Baldur - 11.05.1903, Page 1
I. ÁR.
BALDUR.
GIMLI, MANITOBA, n. MAÍ 1903.
Nr. 18.
Um jurtagróður.
„Vordagar blíðir, unga
ár, ilmsœti blær,“ er það
scm skáldin kveða máske melra um,
en nokkuð annað f jþe-ssum heimi,
og það sýnir okkur að einmitt til-
finningarrfkustu mennirnir cru svo
heillaðir að hjarta náttíirunnar, að
e'kkert annað bœtir eins bfil þeirra.
Bóndinn aftur á móti örmagnast
svo af stritinu mitt á meðal þess,
sem veriildin hefir fegurst Sram að
bjóða, að hann fer allajafna á mis
við þá svölun sem jurtagróðurinn
sjerí lagi lætur þeim miinnum f tje,
sem minna hafa sarnan við hann
að sælda heldur en bóndinn. Að
nokkru leyti sprettur þetta samt af
þckkingarskorti fjöldans, og þótt
á honum vcrði aldrei ráðnar fullar
bœtur, getur hver, sem .vill, mikið
bœtt úr því sjálfur. í þá átt má
finna fagra bcndingu f einu crindi
eftir Tennyson, sem að efninu til
pr citthvað á þcssa leið :
Blóm f tóftarbroti,
•jeg reiti þig úr rftstunum,
rót og stöngul, bJiið og allt,
og aJlt og allt,
i,itla blóm, sc.m hönd mín hcldur,
hcfði’eg skyn TH- FUbLS á þjer,
vissi’eg glöggt hvað guð minn cr,
og hvað jeg er.
T i 1 f u 11 s berum við að lfk-
indum aldreí skyn á eitt einasta
smáblóm, en eigi að síður getur sú
þekking, sem mannsandinn megn-
ar að afla sjer, aldrei orðið lítils
virði fyrir neinn þann, sem úr
vöggunni vex. Smærsta grasið,
sem vjer göngum á, fœðist, drekk-
ur, matast, meltir, sefur, œxlast
og lfður undir lok, eins sannarlcga
og við sjálfir. Það erfiðar meðan
œfin varir sjálfu sjcr til viðhalds,
og til þess að halda hreinu iofti því,
sem dýrin anda ; og þegar lffinu
er lokið, veitir það ýmist fjenaðin-
um fóður eða gróðursæld hinu
komandi kyni. Vjer skulum reyna
að skyggnast Jítið citt inn í Jífskjöjr
þess, og byrja þcgar frceið fellur f
jörðina.
Meðan moldin er þur og kfild,
liggur frœið, sem dauður hlutur,
eins og maður undir martröð ; en
þegar rakinn vex og vorgeislarnir
gægjast niður f völlinn, vaknar
unginn í frœinu. Þá byrjast inn-
vortis hrcifing hans, scm við skilj-
um jafn lftið f eins og upphafi
sjálfra vor, og jafnskjótt tekur hin
óaflátanicga starfsemi, sem er alls-
herjar einkenni lífsins, að ásælast
hvcrja ögnina á fœtur annari úr
þeim fóðurhjúp, sem unginn er
sveipaður f frá hendi foreldra sinna.
Ennþá er engin rótin niður í |
moldina, engin blöðin upp f loftið,
en fóðrið hvorutveggju til myndun-
ar, er arfur frá foreldrinu, eftir |
skilinn f hinum svo kölluðu frœ- !
blöðum, cr unginn er f svcipaður í!
froekorninu, sem oft er þó sjálft j
með öllu saman eigi stœrra en svo,!
að það naumast verður fingrað. í j
þessum litla nestispoka er, í óað- !
greinanlegu sambandi, geymd sfti,
ögnín af hverju, sikri, stfvelsi og !
fitu, og 4. ögnin af einhverju hinna ;
Umkenndu efna sem finnast í hvítu 1
eggsins, Ifmi kornsins, trefjum j
blóðsins eða osti mjólkurinnar. j
Þessum cfnum samansafnaði næsta
kynslóðin á undan í frœið, og þeg-
ar þau eru upp eydd, er bernsku- j
aldri hinnar ungu jurtar Iokið, rót
hennar og blöð eru mynduð, og j
hún verður að fara að standa straum i
af sjer sjálf.
