Baldur - 11.05.1903, Síða 4
4
iui.dur, u. maí 1903.
Markverdasti demantur í
heiminum er Koh-i-Noor, sem Al-
cxandra drottning bar í kbrónu
sinni síðastliðið sumar cr hún var
krýnd.
Enginn veit hvar steinn þessi
hcfir fundist, cn hann er ævagam-
all og óvanalega stór. Uppruna-
lcga viktaði hann 787 karöt ogvar
í laginu sem egg, 2}/? þuml. á
!engd og 1 Rí á breidd, En þegar
hann kom tii Englands vigtaði
hann 181 karat, og þegar búið var
að fægja hann að eins 106 karöt
Sagan segir, að þegar Koh-i-
Noor var í kórónu Schah Jahan
Indverjakeisara, hafi hann verið
fiatur annars vegar og vigtað 279
karöt. Af þessari gerð cru engir
demantar, og var því álitið að hann
hcfði vcrið skorinn sundur, scm og
studdist við það atvik, að annar
dcmantur af sömu stœrð og gerð
fannst sem auga í goðlikneski í
IIindúamusteri nokkru, þó enginn
vissi hver hefði látið hann þar.
• Hann fjekk samt ekki lengi að
vera þar. írskur gárungi nokkur,
var einhverju sir>ni staddur f veit-
ingahúsi í Lundúnum, og strengdi
þess heit þá og þar, að hann skyldi
sjá keisara Indverja f hásæti sfnu,
að hann skildi rfða ffl, og að hann
skyldi haida á stœrsta dcmanti
Jieimsins í hendi sjer.
Skömmu síðar fór hann á stað
til að uppfylla hcitstrengingar sfn-
ar. Umkringdur af hcettum og
klæddur sem prestur tpkst honum
að komast inn í musterið og stela
demantinum, Hinar heitstrenging-
arnar tókst honpm einnig að leysa
af hendi. Eftir margar lífshættur,
ofsóknir af hendi Indverja, matar
Og klæðnaðar skort, tókst honum
loks að komast ofan að sjávar-
ströndinni og pm borð f skip, sem
flutti hann til Rússlands, Þcgar
þangað kom, sddi hann Orlow
greifa demantinn, sem seinna seldi
Katrfnu II. keisarainnu hann fyrir
450.000 rúblur og 4000 rúbla ár-
Jegt iífstíðarmeðlag, Seinna var
steinninn fægður og prýðir nú
yeldisspfru Rússakeisara, Hann er
195 karöt að þyngd,
# #
í ævagömlum indverskum kvæð-
um er getið um Koh-i-Noor, hjer
tim bil 1500 árum fyrir Krists fœð-
jngu. Svo er ekki um hann getið
fyr en árið 1304 eftir Kr., þá er
hannícigu keisara Alla-ud-din yfir
Dehli. 1526 er hann í eigu Mogu-
lerkhanen Humagan og eftir það
er hann 200 ár í eigu Indverja-
keisaranna.
Persakonungurinn Nadir Schah
frjetti um demantinn, herjaði á
Indverja, vann sigur og náði de-
mantinum. AUs er talið að hann
hafi þá flutt burt frá Indum um
1400 milljóna virði f gulli og ger-
semum.
Eftir að Nadir Schah var drep-
inn, komst steinninn f cigu sonar-
sonar hans, Schah Rukh. Skömmu
sfðar var hann tekinn herfangi, en
þáhjálpaði Ahmed Schah, konung-
ur Afganista, honum og fjekk stein-
inn í staðinn.
í Afganistan urðu blóðugir bar-
dagar um steininn, milli Ahmed
Schah og brœðra hans. Ahmed
bcið ósigur og varð að flýja, en
hann náðist, augun voru stungin
út úr höfði hans og hann seinast
drepinn. Allt vcgna stcinsins.
Yngsti bróðirinn, Shugah, fjekk
nú steininn, en hann varð cnn þá
ógæfusamari en bróðir hans. Stein-
inn hafði hann orðið að fá í hendur
Singh konungi í Punjab.
