Baldur - 10.08.1903, Síða 4
4
BÁLÖUR, ÍO. ÁGtí.ST 19Ö3;
Nyja Island.
íslcndingadagur var haldinn há-
tfðlegur á Hnausum hinn 2. þ. m.
í þetta skifti getur Baldur ekki
flutt neinar frjettir af því hátfða-
haldi, en gjörir það væntanlega
síðar.
Það er sagt, að nú sje búið að
veita vínsöluleyfið hjer á Gimli.
Svona er ’rjettvfsinni' stjörn-
að- hjer í Manitoba. Löggjöf sú,
sem farið er eftir í þessu efni, var
samin af conservatívflokknum, svo
að hún er bæði brugguð og brúkuð
af sömu mönnum.
Hvernig skyldi þessu máli hafa
reitt af, ef líberalflokkurinn hefði
haft það í sfnum höndum ? Getur
nokkur maður sagt um það ?
Talsvert hefirveriðum innflutn-
ing frá Islandi hingað til nýlend-
unnar í sumar. Sumt af því fólki
hefir átt við nokkur veikindi að
stríða, en ckki er það mikið í sam-
anburði við það, sem hcfir átt sjer
stað í Winnipeg. Eitt nýkomið
barn er dáið hjer fyrir skemmstu,
en í Winnipeg kveður svo mikið
að barnadauða meðal nýkomins
fólks,. að blöðunum þar virðist
stfinda stuggur af, að minnast á
þáð allt saman. Það er í þessu
eins ogöðru, spursmál hvort nokk-
urt blað gæti afborið það, að segja
allan sannleikann í því, sem gæti
verið landinu hjer eða loftslagi
þcss til lftilsvirðingar.
Fyrir bœtur þær, sem nú eru
orðnar á samgöngufærunum hjer,
getur nú fóik úr suðurhluta þessar-
ar sveitar komist til Selkirk og
Winnipeg og heim aftur sama
daginn. Ferðalög hafa þvf stórum
aukist hjer f sumar, og fjöldi fólks
hefir farið hjeðan á iðnaðarsýning-
una og hina íslenzku þjóðhátíð.
Nokkrir Ný-íslendingar, sem
fóru á únftariska kyrkjnþingið í
Winnipeg, eru nú komnir heim
aftur. Þeir segja að þingið hafi
varað frá 30. júlítil 3. ágúst. Þess-
irmenn voru kosnirí stjórnarnefnd
kyrkjufjelagsins fyrir yfirstandandi
ár: Sjera Magnús J. Skaftason,
forseti; Skafti B, Brynjólfsson,
varaforseti; Einar Óiafsson, út-
breiðslustjóri ; Þorvaldur Þorvalds-
son, skrifari ; Guðinundur Árna-
son, váraskrifari; Friðrik Sveins-
son, fjehirðir ; og auk þeirra Sig-
urður Sigurbjörnsson, Pjetur
Bjarnason, og Sveinbjörn Guð-
mundsson.
Rev. Fred V. Hawlcy, skrifari
þeirrar deildar únftarafjelagsins,
sem hefir aðalstöðvar sínar í Chi-
cago, var staddur á þcssu þingi.
Hann tók sjerstaklega þátt í þeirri
messugjörð, sem fram fór 2. ágúst,
þar sem forseti kyrkjufjelagsins
setti þá Rögnvald Pjetursson og
Jóhann Pjetur Sólmundsson inn í
embætti sfn sem flutningsmenn
únftariskra trúarbragða f Wánni-
peg og á Gimli. Auk prestanna,
tóku þessir menn þátt í þeirri at-
höfn : Þorsteinn S. Borgfjörð, for-
seti Winnipcgsafnaðarins ; Stefán
Guttormsson, skólapiltur frá Nýja
Islandi, sem stundar nám við Mani-
tobaháskólann ; og Einar Ólafsson,
útbreiðslustjóri kyrkjufjelagsins.
Aðra messu flutti sjera R. Pjeturs-
son á venjulegum tfma að kveldinu,
og fyrirlestra fluttu þessir menn
meðan þingið stóð yfir : sjera Stef-
án Sigfússon, sjera M. J, Skafta-
son, og sjera J. P. Sólmundsson.
Ákveðið var, að prenta þessa
fyrirlestra, og voru þessir menn
kjörnír í nefnd til þess, að hafa
framkyæmdir f því efni: S. B.
Brynjólfsson, Jóhannes Sigurðsson,
sjera J, P. Sólmundsson, sjéra R.