011 þau efni, sem þessi ungajurt
er framleidd af, voru partar af efn-
um forcldranna, og sjálf tekur hún
þegar til, að leita sjer viðbótar af
samskyns cfnum f sama mælir, til
endurreisnar hinni sömu tegund,
og til þcss verður hún að nota limi
sína, engu sfður en maðurinn heila
sinn og hendur. Til þess að mynd-
ast þurfti hún sama, sem maður-
inn og önnur dýr lifa á. En þegar
hjer er komið sögunni, skilur mcð
þeim. Að mcstu leyti lifa dýrin j
alla sfna œfi á þvf, sem áður hcfir
verið lifandi, en jurtin lifir einung- j
is á þvf, sem annaðhvort hefir j
aldrei lifað cða cr aftur sundurlcyst
f sín fyrstu frumefni.
* |
Við sjáum strax að jurtir hljóta
þá að vera samsettaraf þcim frum- j
efnum, sem finnast f vatni, lofti og
hinum cfstu lögum jarðarinnar, og
eru þau efni ýmist algjörlega sam- j
sett eða cinungis samblönduð.
Vatnið er t. a. m. samsctt af þcim
frumefnum sem nefnd eru súrefni
og vatnsefni og vcrður þeim ckki:
sundrað, ncma með þvf að vatnið !
hætti að vera til, og efni þess j
renni saman við önnur efni ogj
myndi allt aðra hluti. Aftur er salt,
oft samblandað vatni og má skilja
hvort frá öðru án þcss að brcyta
eðli þeirra hið minnsta, og á þann
hátt verða <">11 efni, sem jurtirnar
nœrast á úr jörðinni að leysast upp j
f vatni, áður en rœturnargcta veitt ,
þeim móttöku. Hreint andrúms- j
loft er saman sctt af súrcfni 02
;
hinu svo nefnda köfnunarefni, en ;
saman við það er allajafna blandað
meira og minna af þeim efnum,
sem rjúka, og eru þannig f því á-
standi að geta átt samstöðu við það.
Hið þýðingarmcsta efn:, sem til er
fyrir jurtirnar, er einmitt eitt afi
þeim efnum, sem þannig eru!
blönduð saman við sjálft loftið, það i
er kolsýruloftið, sem dýrin geta j
ckki lifað án þess að losna við, en j
jurtirnar ekki lifað án þess að draga
að sjer. Til þcss að glcyma sfður
þessari merkilegu lofttegund, er
hœfilcgt að gjöra sjer grein fyrir
af hverju hún er mynduð. Svert- j
an, sem kemur á undirskál, sem
hvolft er yfir kertaljós, er næstum
hreint kolefni; og hvað eina, sem
notað er til eldsneytis í veröldinni,
hefir talsvert al þessu efni f sjer
fólgið. Þegar þetta efni, scm svo
mikið er af f allri fitu, mætir súr-
efni loftsins við vægan hita, eins
og í lungum dýranna, þá hefir það
að sönnu mátt til þess að ná súr-
efninu frá köfnunarefninu í sam-
band við sig, en hitaframleiðslan
verður svo væg að hún hlýjar að
eins blóðið mátulega í hverjum
andardrætti; en sje logan<Ji spfta
borin að góðu cldsneyti og stöðug-
um loftstraumi hleypt þar að, þá
hleypa hin ósýnilegu tilþrif^öllu í
sýnilegt bál, cn í hvorutveggja
skiftið myndast kolsýruloft af súr-
efni andrúmsloftsins og kolefni
dýrsins eða júrtarinnar, sem fyrir
brunanum verðuf, annaðhvort með
hœgu eða hröðu móti.
(Framh.)
cl^:.THE^o
BÍSSSÍ®*
rOR TWCNTY YEARS IN THE LEAO
Automatic take-up; self-setting needle; self-
threading shuttle; ántomatic bobbin winder;
quick-tension release; all-steel nickeled attach-
ments. Patknted Bala-bkaring Stand.
c •UPCRIOR TO ALL OTHERS
Handsomest, easlest runnlng, most notseloss,
most durable. ....Aak your dealer for th«
sunerlority.
If Interested send for book about Eldrldga
•‘B.” We will mail ít promptly.
Wholeaaie Distributors: t
Merrick, Anderson & Co., Wimiipeg.
Fáir eru þeir lestir sem fylgja
góðgirninni, en færri eru þó þær
dyggðir scm f> lgja sfngirninni.