Baldur - 01.06.1903, Page 2
2
*>
BALDUR
ergefinn útáGIMLI, MANITOBA.
Kemur út einu sinni i viku.
Kostar $i um árið.
Borgist fyrirfram.
Útgefendur:
Nokkrir Ný-Íslendingar.
Ráðsmaður: G. THORSTEINSSON.
Prentari: JóHANNES VlGFtJSSON.
Utanáskrift til blaðsins :
BALDUR,
Gimli, Man.
Vet ð á 8máum aug'ýsingum er 25 eents
fyrir þumlung tiálkslengdar. Afsiáttur er
gefinn á stferri auglýsingum, sem birtast í
blaðinu yfir lengri tíma. V.ðvikjandi
siíkum afshetti, og öðrum f jármátum bleðs
ins, eru menn bcðnir að snúa sjer að láðs-
manniuum.
MÁNUDAGINN, I. jtfNí I9O3.
Hrukkur.
„Yfirvíildin illa diinsk
á annari hvorri Jþúfu“.
Sumir ritstjórar rita á þann hátt
í blöð sín, að lesendurnir mættu
ætla, að hvergi væri til blettur nje
hrukka á mannfjelaginu, allra sfzt
hjer í Ameríku, eða þar sem dýrð
hinnar cnslcu menningar nær til.
Teir sem ekki geta húrrað í sífellu
fyrir frelsinu og velsældinni eru
úthrópaðir sem fól eða flón. í þetta
skifti (og kannske oftar) ætlar
Báldur að benda á fáeinar hrukkur.
Það væri gott að einhver vildi
taka sig til og sljetta jafnótt úr
þeim, cf þær eru ekki virkilegri cn
svo, að þær geti hjaðnað undan
vanalegu blaðamannaglamri. Það
sannarlega virðist svo sem mann-
fjelagsástandið bæði hjer f Ame-
rfku og annarsstaðar þurfi umbóta
við. Frjettir úr öllum áttum sýna
greinilega, að eitthvað er að. Ef
undirförult, skynheilagt og einok-
andi stjórnarfar og kennimáti er
ekki í sökinni, hvað cr það þá?
* *
*
Verkfall á Canadian Pacific
járnbrautinni. — Verkfall á Nor-
thern Pacific járnbrautinni. —
Verkfall á Southern Pacific járn-
BALDUR, 1.
brautinni. — Verkfall á Ohio járn-
brautinni. — Vcrkfall á uppskip-
unarbryggjunum í Valparaiso.—
Verkfall f skipakvíunum í Jeffcr-
sonville. — Verkfall meðal vika-
drengja í Mihvaukee.—146 þvotta-
húsum hefir nýlega verið lokað í
Bandarfkjunum sakir verkfalla. —
Ekki ein einasta fatakista fæst
nú smfðuð í öllum þeim verk-
stofum í Chicago, sem þá at-
vinnu hafa stundað, sakir verk-
falls. — Mörg hundruð manna, sem
vinna í kælihúsum f Chicago, allir
f verkfalli.—Sjöþúsund akuryrkju-
vjelasmiðir f Bandaríkjunum í
verkfalli. — Sjö þúsund húsabygg-
ingamenn í verkfalli f Philadelphia.
—Verkfall f Pittsburg meðal bygg-
ingameistara, trjesmiða, múrara,
steinhöggvara, plastrara, vjela-
siniða, katlasmiða, og fleiri þúsund j
manna í öðrum atvinnugreinum.— j
í Baltimora sitja flest vinnubrögð
alveg föst. — í Boston hefir allur
þorri verkamanna gjört kröfur um
lífvænlegt kaupgjald fyrir vinnu
sfna. — Og í New York cr verk-
fall meðal fimmtfu þúsunda dag-
launamanna, sem ganga í prósessí-
um um giiturnar. — Auk alls þcssa
hefir einungis trjesmiðafjelagið
(Carpenters Union) yfirstandandi
vcrkföll f 350 borgum vfðsvegar
um landið.—Sagt er að vissar auð-
mannaklikkur f Wall Strcet hafi
vfða komið þcssum verkföllum af
stað f þvf skyni, að geta haft hag
af öllu þvf felmtri, sem slœgi yfir
þjóðina við þessi ógurlegu umbrot.
Nokkrir prestar, sem sátu f|
gjörðarnefnd f Chicago, ákváðu
37/4 cent um tfmann fyrir gufu-
vjelasmíði, en skömtuðu mönnun-
um um leið 12 tfma vinnu á dag.
Smiðimir voru ásáttir með kaupið,
en vildu ekki nema 8 tfma vinnu
svo sem flestirstjettarbræður þeirra
kæmust að vinnunni. Loksins
gjörðu þeir það að fundarályktun,
að 37^2 cent um tfmann væri hæfi-
lcg borgun handa prestunum fyrir
starfa sinn, en þeim voru samt
borgaðir $1000 fyrir verk sitt f
ncfndinni! Það hcfði átt að lofa
þeim að reyna 12 tíma smíðavinnu
í fáein ár svo þeir lærðu að mcta
skiftin.