Þegar Singh iá banaleguna,
skipaði hann að fara með steininn
til musteris nokkurs langt í burtu,
Hann hefir [fklegs heyrtum Hind-
úaálögin, er hitta skyldu hyern
þann er ætti steininn, sem rændur
var frá gömiu Hindúakonungsætt-
inni Vikranaditya. En drottning
Singha var ekki á sömu skoðun,
hún vildi geyma stgininn handa
syni sfnum Dhuleep Singh, en um
þessar mundir lenti Punjab í strfði
við Englendinga og mátti miður,
Þannig komst steinninn cftir 3000
ára baráttu um hann í eigu Eng-
lendinga,
Merkilcgí úf það, að stœrsti de-
mantui heimsins, gem indverskar
sagnir segja um, að sá sem eigi
hann, ráði yfir Indlandi, en verði
jafnfrarpt fyrir mörgum óhöppum,
skyldi Jenda í höndum hinna
stœrstu keppinauta um heimsyfir-
ráðin, Englepdinga og Rúss^,
B. B. OLSON, |
sainníngaritarj
og (
innköllunarmaður, «
•
GIMLI, MANITOBA. |
—--— -
MlKIL AUDÆFI. í stóru, dimmu
herbergi f Júlfusturninum á vfg-
girðingunni Spandau hjá Berlfn,
eru geymd 120.000.000 marka
(30 miljónir dollara) í gulli. Her-
fcergisvcggirnir eru 6 feta þykkir.
Peningar þessir hafa verið geymd-
'r þarna sfðan 11. nóvember 1871,
og eiga að eins að brúkast ef ófrið
ber að höndum. Ef þessi mikla
upphæð hefði vcrið f veltu öll þessi
ár, myndi hún hafa þrefaldast eða
meira. Það eru að eins 10 og 20
marka gulipeningar er fjárupphæð
þessi samanstendur af.
A úthlið turnsins er ómögulegt
að sjá hvar peningar þessir muni
gcymdir, Varðmenn eru dag og
nótt í kringum turninn, og kvíilds
og morgna skoðar stórvirkjafrœð-
ingur veggina utan og innan, hátt
og lágt.
Einusinni á ári skoða tveir menn
frá fjármáladeild stjórnarinnar
veggina mjög nákvæmlega.
Herman Pachnicke, rfkisþings-
maður, taldi sfðast peninga þessa
ásamt einum embættismanni. Þcg-
ar þcir komu að turninum, tcku
þar á móti þeim liðsforingjar og
hermenn. Einn liðsforingjanna
hafði fjarska stóra lykla. Fyrst
var gcngið ofan í ncðsta kjallar-
ann, þaðan upp snúningsstiga
þangað til komið var að þykkri
járnhurð. Hún var opnuð með
tvcimur lyklum, fyrir innan þessa
hurð yar niðamyrkur, en menn
þreifuðu sig áfram að annari hurð,
sem einn liðsforingjanna opnaði og
lokaði aftur undir eins og allir voru
komnir inn. Nú var kveikt ljós og
haldið áfram að þriðju hurðinni,
scm var langstcrkust, fyrir innan
h^na er gullið geymt f 1200 kist-
um, sem hver hcfir að gcyma 100
þúsund mörk.
I'yrst athugaði Pachnicke hvort
öll innsiglin fyrir kistunum væri ó-
hreifð, og að þvf búnu voru nokkr-
ar kistur vigtaðar, þær áttu að vega
87 pund hvpr, svo voru aðrar kist-
ur teknar og opnaðar, í þeim láu
peningarnir í þykkum pokum ir>eð
innsigli fyrir, frá fáeinum pokum
voru innsiglin brotin, ppningunum
hellt úr, þeir taldir, látnir f pokann
aftur, hann innsiglaður og látinn á
sama stað, og eins gengið frá öllu
og var. Að telja alla þessa pen-
inga þyrfti marga mánuði til og
það dettur cngam f hug að eyða
tfma til þess. .
Peningar þessircru nokkur hluti
þess fjár er Frakkar urðu að gjalda
Þjóðverjum fyrir herkostnað í sfð-
asta strfði þeirra.
í siðast liðin 30 ár hefir svo
margt breyzt, að peningar þessir
myndu að eins duga nokkra daga,
ef til strfðs kæmi milli Þjóðverja
og einhvers stórveldis, Fyrir þvf
er þjóðin óánægð að láta pcningana
vera þarna ónotaða, og missa 4 til
5 milljónir marka f rentu eingöngu
á ári hverju. Það er önnur fjár-
málaskoðun nú en fyrir 30 árum,
Þjóðverjar eru það eina stórvcldi
scm á peninga þannig geymda.
Empire,
Þetta er mynd af Empire,
skilvindunni, sem
GUNNAR SVEINSSON
hefir nú til sölu. Um hana þarf
ekkert að fjölyrða. Hún mælir
bezt mcð sjer sjálf.
R. A. BONNAR. T. L. HARTLEV.
Bonnar & Hartley,
Barristers, Ete.
F.O. Box 223,
WINNIPEG, MAN.
Mr. Bonnar er hinn lang-
snjaUasti málafærslumaður, sem
nú er í þessu fylki.