu,
en ekki leizt þeim á gripi hans.
Næst fóru þeir vestur fyrir
Winnipeg, til Walter James, sem
cinnig selur stutthyrninga. Þar
leizt þeim svo á, að þeir mundu
gjarnan hafa viljað kaupa meir en
efni þeirra leyfðu. Þar keyptu þeir
naut, sem heitir ,,Davidson,“
fyrir hönd bændafjelagsins. Það
kostaði $80, og mun hafa verið
mjög ódýrt eftir greðum. Annað
naut keypti Sigurjón þar fyrir
sjálfan sig, ,,Melbourne“ að nafni,
og er það einnig sagt mjög fallegt.
Bæði þessi naut eru komin út af
,,Topsman,“ sem er vel kunnur
meðal allra búfróðra manna í þessu
fylki.
Islendingum kann að koma það
nýstárlega fyrir, að rekja langar
nautaættartölur, en það spillti ekki
neitt búskap þeirra, þótt þeir gæfu
dálítið meiri gaum að kynfcrði
gripa sinna. Það eru okkur meiri
bœndur, sem ekki telja sig upp úr
þvf vaxna.
Auk þessa keypti Sigurjón þar
fullorðna kú með kálfi nýbornum,
og kvfgu, tæplega ársgamla.
Slðast fóru þeir fjelagar að heim-
sœkja Thomas Greenway, eða öllu
heldur son hans, sem nú er tekinn
við búinu. Þar keypti Björn naut
af Ayrshire-tegundinni, sem Green-
way hafði fyrir stuttu keypt aust-
ur f Ontario. En svo kemur nú
bezti bitinn. Hann kemur aldrei
fyr en seinast. Það er Ayrshire-
kýrin MLoyalty,“ sú hin sama,
Sem tók hæstu verðlaunin af þeirri
tegund á Winnipegsýningunni í
sumar. Sú kýr hefir nú iangmest-
an orðstýr af ðllum þesskyns kúm
hjer í fylkinu. Mcð henni keypti
Björn unga kvfgu, sem er undan
,,Loyalty‘ og „Surprise of Burn-
side,“ nauti því, sem Greenway
hefir fengið flest verðlaunin fyrir
um mörg undanfarin ár. Amma
þessarar litlu kvígu er kýrin, sem
tók hæstu verðlaun af öllum kúm,
sem sýndar voru á Chicago-sýn-
ingunni árið 1893. Greenway
gamli hefir ekki kynnt sig að þvf,
að velja skepnur sínar af verri
endanum.
Það er ekkert efunarmál, að slík-
ur nautpeningsstofn hefir aldrei
komið f höndur Islendinga, eins og
þessi hópur, sem þeir fjelagar hafa
nú flutt hingað að Gimli. Þeir
hafa komið sjer saman um að leggja
fyrir sig sína tegundina hvor, og er
það ágætlega til fallið.
Good-Templarstúkan ,,Vonin“
hjer í bœnum hafði opinn fund 3.
þ. mán., aðallega f því skyni að
fagna Wm. Anderson, stórtempl-
ara reglunnar f Manitoba, sem þá
var staddur hjer á leið til heimilis
síns f Winnipeg. — Mr Wm. An-
derson flutti langa, snjalla og fróð-
lega ræðu um bindindismálefni,
sem ávallt ryður sjer meir og meir
til rúms f meðvitund þjóðanna.
Ýmsir aðrir fluttu og snotrar
tölur og skemmtilegar.
Til flskimanna.
Mr. Young, Inspector of Fishe-
ries, hefir tilkynnt mjer eftirfylgj-
andi breytingar á fiskiveiðaregj-
unum :
,,Framvegis, að þvf er sncrtir
heimilisleyfi, þá verða þau tvenns
konar, og verða þau kölluð vetrar-
og sumar-leyfi.
Þegar maður tekur fiskileyfi og
ætlar að byrja að fiska fyrsta de-
sember, þá verður það leyfi f gildi
til 31. marz næstkomandi.
Allir sem fiska á auðu vatni,
verða að kaupa sumar-fiskileyfi.
Undir því leyfi má maðuripn hafa
að eins 300 yards, en vetrarleyfið
verður eins og að undanförnu 500
yards.
Öll fiskileyfi, sem veitt voru á
árinu 1902, hafa verið framlengd
til 31. marz 1903“.
JóIIANNES MAGNÓSSON,
Fishery Officer.
Enginn er eins góður og hann
heldur sig vera, enginn eins illur
og aðrir halda hann vera.
B. B. OLSON,
samningaritari
°g
innköllunarmaður.
Gimli, Man.
Hinar heimsfrægu S I N G E R
jaumavjelar, selur G. SöLVASON,
West Selkirk, Man., sömuleiðis
nálar og olfu fyrir allar tegundir af
saumamaskfnum. Pantanir af-
greiddar fljótt og skilvíslega. 3-a
í^Z^Z;.SS»2Sfe
m
m
m
m
m
GREAT WEST
M lífsábyrgðarfjelagið
heíir nú í veltu eftir tíu ára starfsemi
815,000,000.00
5 Árstekjur fjelagsins af þessum ábyrgð-
um eru yfir
$500,000.00
w
m
m
m
m
m
m
w
w
Slíkan viðgang hefir ekkert lífs-
ábyrgðarfjelag nokkurn tíma haft.
Winnipeg, 1. jan. 1903.
W
w
w
w
w
w
W
W
W
w
w
w
W
W
w
w
W
GLEDIEFNI.
Glcðiefni er það sannarlega fyrir Ný-íslendinga, að vcra búnir
að eignast nýtt sveitarblað, og að það skuli færa þeim þann gleðiboð-
skap að G, P. M a g n ú s s op á Gimli, verzli með fslenzkar bœkur af
öllum tegundum. Svo sem: ljóðmæli, fyrirlcstra, sögur, söng
bœkur, dagblöð og fl, Q, fl.
Nýkomnar bœkur í bókaverzlun mfna, eru :
Axel f skrautbandi $0,40
Robinson Krúsóe, þýtt hefir Stgr. Thorsteinsson . 0,50
Litli Barnavinurinn eftir Jón Ólafsson ......
Nýja stafrófskverið eftir sama ,,.......... .
Stgr. Thorsteinssonar ljóðmæli, skrautbundin
Almanak Ól. S. Thorgeirssonar um árið 1903
Útilegumannasögur Jóns Árnasonar ............
Islands Kultur, með myndum ,11 • * ........ .
Ljóðmæli Gests Pálssonar ...................
Ljóðmæli sjera Matthfasar, 1, bindi, bæði í kápu og skraut.
bandi, verða væntanlega til í bókaverzlun minni í n*stu viku og svo
framvegis. .— Pantanir með pósti eru skilvfslega afgreiddar undir
eins, ef fullnaðarborgun fylgir pöntuninni.
Þeir, sem ekki nú þegar hafa fengið bókalista minn, ættu að
skrifa eftir honum scm allrafyrst.
Gimli, IQ, jan. 1903.
G. P, MagniJsson,
0,25
0,25
L5°
0,25
0,60
1,20
1,25