Um þvert og endilangt landið
eru nú verkgefendafjelög óðum að
myndast til þess að halda vinnu-
JÖNÍ 1903.
lýðnum í skefjum. — Bankastjórar
f Texas hjeldu fjölmennan fu íd um
daginn til þess, að útreikna það
hvernig peningaverzlanir gætu
komist yfir meiri pcninga. — Eng-
landi hefir nýlega heppnast, að
| drcpa nokkrar þúsundir negra f Af-
! ríku, og um leið komist yfir 100.
OOO ferhyrningsmflur af Iandi, svo
að ríkir Englendingar gætu orðið
ríkari. — Sjö þúsund Gyðingar
hafa verið drepnir f einni borg á
Rússlandi, og fáein hundruð í ann-
ari borg. Þjóðkyrkjuprestarnir
stóðu fyrir þessari atorkuscmi.
Þeir eiga ekki erfitt með að veita
j hver öðrum fyrirgefninguna; það
vill til.
Vændiskvennabúr eru orðin
mjög þýðingarmikil gróðafyrirtœki
f Bandaríkjunum. Dr. Webber,
sem skrifar um þetta í Seattle
Times, segir að hin árlega umsetn-
ing sje 60.000 stúlkur. ÍWashing-
tonríkinu einungis eru árlega flutt-
ar inn 500 japanskar stúlkur, og
má nærri geta, að margar þeirra
eru ginntar af ættjörð sinni með
svikum og undirferli. Ef cngin
renta fengist af þeim höfuðstól,
scm f þctta er lagður, þá er engin
hœtta á að þessi nýja þrækverzlun
hjeldist við. Verzlunarlífið engil-
saxneska skapar nú ekki merki-
legra mannfjelagsástand heldur en
þetta. Það ber f sjer frækorn þcss-
arar andstyggilegu uppskcru.
Þetta gjörist í þjóðfjelaginu, sem
nencmr á undan öllum öðrum með
o o
það, að flytja Japanftum og öðrum
heiðingjum þann glcðiboðskap, að
við sjcum öll saman elskulegir
brœðir og systur í drottni. Hvf-
líkt guðlast! Hvað skyldi fjcsýki
auðvaldsins meðal hinna „mennt-
uðu“ þjóða þurfa að ganga langt
til þess, að andlega blindir fengju
sýn. Þegar að ungar meyjar eru
orðnar að verzlunarvarningi, þá
stendur sannlega svívirðing eyði-
leggingarinnar á helgum stað.
Hvernig skyldi suraum ungum,
fögrum, og siðferðisgóðum ríkis-
mannadœtrum f Bandarfkjunum
lítast á fjáröflun elskhuga sinna og
feðra sinna? Þær ganga skrúðbún-
ar með unnustum sfnum í skólum,
leikhúsum, og Iystigörðum hinnar
frjálsustu þjóðar í heimi, en japönsk
jafnaldra þeirra borgar kostnaðinn
af hinum viðbjóðslcgu tekjum sín-
um. Hefðarmeyjarnar amcrfkönsku
trúa því máske heitt og fölskvalaust
að allar stúlkur sje systur fyrir guði,
en f hverju kemur það fram að þær
sjc systur fyrir mönnum ? Og hvað
gjörir kvennfólkið almennt til þess,
að fáþáfögru og kærleiksríku kenn-
ingu viðurkennda ?
Socialismus er stundum sakaður
um það, að hann vinni að þvf að
spilla heimilislffi og skfrlffi. Heyr
á endemi Það er Capitalismus, —
ástandið sem veitir iðjuleysingjun-
um tekjur af öllum hi'ifuðstól, að
hvaða svfvirðingu sem hann miðar,
—sem gjörir svona framferði mögu-
legt milli fjarlægra þjóða. Þegar
Capitalistarnir fara að ákæra Só-
sfalistana, er líkt á komið eins og
þegar cinn þjófurinn bendir lög-
reglunni á annan þjóf á mcðan hann
er að 'draga athygli frá sjálfum sjer.
Svona myndir cru nú til f þessu
frjálsa landi, hjá hinum ,,fræga“
engil-saxncska þjóðbálki, með hinni
miklu „menntun" og hinu „dýrð-
Iega“ stjórnarfari.
Nú brýt jeg f blað,
jcg býst við að hrukkurnar
cigi sjer stað.
Má nefna annað eins ójafnað ?
Eða hvað ?
Kannskc þjer finnist að
ekkcrt sje að ?
Er það ?
WINNIPEG
BUSINESS
COLLEGE.
Port. Ave. WINNIPEG.
NORTH END BRANCH.
Á MÓTI C. P. R. VAGNSTÖDINNI.
Sjerstakur gaumur gefinn að upp-
frœðslu f cnska málinu.
Upplýsingar fást hjá
B. B. Olson, Gimli.
Gr. W. Donald, sec.
WTNNIPEG.
MAMMAN: „Hvort þykir þjer
vænna um mig eða babba, Pjetur
minn ?“
PjETUR: „Gettu nú“.
MAMMAN : ,,Jeg hcld þjer þyki
vænna um mig“.
PjETUR: „Gcttu einusinni cnn“.