Pjetursson, og Albert E. Kristj-
ánsson,
Eftir þingið kom Mr. Hawley
snöggvast hingað niður að Gimli.
Hann var í samfylgd með hr. B.
B. Olson hingað, en hr. Jóhannes
Sigurðsson varð honum samferða
upp eftir aftur.
Það er gleðiefni fyrir Ný-íslend-
inga, að þau fjögur ungmenni, sem
gengu undir kennarapróf eftir að
hafa lokið námi sínu á Gimliskólan-
um, stóðust öll prófið. Það er á-
nægjulegt fyrir gjaldendur sveitar-
innar, gem að nokkru leyti stand-
ast straum af hinní svo nefndu
millibilsdeild (Intermediate De-
partment, á milli Public Depart-
ment og Collegiate Department),
— að sú deild kemur þeim að til-
ætluðum notum, sem færa sjer
hana í nyt. Það er einnig mcira
én lftill hciður fyrir yfirmann skól-
ans, Hjört Leo, að ekkert kennara-
efni skuli ennþá hafa „mislukkast“
undir hans hendi.
Andrjes Þorsteinn Anderson
(sonur Árna Andrjessonar) frá
Poplar Park tók annars stigs próf
(Second Class).
Anna Sigrfður Jónsdóttir (Pjct-
urssonar) frá Gimli; Steinunn Jón-
asardóttir (Stefánssonar) frá Gimli,
Og Guðmundur Óskar Einarsson
(Einarssonar) frá Geysir tóku
þriðja stigs próf (Third Class).
Ennfremur stóðust þau Lárus
Finney frá Winnipeg og Jónasína
Jónasardóttir frá Gimli hið fyrir-
skipaða inngöngupróf úr barna-
skóladeildinni inn f œðri skóla
deildina.
Empire.
Þetta er mynd af Empire-
skilvindunni, scm
GUNNAR SVEINSSON
hefir nú til sölu. Um hana þarf
ekkert að fjölyrða. Hún mælir
bezt með sjer sjálf.
S u n 11 u d a g i n n
hinn 16. þ. m. verður messað í
skólahúsinu hjcr á Gimli, kl. 2 e. h.
J. P. SóLMUNDSSON.
jjRlTDŒMING cða gagnrýni,
sem sumír kalla, skaðar engan
mann,“ sagði Gladstone, ogþað er
óefað sannleiki að þvf er snertir
þann mann er fyrir útásctningunni
vcrður, cn hinn, scm setur út á
gjörðir annara, hefir óft orðið fyrir
ýmsu óþægilegu í orðum og at-
höfnum, þegar hann hefir verið svo
heppinn, eða óheppinn, að segja
tilfinnanlegan sannleika um ein-
hvern.
>♦>♦>»»♦»»
! B. B. OLSON, I
2 SAMNINGARITARI {
i •
3 og j
• INNKöLLUNARMAðUR. •
______________ •
♦ GIMLI, MANITOBA. |
>»MMM 0»>
3koði maður hina praktisku hlið
gróðurneyzlu spursmálsins, sjer-
maður að fullir sjö tfundu hlutar
mannkynsins neyta aldrei kjfits.
í Austur-Indíalöndunum, Kína og
Japancruum 400 milljónir manna,
sem ckki brúka kjöt til matar, og
eru samt sem áður röskar og frísk-
ar. í Norðurálfu eru bœndurnir á
Rússlandi, landbúarnir á Corsiku
og Hálendingarnir f Skotlandi,
gróðurneyzluþjóðflokkar, ásamt
mörgum fleirum, og mun engum
dctta í hug að neita þvf, að þcir
sjeu með þrekmestu og úthalds-
beztu mönnum.
TVÆR KERLINGAR voru
samferða í sama járnbrautarvagni,
Önnur vildi hafa giuggann opinn
en hin vildi hafa hann lokaðann.
Út úr þessu rifust þær svo um
munaði.
Loks kölluðu þær á umsjónar-
manninn.
„Lokaðu gluggatium, annars fæ j
jeg tæringu og dey,“ sagði önnur.
„Láttu gluggann vera opinn,
annars fæ jeg niðurfallssýki og
dey,“ sagði hin.
Umsjónarmaðuriun vissi ekki
hvað hann átti til bragðs að taka,
en þá kom roskinn bóndi til hans
og sagði:
„Láttu gluggann vera opinn
Iitla stund, þá deyr önnur, lokaðu
honum svo og þá deyr hin, og við
fáum meiri frið og betra næði hjer
á eftir“.